Morgunblaðið - 29.09.1991, Page 8
8 €.
GENERAL ELECTRIC
S I L I K 0 N
GE Sllpruf silikon er einþátta
sýrulaust þéttiefni til notkunar
við byggingaframkvæmdir,
glerjun og fleira.
Þolir vel veðrun, útf jólubláa
geisla og hitabreytingar
Togþol +/- 50 %
FÆST í FLESTUM
BYGGINGAVÖRUVERSLUNUM
GE SILIKON, ÞÉTTING TIL
FRAMBÚÐAR
I —1
MORGUNBLAÐIÐ GLER OG GLUGGAIt^UíMmÁGUR ^ SEPTE'MBER 1991
Börkur hf. á Akureyri:
Betrí meðferð og meiri ending
glugga sem settir eru í eltirá
l \
TRÉSMIÐJAN Börkur hf. á Akureyri er eini glugga- og hurða-
framleiðandinn á Akureyri og selur framleiðslu sína í bæinn,
um Norðurland og reyndar nú orðið að mestu leyti til Suðvestur-
hornsins. Börkur hefur aðsetur í 510 fermetra eigin húsnæði
við Frostagötu „úti í Þorpi“ eins og þeir segja Akureyringar.
Þar starfa 8 manns frá 7.30 að morgni til 5 síðdegis við smíði
hurða og þó í meira mæli glugga. Alexander Benediktsson fram-
kvæmdastjóri og Ingimar Karlsson verkstjóri fræða blaðamann
Mbl. um starfsemina en þeir eru eigendur ásamt Snorra Bergs-
syni, Hilmari Baldvinssyni og Guðmundi Óskari Guðmundssyni.
Yið keyptum Börk í árslok
1985 en fyrirtækið hafði
starfað allt frá árinu 1973??
og var þá alhliða byggingafyrir-
tæki. Síðar var farið út í meiri sér-
hæfingu óg þegar við tókum við
því var glugga- og hurðasmíðin
aðalverkefni þess.
Nóg að gera
Þeir félagar segja verkefni næg
um þessar mundir og svo hafi verið
allt árið og þeir hafi jafnvel þurft
að neita verkefnum. Mismikið er
þó að gera eftir árstímum, minnst
fyrstu mánuði ársins en mest á
sumrin og fram undir áramót. -Af-
greiðslufrestur núna er nærri tveir
mánuðir og hefur eiginlega ekki
verið mikið styttri en mánuður allt
árið. Meðan svo er sofum við róleg-
ir en við færum að ókyrrast ef við
sæjum ekki fram á verkéfni lengur
en viku fram í tímann. Veltuaukn-
ingin fyrstu átta mánuði ársins
miðað við sama tíma og í fyrra er
vel yfir 30%.
Sem þýðir ekki síst aukið magn
en ekki bara verðlagshækkun?
-Já, þetta er að miklu leyti magn-
aukning og því hefur okkur tekist
að ná með ýmislegri hagræðingu
og örlítið lengri vinnutíma. Annars
þýðir ekki að reka svona fyrirtæki
á yfirvinnu. Samkeppnin er slík að
þau bera ekki kostnað við nætur-
vinnu og þá sjaldan að við erum
orðnir eftir á og þurfum að vinna
aukavinnu til að standa áætlun tök-
um við eigendurnir skorpu og vinn-
um það á dagvinnutíma.
Vélakaup í athugun
Um þessar mundir er verið að
kanna kaup á nýrri vél til glugga-
framleiðslunnar. Erþað m.a. í fram-
haldi af úttekt sem Iðnþróunarfélag
Eyjafjarðar og endurskoðendur
voru fengin til að gera á fyrirtæk-
inu þar sem athugaður var vélakost-
ur, skipulag og framtíðarstefna
þess. -Þetta er eiginlega alhliða
gluggaframleiðsluvél sem við sáum
Þorsteinn Benjamínsson hjá Trésmiöjunni Borg:
Ekki spuming um hvort aðferðin
breiðist út heldur hvenær
AÐ MÍNU viti er þetta ekki spurning um hvort aðferðin
breiðist út heldur hvenær og það gerist aðeins með hugarf-
arsbreytingu hjá uppsláttaraðilum og öðrum sem standa
fyrir byggingum, segir Þorsteinn Benjamínsson hjá Tré-
smiðjunni Borg í Borgarnesi.
*
tta manns starfa þar við
glugga- og hurðafram-
leiðslu en 25 manns í
allt hjá fyrirtækinu sem annast
alhliða byggingastarfsemi.
Framleiðslan er seld á höfuð-
borgarsvæðinu og Reykjanesi
og segir Þorsteinn að markaðs-
svæðið hafi náð frá Breiðdalsvík
til ísafjarðar.
Ég held að um leið og farið
verður að kynna þessa nýju að-
ferð sjái menn strax að það er
iangtum betra að setja glugga-
na í eftirá og þá er ég viss um
að menn vilja taka sig á og
koma þessum breytingum í
gagnið almennt í bygginga-
starfsemi, segir Þorsteinn Benj-
amínsson ennfremur.
Trésmiðjan Borg hefur verið
þátttakandi í verkefninu um
fullbúna glugga frá upph^ifi og
hefur farið fram ákveðin endur-
skipulagning hjá fyrirtækinu í
því sambandi.
Við keyptum vél til að gagn-
veija timbrið, það er nú fúavar-
ið undir þrýstingi og rakatæki
því við verðum að halda ákveðnu
rakastigi hér innanhúss til að
efnismeðferðin verði eins og
best verður á kosið. Við kaupum
efnið með ákveðnum gæða-
merkjum og fyrir afhendingu
er athugað að rakastigið sé rétt.
Efnismeðferðin verður öll betri
með þessu móti.
Alls eru þessar fjárfestingar
okkar upp á rúmar tvær milljón-
ir króna. Jafnframt hefur mann-
skapurinn verið þjálfaður og
mönnum kennt að tileinka sér
ný vinnubrögð og ég er þeirrar
skoðunar að við eigum að gera
sem mest af því í byggingariðn-
aði okkar að fullvinna hlutina
inni á verkstæðisgólfi og það á
sérstaklega við um gluggana.