Morgunblaðið - 12.10.1991, Síða 6

Morgunblaðið - 12.10.1991, Síða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991 Bókaútgáfa, bæk- ur og gagnrýni eftir Kjartan Árnason Bamið var spurt: Hvað gerist nú á jólunum? Og það svaraði: Þá fæddist jólabókin. Sætir þetta svar nokkurri furðu? Þegar gult ljós jól- anna er orðið að skræpóttri, flökt- andi auglýsingu? Hún hrópar til manns: „djörf og hispurslaus bók!” — „raunsönri frásögn!” „bók sem lætur engan ósnortinn!” Og rétt áður en jólin bresta á snýst allt um bækur; setningin „út er komin hjá bókaútgáfunni Z bókin Q” verður algengasta setning blaðanna, viðtöl birtast við höfunda og aðstandend- ur bóka, sjónvarpið rámar meirað- segja í að til séu bókmenntir í land- inu — en umfram allt: auglýsingar og aftur auglýsingar. En það verður þó hægt að opna dagblaðið sitt í þeirri bjargföstu trú að líka í dag verði þar fjallað um bækur, jafnvel bókmenntir. Leikar æsast því nær sem dregur jólum, tívolíið kemst í fullan gang, hringekjan geysist hring eftir hring, rússíbaninn hendist niður snar- brattar gervibrekkur undir ópum og ýlum farþeganna, það vantar ekkert nema kall með lírukassa og apa til að fullkomna gervið. Tuttug- asta og ijórða desember heyrist ofurlítið „púff” og allt er búið. Eft- ir það er almennri umræðu um bækur og bókmenntir að heita má lokið í landinu þartil líður að næstu jólum. Bókmenntagagnrýnendur eru einsog útspýtt hundskinn eftir vert- íðina og orka ekki að opna bók fyrren í apríl — sem ekki kemur að sök því bókaútgáfa liggur nær- fellt niðri langt frameftir ári. Al- menningur er að borga niður jóla- vixlana og kaupir ekki bækur, út- gefendur vita að ekkert þýðir að gefa út bækur sem enginn hefur efni á að kaupa — hringurinn lok- ast og við hjökkum í sama farinu ár eftir ár og áratug eftir áratug. Ef gagnrýnendur eru svona lúnir eftir vertíðina, væri þá ekki ráð að ijölga þeini? Jú það væri ráð. En það hefur þó harla lítið uppá sig ef lunginn úr jólabókaflóðinu hvolf- ist yfir síðustu þijár til fimm vikum- ar fyrir jól. Hvað eiga 100 gagnrýn- endur að gera þangað til? Æfa lest- ur? Bókaútgáfa og gagnrýni í fyrra var aðeins eitt forlag sem hafði áhuga á að koma bókum sín- um nógu tímanlega út til að vænt- anlegir kaupendur og áhugamenn um bókmenntir hefðu tíma og næði til að átta sig á hvaða bækur og hverskonar þarna væru á ferð. Þetta forlag var búið að koma sín- um bókum á markað um 1. nóvem- ber og famaðist vel. Önnur forlög voru að slíta út bækur allt framund- ir 20. desember. Og auðvitað átti að ijalla um allar þessar bækur í blöðunum. Enda sáu lesendur Morgunblaðsins afleiðingamar um miðjan desembermánuð á síðasta ári: 10-15 bókagreinar á dag og sjálfsagt nær 20 þegar fastar dró að jólum. Gaman, gaman! En hver kemst yfir að lesa þetta? Hver hef- ur áhuga á bókmenntaumræðu sem er einsog hrærivél í súmm ijóma: eintómar slettur uppum alla veggi en aldrei þeytist ijóminn? Raunar em ýkjur að kalla svona vinnubrögð bókmenntaumræðu. Bókaumfjöllun sem skrifuð er í spreng eftir snöggan lestur í gegn- um bók verður seint að innleggi í umræðu, jafnvel á mörkunum að hana megi kalla gagnrýni. Þar fyr- ir utan er slíkur æðibunugangur hrein móðgun við höfundinn. Um annað en umsögn verður því vart að ræða, heldur augnabliksskoðun gagnrýnandans. Því hlýtur gagnrýnandi að spyija sig: hveiju eða hveijum þjónarþetta verklag? Bókmenntunum, höfund- unum, lesendum, gagmýnandan- um? Svarið er einfaldlega: nei, hér á íslenski óhemjugangurinn ekki við. Hann mun þvert á móti ganga af bókmenntaumfjöllun og - um- ræðu í dagblöðum dauðri, skilur höfunda og lesendur eftir jafn nær — og gagnrýnandinn, hver em hans býti? Hann kann auðvitað að hafa lesið góða bók en hann verður óhjá- kvæmilega „faglega vannærður” af því að vinna undir slíku álagi. Eftir stendur þá aðeins eitt: bóka- SINFÓNÍUHUÓMSVEITAR ÍSLANDS ER HAFIN í vetur verður boðið upp á þrjár tónleikaraðir fyrir áskrifendur, rauða, gula og græn, og hefur hver röð sína áherslu. Við sögu koma frábærir stjórnendur, einleikarar og einsöngvarar og flutt verða fjöl breytt verk nýrra og gamalla tónbókmennta. Hljómsveitarstjórar Petri Sakari MichelTabachnik Osmo Vánská Jacques Mercier Petri Sakari Hilary Davan Wetton James Loughran PállP. Pálsson Daniel bwitt * Siegfried Köhler Petri Sakari Örn Óskarsson Einleikarar og einsongvarar Sigrún Eðváldsdóttir Truls Mörk Tzimon Barto Marita Viitasalo Kristinn Sigmundsson Maurice Bourgue Bernharður Wilkonson Monika Abendroth Sólrún Bragadóttir ElsaWaage Guðbjöm Guðbjörnsson Viðar Gunnarsson Guðný Guðmundsdóttir Sigurður 1. Snorrason Jónas Sen Opera bbony Claudia Dallinger Márta Fábián Peter Maté Tónskáld Áskell Másson, Brahms, Dvorák, Proklofieff, Strauss, Bartók, Milhaud, Debussy, Berlioz, Wagner, Mahler, Tsjajkovskíj, Madetoja, Martinu, Hummel og Stravinskij Gershwin, Joplin, Moore, Kodaly, Enescu, Tsjajkovskij, Dvorák, Borodin o.fl. Mozart, Jón Leifs, Haydn, Beethoven, Elgar, Speight, Sibelius, von Einem, Páll P. Pálsson, Mendelssohn, Gunnar Þórðarson, Rachmaninoff, Mahler, Madetoja, o.fl. Sala áskriftarskírteina ferfram á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitarinnar í Háskólabíói daglega frá kl. 9-17, sími 622255. Þarliggurjafnframt frammi ítarleg efnisskrá vetrarins. Verið velkomin í hóp áskrifenda og njótið góðrar tónlistar með okkur í vetur. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS 0IIMEÐ! umsögn við þessar kringumstæður er aðeins enn ein auglýsingin. Þetta er nöpur fullyrðing — sem við ríkj- andi aðstæður er torvelt að neita. Em gagmýnendur þá ómeðvitaðir „leigupennar” bókaútgáfunnar í landinu? Ráð eða óráð? Það ofurkapp sem lagt er á að moka bókum á markað aðeins ör- fáum vikum fyrir mestu verslunar- messu ársins er auðvitað bók- menntalegt óráð og sýnir að þjóðin ber enga virðingu fyrir bókum nema sem verslunarvöra; og það sætir furðu að fmmkvæði að þessu við- horfi skuli komið frá útgefendum, sem jafnvel eiga það til að geyma bækur sem em tilbúnar í sept./okt. framað „aðalslagnum” til að þær verði „betri söluvara”. Það er hins- vegar leitt að allir hinir skuli dansa með, henda sér á hringekjuna og grípa í fálmkenndum æsingi um næsta hross eða gíraffa og láta snúa sér hring eftir hring. Og allt þetta undir því misskilda yfirskini að við séum bókmennta- þjóð sem sé að þjóna bókmenntum sínum með þessum berserksgangi. Á slíku hoppi og híi og tralalala græðir enginn neitt nema peninga. En stendur ekki einmitt í bókunum sem verið er að þeyta út að auður- inn sé valtastur vina? Minna kapp - meiri forsjá Bókmenntagagnrýni í dagblöð- um má ekki deyja út í merkingunni gagnrýni og snúast uppí vinsamleg- ar umsagnir, endursagnir, kynn- ingu eða auglýsingar á bókum. Með því að hefja jólabókaútgáfu fyrr geta útgefendur stuðlað að vand- aðri og réttlátari umijöllun um bækur sínar enda fái gagmýnendur þá þann tíma sem .þarf til að átta sig sæmilega á bók. Fleiri gagnrýn- endur á sriSemm hvers blaðs gerðu aðstæður jafnvel enn ákjósanlegri. Hitt er auðvitað líka möguleiki að fjalla ekki um bækur sem berast blöðunum eftir t.d. 1. desember fyrr en í janúar og febrúar og dreifa þannig bókaumræðunni á fleiri Grænland í máli og myndum Nú stendur yfír Grænlandsmánuður í Norræna hús- inu. Um er að ræða árangur samstarfs milli Nor- ræna hússins í Reykjavík og Norrænu stofnunarinn- ar á Grænlandi. Markmiðið er að gefa fjölbreytta mynd af grænlensku þjóðfélagi nútímans með sér- stakri áherslu á mikilvægi lista á Grænlandi i dag. Dagskráin er fjölbreytt í myndum, tali og tónum; leiklist, myndlist, tónlist og grænlenskar bókmennt- ir þar sem flestir er áhuga hafa á þessum listgrein- um ættu að fínna eitthvað við sitt hæfí. GRÆN- LENSK MENNING í NORRÆNA HÚSINU agskráin' er bundin við helgam- ar fram í nóvemberbyijun en myndlistarsýningar standa út mánuðinn og em opnar allar daga. Af dagskrárliðum núna um helgina má benda á að í kvöld kl. 21 sýnir Silamiut leikhúsið tvær leik- sýningar; Tupilak og Uaajeemeq. Þetta er leikur með grímum og lát- bragði en Uaajeemeq merkir einmitt grímu-sjónleikur. Mannfræðingar álíta að slíkir leikir hafi komið fram fyrir 3000 ámm , séu upprannir í Alaska og hafi verið iðkapðir meða inuitta í Norður-kanada og á Græn- landi. Nú er Uaajeemeq aðeins leik- inn á Austur-Grænlandi. Þijú megin- atriði Uaajeemeq em: 1. Skrípalæti. skemmtiatriði þar sem menn gretta sig og gera sig eins ljóta og þeir mögulega geta, og gera grín að sjálf- um sér og öðmm. ”. helgisiðri fijó- seminnar þar sem fók skiptir um kynhlutverk, karlmenn leika koknur og öfugt. 3. kenna bömum eðli hræðslunnar þannig að þau kynnist sönnum ótta og geti því brugðist við án óðagorts þegar hættu ber að höndum. Tupilak er nútímalegur dans án talaðs máls. Hið hefðbundna græn- lenska grímuform og trommudans er hluti af sýningunni. Tupilak merk- ir óheillavera sem gripið vár til við iðkun svartagaldurs eins og greinir frá í grænlenskum sögnum. Tupilak var búin til af galdramönnum og konum í þeim eina tilgangi að drepa. Ýmsar ástæður gátu verið fyrir því einsog öfund, hatur, afbrýðisemi, hefnd eða af hreinni mannvonsku. Sagnimar greina frá því að ef fómar- lambið hefur sterka hjálparanda eða kraft snýr Tupilak aftur til skapar síns, drepur hann og eyðir þar með sjálfum sér. Sýningin Tupilak segir frá vemnni Tupilak, atferli hennar og baráttu við fómarlambið. I sölum Norræna hússins allan mánuðinn er uppi sýningin Myndlist frá Grænlandi safni Astri Heilman. Heilman lést í sumar en fram til hins síðasta var hún upptekin af að koma upp þessari sýningu með sýnishom- um af þeim listaverkum sem hún safnaði á 30 árum. Á morgun klukkan 16 heldur Sim- on Lövström fyrirlestur um græn-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.