Morgunblaðið - 12.10.1991, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991
B 1
vikur en þessar venjulegu 3-5 fyrir
jól og tengja hana með þeim
hætti íslensku bókaverðlaununum.
En reka þá útgefendur hnífinn í
kúna með því að hætta að auglýsa
í blöðunum? Og við hjökkum áfram
í sama farinu?
*
Kapítuli útaf fyrir sig er svo hitt
að bókmenntaumfjöllun í dagblöð-
um hefur alltof mikið einskorðast
við umsagnir um nýjar bækur en
öllu minna verið um annað efni
bókmenntalegrar ættar. Reyndar
hafa Morgunblaðið og Þjóðviljinn
sýnt mjög verðuga tilburði til að
fjalla um bókmenntir eða efni tengt
þeim á breiðari grundvelli. Höfuð
og herðar yfir aðra fjölmiðla ber
þó rás eitt Ríkisútvarpsins sem flyt-
ur hlustendum vandaða dagskrá um
bókmenntalegt efni meira og minna
allan ársins hring. Þarna gætu dag-
blöð jafnvel fundið fyrirmyndir eða
„módel” að umfjöllun sinni og um-
búnaði um þetta efni, að gerðri
þeirri aðlögun sem prentmiðill
krefst.
lenskt leikhús og klukkan 17 endur-
tekur Silamut leikhúsið sýningu sína.
Af öðrum dagskrárliðum næstu helg-
ar má nefna að laugardaginn 19. okt
segja Benedkita og Guðmundur Þor-
steinsson frá lífi og starfi á Græn-
landi og Benedikta segir frá stjórn-
málum á Grænlandi. Sunnudaginn
20. heldur Bodil Kaaiund listmálari
fyrirlestur með litskyggnum um
grænlenska myndlist og Christian
Berthelsen skólastjóri heldur fyrir-
lestur um bókmenntir Grænlendinga.
Sunnudaginn 27. okt. verða sýnd-
ar grænlenskar kvikmyndir og laug-
ardaginn 2. nóvember verða haldnir
grænlenskir rokktónleikar í Norræna
húsinu þar sem fram kemur rokk-
hljómsveit Ole Kristiansens. Sunnu-
daginn 3. nóv. heldur Karsten Somm-
er fyrirlestur um grænlenska sam-
tímatónlist og leikur tóndæmi og um
kvöldið lýkur Grænlandsmánuði með
rokktónleikum.
Jólabókafréttir
Þ
á koma út Almanak hins íslenska þjóðvina-
félags 1992 með Árbók íslands, menning-
ISAFOLDARPRENTSMIÐJA:
í Menningarblaðinu í liðinni viku
birtist fyrri hluti frétta af bóka-
útgáfu fyrir jólin. Hér á eftir fer
síðari lilutinn en sá fyrirfari skal
fylgja að enn hefur ekki verið tekin
endanleg ákvörðun um útgáfu allra
jólabóka.
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ:
Tolli og Einar
Már saman í bók
Almenna bókafélagið gefur út 20 til
30 bækur. Meðal þeirra er bók sem list-
málarinn Tolli og Einar Már Guðmunds-
son rithöfundur hafa unnið í sameiningu.
I henni eru myndir eftir Tolla og ljóð
eftir Einar Má.
á má nefna textasafn Megasar frá upp-
hafi, ferðabók um mannlíf í Austur-Evr-
ópu eftir Öddu Steinu Björnsdóttur og Þóri
Guðmundsson, ljósmyndabók með myndum
frá Reykjavík og Þingvöllum á síðustu öld
gefin út af listfræðingnum Frank Ponzi og
endurútgáfu af íslensku orðtakasafni eftir
Halldór Halldórsson. Sú bók kom fyrst út
árið 1966.
Einnig má nefna tvær bækur í nýjum
bókaflokki sem nefnist Leyndardómar hins
óþekkta og gefin er út í samvinnu við Time
Life útgáfufyrirtæki. Heitir önnur bókin
Sálfarir en hin Duldir heimar. Gefnar verða
út tvær bamabækur eftir Einar Má Guð-
mundsson og bækur um Snuðru og Tuðru
eftir Iðunni Steinsdóttur.
BJALLAN:
Risakortabókin
Risakortabókin kemur út hjá bókaút-
gáfunni Bjöllunni.
/
Ibókinni eru kort yfir álfur, dýr og gróður.
Hún er ætluð börnum á aldrinum 5-10
ára; Þýðandi er Óskar Ingimarsson.
Óvíst er um fleiri bækur frá útgáfunni.
BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR:
Ættbók og saga
íslenskahestsins
Útgáfubækur Bókaforlags Odds
Björnssonar eru 5.
Fyrir fullorðna verða gefnar út 4 bækur.
Þær eru Ættbók og saga íslenska hests-
ins VII eftir Gunnar Bjarnason, Glettni örlag-
anna eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur, Með
eitur í blóðinu eftir Guðjón Sveinsson og
Samsærið eftir Sidney Sheldon.
Yngsta kynslóðinn gleymist ekki því út-
gáfan gefur út enn eina bókina um Depil.
Nefnist hún Depill fer í lystigarð.
BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS:
Sólarljóð með
skýringum
ÞRETTÁN rit koma út hjá bókaútgáfu
Menningarsjóðs fyrir jólin. Meðal þeirra
er Islam - saga pólitískra trúarbragða
eftir Jón Orm Haildórsson, íslensk leik-
list, fyrra bindi, eftir Svein Einarsson og
Togaraútgerð á íslandi 1945-1970 eftir
Þorleif Óskarsson sem gefin er út í sam-
vinnu við Sagnfræðistofnun Háskólans.
Menningarsjóður gefur út Sólarljóð með
skýringum í uinsjón Njarðar P. Njarðvík
í samvinnu við Bókmenntastofnun Há-
skólans.
artímaritið Andvari, Jón Sigurðsson og geir-
ungar eftir dr. Lúðvik Kristjánsson sem þeg-
ar er komin á markaðinn, Manngerðir hellar
á íslandi eftir Árna Hjartarson, Guðmund
J. Guðmundsson og Hallgerði Gísladóttur, í
refsinýlendunni og fleiri sögur eftir Franz
Kafka í þýðingu Ástráðs Eysteinssonar og
Eysteins Þorvaldssonar, Bréf til Jóns Sig-
urðssonar forseta (3. bindi með nafnaskrá
yfir öll bindin) í umsjón Jóhannesar Halldórs-
sonar, forseta Þjóðvinafélagsins, og Raf-
tækniorðasafn sem tekið er saman af orða-
nefnd rafmagnsverkfræðinga. 49 rit Studia
Islandica um Þorleif rebb eftir Andrew Wawn
gefur Menningarsjóður út í samvinnu við
Bókmenntafræðistofnun Háskólans. Bókaút-
gáfan gefur út ljóðaþýðingar úr frönsku og
greinargerð um franskan skáldskap eftir Jón
Öskar. Nefnist ljóðabókin Undir Parísar-
himni.
FJÖLVI:
Skáldsaga eftir
Þorvarð Helgason
Fjölvaútgáfan gefur út á þriðja tug
bóka fyrir jólin. Meðal þeirra eru skáld-
sagan Flýtur brúða í flæðarmáli eftir
Þorvarð Helgason, ljóðabókin Vizku-
stykki eftir Sverri Stormsker, íslandsbók-
in á japönsku og skáldsagan Dansar við
úlfa eftir Michael Blake.
Af bókum eftir íslenska höfunda m'á nefna
ísland á 21. öld - Framtíðarsýn eftir
Trausta Valssson, Kafteinn ísland glímir við
Illuga eftir Kjartan Arnórsson, skáldsöguna
Hvenær kemur nýr dagur eftir Auði Ingvars
og æviminningar Karls Oluvs Bang sem
bera heitið Ég er felubarn - Hverra manna
ertu góurinn. Karl var stjúpsonur Sigvalda
Kaldalóns.
Einnig verða gefnar út fjölmargar þýðing-
ar. Má þar nefna skáldsögu Betty Mahmood
Aldrei, aldrei án dóttur minnar, Meista-
rasnóker eftir Jimmy White, Rajayoga -
Leið hugræktar, Búrfiskabókina um ræktun
skrautfiska, Madríd og merkisborgir Spánar
eftir Jónas Kristjánsson og Sálræna heilún.
Fjölvaljóðabækur eru fjórar. Þær eru Inn-
haf eftir Pjetur Hafstein Lárusson, Allt í
heimi eftir Þóru Jónsdóttur, Ber er hver...
eftir Jónas Friðgeir og Vizkustykki eftir
Sverrri Stormsker sem áður hefur verið
nefnd.
Fjórar bækur um ævintýri Prins Valíants
koma út'hjá Fjölva. Aðrar bækur fyrir börn
eru Dvergurinn í Sykurhúsinu, Dolli Dropi
í Egyptalandi, Tinna litla er þæg og góð og
Sköpun heimsins sem er jafnframt fyrsta
hreyfimyndabók Fjölva.
Övíst er hvort tvö fjölprent frá útgáfunni
koma út fyrir jólin. Þetta eru í kjölfar Ódys-
seifs eftir Tim Severin og I sveiflunni sem
fjallar um djasstónlist.
HRINGSKUGGAR:
Tvær ljóðaþýð-
ingar
Bókmenntafélagið Hringskuggar gef-
ur út tvær ljóðaþýðingar fyrir jólin.
Dimmur söngur úr sefi heitir önnur bókin.
í henni eru þýðingar Geirs Kristjánsson-
ar, sem er nýlátinn, á ljóðum Vladímir Maj-
akovski, Boris Pasternak, Marinu
Tsvétajeva, Garcia Lorca og Ezra Pound svo
einhver þeirra skálda sem eiga ljóð í bókinni
séu nefnd. Hin ljóðabókin er List og tár. í
henni eru þýðingar Jóns frá Pálmholti á ljóð-
um kúrdneska skáldsins Goran. Skáldið er
vel þekkt í heimalandi sínu. Það lést árið
1962.
Ur ríki
náttúrunnar
ísafoldarprentsmiðja mun gefa út að
minnsta kosti 4 bækur fyrir jólin. Ein
þeirra er Úr ríki náttúrunnar eftir Ara
Trausta Guðmundsson, veðurfræðing,
með ljóðum eftir Sigmund Erni Rúnars-
son, sjónvarpsmann og skáld.
Hinar bækurnar eru Stangveiðibókin eftir
Gunnar Bender og Guðmund Guðjónsson,
barnabók eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur og
Spádómar rætast-Evrópa Biblíunnar eftir
Gunnar Þorsteinsson.
Hugsanlegt er að útgáfan gefí út 2 til 3
bækur til viðbótar en ekki hefur verið tekin
endanleg ákvörðun um útgáfu þeirra.
UF OG SAGA:
Bók um Ladda
Bókaútgáfan Líf og saga gefur út 6
bækur fyrir jólin. Meðal þeirra má nefna
bók um Þórhall Sigurðsson (Ladda) eftir
Þráin Bertelsson. Sagt er frá leikarunum
og þeim persónum sem hann hefur skap-
að.
á er að nefna Trillukarla í ritsjórn Hjartar
Gíslasonar blaðamanns. Fjallað er um
trilluútgerð og trillukarla í bókinni. Einnig
kemur út hjá útgáfunni 5 binda verk um
Tröllatunguættina í umsjón ættfræðistofu
Þorsteins' Jónssonar.
Aðrar bækur frá Lífi og sögu eru Meira
skólaskop, 3. bindi, eftir Guðjón Inga Eiríks-
son og Jón Sigurjónsson, Spurningakeppnin
þín eftir ýmsa og Ráðgátan eftir Susanne
Cooper í þýðingu Ingólfs Gíslasonar. í bók-
inni segir frá krökkum sem lenda í ævintýr-
um er tengjast þekktum þjóðsagnaminnum.
SKUGGSJÁ:
Gamansemi
Snorra Sturlu-
sonar
Útgáfubækur Skuggsjár eru fjórtán,
þar af eru 6 þýðingar. Meðal bóka má
nefna Gamansemi Snorra Sturlusonar
eftir Finnboga Guðmundsson. Myndir
teikna Aðalbjörg Þórðardóttir og Gunnar
Eyþórsson.
Af öðrum bókum má nefna smásagnasafnið
Sögur úr týnda landinu eftir Ásgeir Jak-
obsson, Ást, morð og dulrænir hæfileikar
eftir Pétur Eggerts, fimmta bindi Víkings-
lækjarættarinnar eftir Pétur Zophoníasson,
afmælisdagabók með vísum, Torfi Jónsson,
Sitthvað i kringum presta eftir Auðun Braga
Sveinsson og Hundrað Hafnfirðinga III með
myndum eftir Gunnar Rúnar Ólafsson og
vísum eftir Magnús Jónsson.
Þá kemur út bókin íslenskir fossar eftir
Jón Kr. Gunnarsson. í bókinni eru litmyndir
af um 250 íslenskum fossum. Yfirlitskort
sýna staðsetningu fossanna og fjallað er um
hvem og einn þeirra, m.a. gi'eint frá göngu-
leiðum að fossunum og vitnað í þjóðsögur
og sagnir sem tengjast fossunum. Texti er
bæði á íslensku og ensku. Enskan texta
gerði Lárus Vilhjálmsson.
Fimm þýddar ástarsögur koma út hjá
Skuggsjá. Auk þess kemur út þýðing Sverr-
is Pálssonar á bók M. Scott Peck, Leiðinni
til andlegs þroska.