Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 1
Fuo/rrn
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
plirfgajiilbla&ilí
1991
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTOBER
BLAÐ
B
KNATTSPYRNA
Landsliðinu boðið
á mót á Möltu
M'
Islenska landsliðinu í knattspyrnu hefur verið
■ boðið að taka þátt í móti á Möltu í febrúar nk.
og hefur boðinu verið tekið. Eins hefur þeim verið
boðið til ísraels snemma næsta árs og er ákveðið
að fara, en tímasetningin hefur ekki enn verið
ákveðin. Þó er sennilegt að tveir leikir verði spilað-
ir í apríl.
Eins og Morgunblaðið greindi frá fyrir helgi
stendur til að fara á fjögurra liða mót í Túnis í
' bytjun nóvember, en það hefur ekki fengist stað-
fest frá Túnis.
Asgeir Elíasson landsliðsþjálfari sagði við Morg-
unblaðið að allir þessir leikir væru kærkomnir. „Ef
af mótinp verður í Túnis er það mjög gott vega-
nesti ásamt leiknum gegn Kýpur vegna leiksins
við Frakka í Evrópukeppninni.”
Var Þorvaldur ólög-
legur með Fram?
MILLIÞINGANEFND, sem var
skipuð á síðasta ársþingi KSÍ
til þess að fylgjast með leik-
mannasamningum og félaga-
skiptum, sendi stjórn KSÍ bréf
um helgina, þar sem óskað var
eftir því að stjórnin kannaði
allt í sambandi við félagskipti
Þorvaldar Örlygssonar úr Nott-
ingham Forest í Fram fyrir ný-
liðið keppnistímabil. Nefndin
vill fá úr því skorið hvort lög-
lega hafi verið staðið að málum
í Ijósi þess að Þorvaldur er far-
inn aftur til enska liðsins og lék
reyndar með varaliði þess á
laugardag.
Þorvaldur skipti yfír í Fram í
maí og byrjaði að leika með
liðinu mánuði síðar. Þá var sagt að
hann væri laus allra
mála hjá Notting-
ham Forest og gerði
hann samning við
Fram til og -með 2.
október sl. Þann dag lék Fram
seinni leikinn í 1. umferð Evrópu-
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
frá Kýpur
keppni meistaraliða, en Þorvaldur
tók sér nokkurra daga frí áður en
hann hélt til Nottingham. Nefndin
vill að KSÍ fái staðfestingu frá
enska knattspymusambandinu og
Nottingham Forest um stöðu Þor-
valdar fyrir félagaskiptin, stöðu
hans í sumar og stöðu hans eftir
2. október.
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, sagði við Morgunblaðið á Kýp-
ur í gær að stjómin myndi taka á
þessu máli og leita eftir umbeðnum
staðfestingum.
Hörður á leigusamn-
ing hjá Merida?
Hörður Magnússon hefur
gengið frá sex mánaða
leigusamningi við spænska 2.
deildarliðið Merida og biður hann
nú aðeins eftir staðfestingu frá
félaginu. „Ef allt gengur upp mun
ég halda til Spánar fljótlega eftir
næstu helgi,” sagði Hörður við
Morgunblaðið.
Þórir Jónsson, formaður knatt-
spyrnudeildar FH, sagði að hann
ætti von á skeyti í sambandi
samninginn. Leigusamningurinn
gildir frá 20. októbertil 15. mars.
„Ef ég fer til Merida og kann
vel við mig hjá félaginu, getur svo
farið að ég myndi gera lengri
samning, eftir að leigusamningur-
inn rennur út. Mér finnst réttast
að vera ekki að binda mig lengi
fyrst um sinn. Ef ég fer til Spán-
ar á eftir að koma í ljós hvort ég
falli inn í myndina hjá Merida,”
sagði Hörður.
Þorvaldur Örlygsson í leik með Fram.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Þeir leika
gegn Tékkum
Islenska landsliðið í handknattleik
leikur gegn Tékkóslóvakíu í
Laugardalshöllinni í kvöld. Fjórtán
leikmenn leika leikinn og er líklegt
byrjunanarlið þannig: Guðmundur
Hrafnkelsson og Sigmar Þröstur
Óskarsson, markverðir. Aðrir leik-
menn: Konráð Olavson, Sigurður
Sveinsson, Björgvin Rúnarsson,
hornamenn. Birgir Sigurðsson og
Gústaf Bjarnason, línumenn. Úti-
spilarar: Sigurður Sveinsson, fyrir-
liði, Sigurður Bjarnason, Héðinn
Gilsson, Einar Sigurðsson, Patrekur
Jóhannesson, Óskar Ármannsson,
Gunnar Andrésson eða Júlíus Gunn-
arsson.
Sjá nánar
B / 4,5
Björgvin Rúnarsson er nýliði.
KORFUKNATTLEIKUR
Pétur Guðmundsson
komst ekki að
hjá Philadelphia
Pétur Guðmundsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, fékk ekki samn-
ing við NBA-liðið Philadelphia 76’ers, sem hann æfði með undanfar-
ið og leikur að öllum líkindum að nýju í CBA-deildinni í vetur — næstu
deild fyrir neðan — í þeirri von um að „sýna sig” og fá aftur tækifæri hjá
liði i NBA-deildinni.
Þegar fækkað var niður í 18 leikmenn í æfingabúðum Philadelphiu-liðs-
ins var Pétur enn inni í myndinni, en var síðan einn þriggja sem þurfti
að bíta í það súra epli að fara þegar fækkað var niður í fimmtán.
Félagið má ekki vera með nema tólf leikmenn á samningi, þeir eru
reyndar fjórtán í dag, þannig að það verður að selja tvo áður en keppnis-
tímabilið hefst.
EVRÓPUKNATTSPYRNAN: FYRSTA TAP SPÁNVERJA í SEVILLA í 69 ÁR / B2,3