Morgunblaðið - 02.11.1991, Page 7

Morgunblaðið - 02.11.1991, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991 B 7 Sæfarar shóganna í Mýlistasafnlnu MIKIL SAGA í LIFANDI EFNI Halldór Ásgeirsson hefur dregið að landi langt að komna ferða- langa. Sæfarar skóganna nefnist sýning hans í Nýlistasafninu og eru öll verkin unnin í eða úr reka- viði, samþjappað efni sem geym- ir mikla sögu ef drumbarnir mættu mæla og segja sína sögu. Þessi verk eru ólík því sem ég hef gert áður. Þetta er þrung- ið efni og samþjappað og í mínum huga er þetta eðlileg út- víkkun á sviði mínu sem mynd- listarmanns. Mér finnst gott að takast líkamlega á við efnið, nota aðallega öxi og sporjárn og ein- hvern veginn þjappar þetta hugs- uninni sem fer í verkið saman,” segir Halldór. Hann hefur farið langan veg sjálfur að rekaviðardrumbunum, frá málverkinu, í gegnum reyk- teikningar, að lúðum tijábolunum. „Þetta er mjög hollt fyrir mann, ég hef ekkert málað í tvö ár, hef verið í eins konar litabindindi en er þó alls ekki búinn að yfirgefa litinn eða teikninguna. Maður fer í misstóra hringi sem listamaður, tekur utan um fleiri atriði í hveij- um hring en þeir snúast um sama hlutinn, persónulega listsköpun og þroska manns.” Halldór sýnir á öllum þremur hæðum Nýlistasafnsins og áhorf- andinn gengur í gegnum ákveðna hugsun þar sem Halldór segir að í fyrsta salnum á neðstu hæðinni sé djúpið, þyngdin og myrkrið, síð- an er horfið uppávið þar sem í efsta salnum stefna verkin upp í bláinn, annars vegar með því að vera laus frá gólfinu eða beina sjónum áhorfandans til himins í ákaflega fallegu verki þar sem er ljós rekafura og efst á henni hvílir lifandi tré. Verkið heitir Áfram. „Lífið heldur áfram,” segir Hall- dór. Hann bætir því við að sýning- in sé að miklu leyti hugsuð út frá rýminu, „ég velti því fyrir mér hvernig verkin og rýmið spiluðu best saman og nota mér salina og þessar þijár hæðir til að segja ákveðinn hlut.” Kertaljós eru víða innan um og saman við verkin. „Þetta gefur sýningunni kannski dálítinn helgiblæ en ég er hrifinn af slíku og vil hafa dálítinn hátíðleika yfir henni. Kannski er þetta svolítil yfirlýsing um trú, ég veit það ekki.” Birtan eykst því sem ofar dregur væru líklega sannmæli um sýninguna þar sem verkin á neðstu hæð eru úr svörtum, brenndum viði en þó er ekki laust við ljóðræn- an tón þegar Halldór bendir á verk sitt Djúpið, þar sem eru holaðir stubbar fylltir dimmbláum lit. Hvar endar þessi litur? Það má hefja ímyndunaraflið á flug um þau regindjúp sem Sæfarar skóganna hafa flotið yfir á leið sinni til ís- landsstranda. „Sýningin endar á léttleika og bjartsýni, finnst mér, og gefur hún fyrirheit um að ég sé kominn á slóð sem ég muni halda áfram á. Halldór Ásgeirsson sýnir skúlptúra unna í rekavið í Nýlistasafninu þessa dagana. Þetta efni kallaði sterkt á mig og ég varð að prófa þetta. Ég byijaði hikandi, fór að vinna við einn drumb og varð að halda áfram. Mér finnst ekki vera neitt það efni sem ekki kemur mér við en þetta er engu að síður í fyrsta skipti sem ég helga mig einu efni algjörlega og er ekki með bland- aða tækni á sýn- ingu. Þetta er samt tilraun til að færa út mín land- amæri og kanna möguleika mína,” segir hann. Bætir svo við: „En þessi verk hafa mest fæðst í vinnunni sjálfri. Efnið er svo lifandi að hug- myndirnar kvikna við að handfjatla það. Áður vann ég mest út frá hug- myndum sem ég útfærði síðan en á þessari sýningu er aðeins eitt verk unnið með þeim hætti. Verkin eru hvert fyrir sig og í heild eins konar samþjappaðar grundvallarhug- myndir um lífið og listina. Hugmynd- ir sem alltaf hafa verið mér hug- leiknar en mér finnst ég aldrei hafa náð jafn sterkum tökum á þeim og nú í þess- ari sýningu.” Hann bætir við eftir umhugsun: „Það er auðvitað eðlilegt að manni fínnist það á hveijum tíma og þetta er hluti af þroska manns sem myndlistar- manns. Aldrei að vita hvað gerist næst.” Morgunblaðið/Einar Falur hs Hróðmar Sigurbjörnsson, Takem- itsu, Judith Weir. Miðvikudagur 13. nóvember: Norræna húsið, kl. 12.30. Háskólatónleikar. Gerðuberg kl.' 10-13 og 14-17. Geoffrey Parsons. Námskeið fyrir söngvara og píanó- leikara. Bústaðakirkja kl. 20.30: Auður Hafsteinsdóttir, fiðla. Krist- inn Örn Kristinsson, píanó. Verk e, César Franck, Grieg, Brahms, Tartini. Fimmtudaginn 14. nóvember: Gerðuberg kl. 10-13. Geoffrey Parsons. Námskeið fyrir söngv-. ara og píanóleikara. Iláskólabíó kl. 20.00. (Grænir) Sinfóníuhljómsveit íslands. Stj. Daniel Swift. Eins. Opera Ebony. Kór. Porgy og Bess e. Gershwin, Treemonisha e. Scott Joplin, Þætt- ir úr óperunni Frederick Douglass. Sunnudaginn 17. nóvember: Norræna húsið, kl. 17.00. Vísnasöngur. Jens & Dorthe (frá Danmörku). Hafnarborg kl. 20.00. Tríó Reykjavíkur. Sónötur og tríó eftir Beethoven. Miðvikudagur 20. nóvember: Norræna húsið, kl. 12.30. Háskólatónleikar. Norræna húsið, kl. 20.30. Nordica ensamblen leikur tónlist eftir norræn kventónskáld. Fimmtudaginn 21. nóvember: Háskólabió kl. 20.00. Sinfóníuhljómsveit Islands (Rauð- ir). Stj. Michel Tabachnik. Einl. Truls Mörk, selló. Coriolan forl. e. Beethoven, Sinfonia Concertante e. Prokofieff, Síðdegi skógarpúk- ans e. Debussy, Bolero e. Ravel. Föstudaginn 22. nóvember: Norræna húsið, kl. 20.30. Vísnasöngur. Jens & Dorthe (frá Danmörku). Tónlistarfélag Akraness. Safnaðarheimilið Vinaminni kl. 20.30. Dætur norðurljóssins. Nordica ens- amblen leikur tónlist eftir norræn kventónskáld. Sunnudaginn 24. nóvember: Bústaðakirkja kl. 20.30. Kammermúsikklúbburinn. Sigrún Eðvaldsdóttir og Zbigniew Dubik, fiðlur, Helga Þórarinsdóttir og Guðmundur Kristmundsson, viol- ur, Nora Kornblueh, selló, Óskar Ingólfsson. Kammerverk eftir W.A.Mozart. Akureyrarkirkja, kl. 17.00. Orgeltónleikar í tilefni af 30 af- mæli orgels kirkjunnar. Bjöm Steinar Sólbergsson. Verk Vierne, Vidor, Bach, Jón Nordal, Páll ísólfsson, César Franck. Þriðjudaginn 26. nóvember: Akureyrarkirkja, kl. 12.10. Orgeltónleikar í hádeginu. Björn Steinar Sólbergsson. Miðvikudagur 27. nóvember: Akureyrarkirkja, kl. 12.10. Orgeltónleikar í hádeginu. Björn Steinar Sólbergsson. Norræna húsið, kl. 12.30. Háskólatónleikar. íslenska óperan kl. 20.30. Yelda Kodalli, sópran. Murat Kod- alli, píanó. Fimmtudaginn 28. nóvember: Akureyrarkirkja, kl. 12.10. Orgeltónleikar í hádeginu. Björn Steinar Sólbergsson. Föstudaginn 29. nóvember: Akureyrarkirkja, kl. 12.10. Orgeltónleikar í hádeginu. Björn Steinar Sólbergsson. Laugardaginn 30. nóvember: Akureyrarkirkja, kl. 12.10. Orgeltónleikar í hádeginu. Björn Steinar Sólbergsson. Gerðuberg kl. 17.00. Ljóðatónleikar. Anna Júlíana Sveinsdóttir, mezzosópran, Jónas Ingimundarson, píanó. Spánskir söngvar frá 1450-1550 og ljóða- söngvar eftir Borodin, Strauss og Mahler. Akraneskirkja kl. 18.00. Orgeltónleikar. Jón Ólafur Sig- urðsson leikur verk eftir Buxte- hude, J.S.Bach og César Franck. Tónleikaskrá þessi er unnin á skrifstofu Samtaka um byggingu tónlistarhúss og byggist á upplýs- ingum sem berast í tæka tíð, bréf- lega eða í síma 29107. Auk þess sem skráin birtist hér, er henni einnig dreift víðar, m.a.t il annarra fjölmiðla og aðila sem starfa að ferðamálum. Tónlistardeild Ríkisútvarpsins hefur óskað eftir að fram komi, að lesið er beint upp úr þessari skrá í útvarpsþáttum deildarinnar. Skráin er birt með fyrirvara um breytingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.