Morgunblaðið - 03.12.1991, Blaðsíða 1
fNwtttmftfafrifc
adidas
...annað ekki
KNATTSPYRNA
Marteinn
til Leifturs
| arteinn Geirsson fer til Ólafs-
fjarðar í dag til að ganga
frá þjálfarasamningi við Leifturs-
menn, sem leika í 2. deild. „Það er
mikill hugur í mönnum á Ólafsfirði
og mér líst vel á það sem Leifturs-
menn eru að gera. Það verður ör-
ugglega gaman að vinna með
þeim,” sagði Marteinn í stuttu
spjalli við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Marteinn mun byija á því að
stjórna æfingum þeirra leikmanna
sem eru í skólum á Reykjavíkur-
svæðinu. „Það eru tólf leikmenn hér
fyrir sunnan. Við höldum síðan til
Ölafsfjarðar í maí.”
Leiftur hefur fengið tvo nýja leik-
menn frá sl. keppnistímabili. Þor-
vald Jónsson, markvörð, sem lék
með UBK og Júgóslavann Zoran
Coguric, sem lék með Stjörnunni.
Hann er nú í Júgóslavíu og getur
farið svo að hann komi með annan
Júgóslava, sóknarleikmann, með
sér til Ólafsfjarðar.
HM í Bandaríkjunum:
Klúður FIFA kostar
700 milljónir ÍSK
Fyrir ári síðan gerði þáverandi forseti bandaríska knattspyrnusam-
bandins 11,5 milljóna dala samnging við NBC sjónvarpsstöðina
um réttinn til að sjónvarpa frá HM í Bandaríkjunum 1994. Alþjóða
knattspyrnusambandið, FIFA, neitaði að samþykkja
samninginn þar sem FIFA taldi að forsetinn hefði ekki
boðið samninginn út og vildi bíða eftir hærra tilboði.
Skömmu eftir að FIFA neitaði var kosinn nýr forseti.
Bandaríkjunum j vj]j engjn bandarísk sjönvarpsstöð bjóða í HM
1994. Samkvæmt upplýsingum dagblaðsins USA to rhiy er bandaríska
knattspymusambandið að bjóða þreínur stærstu sjónvarpsstöðvunum
borgun fyrir að sýna 11 leiki frá HM 1994. Blaðamaðurinn segir í
grein sinni að klúður FIFA hafi kostað bandaríska knattspyrnusam-
bandið 11,5 milljónir dollara, eða um 700 milljónir ÍSK.
Frá
Gunnari
Valgeirssyni
í
Frakkar unnu Davis-bikarinn
Frakkar unnu Davis-bikarinn í tennis um helgina, er þeir sigruðu lið Bandaríkjamanna í Lyon í Frakklandi.
Þetta er í fyrsta skipti í 59 ár sem Frakkar vinna’ þessa keppni, hina óopinberu heimsmeistarakeppni í
greininni. Á myndinni eru Yannick Noah, liðsstjóri franska liðsins, til vinstri, og Henri Leconte, hetja Frakka
í úrslitaleiknum. ■S já nánar / B8
SKIÐI
Krístinn í fimmta sæti íTrysel
Kristinn Björnsson, skíðamaður
frá Ólafsfirði, varði í 5. sæti
í svigi á sterku fis-móti í Trysel í
Noregi á sunnudag. Hann fékk
43,93 stig fyrir árangur sinn og er
það besti árangur sem íslenskur
skíðamaður hefur náð síðan Sigurð-
ur H. Jónsson, núverandi landsliðs-
þjálfari, var upp á sitt besta.
Kristinn er í skíðamenntaskóla í
Geilo í Noregi og hefur æft mjög
vel í vetur. Þessi árangur hans lofar
góðu um framhaldið.
iT/Ví'Vwfí.,
TONLEIKAR I
BORGARLEIKHÚSINU
I KVÖID
KRINGLUNNI • LAUGAVEGI • EIÐISTORGI %
gSSífe-
I ónleikar Egils
ásamt Draumasveitinni
í Borgarleikhúsinu íkvöld,
þriðjudagskvöld, kl. 21.00
Aðgöngumiðar fást
í Borgarleikhúsinu
og verslunum Skífunnar.
Miðaverð kr. 1.000,-
T 1 F i
■ ■ ■ L