Morgunblaðið - 03.12.1991, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.12.1991, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991 KNATTSPYRNA / 46. ARSÞING KSI Albert Eggert ÍÞR&mR FOLK M JEGGERT Magnússon var end- urkjörinn sem formaður til næstu tveggja ára og fékk „rússneska” kosningu. Sömu sögu er að segja af kjöri stjórnarmannanna Guð- mundar Péturssonar, Jóns Gunn- laugssonar og Sigmundar Stef- ánssonar. ■ EGGERT Steingrímsson var kjörinn í varastjórn (97 atkv.) í staðinn fyrir Snorra Finnlaugs- son, sem tók við stöðu fram- kvæmdastjóra KSI. Asgeir Ar- mannsson (125 atkv.) og Guð- mundur Haraldsson (146 atkv.) voru endurkjörnir í varastjórn. ■ GUÐMUNDUR Bjarnason gaf ekki kost á sér til endurkjörs sem fulltrúi Austurlands og var Albert Eymundsson kosinn í hans stað, en aðrir landshlutafulltrúar voru endurkjörnir; Kristján Jónasson fyrir Vesturland, Rafn Hjaltalín fyrir Norðurland og Jóhann 01- afsson fyrir Suðurland. M SKULI Guðmundsson var kjörinn varamaður fyrir Vestur- land, Stefán L. Haraldsson fyrir Norðurland, Magnús Brandsson fyrir Austurland og Smári Kristj- ánsson fynr Suðurland. ■ STEFÁN Konráðsson er hætt- ur sem framkvæmdastjóri KSÍ, en miklar mannabreytingar verða á skrifstofunni. Gísli Gíslason hætti í haust og hefur Magnús Guð- mundsson verið ráðinn til að sinna m.a. mótamálum. Auður Marinós- dóttir er hætt sem ritari, en Krist- ín Sveinsdóttir tekur við í 60% starfi. Valdimar Margrét S. ■ VALDIMAR Bergsson náði ekki kjöri í varastjóm, fékk 76 at- kvæði. Að kjörinu loknu benti hann á að UMSK-svæðið ætti engan full- trúa í stjóm KSÍ og spumingin væri hvort ekki væri tímabært að bæta við fimmta landshlutafulltrú- anum, sem kæmi frá umræddu svæði. ■ MARGRÉT Sigurðardóttir var hins vegar kjörin í leikreglna- nefnd, sem á að starfa fram að næsta þingi og er fyrsta konan í slíkri nefnd. ■ MARGRÉT Bragadóttir var kjörin í þingnefnd og er fyrsta kon- an, sem starfar í nefnd á þingi KSÍ. ■ REYNIR G. Karlsson, íþrótta- fulltrúi ríkisins, sat þingið að vanda. ■ KSÍ-ÞING hefur ekki fyrr verið á Austurlandi, en 100 fulltrúar fóru með 149 atkvæði. ■ JÓHANN G. Kristinsson, framkvæmdastjóri knattspyrnu- deildar Fram, stóð fyrir sölu get- raunaseðla á laugardaginn fyrir hönd Sindra. Þingfulltrúar keyptu samtals 3.442 raðir og komu fram sjö raðir með 10 leikjum réttum. ■ FJÁRHA GSÁÆTL UN gerði ráð fyrir 1.650.000 kr. vegna lands- dómararáðstefnu í Skotlandi í byij- un maí á næsta ári. Fjárhagsnefnd felldi þennan lið úr áætluninni, en hækkaði dómarakostnað vegna ráð- stefnu hér á Iandi um 370.000 kr. þess í stað. Fastir tekju- liðir til ffélaga Samdráttur boðaður í fjárhagsáætlun EGGERT Magnússon, formaður KSÍ, varaði við tillögum, sem miðuðu að því að skerða fasta tekjustofna, í setningarræðu sinni á 46. ársþingi sambandsins, sem fór fram á Höfn í Hornafirði um helgina. Tilmæli hans voru ekki tekin til greina — samþykkt var að fella niður 5% miðagjald af leikjum í 1. deild og bikar- keppni og ákveðið var að skráningargjald fyrir yngri flokka yrði 1.000 krónur á hvern flokk. Þetta skerðir tekjur KSÍ á næsta ári um 3,3 milljónir. „Ég barðist gegn þessu, því ég óttast að þegar fastir tekjustofnar eru teknir í burtu verði erfiðara að koma þeim á aftur,” sagði Eggert við Morgunblaðið að þingi loknu. Steinþór Guðbjartsson skrifar frá Höfn brennidepli Ovenju margar tillögur lágu fyr- ir þinginu, alls 46, en engu að síður gekk það mjög vel fyrir sig undir röggsamri stjórn Alberts Ey- mundssonar og Baldurs Maríusson- ar. Fjármálin voru í og var sérstaklega þakkað fyrir trausta fjármálastjórn undanfarin tvö ár, en KSÍ skilaði liðlega 16 milljón kr. hagnaði eftir afskriftir á starfsárinu og á nú 35 milljónir í ríkisskuldabréfum. Fjár- hagsáætlun næsta árs boðar hins vegar samdrátt, en þar er gert ráð veltu upp á 83 milljónir (var 109 milljónir) og 1.213.000 kr. í hagnað. Lægri sjónvarpstekjur „Við duttum í lukkupottinn í sambandi við sölu á sjónvarpsrétti á leikjum okkar í Evrópukeppninni, en ég geri mér engar vonír um að við náum ámóta hagstæðum samn- ingum vegna leikja í forkeppni heimsmeistarakeppninnar,” sagði Eggert, en sambandið fékk um 60 milljónir fyrir leikina í EM undan- farin tvö ár. Formaðurinn sagði að fjárhags- áætlunin tæki mið af þessu, en ljóst væri að drægist ísland í riðil með ftalíu, Englandi eða Frakklandi, mætti eiga von á 15 til 20 milljónum fyrir viðkomanandi leiki. „Við vitum ekki hvar við stöndum fyrr en á sunnudaginn, en þá verður dregið í riðla HM. Draumurinn er að fá eitt fyrrnefndra liða, en Spánn get- ur einnig gefíð góðar tekjur.” Hann bætti við að fjárhagsáætlunin yrði endurskoðuð í byrjun næsta árs eftir að samið hefði verið um leik- daga í HM. Gott mál Áhugaverðasta tillagan á þinginu var frá Frömurum um félagaskipti. Samþykkt var að skipti leikmaður um félag verður hann löglegur viku eftir félagskiptin, en leikmaður get- ur aðeins einu sinni óskað eftir fé- lagaskiptum til og með 15. júlí ár hvert. Hins vegar var tillögu þess efnis að félögum væri heimilt til og með 15. júlí að fá að láni leik- menn frá erlendum félögum, sem færu síðan aftur til móðurfélags að tímabilinu loknu, vísað til milli- þinganefndar um leikmannasamn- inga og félagaskipti. • Morgunblaðið/Steinþór Eggert Magnússon til vinstri þakkar Stefáni Konráðssyni vel unnin störf. „Þetta er athyglisverðasta og framsæknasta tillaga þingsins,” sagði Geir Þorsteinsson eftir að Olafur Orrason hafði fylgt henni úr hlaði og voru menn almennt á sama máli, en lögðu ekki í að sam- þykkja lánsmann að svo stöddu. Eggert sagði að lönfu tímabært Skref fyrir skref STEFÁN Konráðsson lét af störfum sem framkvæmda- stjóri KSÍ eftir þingið. Eggert Magnússon þakkaði honum góð störf og færði honum gjöf að skilnaði frá KSÍ, en lét þess jafnframt getið að sambandið ætti áfram eftir að njóta krafta hans. Stefán sagðist vera ánægður með hvernig hefði til tekist á undanfömum 17 mánuðum eða síð- an hann tók við. „Við höfum gert miklar breytingar í markaðsmálum og skipulagsbreytingar á skrifstof- unni hafa skilað miklum og góðum árangri,” sagði Stefán við Morgun- blaðið og bætti við að skrifstofan gegndi þýðingarmiklu hlutverki í hreyfingunni og hefði færst nær félögunum. Hann sagðist hafa lagt mikla Meistarakeppni kvenna 19. júní Þingið samþykkti að árlega skuli fara fram leikur milli íslandsmeist- ara kvenna og bikarmeistara eins og tíðkast hefur í karlaflokki. Meistarakeppni kvenna fer fram á kvennadaginn 19. júní ár hvert og hefst keppnin næsta sumar með leik íslandsmeistara Breiðabliks og bikarmeistara ÍA. Til þessa hefur verið heimilt að banna grasskó í landsmótum allra flokka nema meistaraflokki karla, en ákveðið var að reglugerðin næði ekki til meistaraflokka karla og kvenna. áherslu á að gera gagnkvæma samninga við stórfyrirtæki og hag- að rekstrinum í samræmi við fjár- hagsáætlun, sniðið sambandinu stakk eftir vexti. „Við buðum upp á pakkasamn- inga, sem ekki hafði verið gert áð- ur, og það er ljóst að viðkomandi fyrirtæki hafa fengið góða auglýs- ingu einS og til stóð. Við höfum lagt áherslu á ábyrga markaðssetn- ingu og gætt þess sérstaklega að taka aðeins eitt skref í einu.” Stefán sagði að sjónvarpssamn- ingurinn vegna EM hefði verið grunnurinn að velgengni sam- bandsins undanfarin tvö ár. „Stjórnin undanfarin tvö ár hefur ekkert verið betri en fyrri stjórnir heldur hefur hún, vegna samnings- ins, fengið tækifæri til að gera það, sem hana hefur langað til. En stjórnin má aldrei sofna á verðinum og sérstaklega verður mikilvægt á næstunni að vera vel á verði í sam- bandi við EES. Á Norðurlöndum hefur það gerst að deildirnar hafa orðið sjálfstæðari og það er hættu- leg þróun. Ef KSÍ ætlar að halda forystuhlutverki sínu í íslenskum íþróttum verður stjórnin að gæta þess að falla ekki í sömu gryfju og kollegarnir á Norðurlöndum, heldur að tryggja hér eftir sem hingað til að allir þræðir séu í höndum sam- bandsiijs.” hefði verið að gera þessa breytingu. „Það eru allir að spila til að hafa gaman af því og þess vegna verður að ríkja visst fijálsræði í sambandi við félagaskipti. Áður voru reglum- ar meira út frá sjönarhóli félaganna en nú er hagur leikmanna í fyrir- rúmi.” Strangt hjáÍAí byrjun Nýliðar Skagamanna ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í 1. deild karla næsta keppnistímabil, en dregið var í töfluröð á þinginu. Skaga- menn byija á tveimur útileikj- um, mæta KR-ingum í 1. um- ferð og síðan Valsmönnum, en fá svo Framara í heimsókn í 3. umferð. Meistarar Víkings hefja titilvörnina heima gegn KA, en í 1. umferð leika IBV - Valur, Víkingur - KA, FH - UBK; Þór - Fram og KR - ÍA. í 18. og síðustu umferð leika Valur - KR, ÍBV - KA, Víkingur - UBK, FH - Fram og Þór - ÍA. í 2. deild leika Fylkir og BÍ í 1. umferð, Víðir - Selfoss, Stjarnan - Þróttur R., Grindavík - Keflavík og Leiftur - ÍR. 13. deild mætast Grótta og ÍK (eða það lið, sem tekur sæt- ið, hætti ÍK), KS - Þróttur N., Haukar - Tindastóll, Skalla- grímur - Völsungur og Ægir - Dalvík. Stjórn KSI. Fremri röð frá vinstri: Sveinn Sveinsson, Stefán Gunnlaugsson, Helgi Þoryaldssgn, Eggert Magnússon, Elías Hergeirsson, Þór Símon Ragnarsson og Jón Gunnlaugsson. Aftari röð frá vinstri: Snorri Finnlaugsson framkvæmdastjóri KSÍ, Sigmundur Stefánsson, Guðmundur Haraldsson, Eggert Steingrímsson, Guðmundur Pétursson, Kristján Jónasson, Jóhann Ólafsson, Albert Eymund$son og Rafn Hjaltalín.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.