Morgunblaðið - 03.12.1991, Page 5

Morgunblaðið - 03.12.1991, Page 5
B 5 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991 KÖRFUKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMÓTIÐ IMaumt hjáKR Lykilmenn meidd- ust snemma hjá Grindvíkingum KR vann nauman sigur á Grind- víkingum suður með sjó á sunnudaginn, 74-73. Þetta var fyrsta tap Grindvíkinga á heimavelli á íslandsmótinu í vetur. Hart barist í Njarðvík Morgunblaðið/Einar Falur Það var líf og fjör > íþróttahúsinu í Njarðvík á laugardag er erkifjendurnir og nágrannarnir í liðum Njarðvíkur og Keflavíkur mættust. Umdeilt atvik átti sér stað er fimm mín. voru til leiksloka, er Kristinn Albertsson dæmdi ruðning á Jonat- han Bow. Það var fimmta villa Bandaríkjamannsins og varð hann því að yfirgefa völlinn. Á myndinni til vinstri eru þeir Bow og Kristinn eftir að atvikið átti sér stað. Hér að ofan er ísak Tómasson með knöttinn í baráttu við Hjört Harðarson. ísak lék mjög vel með Njarðvíkur-liðinu. Rafmögnuð spenna - í „Ljónagryfjunni” í Njarðvík þarsem Keflvíkingartöpuðu fyrsta sinni ívetur EFTIR átta sigurleiki í röð máttu Keflvíkingar játa sig sigraða þegar þeir mættu nágrönnum sínum og íslandsmeisturunum í „Ljónagryfjunni" í Njarðvík á laugardaginn. Njarðvíkingar sigruðu með sjö stiga mun 83:75 í skemmtilegum og spennandi leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á siðustu mínútunni. Keflvíkingar misstu þrjá menn af velli með 5 villur á síðustu 5 mínútunum og þar á meðal var Bandaríkjamaðurinn gjöm Jonathan Bow. „Eg Blöndal er ekki vanur að skrifar frá gagnrýna dómara Keflavík eftir leiki en nú get ég ekki orða bundist. Fimmta villan sem dæmd var á Bow var alrangur dómur og að öllum líkum vendi- punkturinn,” sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari og leikmaður ÍBK eftir leik- inn. Húsfyllir var í íþróttahúsinu í Njarðvík og rafmögnuð spenna líkt og í flestum leikja þessara liða að undanförnu. Keflvíkingar bytjuðu betur og skoruðu 5 fyrstu stigin. En Njarðvíkingar voru fljótir að jafna og eftir það skiþtust liðin á hafa forystuna. Bæði léku liðin sterkan varnarleik og fljótlega lentu Keflvíkingar í villuvandræðum. Nökkvi Már sem bytjaði ákaflega vel fékk 3 villur á fyrstu 5 mínútun- um og var þá tekinn útaf og náði aldrei að setja mark sitt á leikinn eftir það. Jonathan Bow var einnig tekinn útaf með 3 villur þegar 5 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik þegar staðan var 25:28 fyrir ÍBK og þá losnaði heldur betur um Ron- dey Robinson sem skoraði hveija körfuna á eftir annarri og þegar flautað var til hálfleiks höfðu Njarð- víkingar náð 6 stiga forskoti 46:40. I síðari hálfleik hélst sama spenn- an og þegar leikurinn hafði staðið í 5 mínútur hafði Keflvíkingum tekist að jafna og komust yfir 52:53. Síðan skiptust liðin á forystunni fram yfir miðjan hálfleikinn en þá voru þeir Bow og Nökkvi báðir komnir með 4 villur. Þegar 5 mínútur voru til leiks- loka og staðan 75:72 fyrir Njarðvík- inga var dæmd sóknarvilla á Bow sem þar með varð að fara af lei- kvelli með 5 villur og á sömu mínút- unni fékk Nökkvi einnig sína 5. villu. í kjölfarið náðu Njarðvíkingar 9 stiga forskoti, 81:72 sem var mesti munurinn á liðunum í leiknum og þann mun náðu Keflvíkingar ekki að vinna upp þrátt fyrir geysilega baráttu á lokamínútum. Rondey Robinson var besti maður Njarðvík- inga eins og svo oft áður auk þess að skora 26 stig tók hann 31 frák- ast og munar um minna. Teitur Örlygsson og ísak Tómasson voru einnig sterkir. Jonathan Bow og Jón Kr. Gíslason voru bestu menn ÍBK að þessu sinni. „Þetta var ekki sérlega góður leik- ur af okkar hálfu, við hittum illa inni í vítateig og þessi úrslit þurfa í sjálfum sér ekki að koma á óvart. Bæði liðin léku sterka vörn en ég er ákaflega ósáttur við þann dóm þegar dæmd var sóknarvilla á Bow og minni á að sami dómari [Kristinn Albertsson] dæmdi á svipað atvik í leik okkar gegn Njarðvík í úrslita- leik Reykjanesmótsins sem þá kost- aði okkur sigurinn í leiknum,” sagði Jón Kr, Gíslason. „Eg er harðánægður með þessi úrslit, við lékum vel og áttum sigur- inn skilið. Við vorum búnir að vera með nokkurra stiga forskot um tíma þegar Bow varð að fara af velli og það setti náttúrlega meiri pressu á Keflvíkinga en ég held að það hafi tæplega ráðið úrslitum,” sagði Frið- rik Rúnarsson þjálfari Njarðvíkinga eftir leikinn. Leikurinn fór einkennilega af stað, mikið fum og fát og fast leikið. Grindvíkingar urðu fyrir miklu áfalli strax á mmm^^^m 5. mínútu er Pálmar Ólafsson Sigurðsson kom illa skrifar°n niður sneri si& á fæti og í sömu sókn meiddi Dan Krebbs sig á hné og þeir komu ekki meira við sögu í leiknum. Þetta sló þá út af laginu og KR skoraði 21 stig í röð og náði forystu í leiknum 27-11. Grindvík- ingar náðu að minnka muninn í 11 stig fyrir leikhlé. Mikil barátta var í seinni hálfleik eins og þeim fyrri. Heimamenn unnu muninn upp hægt og bítandi og á 16. mínútu kom Marel Guðlaugsson þeim yfir með tveimur vítaskotum og Ingi Karl Ingólfsson jók muninn í þijú stig með vítaskotum, 73-70. KR-liðið var síðan sterkara á enda- sprettinum og þeir Axel Nikulásson og John Baer tryggðu sigurinn á lokamínútunum. Leikurinn var mjög harður og höfðu dómararnir, þeir Árni Freyr Sigurlaugsson og Bergur Stein- grímsson í mörg horn að líta. Þeir gáfu tóninn strax í byijun með því að leyfa leikmönnum að leika fast og það var gert allan leikinn. Það er skoðun undirritaðs að dómarar leyfi of miklar snertingar og dæmi ekki nógu mikið á það þegar slegið er í hendur á mönnum eða þeim ýtt. Segja má þó að dómararnir hafi verið samkvæmir sjálfum sér í leikn- um en hann var of grófur á köflum. „Leikurinn var spennandi í lokin. Grindvíkingar voru náttúrulega mjög óheppnir í byijun að missa tvo lykilmenn útaf en þeir léku af mik- illi baráttu og söxuðu á forskotið í seinni hálfleik. Ég er mjög ánægður með að fá tvö stig hér í Grindavík því þeir spila alltaf vel á heima- velli,” sagði Birgir Guðbjörnsson þjálfari KR að leik loknum. John Baer var atkvæðamestur hjá KR og átti jafnbestan leik. Guðni Guðnason átti góðan leik og Páll Kolbeinsson átti góðan endasprett og skoraði mikilvægar körfur í lokin. Guðmundur Bragason, Rúnar Árnason og Hjálmar Hallgrímsson báru uppi leik heimamanna eftir að Pálmar og Dan meiddust en breiddin í lokin var ekki nægjanleg í svo hörðum leik. Booker í banastuði FOLX ■ RÚNAR Árnason lék 200. leik sinn fyrir UMFG gegn KR og fékk af því tilefni blómvönd og áletraðan skjöld /rá félaginu fyrir leikinn. ■ TÓMAS Holtaon þjálfari Vals lék ekki með liði sínu á sunnudag- inn. Hann var með magakveisu og treysti sér ekki til að leika. ■ VALUR Ingimundarson, ann- ar þjálfara Tindastóls og jafnan einn besti maður liðsins, lék ekki með gegn nafna sínum og munaði um minna fyrir liðið. Valur var í leikbanni. Skorað.i 43 stig þegarValsmenn sigruðu Tindastól að Hlíðarenda FRANC Booker var í miklu stuði þegar Valur vann Tindastól 98:89 í Japisdeildinni á sunnu- daginn. Hann gerði 43 stig, þar af níu 3ja stiga körfur og tók auk þess 11 fráköst. Tindastóll byrjaði með því að leika svæðisvörn en skipti fljótlega yfir í maður á mann enda náðu Valsmenn níu stiga forskoti á fyrstu mínútunum með langskotum. Magnús lék talsvert Skúli Unnar Sveinsson skrífar úti á velli til að draga Pétur Guð- mundsson frá körfunni enda erfitt að eiga við hann í fráköstunum. Þetta gekk eftir hjá Val en stundum fannst manni allt hálf öfugsnúið. Magnús átti nokkrar stoðsendingar á Booker undir körfuna, en venju- lega er því öfugt farið. Norðanmenn komust einu sinni yfir í fyrri hálfleik, 20:22, en Vals- menn komust mest 13 stigum yfir. Úr síðari hálfleik er sömu sögu að segja. Tindastóll komst einu sinni yfir, 62:64, en Valur hafði mest 14 stiga forskot. Norðanmönnum tókst alltaf að minnka muninn, en Vals- menn voru of sterkir til að Tinda- stóll næði í stig. Booker var mjög atkvæðamikill og það koma meira að segja nokkr- um sinnum fyrir að samheijar háns opnuðu fyrir hann þannig að hann fékk frí skot. Það má því segja að Valsmenn séu á réttri leið. Liðið er farið að leika meira sem heild og það á eftir að skila sér í fleiri stigum í baráttunni um sæti í úrsli- takeppninni. Hvort það dugar skal ósagt látið. Magnús lék einnig vel, átti 5 stoðsendingar og tók mörg fráköst. Flestir Valsararnir léku reyndar vel, Svali átti t.d. 7 stoð- sendingar. Pétur Guðmundsson og Ivan Jon- as voru sterkir hjá Tindastóli. Pétur er raunar mjög frískur. Hann tók 18 fráköst og Jonas 17. Pétur Sig- urðsson, Einar Einarsson og Björn Sigtryggsson léku einnig ágætlega en sá síðast nefndi hefði mátt leika meira, sérstaklega í síðari hálfleik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.