Morgunblaðið - 03.12.1991, Side 12
18
ieor jiaaMagaa .s huoaqulgiot aiöAjavtuojioM
■■hJ
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Guðjón Guðmundsson stóð sig mjög vel á mótinu, náði hæstu einkunn sem íslendingur hefur náð í frjálsum æfingum. Hér ér hann
á bogahestinum á laugardaginn.
Gerpla rauf sigurgöngu
Ármanns í karlaflokki
Bjarkirnar úr Hafnarfirði urðu bikarmeistarar í kvennaflokki
Morgunblaðið/Skapti
GERPLA úr Kópavogi sigraði í frjálsum æfingum karla á Bikar-
móti Fimleikasambandsins á laugardaginn, og rauf þar með langa
sigurgöngu Ármanns. í kvennaflokki fögnuðu Bjarkarstúlkur úr
Hafnarfirði sigri. Ármann, sem varð bikarmeistari í A-flokki
kvenna síðustu tvö ár, átti ekki lið i keppninni að þessu sinni.
Guðjón Guðmundsson, Ármanni, náði mjög góðum árangri í
frjálsu æfingunum og varð stigahæstur en í einstaklingskeppni
kvenna varð Nína Björg Magnúsdóttir úr Björk stigahæst.
Morgunblaðið/Skapti
Mario Szonn, hinn þýski þjálfari Gerplu-drengjanna, keppti á mótinu og
náði þriðja besta samanlögðum árangri í frjálsum æfingum.
Mótið fór frarrl í íþróttahúsinu
á Seltjarnarnesi, var í um-
sjón fimleikadeildar Gróttu, og
tókst í alla staði
Skapti mjög vel.
Hallgrímsson „Ungu strákarnir
skrifar okkar hafa unnið 4.
þrepið fjögur ár í
röð. Við vorum í öðru sæti í fyrra
í A-flokknum, og það er mikill
áfangi að sigra nú. Ármenningar
hafa verið einráðir í karla-fimleik-
um í mörg ár. Þeir eru með betri
einstaklinga — Guðjón er í sérflokki
pg Jóhann Níels er næst bestur á
Islandi í dag. En við unnum á jafn-
ara liði. Við vorum með fjóra menn
í lið þannig að tveir þjálfaranna,
bæði Mario Szonn og Heimir Jón
Gunnarsson tóku þá ákvörðun að
vera með. Þeir tóku fram skóna og
hafa æft í tvo mánuði. Það er at-
hyglivert að Mario náði þriðja besta
árangri á mótinu,” sagði Ingvar
Árnason, formaður íþróttafélagsins
Gerplu, sigri hrósandi eftir mótið.
Mario er 31 árfe og margfaldur
austur-þýskur unglingameistari á
sínum tíma. Heimir er jafn gamall
og fyrrum íslandsmeistari. „Ég
held það sé mjög hvetjandi fyrir
yngri iðkendur á Islandi, að sjá.að
menn geta náð árangri svona langt
fram eftir aldri,” sagði Ingvar við
Morgunblaðið.
Hann sagði góða starfsemi og
góða þjálfun vera að bera ávöxl hjá
félaginu. „Við erum með þijá úr-
vals erlenda þjálfara; Mario Szonn,
sem við fengum í haust frá Þýska-
landi, sem þjálfar drengina okkar
ásamt Heimi. Síðan liöfum við tvo
kínverska þjálfara, þau Duan Er
Li og He Ping, sem sjá um þjálfun
hjá meistarahópum stúlkna, með
aðsloð Kristínar Gísladóttur.
Svo hefur aðstaðan verið að
batna — við erum með eigið hús á
Skemmuveginum í Kópavogi. Við
höfum góðan 600 fermetra sal, og
viðbyggingu með fimleikagryfju.
Auk þess höfum við lítinn sal fyrir
ballett-kennslu og lleira. En á
hveiju einasta kvöldi og um hveija
helgi er salurinn leigður út áhuga-
mönnum í knattspyrnu, þannig að
við þurfum að taka áhöldin saman
á hveijum degi. Það er mjög leið-
ingjait til lengdar og lýjandi bæði
fyrir börnin og þjálfarana. En breyt-
ing er í sjónmáli því við stefnum
að því að bæta við okkur húsnæði
— að leigja eða kaupa helminginn
af norðurenda hússins, þar sem er
400 fermetra efri hæð, þar sem
hægt er að koma fyrir fimleikagólfi
og nokkrum öðrum áhöldum. Við
væntum þess að geta tekið það í
notkun fljótlega eftir áramót,”
sagði Ingvar.
Ofboðslega ánægðar
„Við erum ofboðslega ánægðar
með árangurinn,” sagði Hlín Árna-
dóttir, þjálfari hjá Fimleikafélaginu
Björk í Hafnarfirði, sem varð bikar-
meistari í A-flokki kvenna í fijálsum
æfingum sem fyrr segir. „Við erum
komnar með nýtt 'lið, þetta eru allt
stelpur á fyrsta senior-ári, flestar
14 ára, en tvær þeirra eru bara 12
ára. Þetta er því mjög gott og það
er bjart framundan hjá okkur,”
sagði Hlín við Morgunblaðið.
„Við unnum líka 4. þrepið og
áttum tvær stigahæstu stelpurnar
í A-flokknum. Og allir frá okkur
komu heim með verðlaunapeninga.”
Hlín sagði góða breidd hjá Björk-
Nína Björg Magnúsdóttir, sem
hér er í gólfæfingum á mótinu, varð
stigahæst í kvennaflokki.
unum nú. „Við erum með mikið af
ungum stelpum og danshópurinn
okkar varð íslandsmeistari á síðasta
ári, þannig að við eigum fólk í
fremstu röð alls staðar í kvennáfim-
leikunum.”
Yfirburðir Guðjóns
Guðjón Guðmundsson sannaði að
hann er besti fimleikmaður lands-
ins. Hlaut samtals 52,700 stig sem
er hæsta einkunn sem Islendingur
hefur náð. „Ég meiddist í sumar
og var skorinn upp vegna meiðsla
í hné fyrir tveimur mánuðum. En
ég hef æft vel síðan og er mjög
ánægður með árangur minn á mót-
inu,” sagði Guðjón í samtali við
Morgunblaðið.
Bjarkirnar fengu 163,950 stig í ■
kvennaflokki en Grótta 143,900. í
karlaflokki fékk Gerpla 212,000
stig og Ármann 211,300, þannig
að mjótt var á mununum. Aðeins
tvö félög sendu lið til keppni í hvor-
um A-flokknum. Kvenfólkið keppti
einnig í 3. þrepi, þar sem Gerpla
sigraði með 168,450 stig, og í 4.
þrepi þar sem Bjarkirnar sigruðu,
hlutu 175,400 stig. í 4. þrepi karla
sigraði Gerpla einnig, — hlaut
261,400 stig.
■ Úrslit / B10
GETRAUNIR: 1 1 2 1 1 X 2 1 X 2 12 2 - LOTTO: 1 7 33 35 36 / 17