Alþýðublaðið - 08.11.1920, Page 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
annað en krossleggja hendurnar
til þess að setja böðlum sínum
stólinn íyrir dyrnar Hervarnir
auðvaidsins eru einskis virði án
verkscnannanna, svo þeir hljóta að
hafa yfirhöndina. Stundin nálgast,
að verkarnenniinir skilji köllun
sína og finni mátt sinn, Framtsðin
er vor.
Eimt komt die Zeit
wenn wir uns ráchen
dann werden wir die Richter sein.
Svo sem vænta mátti, sigraði
B listinn, bseði við bæjarfulltrúa
kosninguna og niðurjöfnunarnefd
arkosninguna, Atkvæðin féllu þann-
ig við bæjarfulk úakosninguna, að
B-listinn fékk 1467 atkv., en A-
listinn 1148. Auðir seðlar voru 45,
en 12 ógiidir.
Þórður Sveinsson lœknir var
því kjörinn bæjarfulltrúi, með j/p
atkvæða meirihluta, og er það
uiikril meirihluti, að því athuguðu,
hve illa kjörfundur var sóttur.
Við niðurjöfnunarnefndarkosn-
inguna féllu atkvæðin nokkuð
jafnar, en þó með sigri lista Al-
þýðuflokksins, B listans. Þar fékk
B listinn 1254 atkv, en A-listinn
1233 atkv. 159 seðlar voru auðir,
en 21 ógildur. Þessir fjórir voru
því kosnir f niðurjöfnunarnefnd af
B listanum:
Magnús V. Jóhannesson,
ólafur Lárusson,
Feli x Guðmundsson,
Haraldur Möller.
Af A-listanum voru einnig kosn-
ir fjórir, þeir:
Páli H. Gíslason, .
Samúel Ólafsson,
Pétur Zóphóníasson,
Guðmuudur Eiríksson.
Kosningar þessar eru ósigur
rnikill Sjálístjórnarklíkunnar, en
sigur Alþýðuflokksins og annara
frjálslyndra manna, sem ekki láta
sér lyada yfirgang borgarstjora og
klíku þeirrar, ,er hefir haft yfirtök-
í stjórn bæjarmálanna nú um hríð.
Nú dugði Sjálfstjórn iítið peninga-
austurinn, sem þó hvað hafa verið
tneð minna móti, því mönnum er
íarið að skiljast hvert er markmið
hentsar, og láta ekki blekkjast.
Og svo mun verða framvegis.
prprgstsíl á jrlaaði.
Khöfn, 7. nóv.
Sírrsað er frá London, að í raun
og veru sé borgarasíyrjöld í al-
gieymingi á Irlandi. Sinn Feinar
myiði lögregluþjóna og lögreglan
brenni hús manna í hefndarskyni
Blaðið Daily Níwí ræðst einkum
að stjórninni fyrir það, að hún
fylgi þessum hefndarverkuro.
Wrange! gersigraðnr.
Khöfn, 7. nóv.
Sfmað er frá Parfs, að bolsi-
víkaherforinginn Budieany hafi
brotist gegn um herfyikingar
Wrangels og tekið þvf nær a!t
stórskotaliðið til fanga ásamt her-
gögnunum.
€rleaí simskeyti.
Khöfn, 6 nóv.
Iðnaðarhringar í Pýzkalandi.
Simað er frá Berlín, að flestar
stærstu námur og rafmagnsverk-
smiðjur í Þýzkalandi sameinist til
80 ára f einn gríðarstóran hring,
bæði fjárhagslega og pólitiskt,
undir stjórn Stinnes kolakóngs og
blaðagreifa.
Landstjórinn í Danzig norsknr.
Simað frá Berlín, að norðmað-
uriitn Colban, sem verið hefir í
þjónustu þjóðaráðsins í Lontíon,
verði framvegis landstjóri í Danzig
[sem eins og kunnugt er, er undir
umsjón ráðsins].
Orðsending 2. internationale.
Sfmað er frá London, a§ fram-
kvæmdarnefnd 2. aiþjóðabanda
lags verkamanna hafi sent frá sér
orðsendingu, þar sem sagt sé með-
al annars: Vér kærum forstöðu-
menn 3. alþjóðabandalagsins fyrir
að þeir spilii verkamönnunum, með
því að bæla niður óskir rússnesku
þjóðarinnar, og að þeir láti her-
vætt einveldi koma í stað lýðveld-
is. Bolsivismi hefir í för með sér
ofbeldi og strfð. Áfram með so-
cialismann!
BerblaYeikisfandur.
Sfmað er fra Stokkhólrni, að
berklaveikisfundurinn sem h?lda
átti í sumar fyrir öll Norðurlönd,
verði haldmn næsta sunsar.
!Leidréttiiig.
Að igefuu tilefni lýsi eg þvf hér
með yfir, að það eru tilhæfulaus
ósannindi, sem Alþýðublaðið birtir
í dag, að eg sé meðmæland? á
lista Sjálfstjómar. Þessa leiðrétt-
ingu bið eg Alþýðublaðið að birta.
hið fyrsta,
Reykjavík, 6/u 1920.
Árni Jbnsson,
Holtsgötu 2.
Alþbl. birtir fúslega þessa leið-
réttmgu, sem er talandi vottur um
gengi Sjalfstjórnarl
Um dagmn oy Teginn.
Iíveibja bcr á hjólreiða- og
bifreiðaijóskerum eigi síðar en kL
4V4 í kvöld.
Samskotin. Til viðbótar áður
auglýstu skal hér birt það sera
bæzt hefir við til hins fatæka landa
okkar í Færeyjum:
G g. 25* kr., Páll 5* kr., N„
N. 5* kr., J. M, 20* kr., C. E.
L L io:f; kr, B. Þ. 5* kr., N.
N. 5* kr., N N 1 kr.
Gliftingar. Á laugardaginn voru
gefin saman i hjónaband af sr.
Fr. Fr. ungfrú Anna Nordal og
Ingóhur Þorvaldsson stud. theol,
Ennfrnmur af sr. Jóh, Þ. ungfrö
Guðrún Guömundsdóttir og Karl
Bjarnason bakari.
Bíóin. Nýja bíó sýnir: „Skip á
reki“ og gamanmynd. Gamla bí6
sýnir: „Fátæka greifadóttiria".
Es. Noordgat, hollenskt skip5
kom hingað í gær með sykurfarm.
Ritstjóri og ábyrgöarm?.anr;
Ólafur Friðriksmn
Prentsmiðjan Gutenberg,