Morgunblaðið - 03.01.1992, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 03.01.1992, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Baráttuþrek í stað bölmóðs Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, og for- sætisráðherra, Davíð Oddsson, fluttu þjóðinni boðskap sinrí í sjónvarpi og hljóðvarpi um ára- mótin, svo sem hefð stendur til. Ávörp þeirra eru birt hér i blaðinu í dag. Það var sá sam- hljómur í máli forseta og for- sætisráðherra, að íslendingar eigi ekki og megi ekki láta tímabundna erfiðleika, sem við er að etja í þjóðarbúskapnum, eða svartsýni og bölmóð þeim tengdum, slæva baráttuþrek sitt og trú á framtíðina. Þjóðin búi að þeim vopnum í lífsbar- áttu sinni, menntun, þekkingu, tækifærum og þrautseigju, að hún sé fær um að vinna sig út úr erfiðleikunum og treysta kostnaðarlega undirstöðu vel- ferðar í landinu. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, komst svo að orði í nýársávarpi sínu: „Það eru forréttindi að eiga þetta land sem enginn getur skipað okkur að láta af hendi, eiga þessa tungu sem enginn getur frá okkur tekið nema þá við sjálf í andvaraleysi. Að eiga saman, einmitt á íslenskri tungu, minningar og þjóðararf. í rás aldanna hefur íslensk þjóð tekist á við margs konar þrengingar og sigrast á þeim. Við eigum þolgæði og festu liðinna kynslóða það að þakka að nú á dögum eru fáar þjóðir jafn auðugar og við. Því er undrunarefni að hinir tíma- bundnu erfiðleikar sem við eig- um nú við að etja skuli upp- vekja slíkan bölmóð sem raun ber vitni, jafnvel á ólíklegustu stöðum. Bölmóður leiðir af sér doða, doði fæðir af sér fram- taksleysi. Bölmóður er háska- legur sálarheill barna og ungl- inga sem heyra meira en okkur grunar og trúa öllu sem sagt er. Kviða þeirra er ekki eins auðvelt að uppræta og til hans að sá. Látum ekki leiðast í þann vítahring sem verður til af virð- ingarleysi manna fyrir þeim sjálfum. Við erum dugmikil þjóð. Örðugleikar okkar nú um stundir blikna í samanburði við þrengingar formæðra okkar og forfeðra. Við munum sigrast á þeim með birtu hugans, afli handanna ogauðlegð andans.“ Davíð Oddsson, forsætisráð- herra, sagði í áramótaávarpi sínu, að fjarri sé því að við þurfum að afsala okkur því, sem við búum nú að, eða byrja upp á nýtt „á þeim reit sem afar okkar og ömmur stóðu í upphafi aldarinnar, með tvær hendur tómar en hjartað fullt af trú á framtíðina ... Við þurf- um eingöngu að slá af ferðinni um stund, hægja aðeins ögn á, uns áfram verður haldið. Það er allt og sumt. Við sjáum framundan margvísleg jákvæð tákn, ef við kunnum að taka á. Við höfum fjölmörg tilefni til tilhlökkunar um þessi ára- mót. Við erum sannfærð um að ísland er enn land tækifær- anna.“ Ástæða er til að taka undir framangreind orð forseta okk- ar og forsætisráðherra. Það kann að vísu ekki góðri lukku að stýra að stinga höfðinu í sandinn eða loka augum fyrir aðsteðjandi vanda vegna afla- samdráttar, versnandi við- skiptakjara, samdráttar í þjóð- artekjum, hallans í viðskiptum við umheiminn og hallans í rík- isbúskapnum, eða þeirri þróun sem fyrirséð er í efnahagslegu umhverfi hérlendis og erlendis. Það er þvert á móti nauðsyn- legt að glöggva sig á þessum vandamálum til þess að hægt sé að takast á við þau og leysa. Það er samt sem áður engin ástæða til þess að mikla vand- ann um of fyrir sér með svart- sýnissíbylju, þann veg, að böl- móðurinn vaxi okkur yfir höf- uð, eða dragi úr frumkvæði og framtaki einstaklinga og fyrir- tækja í þjóðarbúskapnum. Það þarf fyrst og fremst að virkja þá auðlegð, sem í þjóðinni býr, heildinni og einstaklingunum, menntun þeirra, þekkingu og framtaki; styrkja rekstrar- og samkeppnisstöðu íslenzkra at- vinnvega og þróa þá að efna- hagslegu umhverfi í veröldinni. Ef við kunnum fótum okkar forráð að þessu leyti getum við treyst kostnaðarlega undir- stöðu velferðar í landinu í verð- mætasköpun atvinnuveganna og viðskiptakjörum við um- heiminn, bæði í samtíð og framtíð. Tímabundnir örðugleikar mega ekki draga okkur niður í víl og vonleysi. „Bölmóður leiðir af sér doða, doði fæðir af sér framtaksleysi,“ eins og forseti okkar komst réttilega að orði í nýársávarpi sínu. „Við skulum takast á við vand- ann með köldu höfði en hlýju hjarta,“ eins og forsætisráð- herra komst að orði. Vanda- málin eru að vísu til staðar en þau eru viðráðanleg með þjóð- arsátt og einhug landsmanna. MORGÚNÉLÁÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992 + Bírta hugans, auðlegð andans og afl handanna • * Nýársávarp frú Vígdísar Finnbogadóttur forseta Islands Góðan dag, góðir áheyrendur. Ég óska okkur íslendingum gleði- legs nýárs og færi samtíðarmönnum mínum um landið allt þakkir fyrir gjöfult samstarf og góðar samveru- stundir á liðnum árum. Við sérhver áramót er okkur ein- att ofarlega í huga hve margir eiga við söknuð og sáran harm að glíma. Við erum með ýmsum hætti á það minnt hve brothætt mannlegt líf er. Náttúran landsins er okkur brosmild þegar best lætur, en ber með sér banvænan háska í hamförum sínum, - og óviðbúin skynjum við svo oft hvernig tíminn snýst snögglega til þungrar sorgar. Við skulum hugsa til þeirra sem eiga um sárt að binda á þessari stundu, landa okkar sem séð hafa á bak þeim er næst þeim stóðu. Við sýnum þeim þá samhygð sem betra er að eiga en að vera án. Áramótahugleiðingar okkar hljóta að vera með einum eða öðrum hætti tvíþættar, — fela í sér bæði ugg og von. Hannes skáld Pétursson lýsir þessum andstæðukenndum þegar hann yrkir: Tvær atómsprengjur fenpm við í fermingargjöf frá heiminum, við sem hófumst í tölu manna ’45 friðarárið mikla. Enn er mér því tamt sém áður að setja framtíð, þetta orð í ósýnilegar gæsalappir. Vonirnar lifa samt. Nú vorar hér við goinn. Og utan úr geimnum eldurinn kemur, sveigður í Ijós. Hér verður vonin óttanum yfír- sterkari og eldurinn, sem oft getur verið eyðandi afl, hverfíst í ljós hækkandi sólar. Nú er dag farið að lengja og tími til kominn að birta fái að leika um sinni okkar mann- anna að nýju. í hugum okkar snýst framtíðar- von oft og tíðum um hamingju, - hamingju okkar hvers og eins, en jafnframt sameiginlega auðnu okk- ar, sjálfa þjóðarhamingjuna. Við finnum þá að lán okkar er ekki síst fólgið í því að hafa gert það sem í okkar valdi stendur til þess að allir megi njóta Iífs síns eft- ir því sem aðstæður fremst geta leyft, að allir fái með einum eða öðrum hætti öðlast hlutdeild í sam- eiginlegum gæðum lands og þjóðar. Hamingjuna telja allir eftirsókn- arverða. En hver er sú hamingja sem við hvert og eitt leitum að? Er hún fólgin í því að komast yfir sem flesta veraldlega hluti? Er hún eltingar- leikur við það sem við sjáum í hilling- um á næsta leiti en færist ekki nær? Eða er hamingjan draumur sem aldrei rætist vegna óraunsæis og óskhyggju? Þegar við skoðum hug okkar, vit- um við ■ að í þessu er hamingjan ekki fólgin. Hún fæst ekki með lífs- gæðákapphlaupi þar sem fólk kepp- ist svo við daglegt amstur að það gefur sér ekki tíma til að rækta hið dýrmætasta sem við eigum, auðinn í mannverunni sjálfri, því án hans tækist okkur ekki að nýta umhverfi okkar til afkomu. Framtíð og hamingja tengjast óijúfanlega von um velferð barna okkar, - hinnar vaxandi kynslóðar. Að því höfum við áður leitt hugann við áramót. Við megum enga stund gleyma því að hvenær sem við spyij- um hvar við erum á vegi stödd og hvert stefnir, erum við að spyija um hag barna. í þeim býr framtíðin. Þau eru stolt okkar og við þau bind- um við vonir. Þegar við nú stöldrum við, verða ýmsar spurningar áleitn- ar: Veitum við börnum okkar næga athygli? Ggfum við þeim nægan tíma? Næga fræðslu, næga alúð? Reynum við að skjóta okkur undan ábyrgð með því að gauka að þeim snöggsoðinni skemmtun og afþrey- ingu? Færum við þeim steina í stað brauðs? Svo yfirþyrmandi getur afþrey- ingin orðið að hugurinn sljóvgast, frumkvæðið dofnar og mörgum reynist um megn að hafa ofan af fyrir sér og öðrum af eigin ramm- leik. Það er fátt sem lærist sjálfkrafa. Aftur á móti er auðvelt að apa það eftir sem fyrir er haft. Börnum þarf að kenna að ekki er alltaf gaman. Ef lífið væri sífelld skemmtun yrði það óbærilegt fyrr en varði. Ekki er hægt að gera sér dagamun öllum stundum. Þá yrði til einskis að hlakka. Og enn má spyija: Gerir þjóðfé- lagið allt sem það getur fyrir börn- in? Þeirri spurningu verður því mið- ur að svara neitandi, og á ég þá ekki einungis við þau börn sem búa við auðmýkingu fátæktar og van- rækslu. Börn eru víða hornreka líkt og þau ættu ekkert sameiginlegt með fullorðnum. Við megum minnast þess að öll höfum við verið börn, - þó sumir kunni að vilja gleyma því. Bernsku- minningar fyrnast þó aldrei alveg og bemskuhamingja er drýgsta veganestið til lífsgæfu. Hvað úr okkur verður megum við þakka leið- sögn og heilræðum til fararheilla, og því ekki síst að fyrir okkur hafi Frú Vigdís Finnbogadóttir. verið brýnt að við skyldum láta gott af okkur leiða. Börn þurfa öryggi, þau þurfa kærleika, þau þurfa aga. Börn þarf að fræða og mennta til starfa og þeim þarf að vísa til vegar svo að þau megi skyggnast um í heiminum með raunsæjum augum og sjálf- stæðum huga. Þá læra þau að glíma við vanda og finna svör við torræð- um gátum. Börn þurfa ekki síst að öðlast virðingu fyrir sjálfum sér og um- hverfi sínu. Með þeim hætti einum tileinka þau sér virðingu fyrir öðrum og þá háttvísi sem er aðal siðmennt- aðra þjóða. Séu þau þráfaldlega skilin eftir einsömul eða með öðrum börnum einvörðungu, víkkar ekki sjóndeildarhringur þeirra og árin færa þeim ekki eðlilegan þroska. Ef við, hin fullorðnu, sinnum ekki þörfum barna okkar, eigum við ekki á góðu von þegar þau eru vaxin úr grasi og þurfa að sinna skyldum sem lagðar eru á þegna sjálfstæðrar þjóðar. . Börn samtímans verða foreldrar þegar fram líða stundir. Okkur ber skylda til að búa þau til framtíðar- verka sem best úr garði. Það gerum við best með því að gefa þeim kær- leika, festu og aga í farteskið. Og trausta fræðslu. Það ætti ekki ein- ungis að vera okkur keppikefli að standa jafnfætis grannþjóðum okkar í menntun og uppeldi barna, heldur ættum við að kappkosta að til okkar verði litið sem fyrirmyndarþjóðar á þessu sviði. Efnahagsumræður eru nú um stundir frekar til athygli og byrgja oft sýn til hinna mannlegu þátta. Víst er það svo að við þurfum traust- an fjárhagslegan grundvöll til að dafna. Lítum þó ekki framhjá því, að velmegun er ekki markmið í sjálfu sér, heldur gerir hún okkur kleift að ná þeim markmiðum sem' við höfum sett okkur. Efnahagsleg velmegun er forsenda þess að við getum eflt menntun og rannsóknir og tryggt þróun þekkingar í land- inu. Velmegun og velfarnaður þjóð- arinnar grundvallast svo aftur á menntun og þekkingu, að öðrum kosti verður hún aflvana. Þannig eru hringrásir í lífi þjóðar. Á hveiju ári leiðum við hugann að tíðindum og spurningum um sam- búð lands og þjóðar, manns og náttúru. Öll eigum við okkur þá ósk að sjá landið prúðbúið í grænni slikju gróðurs, sem er tákn hagsældar og hamingju þegna sem úr kunna að vinna. Og skammt er þá til þeirrar framtíðarsýnar að íslendingar geti orðið forystuþjóð, sem að kveður, á sviði umhverfismála. Enda þótt að mörgu sé að hyggja í umhverfísmál- um hér á landi og ekki sé allt eins og best verður kosið, búum við enn í lítt spilltu landi. Ég er þess fullviss að með fram- takssemi og dugnaði getum við hreinsað landið og komið í veg fyrir að frekar verði spillt því sem fyrir er. Þjóð sem þekkir kosti lands síns og leggur kapp á að rýra þá ekki - heldur rækta - nýtur virðingar. Sé slíkri stefnu fylgt með ráðum og dáð getum við heilshugar talað svo rödd okkar heyrist á alþjóðavettvangi. Nú má spyija: Hvers geta Islend- ingar vænst af því að eiga umhverf- ishreina rödd meðal þjóða heims? Því er til að svara að víða um lönd leiða menn ekki hugann að íslandi nema við eigum við þá erindi. Nemi menn rödd okkar kæra þeir sig koll- ótta um íbúafjölda landsins. Reisn þjóðar fer ekki eftir stærð hennar. Minnumst þess líka að sífellt eykst umhyggja manna fyrir gjöfum náttúrunnar og góðri heilsu. Það er forn viska og sígild að í hraustum líkama býr heilbrigð sál. Fá lönd búa yfir jafn fjölbreytileg- um heilsulindum og ísland. Hér er vatnið hréint og loftið tært. Þeirra ómetanlegu gæða njóta land og þjóð. Víðs vegar um heim þráir fólk ekk- ert fremur en hreinleika þessara náttúruauðlinda. Þess vegna eru fáar þjóðir betur til þess fallnar en við íslendingar að reisa heilsustöðv- ar þar sem við sjálf og erlendir gest- ir okkar ættum þess kost að efla heilbrigði til líkama og sálar. í ljóðinu sem ég vitnaði til í upp- hafi máls míns var ort um stríð og birtu vonarinnar. Á hinu viðburða- ríka ári sem nú er liðið vorum við margfaldlega minnt á hve fallvölt bygging heimsins getur verið. Fyrir ári var uggvænleg styijöld í nánd. Hún verður lengi í minnum höfð, ekki síst vegna þess að meðan á henni stóð fluttu fjarskiptatæki nú- tímans rimmur hennar jafnharðan inn í stofur okkar, - án þess þó að við skynjuðum beinlínis þær hörm- ungar sem stríði fylgja. Persaflóastríðið var einnig dap- urieg áminning um að ekki er friður tryggður þótt risarnir í austri og vestri hafi tekist í hendur. Hörmuleg styrjöld í Júgóslavíu, þar sem bræður beijast, vekur ugg og efa um að sáttfýsi og bræðralag fylgi í kjölfar þess sem við köllum framfarir nú í lok tuttugustu aldar. Ennfremur erum við vitni að því að stórveldið Sovétríkin leysist upp á örskammri stundu og verður að sambandi sjálfstæðra ríkja. Á sama tíma leitast þjóðir Evrópu við að sameinast að hluta til og þurrka út landamæri. Þessi tíðindi vekja blendnar til- finningar sem vonlegt er. Erfitt er að spá um framvindu mála en samt skulum við vænta þess að núverandi óvissa breytist í von og velfarnað þeirra þjóða sem hlut eiga að máli, hvort heldur miðflóttaöfl eða mið- sækin öfl ráða ferð. Heimsmynd margra hefur gjör- breyst. Er von að einhver spyiji: Hvar er öryggi að finna? Tíðindi sem þessi snerta okkur íslendinga ekki síður en aðra. Við veltum því fyrir okkur hvernig sam- skiptum okkar við bandalag evr- ópskra þjóða verður háttað og hvort breytinga sé að vænta á samstarfi Norðurlanda, sem okkur hefur þótt standa okkur næst um langan aldur. Óvissa um framtíð þjóða og þjóða- heilda er áleitin við þessi áramót. Hún hefur áhrif á hugleiðingar okk- ar um stöðu íslensku þjóðarinnar og framtíð hennar. Þegar eitthvað bjátar á hjá okkur sjálfum kyndir þetta ástand undir öryggisleysi og kann að verða til þess að sumum þyki vandfetað fram á veg. Það hefur lengi verið sagt að enginn sé búmaður nema hann beiji sér. Samt er það svo að við látum bæði vanda heimsins og örðugleika heima fyrir magna kvíða og svart- sýni svo mjög að við liggur að þjóð- in sé dregin niður í vonleysi. Góðir Islendingar. Það eru forréttindi að eiga þetta land sem enginn getur skipað okkur að láta af hendi, eiga þessa tungu sem enginn getur frá okkur tekið nema þá við sjálf í andvaraleysi. Að eiga saman, einmitt á íslenskri tungu, minningar og þjóðararf. í rás aldanna hefur íslensk þjóð tekist á við margs konar þrengingar og sigrast á þeim. Við eigum þol- gæði og festu liðinna kynslóða það að þakka að nú á dögum eru fáar þjóðir jafn auðugar og við. Því er það undrunarefni að hinir tíma- bundnu örðugleikar sem við eigum nú við að etja skuli uppvekja slíkan bölmóð sem raun ber vitni, - jafn- vel á ólíklegustu stöðum. Bölmóður leiðir af sér doða, doði fæðir af sér framtaksleysi. Bölmóður er háska- legur sálarheill barna og unglinga sem heyra meira en okkur grunar og trúa öllu sem sagt er. Kvíða þeirra er ekki eins auðvelt að upp- ræta og til hans að sá. Látum ekki leiðast í þann víta- hring sem verður til af virðingar- leysi manna fyrir þeim sjálfum. Við erum dugmikil þjóð. Örðug- leikar okkar nú um stundir blikna í samanburði við þrengingar for- mæðra okkar og forfeðra. Við mun- um sigrast á þeim með birtu hug- ans, afli handanna og auðlegð and- ans. Gleðilegt nýtt ár. Megi farsæld og guðsblessun fylgja íslandi og íslenskri þjóð á árinu sem nú fer í hönd og um alla framtíð. Heildarsala hlutabréfa í des- ember um 667 milljónir króna Samdráttur rakinn til takmarkana á skattalegnm fríðindum HEILDARSALA á hlutabréfamarkaðnum í desember nam alls rúmum 667 milljónum króna samkvæmt upplýsingum verðbréfafyrirtækjanna samanborið við um 1.200 milljónir á sama tíma í fyrra. Þennan sam- drátt í sölu má að miklu leyti rekja til takmarkana á skattalegum friðindum einstaklinga vegna hlutabréfakaupa en einnig ríkti deyfð á hlutabréfamarkaðnum síðari hluta ársins. Yfir árið í heild virðist veltan á markaðnum vera nálægt 5,4 milljörðum en þar af er reikn- að með að nýtt hlutafé í útboðum að fjárhæð 1.500 milljónir hafi verið selt án milligöngu verðbréfafyrirtækja. Veltutölum ber þó að taka með fyrirvara þar sem í einhveijum tilvikum gæti sala verið tvítalin. Velta með hlutabréf hjá Verð- bréfaviðskiptum Samvinnubankans nam alls um 266 milljónum á sl. ári samanborið við 270 milljónir árið áður. I desember seldust bréf fyrir 45 milljónir og milli jóla og nýárs var salan um 32 milljónir. „Það kom á óvart hversu lengi margir biðu til loka ársins að kaupa hlutabréf í stað þess að kaupa fyrr í desember þegar minni spenna var á markaðnum," sagði Þorsteinn Ólafs forstöðumaður. „Þá hefði hugsanlega verið hægt að gera betri kaup. Á milli jóla og nýárs seldust upp hlutabréf í Olíufélaginu og Eim- skip en auk þess seldust bréf í hluta- bréfasjóðunum vel.“ Þorsteinn sagði aðspurður að ekki væri byijað að skrá kaupgengi og hefði ekki verið ákveðið hvenær af því yrði þar sem búast mætti við lítilli eftirspurn eftir hlutabréfum á næstu vikum. „Þessi markaður hlýt- ur að byggjast meira upp á tilboðum en verið hefur áður og þróast í svip- aðan farveg og á tilboðsmarkaði Kaupþings.“ Hjá Verðbréfamarkaði íslands- banka seldust hlutabréf fyrir um 175 milljónir í desember en þar af 135 milljónir milli jóla og nýárs. Á árinu í heild nam salan rúmlega 1 milljarði samanborið við 1.450 millj- ónir í fyrra. „Salan í desember tók miklu betur við sér en við þorðum að gera okkur vonir um eftir frekar dræma haustmánuði,“ sagði Svan- bjöm Thoroddsen deildarstjóri. „Það er einnig mjög athyglisvert að í lok desembermánaðar keyptu nokkrir lífeyrissjóðir hlutabréf m.a. í Flug- leiðum. Þeirra þátttaka sem hefur verið ákaflega lítil að undanförnu jókst í desember sem gefur tilefni til bjartsýni um þátttöku sjóðanna í hlutabréfaviðskiptum á þessu ári. Svanbjörn sagði að stefnt væri að því að hefja skráningu á kaup- gengi að nýju í dag og kvaðst hann ekki eiga von á breytingum á geng- inu frá því sem var fyrir áramót. Þessi skráning væri hins vegar ætl- uð fyrir viðskipti með smærri fjár- hæðir. „Við munum eiga viðskipti með stærri flárhæðir gegnum til- boðskerfi sem verður samtengt kerfi Kaupþings og stefnum að því að öll viðskipti með stærri flárhæðir verði í gegnum tilboðskerfið.“ Hjá Kaupþingi var salan í des- ember 150 milljónir króna og yfir árið í heild nam salan um 600 millj- ónum. I desember var mikið selt af bréfum í Flugleiðum og Eimskip en einnig seldust hlutabréf í útboði Marels fyrir 28 milljónir. Að sögn Jóns Snorra Snorrasonar deildar- stjóra fór salan rólega af stað í desember og tók ekki við sér fyrr en milli jóla og nýárs. Hann sagði að reynslan af tilboðskerfi fyrirtæk- isins fyrir hlutabréf væri góð og væri fyrirhugað að búa til hluta- bréfavísitölu með upplýsingum úr kerfinu. „Hjá Landsbréfum var salan um 170 milljónir í desember og yfir árið í heild er hún um 940 milljón- ir. Salan hjá okkur í desember er um 60-65% af því sem hún var í fyrra og það er mjög í líkingu við það sem við áætluðum,“ sagði Sig- urbjöm Gunnarsson deildarstjóri. „Framan af mánuðinum var salan mjög svipuð og í fyrra en hins veg- ar voru síðustu dagarnir mun lak- ari, sérstaklega gamlársdagur. Við erum þó ánægðir því yfir árið í heild jukust hlutabréfaviðskipti Landsbréfa um 85% frá árinu áð- ur.“ Hann sagði að af einstökum hlutafélögum hefði ágæt sala verið í hlutabréfum Eimskips, Skag- strendings og Eignarhaldsfélags Alþýðubankans. Verðbréfamarkaður Fjárfesting- arfélagsins seldi hlutabréf í desemb- er fyrir 127 milljónir en þar af var sala milli jóla og nýárs um 101 milljón. Yfir árið í heild var veltan um 1.050 milljónir, að sögn Agnars Jóns Ágústssonar hagfræðings. Sólríkt var í júní og júlí. Veðrið árið 1991: Hiti yfir meðallagi ÁRIÐ 1991 var meðalhiti í höfuðborginni um 5° sem er 0.7° yfir meðallagi árannna 1961-1990. Meðalhiti á Akureyri var á sama tíma 4.5° sem er 1.3° yfir meðallagi ofangreindra ára. Úrkoma var 20% yfir meðallagi í Reykjavík og tæplega 40% yfir ineðallagi á Akur- eyri. Sólskinsstundafjöldi í Reykjavík var í meðallagi og einnig nálægt því á Akureyri. Samkvæmt bráðabirgðayfirliti Veðurstofunnar var veturinn 1990- 1991 fremur hlýr. Isingaveður gerði í byrjun janúar, en mikið óveður gekk yfir 3. febrúar. Tjón í veðrinu er talið nema hátt í einn milljarð króna. Talið er að vindhraði hafi komist upp í 66 metra á sekúndu. Fremur hlýtt var í mars en kalt í apríl. Tíðarfar var þó gott í báðum mánuðunum. Maí var óvenju þung- búinn og úrkomusamt var um sunn- an- og vestanvert Iandið. Tók þá við óvenju þurr og sólríkur júnímánuður og júlí fylgdi í kjölfarið óvenju hlýr. Hitabylgju gerði fyrstu viku mánað- arins og fór hiti upp í 29° eða meir á nokkrum stöðum. Nokkuð vætu- samt var í ágúst þó hiti hafi hins vegar verið í góðu meðallagi. Sept- ember, október og nóvember voru fremur kaldir og varð nóvember kaldasti mánuður ársins í flestum landshlutum. Desember var fremur hlýr en umhleypingasamur. Árið 1987 var ívið hlýrra á land- inu en árið 1991. Víðast var einnig hlýrra árið 1972. Mikill urgnr í sjó- mannastéttínni - segir Öskar Vigfússon formaður Sjómannasambands Islands MORG sjómannafélög í landinu hafa á undanförnum dögum haldið fundi þar sem stjórn og trúnaðarmannaráðum hafa verið gefnar heimildir til að boða vinnustöðvun. Að sögn Óskars Vigfússonar, formanns Sjómanna- sambands Islands, er verið að taka saman hvaða félög hafi nú þegar haldið fundi og hverjar samþykktir þeirra hafi verið. „Það fer ekki hjá því að það er mikill urgur í sjómannastéttinni, sér- staklega eftir þessa löggjöf um skerð- ingu á sjómannaafslætti. Flest sjó- mannafélögin hafa mótmælt skerð- ingu sjómannaafsláttar harkalega en það á eftir að koma í ljós hver við- brögð sjómanna verða,“ segir Óskar. Hann segir að ef hvorki gangi né reki geti komið til þess að gripið verði til aðgerða en það sé enn ekki ljóst hvað verði. Guðmundur Hallvarðsson, formað- ur Sjómannafélags Reykjavíkur og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, seg- ist vel skilja mótmæli sjómanna og meðal annarra hafi hann haft áhrif á að skerðing sjómannaafsláttar yrði ekki meiri en raun bæri vitni. Jafn- framt segir hann að með því að leggja málinu lið innan Alþingis megi segja að eins konar varnarsigur hafi verið unninn. „Ég gerði allt sem í mínu valdi stóð til að leiðrétta það sem hægt var. Það voru uppi háværar raddir um að afnema sjómannaaf- sláttinn alveg og ég átti meðal ann- ars þátt í því að svo fór ekki og taldi mig því hafa unnið það verk, sem hægt var að vinna. Margir hafa talað um að eðlilegra hefði verið að ég léti sjómannaafsláttinn afskiptalausan. Ég er hins vegar kjörinn á þing til að hafa áhrif og taldi því eðlilegt að standa að þessum málum eins og ég gerði, með því að draga úr þeim þunga, sem upphafleg tillaga fjár- málaráðherra gerði ráð fyrir," segir Guðmundur. Skipstjórafélag Norðlendinga er eitt af mörgum félögum, sem mót- mælt hefur skerðingu sjómannaaf- sláttarins. Á fundi, sem félagið hélt nýlega komu fram hörð mótmæli við skerðingunni og þáttur ýmissa þing- manna og forystumanna sjómanna við afgreiðslu málsins á Alþingi harð- lega gagnrýndur. Fundarmenn sam- þykktu að veita stjórn og trúnaðar- mannaráði félagsins umboð til verk- fallsboðunar. Sjómannafélagið Jötunn fordæmir einnig skerðinguna og átelur harðlega þá menn, sem eru í forsvari fyrir sjó- menn og greiddu atkvæði með skerð- ingu sjómannaafsláttarins og skorar á þá að segja af sér störfum fyrir sjómenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.