Morgunblaðið - 03.01.1992, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992
Minning:
Garðar Bjarnason
Hann elsku afi okkar er dáinn.
Hvernig verða jólin án hans afa
okkar? Hvemig verður að koma í
sumarbústaðinn og Snælandið og
enginn afi?
Já, okkur dettur svo margt í hug
þegar við hugsum um afa, hann var
alltaf svo góður við okkur. Og skól-
inn, alltaf var afi að spyija okkur
um skólann, hvemig okkur gengi.
Okkur fannst afi alltaf vera svo
ánægður með okkur og við áttum
vísan stuðning frá honum þegar við
-^teituðum til hans með áhugamál
okkar, t.d. þegar við báðum for-
eldra okkar um hund, kött, vasa-
hníf, hest — eða bara eitthvað.
Hann var alltaf svo glaður þegar
við bömin komum til þeirra ömmu
og afa í Snælandið eða í bústaðinn
á Þingvöllum. Alltaf var hann afi
tilbúinn að hjálpa okkur, hvort sem
var við veiðiskap, að finna til verk-
efni fyrir okkur eins og að smíða,
höggva í eldinn, slá blettinn, aðeins
að við hefðum nóg fyrir starfí og
væmm ánægð. Ekki megum við
gleyma öllum fallegu flugunum,
sem hann hnýtti í frítíma sínum á
veturna, til þess að gefa okkur þeg-
ar við týndum okkar, sem var æði
7 oft.
Elsku amma, við vitum að þú
saknar hans afa mikið, en við emm
hér hjá þér.
Guð blessi þig og minninguna
um hann afa okkar.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfí Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfír mér.
(H. Pétursson.)
Með kveðju frá barnabörnunum
í dag, 3. janúar, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju tengdafaðir
okkar, Garðar Bjamason, sem lést
á Landspítalanum 22. desember sl.
eftir harða baráttu við krabbamein.
Garðar fæddist 3. júní 1932 í
Sigmundarhúsum við Reyðarfjörð.
Móðir hans var Kristín Sigríður
Ottósdóttir, Magnússonar bónda í
Sigmundarhúsum og konu hans,
Bjargar Pétursdóttur. Faðir Garð-
ars var Bjarni Bjarnason vega-
vinnuverkstjóri, Jónssonar bónda í
Langey í Dalasýslu. Auk Garðars
áttu Kristín og Bjami soninn Ottó
Eið en hann lést 4. júní 1982. Þau
bjuggu á Grettisgötu 57, Reykjavík,
þar til leiðir þeirra skildu árið 1942.
Garðar giftist 15. ágúst 1953
Jóhönnu Júlíusdóttur frá Höfn,
Hornafirði. Börn þeirra em: Svein-
björn, f. 1953, hans kona er Björg
Stefánsdóttir, eiga þau tvær dætur;
Kristín Sigríður, f. 1956, hennar
maður er Steingrímur G. Stein-
grímsson, eiga þau 3 börn; Guðný
Júlíana, f. 1959, hennar maður er
Þráinn Óskarsson, eiga þau 3 böm;
Eiríkur Ingi, f. 1963, hans kona er
Sigurlaug Baldursdóttir, eiga þau
einn son; og Snorri Freyr, f. 1972.
Garðar og Jóhanna bjuggu lengst
af í Kópavogi eða til ársins 1969
en þá fluttu þau til Reykjavíkur og
hafa búið þar síðan. Garðar hóf
ungur störf hjá Ofnasmiðjunni hf.
og vann þar í u.þ.b. 20 ár, þar af
sem verkstjóri um árabil. Þá hóf
hann störf hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og starfaði þar til
dauðadags. Jafnhliða gegndi hann
hlutastarfí við dyravörslu á Hótel
Sögu og síðustu 10 árin húsvarðar-
stöðu hjá Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi.
Tengdafaðir okkar var maður
sem bar ekki tilfinningar sínar á
torg og án efa hafa þessir síðustu
mánuðir verið honum erfiðir. Ávallt
þegar hann var spurður hvernig
hann hefði það, var svarið það
sama: „Ég hef það bara gott.“
Nú þegar hann svo skyndilega
hefur verið hrifínn frá okkur, koma
upp í hugann ótal minningar og þá
fyrst og fremst hversu vel hann tók
á móti okkur inn í fjölskylduna. Frá
unga aldri hafði Garðar mikinn
áhuga á ættfræði og í seinni tíð
skráði hann tölu ættar sinnar allt
til landnámsaldar. Þá voru íslend-
ingasögurnar honum ákaflega hug-
leiknar og höfum við ekki kynnst
eins fróðleiksríkum manni á þeim
sviðum. Landið sitt þekkti hann
mjög vel og ferðaðist hann mikið
um það á sínum yngri árum. Þá
var hann mikill áhugamaður um
taflmennsku og veiðiskap. Sumar-
bústaðurinn þeirra á Þingvöllum
veitti þeim mikla gleði og ánægju.
Þar voru þau öllum stundum yfír
sumarið og ekki ósjaldan var þar
saman komin öll fjölskyldan við leik
og störf og voru það yndislegar
stundir. Ofarlega í huga okkar var
hin mikla væntumþykja hans fyrir
börnum okkar og var hún sannar-
lega gagnkvæm. Ljúf er minning
okkar þegar mynd þeirra beggja
kemur upp í hugann. Var hjónaband
þeirra ákaflega farsælt og var óeig-
ingjarn stuðningur hennar í veik-
indum hans honum mikils virði og
var umhyggja hennar fyrir eigin-
manni sínum okkur lærdómsrík.
Viljum við með þessum orðum
þakka Garðari samfylgdina og biðj-
um algóðan Guð að styrkja ástkæru
tengdamóður okkar.
Björg, Þráinn
og Steingrímur.
í dag er til moldar borinn góður
vinur okkar, Garðar Bjarnason, sem
látinn er fyrir aldur fram eftir stutta
en erfíða sjúkdómslegu.
Kynni okkar hófust fyrir u.þ.b.
17 árum er nokkrir vinnufélagar
fóru að hitast reglulega til að sinna
sameiginlegu áhugamáli sínu, skák-
Iistinni. Smám saman þróaðist fé-
lagsskapur þessi og varð að „fjöl-
skylduskákklúbbi", þar sem allir
íjölskyldumeðlimir komu saman
hálfsmánaðarlega yfír vetrartím-
ann. Áhuginn að koma saman var
slíkur að jafnvel verstu óveður gátu
ekki hindrað þessar kvöldstundir
okkar. Allir sinntu þar hugðarefn-
um sínum en mest bar þar á
skákköppum. Yfir góðum kaffisopa
í hléi voru helstu þjóðmálin rædd
og leyst. Þannig hefur þetta gengið
síðastliðin 15 ár og aldrei borið
skugga á vináttu þessara hjóna.
Það að hittast svona reglulega og
njóta ánægjulegra samvista var
fastur punktur í tilveru okkar en
fátftt má telja að hópur með þessi
áhugamál bindist svona sterkum
böndum. Nú sjáum við best hve
þessi ár hafa verið okkur ómetan-
leg. Garðar var frekar dulur að
eðlisfari, en naut sín vel í góðum
vinahópi og var góður vinur vina
sinna. 2. febrúar síðastliðinn héld-
um við hátíðlega upp á 200. skák-
klúbbinn okkar og þar var Garðar
hrókur alls fagnaðar að vanda,
ásamt hinum lukkuriddurunum sem
hann nefndi þá vinina. Þar voru
einnig börnin sem verið höfðu í
skákklúbbnum, sum komin með eig-
in fjölskyldu og gátu þau rifjað upp
betnskubrekin og allar ánægju-
stundirnar. Engan renndi grun í að
þetta væri síðasti klúbburinn með
þessu sniði eða það sem á eftir
kom. Þrem vikum síðar fengum við
þær slæmu fréttir að Garðar gengi
ekki heill til skógar og skömmu
seinna staðfestist að greinst hefði
hjá honum hinn illvígi sjúkdómur,
krabbamein. Lengi vorum við bjart-
sýn um bata en verðum nú að sætta
okkur við þessi endalok.
Alltaf var gaman að fá í skák-
klúbbnum fréttir af velferð barna
þeirra og barnabarna, þó að við
hittum þau ekki oft eftir að þau
uxu úr grasi og fluttu að heiman.
Þar var á ferðinni sameiginlegt
áhugamál þeirra hjóna, Garðars og
Jóhönnu. Auk skákáhugans hafði
Garðar yndi af veiðiskap og útivist
hvers konar, einnig undi hann sér
vel í sumarbústað þeirra hjóna og
var hann þar kominn vel á veg með
ræktun. Hann hafði einnig ánægju
af lestri góðra íslenskra bókmennta,
sérstaklega frá fyrri tíð.
í veikindum Garðars hafa börn
þeirra staðið við hlið Jóhönnu móð-
ur sinnar og var ánægjulegt að
hann gat dvalið svo Iengi heima
við, enda var öll ijölskyldan sam-
taka um að létta honum stundina.
Á miðju sumri tók Jóhanna sér frí
frá vinnu sinni og helgaði sig
umönnun manns síns, stóð hún við
hlið hans sem klettur, styrkti hann
og hjúkraði. Alltaf var ánægjulegt
að koma á heimili þeirra hjóna í
gegnum árin og þótt það tæki okk-
ur sárt að sjá hve heilsu hans hrak-
aði undanfarið var okkur alltaf vel
tekið. Þá sáum við hve Garðar mat
mikils að hafa konu sína sér við
hlið og var þakklátur fyrir umönnun
hennar og stuðning.
Elsku Jóhanna og fjölskylda, við
vottum ykkur okkar dýpstu samúð.
Við vitum að hin sterka trú ykkar
mun hjálpa ykkur að komast yfir
þennan mikla missi ástvinar. Við
hjónin kveðjum hér góðan vin.
Blessuð sé minning hans.
Jón, Margrét, Eiríkur,
Jóhanna og fjölskyldur.
Fæddur 3. júní 1932
Dáinn 22. desember 1991
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast tengdaföður míns,
Garðars Bjarnasonar. Hann var
kvæntur Jóhönnu S. Júlíusdóttur,
oftast kölluð Lilla, og eiga þau fimm
böm, Sveinbjörn, Kristínu,
Guðnýju, Eirík og Snorra, allt vel
gert myndarfólk.
Kynni mín af Garðari hófust árið
1987 þegar ég kom ný inn í fjöl-
skylduna. Fyrir mig þá 22ja ára var
þetta heljarmikið þrekvirki að heilsa
og kynnast tilvonandi tengdafor-
eldrum, en svo sannarlega hefði ég
ekki þurft að kvíða því, því mér
leið strax vel í návist þeirra og þau
létu mig finna að ég væri velkomin
á þeirra heimili. Tveimur árum
seinna átti enn betur eftir að reyna
á góðvild þeirra í okkar garð, mín
og Eiríks sonar þeirra, þá vorum
við að kaupa okkar fyrstu íbúð og
vorum í húsnæðisvandræðum í eina
fimm mánuði áður en við gátum
flutt inn. Þá buðu þau okkur að búa
hjá sér og er ég þeim ævinlega
þakklát fyrir það. Það eru margar
góðar minningar frá þeim tíma.
Garðar og Lilla byggðu sumarbú-
stað á Þingvöllum með góðri aðstoð
barna sinna og tengdasona og voru
það mestu sælustundir Garðars að
vera í sumarbústaðnum og dvöldu
þau hjónin þar langdvölum á sumr-
in.
Mér er mjög minnisstætt þegar
við Eiríkur eignuðumst son okkar
Sævar Inga í ágúst 1990, þegar
þau Garðar og Lilla komu til mín
á fæðingardeildina og varð hann
klökkur þegar hann sá sonarsoninn,
þarna sá ég alveg nýja hlið á Garð-
ari. En eftir að hafa eignast barn
sjálf fann ég hversu góður afi Garð-
ar var barnabörnunum sínum. Hafði
hann mjög gaman af þegar allur
fjöldinn var samankominn í Snæ-
landinu, börnin, tengdabörnin og
barnabörnin. Af sínum alkunna
myndarskap sá þar Lilla um Ijúfar
og góðar veitingar handa öllum
ijöldanum.
Þau hjónin Garðar og Lilla stóðu
alltaf vel saman og var Lilla honum
dyggileg stoð og stytta allt fram á
síðasta dag.
I bjargfastri trú bið ég góðan
Guð að blessa og gæta Garðars,
styrkja Lillu og alla ástvini hans.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga’ og nætur yfír þér.
Blíðlynd eins og bezta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, - Drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér.
(S. Kr. Pétursson)
Sigurlaug Björg Baldursdóttir
Fullkomin
Júdó
Byrjendanámskeib
Aðalþjálfarar:
Michal Vachun 6. Dan
Bjarni Friðriksson 5. Dan
..
Líkamsrækt
GYM 80 tækjasalur
Dynavit þrektæki
Lifestep þrekstigar
Sjálfsvörn
Jiu - Jitsu
Þjálfari:
Elín Þórðardóttir 1 Kyu
Líkamsrœkt
• 500 ferm. glæsilegt húsnæði, ab Einholti 6
« Mánaðarkort kr. 3.900.-
• 3 mánaða kort kr. 8.800.-
3 mánaða kort (dagtímar frá kl. 10-16) kr. 6.800.-
Upplýsingar oq innritun alla virka daga frá kl. 10-22 í síma 627295
eoa frá kl. 11-Í6 laugardaga og sunnudaga.
ARMANN
JÚdÓ GYM
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.