Morgunblaðið - 03.01.1992, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 03.01.1992, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FÓSTUDAGUR 3. JANUAR 1992 47 Hver fann fyrstur Aineríku? * eftir Bjarna Olafsson Þeirri spurningu á ég erfitt með að svara beint, en svo virðist, að aðalmálið sé hver eigi Leif heppna, Norðmenn eða íslendingar, þegar minnst er á fund Vínlands hins góða. Þegar lausn er fengin á eignar- réttinum á Leifi er allri umræðu um það mál hætt. Ég átti fyrir margt löngu í hörku rifrildi við norska sjómenn á norsku skipi um Leif og fannst mér norskir grunnskólar vera í vondum gæða- flokki þar eð sjómennirnir vissu ekki að Leifur hefði verið fæddur á ís- landi en ekki Noregi eins og sjó- mennirnir norsku staðhæfðu. En vissulega áttu þeir málsbætur. Grænlendingasaga hefur verið til á íslandi í meira en sex hundruð ár en Norðmenn hafa minni kost átt á því að geta lesið hana eða engan. Við sitjum við fræðabrunninn og þurfum aðeins að rétta fram hendina eftir vatninu úr honum. — En við gerum það ekki. Það er meiri mannsbragur að því, að íslendingar fræði aðrar þjóðir um elstu skrifaðar frásagnir af Vín- landsferðunum en standa i meining- arlausum þrætum um eignarréttinn á Leifi heppna.- I enskum fræðibókum er sagt að Norðmenn hafí fundið Vínland. Þannig er umheiminum gert kunn- ugt hveijir fyrstir stigu fæti á meg- inland Vesturheims. Islendingar láta ekkert frá sér heyra um það, sem skrifað var fyrir meira en sex hundr- uð árum hér á landi um Vínlands- ferðir Islendinga og Grænlendinga á ofanverðri tíundu öld og fyrri hluta elleftu aldar. Kemur umheiminum það annars nokkuð við hvað munkar óþekktir og nunnur skrifuðu um það úti á Fróni? Það er trúlega misjafnlega rétt sagt frá staðreyndum, en nær þeim verður þó varla komist. Frásagnir sjómanna í dag án ritaðra eldri heim- ilda geta varla verið miklu réttari. „Óll þekking er í molum“, er skrif- að á gamla bók. Það hefur t.d. lengi verið talið að Leifur heppni hafi fundið Vínland árið 1000, en nú er sagt að 1000 ár séu síðan og þá hefur hann kom- ið þangað árið 991. Fann Leifur Eiríksson fyrstur meginiand Vesturheims? í bókinni íslandssaga til okkar daga segir: „Sagnir um Leif eru ekki mjög traustar. Öruggari virðast heimildir um þau Þorfinn Þórðarson karlsefni frá Höfða á Höfðaströnd og konu hans, Guðríði Þorbjarnardóttur frá Stokkanesi, er nú nefnist Narss- arssuaq á Grænlandi." í Grænlendingasögu segir frá ís- lenskum manni, Bjarna Heijólfssyni, er fyrstur sigldi svo langt vestur fyrir Grænland að hann sér lönd þar og lýsir þeim þegar hann kemur til Noregs. Hann hafði þá siglt frá Noregi með viðkomu stuttri á Is- landi og ætlaði sér til Grænlands, sem hann komst að iokum. Landafundur Bjarna varð sama árið og landnám íslendinga á Græn- landi. íslendingabók Ara prests fróða segir svo frá: „En það var, er hann (Eiríkur rauði) tók að byggja landið, fjórtán vetrum eða fimmtán fyrr en kristni kæmi hér á íslandi, að því sá taldi fyrir Þorkeli Gellissyni á Grænlandi, er sjálfur fylgdi Eiríki hinum rauða út.“ Bjarni hefur því fundið meginland vesturálfu ekki seinna en árið 986. Eftir umræður um landafund Bjarna ræðst Leifur Eiríksson í að fara könnunarleiðangur og kanna þau lönd er Bjarni fann. í íslenskum handritum segir: „Nú bjuggu þeir skip sitt og fundu það land fyrst er þeir Bjarni fundu síð: ast:“ Síðar í handritinu segir: „í þriðja sinn finna þeir land eftir að hafa siglt í iandnyrðing." — Þar dvelja þeir og reisa skála. Þar fannst vínviður vaxinn og Leifur gaf þessu landi nafnið Vínland. Heimförin varð happadrýgst því þá lánaðist Leifi að bjarga mannslíf- um. Hann finnur fólk á skeri en skip þess hafði brotnað. Þess vegna var nafn hans lengt og hann kallaður Leifur heppni eftir það. Farmaðurinn, sem Leifur heppni bjargaði, hét Þórir austmaður og er því Norðmaður, en hann lést um veturinn í Brattahlíð á Græn- landi. Kona hans hét Guðríður Þor- bjarnardóttir og var af írskum ætt- um. Hún kemur allra kvenna mest við sögu Vínlandsferðanna eftir að hún missti Þóri mann sinn. Hún giftist síðast skagfirskum bóndasyni Þorfinni karlsefni, Handritin íslensku segja um frá- sagnir af Vínlandsferðunum: „Og hefur karlsefni gerst sagt allra manna atburði um farar þessar all- ar, er nú er nokkurt orð á komið.“ Um írsku konuna hans er þetta sagt: „Guðríður var sköruleg kona að sjá og vitur kona og kunni vel að vera með ókunnum mönnum.“ Augljóslega lýsa handritin henni sem meiri háttar konu. Þau hjón gera alvarlega tilraun til þess að nema land á Vínlandi, en verða að hverfa þaðan eftir þrjú ár. Þar fæðist þeim sonurinn Snorri. Er hann fyrsta barn af hvítum kyn- stofni sem skráður er fæddur í Vesturheimi? Snorri reisti kirkju á föðurleifð sinni, Glaumbæ í Skagafirði. Landn- ám Karlsefnis á Vínlandi var á fyrsta tug elleftu aldar (1006)? Hver er hlutur Norðmanna í Vín- landsferðunum? Norðmenn eiga heiðurinn af því að hafa smíðað skipin, sem siglt var á til Vínlands og að þau voru eftir norskri fyrirmynd. íslendingar rekja ættir sínar til Norðmanna. Nýr Farsæll á flot HJÁLPARSVEIT skáta í Vest- mannaeyjum hefur tekið í notk- un nýjan björgunarbát. Báturinn er af gerðinni Alusafe 900 og er smíðaður í Noregi. Nýi báturinn hefur fengið nafnið Farsæll, en það nafn bar eldri bátur sveitar- innar einnig, en hann hefur nú verið seldur. Nýi Farsæll er 9,2 metrar að lengd og 3,3 metrar á breidd. Hann ristir 1,1 metra og eigin þyngd er 3.400 kg. Skrokkurinn er smíðaður úr áli, en flotkransinn úr stífum og frauðsvampi. Öll skilrúm eru fa- rauðfyllt og á báturinn að fljóta fullur af sjó. I stýrishúsinu er rými fyrir sjúkrabörur og ssæti fyrir 5-7 manns. Vélin er Vaterpillar 3208TA, 425 hestöfl. Drifbúnaður er Castoldi 06 wateijet og gang- hraði er rúmlega 30 sjómílur. Elds- neytistankur tekur 390 lítra og var- atankur 200 lítra. Langdrægni er 280-320 sjómílur. Meðal búnaðar er Loran- og GPS staðsetningar- „Ég er sáttur við það að Leifur heppni sé sagður sonur Islands o g sonarsonur Noregs.“ Hverrar þjóðar var Leifur heppni? Þetta er skrifað í íslendingabók af Ara presti fróða: Frá Grænlendingabyggð „Þeir fundu þar manna vistir bæði austur og vestur á landi og keiplabrot og steinsmíði það, er af því má skilja að þar hafi þess konar þjóð farið, er Vínland hefur byggt og Grænlendingar kalla skrælingja." Hvaða menn eru það sem Ari prestur fróði nefnir Grænlendinga? Islendingabók Ara er talin rituð ekki síðar en árið 1133. Hver er hlutur íslendinga? Þeir skrifuðu um byggð Græn- lands fyrir meira en sjö hundruð árum og Vínlandsferðirnar fyrir meira en sex hundruð árum og handritin hafa geymst til okkar daga. Siglingaleiðir djörfustu sæfara heims á ofanverðri tíundu öld og í byijun elieftu aldar. „Land það er kallað er Grænland fannst og byggðist af íslandi“, skrifar Ari. Vínlandsferðirnar voru famar frá Grænlandi. Siglingaleiðin Það er kunnugt að seglabúnaður víkingaskipanna var frumstæður (rásegl). Nær engin leið eða alls engin var að sigla móti vindi. Þess vegna réð vindur því mjög hvert skipin héldu. Skipin sjálf voru traust. Þau voru létt á sjónum og lyftu sér á bárunum þegar þær riðu undir skipið. Veðurátt fer eftir lægðum. Vind- urinn snýst rangsælis kringum lægð- imar. Vindurinn er miðsækinn. Hann er austlægur norðan lægð- armiðjunnar en vestlægur sunnan hennar. Lægðirnar á Norður-Atlans- hafi koma oft frá Nýfundnalandi og halda í átt til Noregs, milli Islands og Færeyja. Þetta virðast þeir Leifur heppni og Þorfinnur karlsefni hafa kunnað að nota sér. íslensku handritin segja: — „Er Leifur sigldi af Grænlandi um sum- arið urðu þeir sæhafa til Suður- eyja“. - Þegar Karlsefni flutti burt af Grænlandi til íslands hélt hann fyrst til Noregs og þaðan til íslands. „Bjarni Heijólfsson kom utan af Grænlandi á fund Eiríks jarls (í Noregi). Sagði Bjarni frá ferðum sínum, er hann hafði lönd séð“. Saga kynstofnsins er „byggði Grænland af íslandi" er saga glæsi- legra siglinga og sigra og mikilla örlaga. Mesta harmsaga íslensku þjóðarinnar Þegar 422 ár voru liðin frá þvi að „Grænland byggðist af íslandi" hverfa frásagnir íslendinga um byggð Grænlands. Síðasta bréf á íslensku um byggð Grænlands segir frá því að hinn 16. september árið 1408 voru gefin sam- an í hjónaband á Grænlandi brúð- lvjónin Sigríður Björnsdóttir og Þor- steinn Ólafsson með ráði Sæmundar Oddssonar frænda brúðarinnar. Bréf þetta var vottfest. (ísl. forn- bréfasafn, III. bindi, 632. bréf). Ungu brúðhjónin komu tveim áruir síðar til íslands og margir íslending- ar eru taldir afkomendur þeirra. Hins vegar hefur ei síðan spursi til afkomenda þeirra á Grænland er „byggðu Grænland af íslandi" svr_ óyggjandi sé. Næsta sigling til Grænlands vai meira en þrem öldum síðar. Trúboðinn Hans Egede kom þé frá Danmörku. Hann hugðist gets séð afkomendur þeirra manna ei „byggðu Grænland af íslandi", en varð fyrir vonbrigðum með það. Þeir fundust ekki. Mig minnir að það sé eftir Hall- dóri Laxness haft að hvarf kyn- stofnsins er „byggði Grænland ai íslandi", sé mesta harmsaga íslands. Rústir mannvirkja á Grænlandi og Nýfundnalandi sýna enn að fyrir þúsund árum hefur fólk frá Evrópu komið þangað. Rúsir íbúðarhúsa, gripahúsa, jámsmiðja, kirkna og grafreitir bera vitni um að þar bjó fólk, sem þekkti evrópska menningu. íslendingar ein- ir þjóða rituðu frásagnir af þessu fólki. Ég er sáttur við það að Leifur heppni sé sagður sonur íslands og sonarsonur Noregs. Eiríkur rauði faðir hans var höfðingi á Grænlandi og sonur hans eftir hans daga. Þeir lutu hvorki klerki né kóngi frekar en íslenskir höfðingjar á þeim tíma. Grænlendingasaga segir: „Eiríkui rauði bjó í Brattahlíð. Hann var þar með mestri virðingu, og lutu allir til hans.“ Norðmenn og íslendingar hafa nú vakið athygli á ferðunum til Vín- lands fyrir þúsund ámm með för sinni á víkingaskipinu Gaia. Ég óska þeim gæfu og gengis og megi sigling þeirra heppnast með ágætum og eiga farsælan endi. Höfundur er grunnskólakennari og ellilífeyrisþegi. Bjarni SighvaUson. Farsæll, liinn nýi björgunarbátur Iljálparsveitar skáta í Vestmanna- eyjum. tæki, 24 mílna ratsjá, VHF- og CB talsstöðvar, dýptarmælir, hraða- mælir og vegmælira. Björgunarsveitirnar í Vest- mannaeyjum eiga nú tvo stóra björgunarbáta. Björgunarfélag Vestmannaeyja á annan öflugan bát, Kristin Sigurðsson. Mikið ör- yggi er af þessum bátum, því að hafnarsvæðið umhverfis Vest- mannaeyjar getur verið afara við- sjárvert eins og dæmin sýna- segir í frétt frá Landsbjörg. *' ^ »>•. ■ 4»V . I Innritun á höfuðborgarsvæöinu 3.-8. janúar í símum 20345 og 74444 kl. 13-19 dag- lega. Skírteini aflient í Brautarholti 4 fimmtudaginn 9. janúar kl. 17-20. Kennsla hefst föstudaginn 10. janúar. lnnritun á Suðurnesjum í síma 92-68680 kl. 20-22, 6., 7. og 8. janúar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.