Morgunblaðið - 03.01.1992, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992
53
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
891282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
'r: 1 b
Alúöarþakkir öllum þeim, sem sýndu mér
vinsemd og virÖingu á sextúgsafmœli minu
23. desember sl.
Aðalsteinn Guðjohnsen.
HASPEKI
Háspekin (metafysik) fjallar um
það sem enginn veit neitt um, og
aldrei getur vitað neitt um.
Háspekin er fræðin um það sem
skeður handan efnisheimsins.
Metafysik (meta-ta fysika) var
orðatiltæki sem Aristoteles notaði
upprunalega og þýðir „eftir
náttúrunni", eða handan náttúr-
unni. Háspekin spyr því og leitar
svars við öllu handan þekkingu
okkar og reynslu.
Háspekin gengur út frá öðrum
heimi, jafn raunhæfum efnis-
heiminum, en sem við aðeins get-
um nálgast fræðilega (teoritiskt)
í huganum eða við getspá. Há-
spekin leitast við að útskýra
hvemig heimurinn lítur út „í sjálf-
um sér“ þ.e. án skilningarvita okk-
ar.
Einhyggja (monismi) segir
heiminn einn og óskiptan, þ.e. efni
og andi em tvær hliðar á sama
fyrirbærinu. Tvíhyggja (dualismi)
gengur út frá tvískiptingu heims-
ins í efni og anda, sál og líkama.
Heimurinn er blekking (maya)
segja hindúar, og vissulega hafa
menn tekið eftir hverfulleika hins
sýnilega heims, allt frá dögum
Platos. Aðeins hugmyndirnar (ide-
umar) em óbreytilegar.
Gert er ráð fyrir að efnisheimur-
inn lúti föstum náttúrulögmálum
sem hægt er að vega og meta og
færa sönnur fyrir. Aftur er ekki
hægt að svara spurningunni um
tilvist Guðs, fijálsan vilja, né
ódauðleika sálar rökrétt (logiskt)
né á reynslu gmndvelli, og þess-
vegna er háspeki byggð á vísinda-
legum gmndvelli ekki til (I. Kant).
Annars setja nýjustu vísindalegir
landvinningar vissulega svip sinn
á spurningar háspekinga í dag.
Stjarneðlisfræðingar segja okk-
ur að alheimurinn sé sífellt að
stækka, þenjist út eins og vind-
belgur með hraða ljóssins. Eftir
áraraðir (12-15 milljarða ára)
muni hann springa eins og upp-
HEILRÆÐI
Passið
ykkurá
myrkrimj!
blásin blaðra, og tortímast. Há-
spekin spyi-: Ferst Guð þá einnig
og allt hans sköpunai'verk? Og
ennfremur: Hvérs vegna var Guð
þá að hafa fyrir' þessu?
Nú veit ég að „þeir frómu“ reka
upp kveinstafi, og fórna höndum
í vandlætingu. En áður en þeir
kasta mér á bálið vil ég þó rétt
minna á að það er ekki svo ýkja
langt síðan einnig átti að fórna
Galileo. Ástæðan, jú hann hafði
staðhæft þá „firru“ að jörðin sner-
ist í kringum sólina, jafnframt því
að hún snerist í kringum sjálfa sig.
Ég hefí sjálfur reynt að bjarga
Guði frá þessum dapurlegu örlög-
um sem bíða hans. Á vísindalegum
grundvelli er þetta ekki hægt, en
hér kemur háspekin e.t.v. að góðu
haldi.
Háspekin spyr margs, en gefur
fá haldgóð svör.
Öll spyijum við þó um Guð, til-
verana, tilgang lífsins og eilífð-
ina... og þess vegna erum við
öll háspekingar.
Richardt Ryel
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem glöddu
mig á áttrœöisafmœli minu þann 11. desem-
ber sl.
GuÖ blessi ykkur öll.
Njóla Dagsdóttir.
LÆKNINGASTOFA
Hef flutt lækningastofu mína úr Domus Medica
í Læknasetrið, Þönglabakka 6, Mjóddinni.
Viðtalsbeiðnir virka daga kl. 9-12, 13-17
í síma 677700.
Ari Jóhannesson, iæknir.
Sérgr.: Lyflækningar,
innkirtia- og efnaskiptasjúkdómar.
plirrgimltl
| Meira en þú geturímyndað þér!
\taUthNS\9
Kennslustaðir: Auðbrekka 17 og "Lundur"
Auðbrekku25 Kópavogi.
Kennum alla samkvæmisdansa:
suðurameríska, standard og gömlu dansana.
Einnig bamadansa fyrir yngstu kynslóðina.
Einkatímar eftirsamkomulagi.
Innritun og upplýsingar dagana 2. - 6. jan.
kl. 13 -19 í síma: 641111.
Kennsluönnin er 18 vikur,
og lýkur með balli.
FID Betri kennsla - betri árangur.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
_
UTSALAN HEFST I DAG
Opiö til kl. 18.00 í dag
Opið laugardag kl. 10.00-16.00
IIUIL
v/Laugalæk, sími 33755.