Morgunblaðið - 24.01.1992, Síða 8
8 D
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992
ÍG VIiT þoð, Prottinn,
oð ég vex aldrei upp
fyrir frén j>in.
AFRÍSKT ORÐTAK
„VIÐ ERUM auðvitað raeð fullt
af vandamálum í þessu landi, en
þú færð engan til að tala um þau
við þig. Fólki ber að vera ánægt
með sitt hlutskipti," segir farar-
stjórinn við mig eftir að við höfð-
um rétt heilsast á flugvellinum í
Nairobi og ég farin að dást að
ioftslaginu og gróðrinum í kring-
um mig. Síðar í ferðinni komst
ég að því að staðhæfing farar-
stjórans átti við rök að styðjast.
Enginn talaði um pólitík. Ef
minnst var á stjómmál var kom-
ið að lokuðum dyram hjá þeim
og hvar sem komið var mátti sjá
á veggjum myndir af Moi, for-
seta landsins.
í Kenýa er einsflokkskerfi og
stjórnarskráin bannar fleiri flokka.
Þrátt fyrir það hefur Kenýa búið
við öryggi í fjölda ára, en þar hefur
ekki verið gerð uppreisn síðan land-
ið var gert að lýðveldi fýrir 28 árum.
Aldrei hafa verið herforingjastjórnir
eða sósíalískar stjómir. Við lýði er
opið hagkerfi með sínum göllum og
kostum. Frambjóðendur þurfa að
keppa innbyrðis þegar kemur að
kosningum og eru 10-15 manns um
hvert sæti. „Og þó menn séu flokks-
bundnir, verða þeir að standa sig
til að komast að í heimi stjórnmál-
anna því fólkið í landinu velur þá
menn, sem það treystir best,“ segir
Ingi Þorsteinsson, ræðismaður okk-
ar sem nú vinnur að markaðssetn-
ingu ferða fyrir íslendinga þangað
ásamt Flugleiðum, íslenskum ferða-
skrifstofum og Kenya Airways.
Allnokkurrar gagnrýni hefur
gætt á Vesturlöndum upp á síðkast-
ið í garð stjómvalda vegna þróunar-
aðstoðar sem þau hafa veitt þangað
og oftar en ekki er talað um spill-
ingu í því sambandi. „Já, spillingin.
Hún er eins og hún er. Það er aldr-
ei hægt að sanna eða afsanna
neitt,“ segir Ingi. „Ég held samt
sem áður að spilling hér sé ekkert
meiri en gengur og gerist annars
staðar."
„Það er ákaflega mikilvægt fyrir
Kenýa að búa við öryggi sem land-
ið hefur gert nú í mörg ár, svo og
fegurð og góða þjónustu," segir
Ingi. Um það bil milljón ferðamenn
sóttu landið heim á síðasta ári og
hefur orðið tvöföldun á ferðamann-
afjölda þar á síðustu fímm ámm.
Hún Anna, sem vinnur í mark-
aðsdeild Kenya Airways, var að
gifta sig um daginn með pompi og
prakt. Hún ljómaði þegar ég fór
að tala um giftinguna við hana og
sagðist ekki geta stoppað lengi í
veislunni sem við hittumst í vegna
þess að eiginmaðurinn biði heima
eftir sér. Hún sagði mér þó af gift-
ingunni sem fram fór í kirkju þar
sem bæði em kristin. „Þegar prest-
urinn var a§ gefa okkur saman,
sagði hann í ræðunni að engin gift
kona í Kenýa væri ánægð vegna
þess mikla karlaveldis sem er hér.
Hann beindi orðum sínum til mín
sérstaklega og bað mig um að horfa
í kringum mig í kirkjunni. Ég
mætti benda á hveija þá konu, sem
væri virkilega ánægð í sínu hjóna-
bandi. Þegar ég fór að hugsa og
stóð þama upp við altarið í öllum
mínum skrúða, gat ég það ekki.
Þetta var satt sem presturinn var
að segja. Ég gat ekki bent á eina
einustu konu, sem var virkilega
ánægð með sitt hlutskipti. En ég
vissi að ég var ánægð og hvern
mann sá maður sem stóð við hlið
mér hafði að geyma. Við höfðum
búið saman í sjö ár áður en við leidd-
umst upp að altarinu," sagði Anna
ogkvaddi.
í Kenýa er sagt að enginn sé
maður með mönnum nema hann
eigi land, sér og fjölskyldu sinni til
viðurværis, og um 90% karla, ríkir
og fátækir, eiga land, stórt eða
smátt. Þeir segjast þurfa þess til
að hafa að einhveiju að hverfa í
Gulf Air kaupir 12 nýjar
flugvélar til ársins 1994
GULF AIR fékk nýlega tólftu Boing 767-300 og þar með eru þrjátíu
vélar í farþegaflugi Gulf Air. Talsmenn flugfélagsins tilkynntu að þeir
hefðu pantað 12 til viðbótar af Airbus A 320 gerð og verða þær afhent-
ar á næstu tveimur árum.
Gulf Air er í eigu Flóaríkjanna
Bahrein, Qatar, Ómans og að nokkru
leyti Sameinuðu arabísku furstadæ-
manna. Heimahöfn þess er Bahrein.
Það hefur hert mjög auglýsingar og
kynningar og lagt kapp á að vera
með nýjustu flugvélamar eftir að
Dubai stofnsetti sitt eigið flugfélag
Emirates sem hefur veitt Gulf Air
mjög harða samkeppni. Þjónusta við
farþega hefur einnig verið stórbætt
og þótti þó góð fyrir. Nám fyrir
flugliða sem vinna hjá Gulf Air hefur
verið lengt og þeir þurfa nú að upp-
fylla mun strangari skilyrði en áður.
Talsmenn Gulf Air segja að með sín-
um myndarlega og nýja flugflota,
stundvísi og góðri þjónustu muni
Guif Air standa sterkar en áður.
Mepalhitastig í janúar
Borg___ ______________Hiti, *C
jAdelade_________________25 ~j
Bandar Seri Begawan 27
[ Bangkok 32 |
Belgrad__________________4
Bogota 18
Brisbane________________28
[ Buenos Aires ~ ,29
Colombo ________________26
l Dhaka 19 ~|
Dubai __________________19
l Guangzhou 14 l
Harare _________________25
Hong Kong 17 [
Jóhannesarborg__________26
I Istambul 5 I
Kaíró__________________14_
[ Karachi________________16 l
Lagos __________________ 30
[ Manila................. 27 J
Peking___________________3
I Perth__________________23 ]
SeouJ____________________0
IShariah 23H
Vancouver________________3
I Vínarborg 1 ~l
Spilavítisferðir
frá Flórida
Frá Þórði Johannssyni, Iiandaríkjunum
Á ÞESSUM árstíma dvelja
margir íslendingar í Florida
og gæti þótt gott að vita að
ekki er langt að fara í stór
spilavíti á „Grand Bahamas“
í Karabískahafinu.
Þar sem Florida hefur ekki leyfi
fyrir rekstri spilavíta er komið til
móts við óskir ferðamanna sem
vilja reyna heppni sína, með því
að bjóða tíðar og ódýrar flugsam-
göngur frá Ft. Lauderdale til Ba-
hamaeyja. Princess Casino hótelið
stendur m.a. fyrir flugferðum á
ótrúlega lágu verði, eða frá 49
dollurum fyrir ferð fram og til
baka.
Innifalið eru afsláttarmiðar á
mat, í nokkrai verslanir og að
auki jafnvirði 50 dollara í spilapen-
inga. Ekki eru innifalin flugvallar-
né þjónustugjöld og best að panta
með góðum fyrirvara.
Flugferðin tekur aðeins um 40
mínútur. Sumir fara í dagsferðir
en hægt er að fá gistingu fyrir
gott verð þar sem hótelspilavítin
leggja ekki áherslu á að selja gist-
ingu svo að yfirleitt má fá her-
bergi. Menn skyldu athuga að taka
vegabréf sitt með.