Morgunblaðið - 21.02.1992, Page 5

Morgunblaðið - 21.02.1992, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992 D 5 ekki verið með beina meðferð fyrir börn sem stama heldur aðallega sinnt ráðgjafaþættinum. „Ástæðan er einfaldlega sú að okkur skortir mannskap til að sinna meðferðar- þættinum. Við höfum komið upp ágætu greiningarkerfi hér á landi en þegar kemur að meðferðarþættin- um virðast allir geta skotið sér und- an ábyrgð. Þjónustan hjá heyrnar- og tal- meinastöðinni er einvörðungu ætluð börnum á forskólaaldri og þegar börnin komast á grunnskólaaldur eiga talkennarar þeir sem vinna við skólana að grípa í taumana. Þegar grunnskóla lýkur getur fólk á ný leitað aðstoðar hjá heyrnar og tal- meinastöð íslands. Ábyrgðin færist yfír á menntamálayfirvöld landsins þegar bömin eru orðin sex ára. Eins og áður kom fram eru ekki starfandi talkennarar í öllum skólum landsins og í sumum tilfellum eru þeir aðeins í hlutastarfi og anna ekki eftirspum. Þá þarf í raun að leita út fyrir skólann og hingað til hefur það reynst foreldmm kostnað- arsamt. Launakjör talkennara við grunnskóla þykja lág Að sögn Kolbrúnar Gunnarsdóttur sérkennslufulltrúa í Menntamála- ráðuneytinu er litið á talkennslu sem sérkennslu. Hún bendir á að reikn- ingar sem komi frá talkennurum sem reki eigin stofu séu gjörólíkir þeim taxta sem talkennarar fái við gmnn- skóla. Þeir em miklu hærri enda þurfa talkennarar sem reka eigin stofu að standa straum af kostnaði við rekstur stofu sinnar. Hún segir að vissulega ætti að vera hægt að vísa á talkennara í skólakerfmu en þeir em einfaldlega ekki fáanlegir til starfa við skólana. Eyrún Gísladóttir er sérkennslu- fulltrúi hjá fræðsluskrifstofu Reykja- víkummdæmis. Hún segir að ekki hafí tíðnikönnun verið gerð á því hversu mörg börn það séu sem stami en telur að það geti samsvarað til 0,5%-l% skólabarna. „Stam þykir kannski eitt erfiðasta viðfangsefnið hjá talkennuram. Það eru ákveðnir talkennarar sem hafa sérhæft sig í stami en það em uppi ýmsar kenn- ingar um árangursríkar aðferðir og sífelld þróun á þessu sviði.“ Eyrún segir það aðkallandi að vinna að bættu heildarskipulagi talkennslu í Reykjavík í samvinnu við talkennara sem tryggir að allir skólar fái ein- hveija þjónustu. „Áðstaða talkennara hefur löng- um þótt slæm í grannskólum, þeir hafa þurft að þeytast á milli skóla og kennslan oft þurft að fara fram í hálfgerðum kompum. Vegna fæðar talkennara þarf að leggja aukna áherslu á ráðgjafarþáttinn, að þeir verði í auknum mæli í ráðgefandi hlutverki fyrir kennara og foreldra." - Eru margir skólar sem ekki hafa talkennara? „Ég hef ekki nákvæmar tölur en einhveijir skólar hafa ekki beinan aðgang að talkennara. Þar sem eru starfandi talkennarar hvort sem er í fullu starfi eða hlutastarfí meta þeir stöðuna og væntanlega fara þeir í gang með meðferðaráætlun fyrir þau börn sem þurfa. í þeim til- fellum sem ekki hefur verið hægt að sinna þörfínni hafa foreldrar þurft að leita til talkennara sem reka eig- in stofu.“ í heilum umdæmum úti á landi eru engir talkennarar Að sögn Eyrúnar eru mjög fáir talkennarar búsettir úti á landi. Þar er ástandið á mörgum stöðum mjög slæmt og líklega em Vestfirðir og Austfírðir verst stöddu umdæmin. Þar eru engir talkennarar svo hún viti. Það kann að vera að Málbjörg sem era nýstofnuð samtök um stam kunni að geta staðið vörð um réttindi og þarfir þessara bama. Samtökin vom stofnuð í október síðastliðnum og er markmið þeirra að vinna að hagsmunum allra þeirra sem stama. Að sögn formanns félagsins Bene- dikts Benediktssonar hefur þegar verið reynt að þrýsta á þá aðila sem hafa með málið að gera og það mun verða gert áfram. Allir sem stama og aðstandendur þeirra em velkomn- ir í félagið. ■ Guðbjörg R. Guðmundsdóttir Þær segjast alltaf halda veislu þegar þær hittast. Hér eru þær í saumaklúbbi fyrir næstum hálfri öld, Það var heimsstyrjöld og konurnar vildu koma börnunum sín- um í öruggt skjól. Þær flúðu með börnin sín fyrir fimmtíu árum og hafa haldið hópinn síðan FYRIR rúmlega fimmtíu árum tóku sig saman sjö ungar konur og tóku á leigu býlið Arnbjargar- læk í Borgarfirði. Þær réðu til sín ráðskonu, pökkuðu niður því allra nauðsynlegasta — sauma- vélinni, leirtaui og fatnaði — og eyddu sumrinu í sveit með börn- unum. Þetta hljómar nú bara dálítið spennandi en ástæðan fyrir sumardvölinni var síður en svo skemmtileg, þessar mæður voru að flýja með börnin sín frá Reykjavík af hræðslu við loft- árásir. Það var heimsstyrjöld og konurnar vildu koma börnunum sínum i öruggt skjól. Þetta var fyrir fímmtíu árum og margt hefur breyst síðan. Eflaust geta fáir sem em ungir að ámm ímyndað sér að loftárásir séu yfír- vofandi í Reykjavík. Hins vegar segja þær að þetta hafí síður en svo verið einsdæmi hjá þeim, fjöl- margar konur hafí flúið úr borginni með krakkana sína. Þessar sjö konur hafa elst að ámm, þær em þegar orðnar ömmur og flestar langömm- ur, sumar ekkjur, ein úr hópnum er látin og önnur fékk að byija með í félagsskapnum síðar. Lífið hefur gefið og tekið en eitt er þó fastur punktur í tilveru þessara kvenna. Þær halda alltaf hópinn og hittast í saumaklúbbi. Fyrstu tuttugu Unnur Guðjónsdóttir, Ingibjörg Ingvarsdóttir, Jenný Ásmundsdóttir, Guðfinna Guðjónsdóttir, Anna Jónsdóttir, Aldís Eyrún Þórðardóttir, Laufey Halldórsdóttir. Mbl/KGA Haldið upp á fimmtíu ára afmæii saumaklúbbs- ins og í leiðinni sjötíu og fímm ára afmæli Aldís- ar Eyrúnar. finnst undirritaðri, ef alltaf er eins gaman og í þetta skipti. - Hefur aldrei slest upp á vin- skapinn? — Ekki vilja þær meina það og ein stingur upp á því að ástæðan sé líklega sú að þær séu allar hógvær- ar og ekkert inni á gafli hver hjá annarri. Hins vegar hafa þær fylgst með öllum stóratburðum í lífi hver annarrar, mætt í afmæli og vita upp á hár hvenær börnin öll eru fædd. Það er ekki fyrr en nýlega að þær hafa farið að missa tölu á bama- og barnabarnabörnunum. Þegar ég spyr um umræðuefnin þegar þær hittast verður fátt um svör, hláturrokumar era svo mikl- ar. Síðan færist yfir andlitin leynd- ardómsfullur svipur og þær segjast tala um allt milli himins og jarðar en þó ekki velta sér upp úr slúður- sögum. „Við höfum nóg á pijónun- um hvort sem við erum að ræða um kvikmyndir, bækur, sjónvarps- og fimm árin hittust þær vikulega , pijónuðu eða saumuðu út og röb- buðu saman, síðan fóm þær að hitt- ast á hálfs mánaðar fresti og síð- ustu árin að minnsta kösti annan hvern mánuð. Eg fékk að heimsækja þessar konur síðast þegar þær hittust og héldu formlega upp á fímmtíu ára afmæli saumaklúbbsins. Það er afskaplega erfitt að trúa því að konumar séu á áttræðis- og níræðisaldri. Þær eru hver annarri unglegri og hressari. Flestar voru nýkomnar úr lagningu og klæddar í sitt fínasta púss. Það fór ekki á milli mála að það var kært á milli þeirra, þær föðmuðu hver aðra og kysstu, ánægjan yfir endurfundun- um var augljós. Það voru liðnir mánuðir síðan þær hittust síðast. Eftir að þær höfðu rifjað upp það sem á dagana hafði drifið síðan þær sáust bað ég þær að segja mér svo- lítið frá því þegar þær voru á Arn- bjárgarlæk. Konumar þekkjast vel og veigra sér ekkert við að grípa fram í fyrir hver annarri til að leiðrétta og betr- umbæta það sem sagt er en þeim kemur saman um að dvölin í Borg- arfírði árið 1941 hafí verið ógleym- anleg. „Við þurftum ekkert að stússast í eldamennsku, heldur not- uðum tímann til að vera úti og leika okkur með börnunum.“ Fyrsta ráðs- konan þeirra var víst heldur slök í eldhúsinu og vildi miklu frekar yrkja ljóð en standa við pottana. Sú næsta var bráðmyndarleg. „Við vorum alltaf með prjónana á lofti eða að sauma út.“ Stundum segjast þær hafa fengið samviskubit yfír því hversu lífíð var létt og yndislegt og þá gripu þær í saumaskap eða pijónuðu. Eigin- menn þeir sem höfðu tök á komu í heimsókn með reglulegu millibili. Þær ákváðu að leigja sér aftur hús næsta sumar, sem þær og gerðu. Þær leigðu sér skóla á Stórholts- hvoli. Eftir það sumar stofnuðu þær saumaklúbbinn sem þær em í enn þann dag í dag. Fyrstu áratugina segjast þær alltaf hafa haft pijónana á lofti eða saumað út en síðustu árin hafa sumar orðið að hætta því vegna krankleika. Þær láta sig hins vegar ekki vanta á fundina, enda von, dagskrána eða annað.“ Þegar þær em spurðar um kunn- ingsskap í fimmtíu ár era þær sam- mála um að félagsskapurinn hafí verið ómissandi þáttur I lífi sínu, eða eins og ein þeirra orðaði það: „’Eg get ekki hugsað mér að hafa misst af þessum félagsskap. Mér þykir svo vænt um allar þessar vin- konur mínar.“ Ætla þær að halda áfram að hitt- ast? Þeim finnst spurningin auðsjá- anlega hálf hallærisleg því þær em alls ekki á leiðinni að hætta að hitt- ast. „Svo lengi sem við emm hérna megin verður haldinn saumaklúbb- ur.“ Og ekkert meira með það. ■ Guðbjörg R. Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.