Morgunblaðið - 21.02.1992, Blaðsíða 8
8 D
ÞAD ER ekki ómaksins
ver* oð fara hringinn i
kringum hnöttínn *il
þess eins aó teljq kett-
ino í Znnsibnr.
THOREU
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRUAR 1992
SOLARUPPRAS
Á ELDFJALLIÁ HAWAII
BÍLSTJÓRAR á Hawaii sem aka ferðafólki á eyjunum tala nær við-
stöðulaust til farþeganna meðan á akstrinum stendur. Þeir eru fróð-
leiksbrunnar um þjóðhætti, sögu, náttúrulíf og jarðfræði eyjanna og
hafa að auki ýmsar skopsögur og brandara á takteinum. Hann var
hins vegar þögull til að byrja með, ekillinn sem klukkan rúmlega tvö
að næturlagi sótti okkur á hótelið, er við lögðum af stað í sólarupp-
rásarferð upp á topp hins mikla eldijalls Haleakala. Með nokkrum
niðurfellingum á bókstöfum er þetta fjall auðvitað Hekla þeirra eyjar-
skeggja.
Ég var staddur á eyjunni
Maui í júnímánuði síðastliðn-
■■■ um. Maui er ein af Hawaii-
I eyjunum og sú næstyngsta í
Sklasanum. Eldfjallið Haleak-
ala er á eyjunni og er talið
virkt því aðeins 200 ár eru
liðin frá seinasta gosi. Fjallið
■dl rís 3.055 metra yfir sjávar-
mál, sem er um tvöföld hæð
Snæfellsjökuls, en um níu
þúsund metrar frá sjávar-
botninum.
H? Þeir sem hugðust sjá sól-
m9 arupprásina á toppi Haleak-
ala voru sóttir á hótel sín uppúr
klukkan 02. Enn einn dagur á þess-
um unaðslegu eyjum var í þann
mund að hefjast með
ógleymanlegri ferð.
Litla rútan var fullset-
in þegar lagt var á
brattann. Vegurinn er
malbikaður alla leið
upp, en mjög hlykk-
jóttur, því hækkunin
er nær 2.000 metrar
síðustu kílómetrana
upp hlíð eldfjallsins. í
myrkrinu sáum við ljós
margra bifreiða sem
voru á uppleið sömu
erinda og við.
Þegar upp var kom-
ið, var síðasti spölur-
svo flestir settust í rauða malar-
skriðu við skýlið, sumir vafðir í
teppi.
Bílstjórinn hafði minnt okkur á
að stranglega væri bannað að taka
hraunmola eða annan jarðveg með
sér frá eyjunum. Liggja ströng við-
urlög veraldlegra yfirvalda við jarð-
vegstöku af þessu tagi ef upp
kemst. Einnig verða þeir er slíkt
gera fyrir miklu annars konar óláni
. KAUI
OAHU
HAWAII
Horft yfir
Mauna Loa
inn genginn upp á gígbarminn, en
þar hefur verið reyst skýli, með
gluggum til allra átta, til skjóls
fyrir ferðamenn. Þama er oft
vindasamt og frost að „vetrarlagi"
en nú var um 5 gráðu hiti og logn,
gíginn. Elfjöllin Mauna Kea og
í fjarlægð í morgunmistri Hawaii.
samkvæmt trú heimamanna. Væri
enda vísast að fjallið lækkaði smám
saman ef allir tækju með sér hraun-
mola til minja. Kvað bílstjórinn
þess mörg dæmi að þjóðgarðamið-
stöðinni hefðu borist hraunmolar í
pósti frá ýmsum löndum, þegar
menn hefðu viljað létta af sér bölv-
un ijallsins.
Skýjum ofar
Um klukkan 5.30 var farið að
birta og sást þá að við vorum ofar
skýjum er umluktu eyjaklasann
skammt frá ströndinni. Við sáum
sólina því ekki koma upp fyrir haf-
flötinn, heldur upp fyrir skýjahafið.
Morgunblaðið/B.Ó.
Sólarupprás, skýjum ofar, á toppi eldfjalis-
ins Haleakala klukkan 5.43.
Fólkið skrafaði saman í iiálfum
hljóðum þama í nepjunni, en 10
mínútum síðar var allt orðið hljótt
af eftirvæntingu. Þegar klukkan
var 05.43 braust fyrsti sólargeisl-
inn gegnum skýjahafið og sló rauð-
leitum bjarma á fólk og fold. Var
sem álögum hefði verið létt af öllum
og áttu fáir nægilega hástemmd
orð til að lýsa ánægju sinni með
að hafa séð þessa ógleymanlegu
sólarupprás.
Það var fyrst eftir birtingu að
við gátum virt fyrir okkur gíginn.
Aðalgígurinn er um 7 ferkílómetrar
að flatarmáli og í honum eru marg-
ir smærri gígar. Landslag þar er
mjög svo kunnuglegt fyrir okkur
Islendinga.
Þarna af barminum er víðsýnt
og sést vel yfir norðvesturhluta
eyjunnar með eldfjallið Puu Kukui
(1.764 m) og sundurskomar hlíðar
Frá Tíbet.
Kínverjar auglýsa Tíbet
sem ferðamannaland
KÍNVERJAR vinna um þessar mundir mikið að því að laða ferðamcnn
til landsins. Alþjóðleg ferðaráðstefna verður haldin í Peking í júni, og
ennfremur hefur skipulögðum ferðum um fíína og Tíbet fjölgað tölu-
vert.
í Tíbet verður árið 1992 tileinkað
ferðamönnum og verða ýmiskonar
hátíðahöid tengd því. Kínveijar aug-
lýsa ýmsa viðburði í Tíbet fyrir ferða-
menn á sumri komanda, en Tíbet
hefur verið undir stjórn kínveija frá
árinu 1959, er þeir hemámu lándið.
Frá þeim tíma hefur leiðtogi Tíbeta,
Dalai Lama XIV, verið landflótta,
en hann fékk friðarverðlaun Nóbels
1990, meðal ar.nars í virðingarskyni
fyrir friðsamlegar leiðir í baráttu
Tíbets fyrir sjálfstæði.
I frétt frá kínversku ríkisferða-
skrifstofunni er greint frá ýmsum
uppákomum fyrir ferðamenn vítt og
breitt um Tíbet. Meðal annars sýn-
ingum á tíbétskum þjóðbúningum,
kappreiðum, útimörkuðum og fleiru
fyrir ferðamenn, en ekki kemur fram
hvort Tíbetbúar sjálfir standa að
þessum viðburðum eða Kínverjar.
Sérstaka vegabréfsáritun þarf frá
kínverskum yfirvöldum til að komast
inn í Tíbet, og samkvæmt heimildum
Ferðablaðsins þurfa ferðamenn á
eigin vegum að greiða 7-10 þúsund
krónur fyrir hvern sólarhring sem
þeir dvelja í landinu. Eru þá hótel-
gisting og fæði innifalin, og auk
þess eru ferðamenn skyldugir til að
ferðast ásamt fararstjóra á vegum
kínverska alþýðulýðveldisins. ■
Mantegnaí London
SÝNING á verkum ítalska meistarans Andrea Mantegna í Royal
Academy við Piccadilly hefur verið kölluð stórviðburður þessa
sýningartímabils í London. Fjöldi teikninga og prentmynda eru á
sýningunni en átta af níu málverkum um sigurför Sesars inn í
Róm þykja merkustu verk sýningarinnar. Þau eru í eigu Elísábet-
ar Bretadrottningar og hanga venjulega illa upplýst í Ilampton
Court.
Sýningin, sem stendur til 5.
™ apríl næstkomandi, kemur á
aZI óvart, meðal annars vegna
þess að Mantegna er fyrst
og fremst þekktur fyrir fresk-
_ ur og altaristöflur sem prýða
j hallir og kirkjur á Norður-
Italíu. Myndirnar á sýning-
unni gefa góða hugmynd um
m stíl hans. Hann var einn af
fremstu málurum 15. aldar-
jfg innar á Norður-Ítalíu og í
JP hópi helstu meistgra endur-
P reisnartímans.
Ul Mantegna fæddist um
1431 skammt frá Padóva,
sem þá var mikill menningar-
bær, og var sendur þangað í læri.
Hann lauk við eitt fyrsta sannkall-
aða listaverk sitt í byijun 1457,
þá aðeins 26 ára gamall. Það var
ferska í Ovetari-kapellunni í Er-
emitani kirkju í Padóva. Flugher
Bandamanna sprengdi óvart kap-
elluna í mars 1944 og olli þar með
einum mesta listaverkaskaða
heimsstyijaldarinnar síðari. Man-
tegna flutti til Mantóva 1460 og
varð málari við hirð Ludovicos
Gonzagas. ■
a b
GENGIS
SKRANING
14. febrúar 1992
Bahamas dollar 57,5500
Benin CFA-franki 0,2130
Costa Rica colon 0,4130
Egyptaland pund 17,6200
Ghana cedi 0,1490
Líbýa dinar 210,0200
Nígería naira 6,1560
Perú ný-sol 59,4170
Sýrland pund 2,8660
Tyrkland líra 0,0105
Yemen rial 4,4820
Zambía kwacha 0,6280