Morgunblaðið - 21.02.1992, Blaðsíða 10
10 D
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992
Yngstu kynslððinni betur sinnt
en áður á bandarískum hótelum
Flest hótel-
anna sem
bjóóa dagskró
af þessu tagi
eru ó þeim
stöóum sem
fjölskyldur
sækja gjarnan
og dvelja í
margar vikur.
BÖRNUM sem gista á hótelum með foreldrum sínum finnst fátt leið-
inlegra en aðgerðarleysið. Leiði barna getur orðið öllum þungbær
og það sem átti að vera frí og
martröð.
Mörg hótel í Bandaríkjunum taka
nú tillit til þess að það þarf að
skemmta bömunum meðan þau eru
í fríi. Á sumum hótelum er bama-
dagskrá innifalin í verði á gistingu,
en á öðram þarf að greiða sérstak-
lega fyrir hvem dagskrárþátt.
Véimenni tekur á mðti þeim
Á Anaheim Hilton í Kalifomíu,
skammt frá Disneylandi, geta böm
skráð sig inn á hótelið í sérstakri
bamamóttöku, þar sem vélmenni
tekur á móti þeim, býður þau vel-
komin og segir frá þeim valkostum
sem í boði era. Bömin geta líka
orðið félagar í barnaklúbb hótelsins
og fá þá leyfi til að leika sér í bama-
herbergjunum þar sem era ógrynni
leikfanga og ýmislegt sem gleður
ungu kynslóðina.
Á Holiday Inn við Lake Búena
Vista í Orlando rétt hjá Disneylandi
er einnig bamaklúbbur með sér-
stökum matsal fyrir bömin, þar sem
foreldrar fá ekki einu sinni aðgang.
Með síma geta þeir þó náð samband
við afkvæmin.
Hyatt Regency í Scottsdale, Ariz-
ona, býður upp á bamaklúbb sem
kostar 30 dollara (um 1.800 ísl.
kr.) á dag fyrir böm yngri en 12
ára. Hver leiðbeinandi annast ijögur
böm, sem læra að elda, era í íþrótt-
skemmtun breytist í hálfgildings
um og ýmslegt fleira.
Flest stærri hótelin á Hawaii
sinna nú orðið bömum. Hilton
Hawaiian Village er með dagskrá
sem er ókeypis og er þá farið í
skemmtisiglingu með bömin, í
skoðunarferðir, dýragarð og sædý-
rasafn, auk þess sem þau fá kénnsiu
um dýralíf og sögu.
Á Kohala Coast er Mauna Lani
Bay hefur hótelið sérstaka strönd
fyrir böm og stunda þau íþróttir
og leiki undir handleiðslu fullorð-
inna starfsmanna hótelsins. Þessi
starfsemi er aðeins á sumrin og á
stórhátíðum.
AA afla upplýslnga áður
en lagt er af stað
Flest hótelanna sem bjóða dag-
skrá af þessu tagi era á þeim stöð-
um sem fjölskyldur sækja gjaman
og dvelja í margar vikur. Sjálfsagt
er að spyijast fyrir áður en á stað-
inn er komið enda er samkeppni
hótela vaxandi um hylli ungu gest-
anna.
Það ætti því ekki að væsa um
börn á ferðalögum á ýmsum stöðum
í Bandaríkjunum og það sem er
mikilvægast er að foreldrar fá það
sem þeir vilja, börnunum líður vel
og koma fróðari og hvíldari úr frí-
inu en ella. ■
FEROIRIIM HELGINA
KIRKJUGANGA ÚTIVISTAR
Esjuberg-Brautarholt
Sunnud. kl. 10.30 frá BSÍ. Löng
ganga, um 11 km.
Gamla þjóðleiðin með hlíðum Esju
gengin, framhjá Skrauthólum og
Vallá að Hofi. Síðan með strönd-
inni að Brautarholti. Þeir sem
kjósa, geta gengið Lág-Esjuna
(600 m) og komið gömlu leiðina
til baka að Brautarholti.
Sjávarhólar-Brautarholt
Sunnud. kl. 13 frá BSÍ. Stutt
ganga, um 6 km.
Gengið frá Sjávarhólum með
ströndinni að Hofi óg Borg, og
áfram að Brautarholti.
Hópamir hittast við Brautarholts-
kirkju um kl. 15.30, þar sem sagt
verður frá safnaðarstarfi og sögu
t
Brautarholtskirkja
sóknarinnar. Síðan ganga hópam-
ir saman eftir fjöranni að Bakka.
RAÐGÖNGUR
FERÐAFÉLAGSINS
Sunnud. 10.30 frá BSÍ.
Ekið að Geysi og hverasvæðið
skoðað, síðan haldið að Gullfossi
og fossinn skoðaður.
Komið til Reykjavíkur um^kl. 18.
Sunnud. kl. 13.00 frá BSÍ, stað-
næmst í Mörkinni 6, létt ganga
4. áfangi í raðgöngum upp á
Kjalarnes. Gengið verður um
Mosfell í Mosfellsbæ að Norður-
gröf, sem er eyðibýli suður af
Kistufelli. ■
BÍILINN eydir ólíka
miklu bensíni ó hólfri til
einni mínútu i lauso-
gqngi og þarf til né
ræsu vélina gfftur. Ef þú
sérð frnm q lengri bid
sknltu stöðvq vélina.
BÆKLINGUR FRÁ
IÐNAÐAR- OG VIÐSKIPTA-
RÁÐUNEYTINU
Tæknideild
lögreglunnar
rannsakar orsakir
umferöarslysa
UMFERÐARSLYS sem verða í Reykjavík eru könnuð þó svo rannsókn-
arnefnd umferðarslysa fari ekki á vettvang eins og við skýrðum frá
í síðasta bílablaði. Það er tæknideild lögreglunnar sem fer á vettvang
og kannar orsakir slysa og vísir af tæknideildum eru hjá lögrelguemb-
ættum víða um land og kanna slys sem verða í þeirra umdæmum
Innan lögreglunnar í Reykjavík er
Starfrækt sérstök tæknideild sem
hefur margvíslegu hlutverki að
gegna. Eitt af því sem tæknideildin
sér um er að fara á vettvang þegar
alvarlegt umferðaróhapp eða slys
verður. Starfsmenn tæknideildar,
þeir Hákon Siguijónsson og Svanur
Elísson, fóru til dæmis í 73 útköll á
síðasta ári vegna umferðarslysa, og
alls vora þeir félagar kaliaðir 301
sinni út í fyrra.
„Við eram kallaðir til ef alvarlegt
umferðaóhapp eða slys verður og það
eru lögreglumenn sem koma á vett-
vang sem meta hvort við eram kall-
aðir til. Við reynum að grafast fyrir
um orsök slyssins og geram skýrslu
um það,“ segir Hákon.
„Þegar við komum á vettvang
byijum við ekki að vinna fyrr en allt
fólk er farið af staðnum. Við tökum
mikið af myndum og reynum að átta
okkur á með hvaða hætti slysið hef-
ur orðið. Oft er það dálítið erfitt því
forvitnir áhorfendur og þeir sem
fyrstir koma á slysstað eyðileggja
stundum öll för og annað sem máli
skiptir fyrir rannsókn slyssins," seg-
ir Hákon.
Þó svo þeir Hákon og Svanur séu
ekki lengi á vettvangi fer mikill tími
þeirra í vinnu vegna slyss. Varlega
áætlað má segja að fyrir hveija
klukkustund sem þeir era á vett-
vangi vinni þeir um fímm klukku-
stundir innandyra við framköllun,
Toyota er
vinsælust
í Færeyjum
TOYOTA var í efsta sæti í
sölu fólksbfla í Færeyjum í
fyrra og er þetta sjötta árið
í röð sem Toyota vermir efsta
sætið.
Alls seldust 450 fólksbílar í
Færeyjum í fyrra og þar af
vora 123 bílar af Toyota-gerð.
Annars vora tíu mest seldu bíl-
amir í Færeyjum í fyrra þessir:
Toyota Carina 67, Toyota
Corolla 52, Mazda 323 43, Ford
Fiesta 34, Ford Escort 32, Ford
Sierra 22, Nissan Sunny 17,
Honda Accord 15, Ford Orion
14 og Mitsubishi 12. ■
skýrslugerð og annað sem málinu
tengist.
Þegar þeir hafa lokið við skýrsl-
umar era þær fjölfaldaðar og ef
málaferli verða fer eitt eintak til
saksóknara og þaðan til sakadóms
ef þurfa þykir. „Við bendum oft borg-
inni og vegagerðinni á úrbætur sem
mætti gera og þeim er yfirleitt vel
tekið. Það er mjög algengt að frá-
gangi við malbik sé ábótavant.
Skorningar myndast við vegkantinn
og þegar bílar lenda þar ofaní getur
ökumaður misst vald á bílnum með
alvarlegum afleiðingum," segir Hák-
on aðspurður um hvað þeir gera eft-
ir að rannsókn lýkur.
Hákon og Svanur voru kallaðir
301 sinni út á síðasta ári en auk
þess vinna þeir við margt annað og
verkin sem skráð vora á síðasta ári
voru 898 sem verður að teljast gott
hjá ekki fjölmennari deild. Af þessum
útköllum vora 108 utan venjuiegs
vinnutíma. Þegar þeir era spurðir
hvað þeir geri annað en kanna vett-
vang vegna umferðarsiysa svarar
Svavar: „Það er svo ótalmargt. Við
frumgreinum öll flkniefni hér og
skráum. Sýni og munir sem lagt er
hald á vegna flkniefnamála era einn-
ig greind hér og við sjáum um að
taka ljóismyndir af granuðu fólki í
fikniefnamálum. { fyrra vora það 123
myndatðkur, mest vegna fíkniefna.
Við sjáum um ákveðinn þátt í örygg-
isgæslu þegar þjóðhöfðingjar koma
til landsins, sprengju- og vopnaleit,
athugum mengunaróhöpp sem verða
og þannig mætti lengi telja," segir
Svavar.
Tæknideildin er ágætlega búin
tækjum en engu að síður telja þeir
félagar að heilmikið vanti. „Aðstaðan
er lítil og þröng. Deildin var stofnuð
1978 og Bjami Bogason var hér einn
til 1981 þegar ég tók við og var einn
til ársins 1987 að Svanur bættist
við,“ segir Hákon.
Við þetta má bæta að menn frá
umferðardeild borgarverkfræðings
athuga einnig hvort gera megi breyt-
ingar til batnaðar þegar slys verða.
Nú er t.d. verið að athuga hvað
hægt er að gera til að gera akstur
öraggari um Höfðabakkabrú, en þar
hafa orðið tvö dauðaslys með stuttu
millibili.
Upplýsingum er safnað saman og
þær settar í svokallaðan slysagagna-
banka fyrir Reykjavík. Úr gögnum
sem þannig safnast era síðan unnar
tillögur um bætur á þeim stöðum sem
virðast hættulegastir. Embætti borg-
arverkfræðings kynnir síðan umferð-
amefnd borgarinnar hugmyndir sín-
ar um úrbætur. ■