Alþýðublaðið - 09.11.1920, Blaðsíða 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
fi zft r
V. K. F. Framsókn hefir ákveðið að halda sinn árlega bazar fimtud.
il. þ. m. í G. T.-húsinu kl. 8V2 e. h. Konur eru beðnar að koma með
þá muni sem þær ætia að gefa ekki seinna en kl 5 s d. — Stjórnin.
Jafaaöarmaaaaféla^ið
heldur fund á morgun kl. 4 síðd.
í Good-templarahúsinu (uppi).
Félagsmenn beðnir að fjölmenna.
Sérstakt fundarboð verður ekki sent.
Stjórn in.
MJjoq&T anétinn.
Amensk íandnemasaga.
(Framh.)
„Ef þú segir satt", greip Ro-
iand fram í fyrir honum, „þá
höfum við ekki tíma til iangrar
samræðu, ef þú aftur á móti —“
„Hví dveljusn við og spyrjum
og undrumst?“ spurði Telie Doe,
„því bíðum við hér, meðan rauð-
skinnar nálgast kannske? Skógur-
inn biður okkar, og neðra vaðið
er fijálst'.
„Getur þú enn þá fylgt okkur
þangað“, mælti Roland tii Telie,
„þá skalt þú nú fá vilja þínum
frarogengt. Hvort sem við vilium
cða ekki, verðum við að halda
til neðra vaðsins“.
„Ætli þig iðri þess ekki!“
hrópaði unga stúlkan, og fram-
koma hennar gerbreyttist í einni
svipan. „Mönnum mun ekki detta
í hug að ónáða okkur þar“.
Áð svo mæltu þeysti hún inn f
skóginn og var brátt í allmikilii
fjariægð frá götunni. Hin komu
á eftir henni, og Roland spurði
aðkomumanninn enn um æfintýrið,
sem hann hafði ratað í hjá rauð
skinnunum. Þegar Pardon Færdig
haíði sagt hermanninum alt, sem
hann vildi vita, tók hann að
segja æfisögu sína, og kvaðst vera
veizlunarmaður frá norðurhiuta
Ohio, sem rauðskinnar væru ótal
sinnum búnir að ræna. Hann við
urkendi, að hann hefði aidrei
haft hug til þess að beita vopn-
um sér til varnar, nema ef ör-
væntingin rak hann til þess. Heit-
asta ósk hans var sú, að komast
aftur til austurfylkjanna, þar sem
alt var örugt, því nú þóttist hann
búinn að fá nóg aí Ohio og
rauðskinnuHum.
Farandsalinn var varla búinn
með sögu sína, þegar auðséð var,
að Teiie Doe var orðinn hikandi
og var farinn að efast um leiðina.
Þctta vakti athygli Rolands. Þetta
hik Telie var ekki að ástæðu-
Iausu, því rjóðrin urðu æ færri
og kjarrið þéttara; vegurinn sem
að þessu hafði verið sléttur, varð
meira og meira hæðóttur; grjót
og moldarbötð juku á erfiðleikana
á því að kornast upp hæðirnar, og
í lægðirnar hafði safnast svo mikið
regnvatn, að iilíært var yfir þær.
„Ætli þér h^fi skjátlast?" mælti
Roland við Telie. Uaga stúikan
var rugluð, Iiún hafði altaf von
að, að stígurinn mundi liggja inn
á götuna, sem hún var svo gagn-
kunnug, og að hennar dómi voru
þau fyrir löngu komin nógu langt
til þess að vera komin á hann.
En börðin og pittirnir og króka-
Ieiðirnar sern þau höfðu farið,
hafði trufíað hana, og nú vissi
hún ekki lengur hvar þau voru
stödd. Þessi játning gerði her-
manninn órólegan, því hann hafði
treyst á að Telie þekti skóginn
út og inn. Hann hafði nú ekkert
ráð betra, en að gerast leiðtogi
og reyna að losna á þann hátt
úr klípunni. Enn leið Iangur tírai,
og aitaf lá leiðin um sömu ófær-
urnar, sem þó versnuðu stöðugt.
Sóiin var að hníga til viðar og
var fyrir nokkru horfin af trjá-
toppunum. Þannig var eini ieiðar-
vísirinn dottinn úr sögunni. í
vandræðum sfnum, lét Roiand
hestinn ráða ferðinni — hann
vissi ekki, hvort hann hélt burt
frá hættunni, eða gekk beint í
greipar óvinanna. Hann var að
hugsa um að nota síðustu skím-
una tii þess að fiuna öruggan
stað, til næturdvalar, þegar at-
hygli hans beindist að TelieDoe,
sem riðið hafði ögn á undan.
Ritstjóri og ábyrgðamaSur;
Ólafnr FriðrUtssou.
Preatsmföjji>n Gutenberga
Stúlka,
sem kann að sauma jakka og
yfirfrakka; og stúlka sem vill
sauma alt sem fyrir kemur og
gera við föt og tau, geta fengið
atvinnu hjá O. Rydelsborgr,
Laugaveg 6 og Laufásveg 25.
Yiðgerðaverkstæði,
Oííuofnar,
ágætir, nýkomnir i verzl.
Gunnars Þórðarsonar,
Laugaveg 64, — Sími 493.
"VerslixxiiML Von,
hefur fengið byrgðir af allsslags
tóbaksvörum, Sígarettum og
Vindlum, Átsúkulaði, Konfekt,
Gosdrykkjum, Maltextrakt. Nið-
ursoðið; Perur, Ananas, Appri-
eots, Grænar Baunir, Síld, An-
sjóssur, Sardínur, Leverpostej,
þurkaðar Appricotsur, Epli, Per-
ur, Bláber, Sveskjur, Rúsínur,
Sultutau og ílestar nauðsynja-
vörur, kaupið matinn á
borðið í Von.
Virðingarfylst.
Chmnar Signrðsson.
Sími 448. Sími 448.
Aiþbl. kostar I kr. á mánufL