Morgunblaðið - 04.04.1992, Page 1

Morgunblaðið - 04.04.1992, Page 1
3W0V|piiroM$jMts> MENNING USTIR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992 BLAÐ. I Stórhugur og eldmóður heyra ekki liðinni tíð. Enn ráðast menn í stór- ræði með brennandi hugsjón og óbilandi kjark í farteskinu. Þó menn fimist stundum yfir smæð þjóðarinnar og telji lóðin létt sem á menningarskálarnar leggjast þá er það stað- reynd engu að síður, að tónlistarlíf á íslandi er ótrúlega fjölbreytt og litskrúðugt miðað við stærð þjóðfélagsins. Óperan La Bohéme er nú sýnd í Borgarleik- húsinu. Sérstök hátíð- arsýning var 3. apríl en fyrsta sýningin fyrir al- menning verður 8. apríl. La Bohéme er fyrsta óperan sem flutt er á stóra sviðinu í Borgar- leikhúsinu. Að- sýning- unni standa Öperu- smiðjan og Leikfélag Reykjavíkur. Leikstjóri þessarar uppfærslu er Bríet Héðinsdóttir. Hljómsveitarstjóri er Guðmundur Öli Guð- mundsson. Yfir 100 manns koma við sögu í óperunni. Má þar nefna 47 manna hljómsveit, 35 manna kór, 24 í barnakór og 8 ein- söngvarar. Höfundur ópemnnar er Giacomo Puccini. La Bohéme var frumsýnd í Konungsleikhúsinu í Torino, 1. febrúar 1896. Fyrsta uppfærslan utan Ítalíu var í Buenos Air- es, 16. júní 1896, sung- in á ítölsku. Frumflutn- ingur í Englandi var í Manchester, 1897, og í Bandaríkjunum við Metropolitan óperuna 1898. Þótt ótrúlegt megi virðast vakti óperan í upphafi litla hrifningu. En við þriðju uppfærsl- una í Palermo, 1896, sló hún í gegn. A okkar dögum þykir hún meist- araverk og talin hátind- ur' í verkum Puccinis. Ár hvert er hún sýnd um víða veröld og te- nórar heimsins sækjast eftir að syngja hlutverk Rudolfos. Hlutverk Rudolfs syngur að þessu sinni Þorgeir Andrésson og í maí mun Ólafur Bjarna- son syngja hlutverkið á nokkrum sýningum. Mimi syngja þær Inga Backman og Ingibjörg Guðmundsdóttir til skiptis. Hlutverk Mu- settu syngja Jóhanna Linnet og Ásdís Krist- mundsdóttir. Marcello syngja þeir Keith Reed og Sigurður Bjarnason. Fjöldi annarra söngvara kemur og við sögu. LA BOHEME Aðalpersónur : Benoit, húseigandi bassi Rudolfo, skáld ; tenór Mimi sópran Schaunard, tónlistarmaður bariton Musetta sópran Marcello, lístmálari bariton Alcindro, auðugur Parísarbúi ...bassi Colline, heimspekingur bassi Parpignol tenór Óperan er gerð eftir sögu Henrys Murger; Scénes de la vie de Bohéme. Lýst er lífi fátækra listamanna og námsmanna í Latínuhverfinu í Par- ís. Höfundar söngtexta eru Gius- eppe Giacosa og Luigi Ulica. Puccini var af mikilli tónlistarfjölskyldu. Hann var fæddur í Lucca 22. desem- ber 1858 og andaðist í Brussel 29. nóvember 1924. Fyrstu tilsögn í tónlist hlaut hann hjá föður sínum. Puccini sýndi fljótt mikla tónlistar- hæfileika. Tuttugu og tveggja ára gamall hlaut hann styrk til tónlist- arnáms frá drottningu Ítalíu og nam við Tónlistarháskólann í Mílanó. Meðal kennara hans má nefna tón- skáldið Bazzani og óperutónskáldið Ponchielli. 'Nokkur verk liggja eftir hann frá skólaárunum og eru nán- ast einu tónsmíðar hans sem ekki eru samin með leiksvið í huga. Fyrsta ópera hans „Edgar“ var frumflutt á Scala 1889 og þótti misheppnuð. Velgengni hans hófst með óperunni „Manon Lescaut" sem frumflutt var í Torino 1893. Textiiin er byggður á skáldsögu Prévost. En það var óperan „La Bohéme“ sem lyfti Puccini á frægðartindinn. Nafn hans var á allra vörum í Evr- ópu og lýðum ljóst að I ítalska óperu- heiminum var risin ný stjarna, sem yrði verðugur arftaki Verdis. Næsta ópera var „Tosca“, sem frumflutt var í Róm aldamótaárið 1900.1 kjöl- farið fylgdi svo „Madam Butteríly" sem flutt var í Scala 17. febrúar 1904. En frumsýningin var gersam- lega mislukkuð og áhorfendur í Mílanó létu óánægju sína óspart í ljós. Ekki varð af frekári sýningum í bili. Nokkrum mánuðum síðar var óperan sviðsett á nýjan leik. Að þessu sinni var stund og staður og hófst óslitin sigurför óperunnar. Síðari óperur Puccinis náðu ekki sömu vinsældum en þær eru; „The Girl of the Golden West“, sem frum- flutt var í New York árið 1910, „La Rondine“, sem frumflutt var í Monte Carlo árið 1917, og þríleikurinn „II Tabarro", „Sour Angelica" og „Gianni Schicci", sem frumfluttur var í New York árið 1918. Puccini vann að óperunni „Turnadot“ síðustu æviárin, en hafði ekki lokið henni að fullu er hann lést í Brussel 1924. Vinur Puccinis, Franco Alfano, lagði loka- hönd á verkið. Óperan var frum- flutt á Scala undir stjórn Arthuros Toscaninis 1926. Tvær óperur eru til eftir skáld- sögu Ilenrys Murgers um bóhema- lífið í París. Annars vegar sú víð- fræga „La Bohéme“ Puccinis en hins vegar „La Bohéme“ eftir Leoncavallo, sem líklega er frægast- ur fyrir óperuna „I Pagliacci“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.