Morgunblaðið - 09.04.1992, Side 2

Morgunblaðið - 09.04.1992, Side 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992 Aðalfundur Samþykktað skipta KASK upp í tvær sjálfstæðar einingar HEILDARTAP á rekstri Kaupfélags Austur-Skaftfellinga (KASK) á Höfn í Hornafirði og dótturfélaga varð 245 miiljónir kr. á síðasta ári. Arið áður skilaði félagið 53 milljóna króna rekstrarhagnaði. A aðal- fundi félagsins sem haldinn var um síðustu helgi var samþykkt tiilaga stjórnar um að unnið verði að samruna fiskiðjuvers félagsins og útgerð- arfélagsins Borgeyjar hf. Stefnt er að aukningu hlutafjár í nýja fisk- vinnslufyrirtækinu um 150 milljónir og endurskipulagningu ails rekstr- ar KASK. Að sögn Einars Sveins Ingólfsson- ar fulltrúa kaupfélagsstjóra KASK varð tap af reglulegri starfsemi kaupfélagsins 84,5 milljónir kr. en 65 milljóna króna hagnaður var af rekstrinum árið áður. Þessu til við- bótar kemur tap kaupfélagsins af viðskiptum við Fiskimjölsverksmiðju Hornafjarðar hf. þar sem afskrifuð var rúmlega 30 milljóna kr. inneign þannig að 115 milljóna króna tap varð af eigin starfsemi KASK. Þar fyrir utan varð tap af fyrirtækjum sem KASK á stóran hluta í, svo sem útgerðarfélögunum Samstöðu, Borg- ey og Hrísey og Fiskimjölsverk- smiðju Hornaljarðar. Hlutdeiid KASK í rekstrartapi þessarra félaga var 130 milljónir kr. á síðasta ári þannig að heildartap félagsins varð 245 milljónir kr. Árið 1990 var hagn- aður KASK og dótturfélaga 53 millj- ónir kr. Einar Sveinn sagði að reksturinn hefði verið þungur allt árið en þó hefði keyrt um þverbak fjóra síðustu mánuðina. Litlar tekjur hefðu komið inn vegna lítils afla, gæftaleysis og slipptöku báta. Þá hafi síldarvertíð verið léleg og vaxtakostnaður orðið mikill vegna skuldsetningar fyrir- tækjanna. Á aðalfundinum var samþykkt til- laga stjórnar KASK um að unnið verði að samruna fiskiðjuvers félags- ins við útgerðarfélagið Borgey hf. Útgerðarfélagið Samstaða hf. og Borgey hf. hafa þegar verið samein- uð undir nafni Borgeyjar hf. í aðal- fundarsamþykktinni kemur fram að markmiðið er að safna 150 milljóna króna hlutafé áður en þessar breyt- ingar verða gerðar. Hefur verið leitað til bæjarfélagsins með 100 milljóna króna hlutafjárframlag í því sam- bandi. Þá á að gera áætlun um rekst- ur KASK og nýja sjávarútvegsfyrir- tækisins og verður að vera hægt að sýna fram á að bæði félögin geti borið sig áður en til þessarra breyt- inga kemur, að sögn Einars Sveins. Þá verður unnið að endurskipulagn- ingu alls rekstrar. Ef félaginu verður skipt þannig upp í tvær sjálfstæðar rekstrareiningar verður eftir í sjálfu kaupfélaginu afurðasala, búvöru- vinnsla, verslun og þjónusta ýmis konar. Annar togari Hornfirðinga, Þór- hallur Daníelsson, hefur verið aug- lýstur til sölu og tilboð borist í hann en ekki hefur verið gengið frá söl- unni, að sögn Einars. Á aðalfundinum var kosin sjö manna stjórn KASK, þar af eru fjór- ir nýir stjórnarmenn. Þeir sem voru fyrir í stjórninni eru Ingólfur Bjöms- son á Grænahrauni sem verið hefur formaður kaupfélagsstjórnar, Þóra Jónsdóttir á Skálafelli og Örn Bergs- son á Hofi. Nýju stjórnarmennimir eru Halldór Ásgrímsson alþingismað- ur, Már Karlsson á Djúpavogi, Páll Kristjánsson á Höfn og Sigfinnur Gunnarsson á Höfn. Stjórnin hefur ekki skipt með sér verkum. Hermann Hannsson kaupfélagsstjóri hefur sagt upp starfi sínu. A aðalfundinum kom fram áskorun til hans um endur- skoða uppsögnina. BESTTEL: Símkerfi fyrir heimili og smærri fyrirtæki á verði sem allir ráða við SV MSTÖÐM'TW S\W\TÆW 312 t\lboð Tekur á móti 3 bæjarlínum. Hægt er aö hafa 12 símtæki við stöðina. Símtæki eru með hátalara. Kallkerfi innanhúss. Langlínulás á hverju tæki. Hentar vel til símafunda. Tónlist meðan beðið er. M/VSK. Kerfið er einfalt og ódýrt í uppsetningu. Símtækin eru sérbyggð hátalaratæki með 18númeraminni. Við bjóðum svo sannarlega betur - Símkerfi á verði fyrir alla og þjónusta sem hægt er að treysta. * Heimilistæki hf Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI6915 00 scmungum/ Morgunblaðið/Árni Sæberg. VERSLUN — Frá opnun ráðstefnu og sýningar Kaupmanna- samtaka Islands, Verslun ’92. Þar kynntu fjölmörg fyrirtæki margvís- legan búnað og þjónustu fyrir verslanir. Á myndinni er Bjarni Finns- son, formaður Kaupmannasamtakanna. Verslun Búðarþjófum sagt stríð á hendur KAUPMANNASAMTÖKIN hafa hafið undirbúning að sérstöku átaki sem iniðar að því að stemma stigu við búðarhnupli. Hafa samtökin í hyggju að efna til fundar með fyrirtækjum í verslun í maí þar sem rætt verður um hvernig unnt sá að taka þessi mál föstum tökum. I framhaldi af því er ætlunin að skapa umræðu um þetta vandamál. Á ráðstefnu og sýningu Kaup- mannasamtakanna sl. laugardag var fjallað um rýrnun í verslun. Þar kynnti m.a. fyrirtækið Vöru- vernd hf. vörueftirlitskerfi sem tekin hafa verið upp hjá fjölda verslana, aðallega vegna þjófnaða viðskiptavina. I kynningarriti fyrirtækisins kemur fram að áætlað er að rýrn- un í verslun í sérvöruverslunum sé á bilinu 4-7% en í matvöruversl- unum 2-4% og er það miðað við heildarveltu. Reiknað er með að um helmingur heildarrýrnunar sé vegna búðarhnupls. Vörurýrnun er skipt í ytri rýrnun og innri rýrn- un. Með ytri rýrnun er átt við t.d. búðarhnupl. Með innri rýrnun er t.d. átt við vöruskemmdir, rýrnun við vinnslu vörunnar, bókhaldsvill- ur og afbrot starfsmanna. Samkvæmt upplýsingum Kaup- mannasamtakanna nemur heildar- velta í smásöluverslun að frátal- inni byggingavöruverslun um 100 milljörðum. Ef gert er ráð fyrir að rýrnun nemi 2-3% gæti það samsvarað um 2-3 milljörðum en þá er bæði átt við þjófnað við- skiptavina og innri rýrnun sem m.a. má rekja til starfsfólks og sölumanna. Fyrirtæki Hagnaður Pósts og síma 373 milljónir HAGNAÐUR af rekstri Pósts og síma á síðasta ári varð rétt rúmar 373 milljónir króna sam- anborið við um 541 milljón árið áður. Framlög á afskriftar- reikning urðu um 225 milljónum meiri á síðasta ári en árið 1990 og skýrir það að miklu leyti þann mun sem varð á rekstrar- afkomunni milli áranna. Eigið fé í árslok 1991 var um 10.273 milljónir. Eiginfjárhlutfall- ið var þá 88% samanborið við 90% árið áður. Rekstrartekjur Pósts og síma án fjármagnstekna voru á síðasta ári 7.188 milljónir og rekstrargjöld rúmar 6.903 milljónir króna. Fjármunatekjur umfram fjár- magnsgjöld voru um 88 milljónir. Skv. fjárlögum greiddi fyrirtækið 550 milljónir króna í ríkissjóð. Veltufjárhlutfall í árslok 1991 var 1,62 samanborið við 1,76 árið áður. Á síðasta ári voru 1.399 milljón- ir króna bókaðar í afskriftarreikn- ing samanborið við 1.174 milljónir árið áður. Samkeppnismál Kvartað und- an sölusynjun HEILDSALI í grænmetisdreif- ingu hefur skrifað Verðlags- stofnun bréf og kvartað undan sölusynjun á sveppum frá eina sveppaframleiðanda landsins og dreifingarfyrirtæki hans. Erindið var kynnt á fundi verðlagsráðs í vikunni. Verðlagsstofnun hefur nú skrif- að framleiðandanum bréf og óskað skýringa hans. Bannað er að flytja inn sveppi þegar innlend fram- leiðsla annar eftirspurn en um- ræddur grænmetisheildsali segist ekki hafa fengið framleiðsluna til sölumeðferðar nema með afar- kostum. IÐNLÁNASJÓÐUR fyrir íslenskt atvinnulíf ÁRMÚLA 13A 155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950 ,l Þjónusta anna Sœvcir Kctrl Óhson Bankastræti 9. s í mi 1 3 4 7 0

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.