Morgunblaðið - 09.04.1992, Blaðsíða 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992
Verslun
Erlent lánsfjármagn
til bjargar Asiaco?
Erfiðleikamir í rekstri fyrirtækisins raktir til samdráttar hjá
sjávarútvegsfyrirtækjum
Páll Þorgeirsson hefur gert skilyrtan kaupsamning við fyrrverandi
eigendur Asiaco, Gunnar Óskarsson og Eyjólf Brynjólfsson, og er
hann núverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Kaupsamningurinn
felur í sér að takist Páli að fá erlent lánsfjármagn til bjargar Asiaco
þá kaupi hann fyrirtækið en annars ekki. Hvort það takist mun koma
í ljós á næstu vikum. Eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu
fékk fyrirtækið greiðslustöðvun í lok mars sl. Undanfarið hafa miklar
breytingar verið gerðar á starfsmannahaldi fyrirtækisins og t.d. hafa
fimm fyrrverandi starfsmenn í góðum stöðum hætt hjá Asiaco á undan-
förnum mánuðum. Þ.á.m. eru bæði fyrrverandi deildarstjóri veiðar-
færa- og rekstrarvörudeildar, sem hafa stofnað sín eigin fyrirtæki
og eru m.a. með umboð fyrir vörur sem Asiaco hafði áður.
Gunnar og Eyjólfur eru ennþá
skráðir eigendur Asiaco en þeir
keyptu fyrirtækið af feðgunum
Kjartani R. Jóhannssyni, stofnanda
fyrirtækisins, og Kjartani Emi
Kjartanssyni þann 1. október árið
1990. En Kjartan R. hafði rekið
Asiaco í tugi ára. Starfsemi Asiaco
er skipt í nokkrar deildir. Fyrst má
nefna deild sem sér um sölu á veið-
arfærum og öðrum vörum fyrir út-
gerð, rekstrarvörudeild sem hefur
verið umboð t.d. fyrir pappírs- og
olíuvörur, fiskútflutningsdeild og
fískvinnsluvéladeild. Einnig stofnaði
Asiaco verslun í Hafnarfírði sl. sum-
ar sem nú er búið að loka. Nú hefur
öllum starfsmönnum fyrirtækisins
verið sagt upp störfum og rennur
uppsagnarfresturinn út í lok maí nk.
Baldvin Hafsteinsson hdl. hefur
tilsjón með greiðslustöðvun Asiaco
og segir afkomu fyrirtækisins tengj-
ast beint slæmri stöðu fyrirtækja í
sjávarútvegi. „Asiaco verslar mikið
með sjávarútvegsvörur, net, troll,
víra o.s.frv. og samdráttur í þeirri
sölu hefur mikil áhrif á afkomu fyrir-
tækisins. Viðræður við kröfuhafa og
aðra aðila sem gætu komið til bjarg-
ar eru nú að fara í gang. Ef þær
aðgerðir sem fyrirhugaðar eru
heppnast vel þá á fyrirtækið að geta
staðið af sér frekari brotsjó." Bald-
vin var spurður að því hvaða breyt-
ingar væru fyrirhugaðar á starfsemi
fyrirtækisins. Hann sagði að óhjá-
kvæmilega fylgdi í kjölfar versnandi
afkomu hjá fyrirtækinu einhver
minnkun á umsvifum og hún hefði
þegar átt sér stað.
Aðspurður um hvort ekki yrði
erfítt fyrir Asiaco að ná sinni fyrri
markaðshlutdeild nú þegar fyrirtæk-
ið hefði misst nokkur af þeim umboð-
um sem það áður hafði sagði Páll
Þorgeirsson að viðskiptahættir hefðu
fcreyst það mikið að einkaumboð
skiptu ekki jafn miklu máli og þau
áður gerðu. „Við getum eftir sem
áður keypt þær vörutegundir sem
við höfum misst einkaumboð fyrir
þó að aðrir aðilar á íslandi séu nú
með umboð fyrir þær. Asiaco er í
sambandi við erlenda aðila sem geta
keypt vöruna fyrir okkur jafnvel á
lægra verði en þeir sem hafa einka-
umboð hérlendis fyrir hina sömu
vöru. Vöruskortur kemur því ekki
til með að verða fyrirtækinu fjötur
um fót. Þetta hefur allt breyst með
opnari mörkuðum í Evrópu. Enn er
nóg til af vörum hjá Asiaco en
greiðslustöðvun leiðir til þess að við
getum ekki tekið á móti jafn stórum
vörusendingum og annars. Rekstur-
inn hefur vissulega gengið erfíðlega
og við höfum misst út úr fyrirtækinu
það sem er verðmætara en umboð.
Það er fólk, þekking og reynsla. En
við hefðum ekki fengið greiðslu-
stöðvun nema ákveðin lausn væri í
augsýn og það er m.a. hið erlenda
3GÖÐAR
í námi, starfi og leik
PS-BBOO TÖL VUVASABÓK
• Rúmar upplýsingar sem fara á 40
A4 blöð (64 kb).
• Lykilorð hindrar að aðrir komist i
persónulegar upplýsingar.
• Tengjanlegar við PC vélar*
• Týnir ekki upplýsingum þegar
skipt er um rafhlöður.
• Leitarlykill gerir þér kleift að finna
upplýsingar fljótt.
• 6 Ifna gluggi, 32 stafir í línu.
• 7 gagnahólf fyrir símanúmer,
tímaskipulagningu, minnisatriði,
dagatal, klukku, ýmsa staðatíma
og reiknivél (10 stafir).
PS-4500 SAMHEITATÖLVA
• Geymir rétta ritun 97.000 enskra
orða.
• Sláðu orðið inn eftir framburði,
hún gefur réttan rithátt.
• Geymir 590.000 orð I
samheitasafni.
• ENDINGS lykill gefur þér allar
algengustu endingar orða ef þú
hefur orðstofninn. (Og
orðstofninn hjálpar vélin þér að
finna).
TI-FIA
FJÁRMÁLAGREINANOINN
• Meðhöndlar 5 breytuf í einu.
Breytirðu einni sjást áhrifin strax.
• Núvirðisútreikningur, innri vextir
og ávöxtun verðbréfa.
• Reiknar kostnað, sölugengi,
ágóðaprósentu og álagningu.
• Öll gögn á vinnslusíðum geymd í
minni, jafnvel þó slökkt sé á
véiinni.
• Breytir nafnvöxtum í afkastavexti.
• Línuleg bestun, meðalgildi og
staðalfrávik.
ERFIÐLEIKAR —- Fyrirtæki sem selja rekstrarvörur til sjávar-
útvegs hafa flest hver fundið fyrir samdrættinum í þessari undirstöðu
atvinnugrein og Asiaco hefur ekki farið varhluta af því.
lánsfjármagn."
Páll sagði að ekki væri ætlunin
að breyta áherslum í rekstri Asiaco
heldur myndi fyrirtækið áfram ein-
beita sér að því að vera fyrst og
fremst þjónustuaðili fyrir sjávarút-
veginn. „Það verður ekkert tómarúm
þar sem Asiaco var við eigum aftur
eftir að ná okkar hlut á markaðn-
um.“
Útgjöld hærri en tekjur
g-áfu tilefni til
Nokkrir viðmælendur Morgun-
blaðsins virtust sammála um að ekki
hefði rekstur neinnar ákveðinnar
deildar Asiaco gengið sérstaklega
illa á síðastliðnu ári og því væri
ekki hægt að rekja greiðslustöðvun-
ina til einhvers ákveðins þáttar í
rekstrinum. Einn aðili sagði t.d. að
rekstrarvörudeildin hefði aukið veltu
sína á sl. ári og að útflutningur á
sjófrystum físki hefði ekki gengið
illa. Greiðslustöðvunina mætti rékja
til annarra þátta í rekstri fyrirtækis-
ins. Annar sagði að hægt væri að
rekja greiðslustöðvunina til þess að
eigendur fyrirtækisins hefðu á sl.
ári farið út í of miklar fjárfestingar,
t.d. í bílum og tölvum, og einnig
hefði fyrirtækið kostað meira í aug-
lýsingar en áður. Þá hefðu þeir ekki
haft nægilegt fjármagn til að borga
fyrri eigendum, þeim Kjartani R. og
Kjartani Erni. Því hefði fé verið tek-
ið úr rekstrinum til að greiða fyrir
Asiaco. Á endanum hefðu pening-
amir verið uppurnir í fyrirtækinu,
skuldir hafí safnast upp og erlendir
birgjar hafí lokað á viðskipti við
Asiaco.
Aðspurður um hvort þessar full-
yrðingar ættu við rök að styðjast
sagði Gunnar Óskarsson svo ekki
vera. Ekki sé hægt að rekja slæma
afkomu fyrirtækisins til einhverra
ákveðinna þátta líkt og þarna sé
reynt að gera. „Bæði það að við
höfum farið út í of miklar fjárfest-
ingar og að eigið fé hafí ekki verið
nægjanlegt í upphafi eru sögusagn-
ir. Rekstrarerfíðleikana má fyrst og
fremst rekja til samdráttar í sjávar-
útvegi. Sum fyrirtæki hafa sterkari
bakhjarl en önnur og ég hef heyrt
að mjög mörg fyrirtæki sem hafa
þjónað sjávarútvegi hafí rekið þær
deildir sem að honum snúa með tapi.
Sala allra þessara fyrirtækja var
verulega mikið minni en hún hefur
áður verið,“ segir Gunnar.
Forsvarsmenn Asiaco segja gjald-
þrot viðskiptavina fyrirtækisins hafa
verið algengari en áður. Þá hafí
ýmislegt annað orðið til að þyngja
róður þess, t.d. hafí einn af stærstu
viðskiptavinum fyrirtækisins, Skag-
strendingur, sett togara sinn í við-
gerð.
„Gera má ráð fyrir að minni kvóti
skili sér beint til fyrirtækja sem ein-
beita sér að þjónustu við sjávar-
útvegsfyrirtæki. Líklega þýðir 20%
samdráttur í kvóta 40% samdrátt
hjá þessum fyrirtækjum vegna þess
að með minnkandi kvóta gera sjáv-
arútvegsfyrirtæki allt sem þau geta
til að hagræða, þ.á m. að skera nið-
ur kostnað við veiðarfæri og aðrar
vörur sem Asiaco hefur verið með,“
segir Gunnar Óskarsson. „Það má
þó segja að þegar ástandið er orðið
eins og hjá Asiaco þá sé greinilegt
að útgjöldin hafí verið hærri en tekj-
urnar gáfu tilefni til. Annars væri
vandamálið ekki til staðar."
ÁHB
Ráðgjafi
Óskum að ráða ráðgjafa til starfa í markaðsdeild hjá
öflugu fjármálafyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið: Kynning á þjónustu fyrirtækisins út á við
með heimsóknum í fyrirtæki og viðtölum við einstak-
linga og stjórnendur fyrirtækja. Einnig þarf viðkomandi
að leggja mat á lánshæfni umsækjenda með skoðun
ársreikninga og mati á greiðsluhæfni.
Við leitum að viðskiptafræðingi/hagfræðingi með góða
þekkingu á fjármagnsmarkaðnum. Starfið krefst þess
að viðkomandi geti starfað sjálfstætt, sýnt frumkvæði
og eigi auðvelt með mannleg samskipti. Einnig þarf
viðkomandi að vera nákvæmur, talnaglöggur og hafa
reynslu af helstu notendaforritum fyrir PC-tölvur. Þekk-
ing, helst 2-3ja ára starfsreynsla í erlendum fjármálafyr-
irtækjum, æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningar-
þjónustu Hagvangs hf. merktar „Ráðgjafi 130“ fyrir
5. maí nk.
Hagva ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráöningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoöanakannanir