Morgunblaðið - 09.04.1992, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 09.04.1992, Qupperneq 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992 Fréttaskýring Stríðsvindar blása um Stöð 2 eftir Kristin Briem og Björn Vigni Sigurpálsson BARÁTTAN um yfirráðin yfir Stöð 2 eða íslenska útvarpsfélaginu, eins og félagið sem annast útvarpsreksturinn heitir nú, er að verða eins og Sagan endalausa, sápuópera með öllum þeim leikfléttum sam- særa og gagnsamsæra sem sæmir hinu æsilegasta sjónvarpsefni. Vart fer á milli mála að niðurstaða aðalfunda'r félagsins sem boðaður var í skyndingu á dögunum hefur veikt stöðu þeirra sem ráðið hafa ríkjum innan stjórnarinnar. í þeim slag sem fram fór dagana fyrir aðalfund- inn voru miklir fjármunir lagðir undir og stór orð látin falla, enda vildu sumir þátttakenda meina að miklu meira væri í húfi heldur en jrfirráðin yfir sjónvarps- og útvarpsrásum — í reynd væri tekist á um siðferðið í íslenskum viðskiptum. Stærstu hluthafar íslenska út- varpsfélagsins eru blanda af eignar- haldsfélögum, einstaklingum og fyr- irtækjum sem tengjast með ýmsum hætti. Stærsti hluthafinn Fjölmiðlun sf. á um 27,1% hlutafjár eða um 150 milljónir að nafnverði. Aðilar að því félagi eru nokkuð á annan tug kaup- sýslumanna. Þar á meðal eru Jóhann J. Ólafsson, Jón Ólafsson, Haraldur Haraldsson og Jóhann Óli Guð- mundsson sem setið hafa í stjórn útvarpsfélagsins og mynduðu þar áður meirihluta. Næst stærsti hlut- hafinn er Eignarhaldsfélag Verslun- arbankans með 18,1% eða 100 millj- ónir en þriðji stærsti hluthafinn er Fjórmenningar sf. sem þeir þrír fyrsttöldu eiga ásamt Guðjóni Odds- syni, kaupmanni. Jafnframt eiga sumir þessara manna hlut í félaginu persónulega þannig að hlutur þeirra er nokkuð dreifður. Átökin innan stjórnar íslenska útvarpsfélagsins sem komu upp á yfirborðið í kringum aðalfundinn í si. viku virðast að nokkru leyti eiga rætur sínar að rekja til hins svokall- aða blaðamáls. Haraldur Haraldsson í Andra sótti þá mjög fast að félag- ið yrði þátttakandi í tilraunum Ný- mælis hf. til stofnunar nýs dag- blaðs. Meðan viðræðurnar snerust fyrst og fremst um það að félagið legði blaðinu til Sjónvarpsvísinn hafði hann stuðning allrar stjórnar- innar en eftir því sem Haraldur dróst lengra inn í viðræðurnar minnkaði stuðningurinn við hann. Lengst naut hann þó liðstyrks þeirra Jóhanns J. Ólafssonar og Jón Ólafssonar, þótt þeim snerist einnig hugur að lokum. Jóhann Óli Guðmundsson varð fljót- lega algjörlega fráhverfur að ráðast í slíkt stórvirki sem blaðstofnunin var á sama tíma og menn mættu hafa sig alla við í endurreisn fjár- hags Stöðvar 2. Andaði þar eftir köldu milli Jóhanns Óla og Haraldar og sá ágreiningur og eftirmálar sem síðar urðu leiddu með tímanum til þess að fullkominn trúnaðarbrestur varð milli Jóhanns Óla og þre- menninganna en fram að því höfðu þeir átt góða samvinnu sín á milli. Óánægja magnast vegna innherjaviðskipta Á sama tíma magnaðist óánægja meðal fyrrum félaga Jóns Ólafssonar innan Fjölmiðlunar sf., þeirra Ás- geirs Bolla Kristinssonar í Sautján, Skúla i Tékkknstal, Garðars í Herra- garðinum og Ólafs Njáls Sigurðsson- ar í Alþjóða líftryggingafélaginu með háttarfag svonefndra fjórmenn- inga í skiptum þeirra við Stöð 2, einkanlega þó með viðskipti Jóns Ólafssonar í Skífunni við stöðina og veðleigutekjur sem þeir höfðu hjá félaginu. Lyktir þess máls urðu þær / „Eg hef mjög einfaldan smekk... * ScevarKcui Olason að ákveðið var ekki alls fyrir löngu að setja sérstakar starfsreglur stjórnar um viðskipti stjórnarmanna við féiagið. Jóhann Óli mun hafa kallað þetta plagg „minnislista í al- mennum mannasiðum". Því er haldið fram að þremenning- arnir hafi fljótlega ákveðið að freista þess að koma Jóhanni Óla út úr stjórninni. Jóhann Óli var þá að vinna að því að safna saman mönn- um til að kaupa hlut eignarhalds- félagsins. Ræddi hann m.a. við Jó- hann J. Ólafsson, Sigurð Guðjóns- son, Ólaf Njál Sigurðsson, en fyrr þann dag sem stjórnarfundurinn margfrægi var haldinn hitti hann þá Páll Kr. Pálsson, forstjóra Vífil- fells, sem jafnframt hefur verið full- trúi Eignarhaldsfélagsins í stjórn íslenska útvarpsfélagsins og Sigurð Gísla Pálmason, stjórnarformánn Hagkaups í þessum erindum. Þessar viðræður Jóhanns Óla við Pál og Sigurð Gísla virðast seinna hafa verið túlkaðar þannig af þremenn- ingunum að verið væri að reyna að fá hina svokölluðu Áramótamenn, þ.e. Ingimund Sigfússon í Heklu, Árna Samúelsson, Sigurð Gísla Pálmason, Vífilfells-menn og Þor- geir Baldursson í Odda til að kaupa hlut eignarhaldsfélagsins. Þótt Jó- hann Oli muni telja þetta fyrirslátt er þetta engu að síður talin undirrót þess að þremenningarnir, Jóhann J. Ólafsson, Haraldur Haraldsson og Jón Ólafsson gripu til þess örþrifar- áðs að fá aðalfundi félagsins flýtt, svo sem frægt er orðið. I gildi hafði verið samkomulag milli Fjölmiðlunar sf. þar sem Fjórmenningar svö- nefndir höfðu orðið töglin og hagld- irnar, og Eignarhaldsfélagsins um skipan manna í stjórninni, en sam- komulag þetta átti að renna út hinn 1. maí eða um sama leyti að ráð- gert var að halda aðalfundinn. Hafi þremenningarnir því talið að fram- angreindar viðræður Jóhanns Óla táknuðu að í undirbúningi væri „valdarán" innan stjórnarinnar, eins og einn þeirra hefur orðað það. Það mun hafa verið skoðun Jó- hanns J. Ólafssonar, stjórnarfor- manns, að réttast væri að fá hrær- ingar í hluthafahópnum upp á yfir- borðið sem fyrst en þær höfðu stað- ið yfir alit frá síðasta hausti. Sagt er að hann hafi viljað knýja fram úrslit í stjórnarkosningum til að fá vinnufrið fyrir fyrirtækið. Þegar samstarfi Eignarhaldsfélagsins og Fjölmiðlunar lýkur skapast óvissu- ástand sem hann mun hafa talið að gæti skaðað uppbyggingarstarf stjórnarinnar og félagsins. Ennfrem- ur lýsti Jóhann því yfir í Morgun- blaðinu á sínum tíma að órói væri fyrirsjáanlegur í sambandi við stjórnarkjör hjá Eignarhaldsfélagi Verslunarbankans. Sá órói kom hins vegar aldrei upp á yfirborið. Aðalfundi flýtt til 1. apríl Á stjórnarfundinum í íslenska útvarpsfélaginu þriðjudaginn 24. mars sauð endanlega upp úr. Þann dag var Gunnsteinn Skúlason í fjögurra daga golfferð í útlöndum og varamaður hans og bandamaður þremenninganna Sigurður Guðjóns- son sat því fundinn. F'undurinn var boðaður til að kynna ársuppgjör félagsins fyrir stjórnarmönnum. Þre- menningarnir knúðu það í gegn á þessum fundi með stuðningi Sigurð- ar að ákvörðun yrði tekin um aðal- fund og að hann skyldi haldinn — ekki um mánaðamótin apríl-maí eins og alltaf hafði verið miðað við — heldur aðeins viku síðar eða þann 1. apríl en sama dag var einmitt aðalfundur Eignarhaldsfélags Verslunarbankans. Aðrir stjórnar- menn brugðust ókvæða við. Jóhann Óli yfirgaf fundinn í mótmælaskyni við þessi vinnubrögð og hóf síðan ákafa baráttu til að ná undir sig eins miklu atkvæðamagni og mögu- legt var. Jóhann Óli var dyggilega studdur af þeim Valsmönnum Stef- áni og Gunnsteini sem einnig töldu sér misboðið með því hvernig breytinguna á aðalfundartímanum bar að, og einnig af ýmsum félögum sínum innan Fjölmiðlunar, svo sem Ásgeiri Bolla Kristinssyni í Sautján. Boðið var í allt það hlutafé í ís- lenska útvarpsfélaginu sem unnt var að kaupa og seldust m.a. hiutabréf fyrir 350 þúsund kr. hjá Kaupþingi einungis um klukkustund fyrir aðal- fundinn á genginu 1,5. Skömmu áður höfðu verið seld bréf á tilboðs- markaði fyrirtækisins fyrir 8,5 millj- ónir að nafnverði á genginu 1,07 og raunar áttu sér einnig stað viðskipti á aðalfundardeginum með bréf að nafnvirði 5,5 milljónir á genginu 1,21. Segja má að umboð hafi verið fengin með öllum tiltækum ráðum. Var raunar leitað út fyrir landstein- ana eftir umboðum fyrir smáar upp- hæðir og þegar aðalfundurinn rann upp var staðan sú að þar voru mætt- ir fulltrúar fyrir 99,6% hlutafjár sem er líklega einsdæmi í 200 manna almenningshlutafélagi. Kosningunni lyktaði með því að Eignarhaldsfélag Verslunarbankans fékk tvo menn í stjórnina en mjög mjótt varð á mununum. Fdest at- kvæði hlaut Haraldur Haraldsson, eða sem svaraði til 470 milljóna hlut- afjár, Stefán Gunnarsson hlaut 452,5 milljónir, Jóhann Óli Guðmundsson, 451,5 milljónir, Jó- hann J. Ólafsson, 446,8 milljónir, Jón Ólafsson, 446,8 milljónir, Páll Kr. Pálsson, 444,7 milljónir og Pétur Guðmundarson, 444,6 milljónir. Mynda þeir því stjórnina. F'rambjóð- andi gamla meirihlutans Sigurður Guðjónsson fékk hins vegar 443,2 milljónir og var þá ljóst að tilfærsla hafði orðið á valdahlutföllum innan stjórnarinnar. Misreiknuðu sig við atkvæðagreiðslu Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins mun hafa komið í ljós að einn af hluthöfunum eyðilagði áform um kosningu Sigurðar Guðjónssonar í stjórnina. Gert hafði verið ráð fyr- ir að þessi hluthafi myndi dreifa sín- um atkvæðum jafnt á sex frambjóð- endur en í stað þess setti hann of mörg atkvæði á Harald Haraldsson. Bent er á að Tryggingamiðstöðin hafi látið um þriðjung af sínum at- kvæðum á Harald. Þau hefðu hins vegar getað riðið baggamuninn fyrir Sigurð en höfðu enga þýðingu fyrir Harald. Sömuleiðis er því haldið fram að eignarhaldsfélagið hafi brotið samn- ing við Fjölmiðlun um sameiginlega tilnefningu í stjórn. Þetta hafi komið fram í ósk félagsins um margfeldis- kosningu með öðrum aðila og enn- fremur að það hafi ekki staðið með Fjölmiðlun í stjórnarkjörinu. Þrátt fyrir úrslitin í stjórnarkjör- inu var Jóhann J. Ólafsson kosinn stjórnarformaður félagsins að afloknum aðalfundinum. Hann seg- ist sjálfur alls ekki líta þannig á að nýr meirihluti hafi myndast innan stjórnarinnar enda hafi hann sem formaður verið einróma endurkjör- inn. „Ef að nýr meirihluti hefði myndast þá væri nýr formaður. Þetta er samstillt stjórn sem vinnur að heill félagsins. Einungis ein breyt- ing varð á stjórninni, Gunnsteinn Skúlason fór út og Pétur Guðmund- arson kom í staðinn. Ég á ekki von á öðru en að eignarhaldsfélagið beri hag félagsins fyrir brjósti eins og aðrir og það studdi mig í formanns- kjörinu eins og aðrir,“ sagði Jóhann. Sýnt er þó að hluti stjórnarmanna lítur málið öðrum augum. Ekki fer milli mála að algjör trúnaðarbrestur hefur annarsvegar orðið milli Jó- hanns Óla og Stefáns og hins vegar stjórnarformannsins. Hins vegar hefur Morgunblaðið upplýsingar um að eignarhaldsfélagið mun styðja stjórnarformanninn meðan fulltrúar þess sitja í stjórninni. Hann er þvi traustur í sessi a.m.k. meðan eignar- haldsfélagsins nýtur við þannig að engrar hallarbyltingar innan stjórn- arinnar er að vænta að sinni. Sala á hlutabréfum eignarhaldsfélagsins Ljóst er að eignarhaldsfélagið þurfti að stíga mikinn línudans í samskiptum sínum við hina hluthaf- ana. Félagið er með samning við Fjölmiðlun, þar sem eigendur Fjór- menninga eru í meirihluta, um sam- eiginlega tilnefningu í stjórn út- varpsfélagsins. Hins vegar vildi félagið ekki láta beita sig þvingun- um. Til þess að koma að tveimur mönnum hafði félagið ekki nægjan- legt atkvæðamagn á bak við sig. Það þáði því framboðinn stuðning Jóhanns Óla, Stefáns Gunnarssonar og félaga í stjórnarkjörinu. Þegar samningur félagsins við Fjölmiðlun sf. rennur út þann 1. maí getur það þá ráðstafað sínum hlutum eins og því sýnist. í framhaldi af því mun félagið bjóða hlutabréf sín til sölu enda stendur til að leysa það upp og sameina íslandsbanka á þessu ári. „Það hefur ekki gefið sig fram neinn kaupandi enn sem komið er en ég á frekar von á því að eftir því sem hagur félagsins batnar þá aukist áhugi manna í þá veru að eignast þessi bréf,“ segir Einar Sveinsson, stjórnarformaður Eignar- haldsfélagsins. „Mér kæmi það ekki á óvart að núna á næstu mánuðum myndu þau skipta um eigendur. Það hefur alla tíð verið ljóst í okkar huga að við vildum selja þessi bréf. Þær ástæður sem lágu að baki því að eignarhaldsfélagið var þarna inni voru þær að félagið vildi taka þátt í fjárhagslegri endurskipulagningu stöðvarinnar á sínum tíma með nýj- um og eldri hluthöfum sem í félag- inu voru. Þetta átti aldrei að standa nema tímabundið og ég held að það ætlunarverk sé komið á lokastig. Auk þess liggja fyrir yfirlýsingar hjá eignarhaldsfélaginu um það að ganga tiþupplausnar á því með sam- runa við íslandsbanka, helst á þessu ári.“ Eignarhaldsfélagið hefur einnig veitt íslenska útvarpsfélaginu ábyrgð fyrir um 100 milljóna króna láni hjá íslandsbanka og þarf að leysa eignarhaldsfélagið frá henni áður en til sameiningar við íslands- banka kemur. Sá möguleiki er talinn koma til greina að breyta henni í hlutafé eða að útvarpsfélagið leggi sjálft til nýj- ar tryggingar eftir því sem staða þess batnar sem komi í stað ábyrgð- arinnar. Þá hefur sú hugmynd einn- ig verið nefnd að kaupandi bréfanna yfirtæki ábyrgðina fyrir eignar- haldsfélagið. Loks er sá möguleiki fyrir hendi að deila bréfunum út til hluthafa eignarhaldsfélagsins. Einar Sveinsson sagði að leitað yrði allra leiða að selja bréf félagsins í einu lagi en litið væri svo á að þannig væru langmest verðmæti bundin í bréfunum. Ljóst er að tals- verðar þreifingar hafa farið fram að undanförnu um hugsanleg kaup á þessum hlut eignarhaldsfélagsins. Eins og nefnt hefur verið er félagið Áramót mjög orðað við þessi hluta- bréfakaup en eins og menn ef til vill minnast varð sá félagsskapur einmitt til þegar fulltrúar nokkurra stórra fyrirtækja voru kallaðir í Verslunarbankann á gamlársdag fyrir um þremur árum til að gera tilboð í Stöð 2. Þegar á reyndi var . tilboði þeirra ekki tekið en þeir hafa Islenska útvarpsfélagsins 1987-91 verðlag 1991, þús. kr. 1987 1988 1989 1990 1991 Rekstrartekjur samtals 633.796 1.107.481 1.177.205 1.301.056 1.337.669 Hagnaður (tap) ársins (331.907) (183.973) (277.932) 20.863 104.037 Veltufé frá rekstri (351.918) (186.881) (247.120) 127.872 246.149 Eigið fé (395.285) (471.827) (403.451) (246.101) (165.550) Eiginfjárhlutfaii > (93,9%) (67,1%) (38,5%) (21,5%) (14,7%)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.