Morgunblaðið - 09.04.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992
B 9
Morgunblaðið/Sverrir
SVEIGJAMLEIKI — Heimir Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Örtölvutækni og Jóhann Þ. Jóhannsson, verkefnisstjóri, segja það skipta
meginmáli í starfsemi Örtölvutækni að fyrirtækið hafi sveigjanleika
til að velja þann tölvubúnað sem best hentaði í hveiju verkefni.
Tölvur
Styrkur okkar tiggur
ísölu netbúnaðar
— segir Heimir Sigurðsson, framkvæmdastjóri Örtölvutækni
TÖLUVERÐ uppstokkun á sér stað hjá Örtölvutækni þessa dag-
ana. Um síðustu áramót keypti fyrirtækið Tölvutækni Hans Peters-
en, sem þessa dagana er að flytja starfsemi sína í Skeifuna 17 þar
sem Örtölvutækni er til húsa. Fyrirtækið hefur fengið til umráða
nýja hæð í húsinu þar sem komið verður fyrir skrifstofum og hluta
af söludeild. Við þá breytingu eykst rými á 1. hæð sem notað verður
til að auka við rekstrarvöru- og söludeild. Að sögn Heimis Sigurðs-
sonar, framkvæmdastjóra Örtölvutækni, eiga sér einnig stað umtals-
verðar breytingar í þjónustudeildinni þar sem verið er að hagræða
með það fyrir augum að veita viðskiptavinum aukna og bætta þjón-
ustu. Þá er verið að taka í notkun nýtt símkerfi sem miðar að því
að stytta boðleiðir innan fyrirtækisins.
Heildarvelta Örtölvutækni á síð-
asta ári nam rúmum 400 milljónum
króna, en árið þar áður var veltan
um 250 milljónir. Á þessu ári gera
áætlanir ráð fyrir því að veltan
verði um 550 milljónir króna og að
sögn Heimis var salan fyrstu þrjá
mánuði ársins nokkuð yfir þeirri
áætlun.
„Reksturinn skilaði ágætum
hagnaði á síðasta ári og það er bjart
framundan. Þegar skoðað er hvern-
ig velta sl. árs skiptist á milli sölu
einmenningstölva, netbúnaðar,
þjónustu og jaðartækja, sést að ein-
menningstölvurnar eru ekki nema
um 20% af heildarsölunni," sagði
Heimir. „Netbúnaðurinn er hins
vegar alltaf að verða stærri þáttur
og þar liggur okkar helsti styrkur.
Undanfarna mánuði höfum við náð
mörgum góðum samningum varð-
andi sölu slíks búnaðar til fyrir-
tækja og stofnana þar sem við höf-
um verið að bjóða svokallaðar heild-
arlausnir í tölvuvæðingu."
Frá sl. hausti hefur Örtölvutækni
skrifað undir samninga að undan-
gengnum útboðum við heilbrigði-
og tryggingamálaráðuneyti, Arnar-
hvol. Seðlabankann, Olíufélagið hf.,
Stöð 2, ráðhúsið o.fl. „Þessa dagana
erum við að vinna í því að klára
uppsetningu tölvubúnaðar í ráðhús-
inu. Þá vorum við nýlega að ganga
frá samningum við ríkisskattstjóra
í samvinnu við HP og 1. apríl sl.
skrifuðum við undir samning varð-
andi uppsetningu tölvunets hjá
dómsmálaráðuneytinu þar sem ætl-
unin er m.a. að tölvuvæða sýslu-
embættin úti á landi,“ sagði Heimir.
Hafa fengið mikið af
stórum verkefnum
undanfarið
Þau verkefni sem hér um ræðir
eru flest tiltölulega stór að sögn
Heimis. „í mörgum tilfellum er um
að ræða svokallaðar heildarlausnir
með uppsetningu kapalkerfa og
netbúnaðar sem m.a. fela í sér sam-
tengingu ólíkra tölvugrunna. Þessi
verkefni ganga oft út á að færa
vinnuna af meðalstórum tölvum
yfir á nettengdar einmenningstölv-
ur,“ sagði Heimir.
Hann sagði ennfremur að það
væri ekki tilviljun að Örtölvutækni
hefði fengið þessi verkefni. „Undan-
farið höfum við lagt mikla áherslu
á að þjálfa upp
mannskap og verða okkur úti um
þá þekkingu og búnað sem þarf til
að geta boðið heildarlausnir af því
tagi sem hér er um að ræða. Þá
höfum við reynt að bjóða lausnir
sem hafa kosti umfram það sem
aðrir eru að bjóða. í dag er t.d.
eftir tillögum frá okkur verið að
nóta háhraðanet Pósts og síma
varðandi verkefnið í Arnarhvoli, en
það gerir mönnum kleift að tengja
net í net.“
Notendum tölvubúnaðar
gefinn kostur á að nota
eigin póstkerfi
Að sögn Heimis virkar tengingin
í gegnum háhraðanetið þannig að
fjarlægðin skiptir ekki máli, heldur
er eins og allir sitji á sama stað á
sama neti. „Aðaltengimöguleiki að-
ila í Arnarhvoli, Sölvhólsgötu 4 og
7 þar sem m.a. fjármála-, iðnaðar-
og menntamálaráðuneyti eru til
húsa ásamt ríkisbókhaldi, ríkisfé-
hirði og starfsmannaskrifstofu fjár-
málaráðuneytis er við Skýrsluvélar
ríkisins. Þar er staðsettur sérstakur
sameiginlegur tengibúnaður sem
nefnist Gátt. Eftir tillögum okkar
tengjast þessir aðilar í gegnum
háhraðanetið og þessi útfærsla er
líka notuð í lausn okkar fyrir dóms-
málaráðuneytið.“
Jóhann Þ. Jóhannsson, verkefnis-
stjóri hjá Örtölvutækni, sagði verk-
lok í tölvuvæðingu dómsmálaráðu-
neytisins vera fyrirhuguð í lok júní
nk. Þar er jafnframt verið að festa
kaup á hugbúnaði sem Tölvumynd-
ir hf. er að skrifa. „í fyrsta áfanga
munu 80 starfsmenn sýsluskrif-
stofa tengjast inn á þessi net, en
þegar upp er staðið er gert ráð
fyrir að allar sýsluskrifstofurnar
hafi þar aðgang,“ sagði Jóhann.
Að sögn Heimis er ein þeirra
nýjunga sem Örtölvutækni hefur
verið að brydda upp á að undan-
förnu sú að gefa notendum tölvu-
búnaðar möguleika á að nota sín
eigin póstkerfi. „Við höfum sett upp
tölvupóstkerfi og X.400 póststöð til
tilraunar fyrir notendur í Arnar-
hvoli. Á þennan hátt geta notendur
sent póst sín á milli. Ef hins vegar
viðkomandi aðili vill senda póst á
heimilisfang sem er fyrir utan Arn-
arhvol getur hann sent póstinn á
X.400 póststöðina sem sér um að
koma honum á réttan áfangastað
í gegnum almenna gagnaflutnings-
netið skv. X.400 staðli. Tölvupóst-
kerfi og X.400 póststöð er einnig
verið að setja upp í ráðhúsinu,“
sagði Heimir.
„Notfærum okkur kosti
annarra þar sem það á við“
Heimir benti á að notendur tölvu-
póstkerfa gætu á ofangreindan hátt
nýtt sér X.400 þjónustu Pósts og
síma. Hann sagði að Örtölvutækni
hefði riðið á vaðið með því að gefa
viðskiptavinum sínum möguleika á
að notafæra sér þessi póstkerfi og
þannig opnað gífurlega möguleika
í samskiptum. Jóhann tók í sama
streng og sagði það skipta megin-
máli ( starfsemi Örtölvutækni að
fyrirtækið hefði sveigjanleika til að
geta valið þann búnað sem best
hentaði hveiju verkefni. „Við erum
ekki bundnir af einum ákveðnum
framleiðanda hvernig við setjum
upp lausnirnar, heldur leitum eftir
búnaði sem leysir nákvæmlega þau
verkefni sem við erum að fást við
hveiju sinni. Við getum þannig
notfært okkur kosti annarra þar
sem við á,“ sagði Jóhann. HKF
[LÉMScíéíDŒie
DD Œ SUŒ B'= K1 ® ffiíD DD OÖ 0,0 K1 ® 0
veitir lán til raunhæfra framfaraverkefna í öllum atvinnugreinum
• Sjóðurinn veitir gengistryggð lán með hag-
stæðum greiðslukjörum.
• Trygging fyrir láni skal vera veð í fasteign
eða bankaábyrgð.
• Starfsmenn sjóðsins meta arðsemi verkefna
í samvinnu við umsækjendur.
• Lán frá sjóðnum geta að hluta verið skilyrt í
upphafi.
Lánasjóðurinn er í eigu Norðurlandanna allra. Athafnasvæði hans eru Vestur-Norðurlönd, þ.e.
Færeyjar, Grænland og ísland. Samvinnuverkefni milli landa eru æskileg en ekki skilyrði.
HAFÐU SAMBAND VIÐ SKRIFSTOFU OKKAR OG FÁÐU NÁNARI UPPLÝSINGAR.
Lánasjóöur Vestur-Norðurlanda
hefur aðsetur á Rauðarárstíg 25, annarri hæð,
pósthólf 5410,125 Reykjavík, sími (91) 605400, Telefax: (91) 29044.
________________________u_____________:--------------------------
VIKULEGIR
FLUTNINGAR
VIKULEGA TIL
ÍSLANDS FRÁ
MÖRKUÐUM 1
ÞÝSKALANDI
Heildarþjónusta á sviði flutninga er
mikilvæg fyrir innflytjendur, svo og
öflugt umboðsmannakerfi um heim
allan.
SAMSKIP flytja vörur þínar frá
upprunastað, hvar sem er í
heiminum, heim til þin fljótt og
örugglega. Vikulegar siglingar til
Hamborgar tryggja þér ferskar vörur.
TvSAMSKIP
Traustur valkostur
Holtabakka við Holtavcg • 104 Rcykjavlk ■ Siini (91) 69 83 00