Morgunblaðið - 14.04.1992, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992
B 3
FH
Möik Sóknir %
Stjarnan^
Mörk Sóknir %
Langskot
Gegnumbrot
Hraðaupphlaup
Horn
Lína
Viti
IMæsti
leikur
helmingi
erfiðari
- sagði Bjarki
Sigurðsson, hetja
Víkinga
Jú, það má segja að ég hafi
verið „heitur“ í þessum leik.
Ég átti frakar von á að Framar-
ar kæmu meira út á móti mér
undir lokin en þeir gerðu það
ekki þannig að ég nýtti mér
það. Annars léku Framarar vel
og við vissum að þeir yrðu erfið-
ir og komu því mjög ákveðnir
til þessa leiks. Við vorum dálítið
seinir í gang en miðað við síð-
ustu 15 mínúturunar erum við
á réttri ieið. Leikurinn á mið-
vikudaginn verður helmingi
erfiðari en leikurinn í kvöld,“
sagði Bjarki Sigurðsson, besti
maður Víkinga.
Lékum af skynsemi
„Við lékum 90% af þessum
leik af skynsemi í sókninni og
ég er nokkuð ánægður með leik-
inn. Framarar stóðu heillengi í
okkur, eða þar til við bættum
vörnina og breyttum til. Þá kom
markvarslan og við náðum að
sigra. Næsti leikur verður mun
erfiðari en þessi og öll keppnin
mun reyna mikið á „karekter"
liðanna og ég held við höfum
burði til að ná langt,“ sagði
Guðmundur Guðmundsson
þjálfari Víkinga.
Lékum vel í 45 mínútur
„Ég er ánægður með leik
minna manna í 45 mínútur.
Strákarnir léku vel og létu Vík-
inga hafa nóg fyrir hlutunum.
Síðustu 15 mínúturnar misstum
við einbeitinguna og þá náðu
Víkingar hraðaupphlaupum.
Vörnin hjá okkur stóð fyrir sínu
og við ætluðum að vinna á
henni. Ég er ánægður með að
fá annað tækifæri á miðviku-
daginn og við erum ákveðnir í
að gera þeim lífið leitt því það
hafa allir spáð því að við þurfum
bara að leika tvo leiki. Við af-
sönnum það,“ sagði Atli Hilm-
ai-sson þjálfari Fram.
Meiri barátta framundan
„Það er meiri barátta fram-
undan og við mætum enn
ákveðnari til leiks á miðvikudag-
inn. Við ætlum ekki að leyfa
Víkingum að komast upp með
neitt á miðvikudaginn. Eftir að
ég var tekinn úr umferð fórum
við að skjóta af of löngu færi
og Víkingar náðu að nýta sér
það. Þetta var allt í lagi hjá
okkur þar til í lokin,“ sagði
Gunnar Andrésson, fyrirliði
Fram.
SÓKNAR-
NÝTING
Úrslitakeppnin
í handknattleik
KA
Mörk Sóknir %
ÍBV
Mörk Sóknir %
13 20 15 28 28 48 65 F.h. 9 54 S.h. 12 58 ALLS 21 20 45 28 43 48 44
7 Langskot 6
8 Gegnumbrot 1
2 Hraðaupphlaup 5
2 Horn 2
6 Lína 4
3 Víti 3
Víkingur Fram
Mörk Sóknir % Mörk Sóknir %
13 24 13 19 26 43 54 F.h. 12 23 68 S.h. 9 20 60 ALLS 21 43 52 45 49
7 Langskot 9
3 Gegnumbrot 1
4 Hraðaupphlaup 1
2 Horn 2
'6 Lina 3
4 Viti 5
Selfoss Haukar
Mörk Sóknir % Mörk Sóknir %
13 24 54 F.h. 11 24 46
21 30 70 S.h. 16 29 55
34 54 63 ALLS 27 53 51
14
5
5
4
2
4
Langskot
Gegnumbrot
Hraðaupphlaup
Horn
Lína
Víti
Hafsteinní
aðalhlutverki
HAFSTEINN Bragason hefur
sennilega aldrei leikið betur en
í gærkvöidi. Kraftur þessa
smávaxna manns var með ólík-
indum og hann var ekki lengi
að smita út frá sér. Leikmenn
Stjörnunnar léku við hvern sinn
fingur, leikgleðin og ánægjan
skein úr hverju andliti og sam-
an tóku þeir deildar- og bikar-
meistara FH i' sannkallaða
kennslustund. Garðbæingar
unnu með sjö marka mun,
28:21, eftir að staðan hafði
verið 11:11 íhálfleik.
Brynjar Kvaran gaf Stjörnunni
tóninn með því að veija fyrsta
skot FH-inga og í kjölfarið komu
þijú Stjörnumörk.
Steinþór Gestirnir voru
skrifaranSS°n ákveðnari °g
grimmari, en heima-
menn náðu að snúa
leiknum sér í hag um miðjan fyrri
hálfleik. Stjarnan gaf samt ekkert
eftir og jafnaði fyrir hlé.
Barningurinn hélt áfram fyrstu
10 mínúturnar í seinni hálfleik, en
þá tók Stjarnan völdin í sínar hend-
ur, sigurviljinn leyndi sér ekki og
fljótlega játuðu FH-ingar sig sigr-
aða.
Davíð sigraði Golíat
Stjarnan mætti til leiks í hlut-
verki litla mannsins, en eins og
dæmin sýna er ekkert sjálfgefið og
Davíð hefur oft leikið Golíat grátt.
Hugarfarið var rétt og menn ætluðu
greinilega að sanna sig. Þar fór
Hafsteinn fremstur í flokki, horna-
maðurinn, sem var mjög slæmur í
baki fyrir helgi, en tvíefldist við
mótlætið og vildi sýna það í verki
á sem fjölbreyttastan hátt. Patrekui*
Jóhannesson, sem var veikur í síð-
ustu viku, vildi líka láta vita af
sér, skyttan og varnarmaðurinn
sterki, sem varð að bíta í það súra
epli að sitja eftir á síðustu stundu,
þegar landsliðið hélt í B-keppnina.
Skúli Gunnsteinsson, sem fingur-
brotnaði á dögunum og mætti á
eina æfingu fyrir leik, fyrirliðinn
sem ætlaði ekki að bregðast á ör-
lagastundu og vildi gefa allt, sem
hann gæti. Ingvar Ragnarsson, sem
hefur misst mikið úr í vetur vegna
meiðsla og veikinda, vildi ekki vera
eftirbátur, markvörðurinn, sem ætl-
aði ekki að bregðast, þegar á þurfti
að halda. Og allir hinir, í vörn sem
sókn, sameinaðir, samstíga og sam-
huga.
Eyjólfur Bragason, þjálfari, hafði
svo sannarlega ástæðu til að brosa.
„Okkur hefur skort stöðugleika, en
nú náðum við upp góðum leik.
Strákarnir fóru eftir því sem fyrir
þá var lagt, léku eins og þeir geta
og létu skynsemina ráða. Mér leist
ekki á góðu byijunina, því eftir slík-
an kafla vill oft koma þakslag. Það
kom líka, en stóð ekki lengi yfir.
FH-ingar hafa samt sýnt að leikur-
inn er ekki búinn fyrr en flautað
hefur verið til- leiksloka og hafa ber
í huga að við erum með unga leik-
menn, sem hafa ekki mikla reynslu
Annað markið fyrir utan!
Hafsteinn Bragason var illviðráðanlegur í horninu, var háll sem áll
á línunni og kórónaði fjölbreytnina með marki fyrir utan, en
alls gerði hann níu mörk fyrir Stjöi'nuna í gærkvöldi. „Þetta er annað
markið, sem ég geri fyrir utan í vetur, ég skoraði eitt með langskoti
gegn HK,“ sagði maður leiksins um síðasta markið í fyrri hálfleik,
11. mark Stjömunnar.
„Málið er að þetta eru úrslitaleikir og við gerðum okkur grein fyrir
því, komum geysilega einbeittir til leiks. Við höfum verið í góðri æfíngu
í vetur, en stemmninguna hefur vantað, leikgleðina, viljann til að
spiia. Nú small þetta allt saman — og það á besta tíma.
En þessi leikur er búinn og næsti tekur við. Ég á von á að þetta
verði eins og í körfunni, sveiflur fram og til baka.“
í svona úrslitaleikjum. Því er mikið
eftir."
Skúli, fyrirliði, tók í sama streng.
„Þetta gekk mun betur, en ég átti
von á. Við hittum á lélegan dag
hjá FH, en svo höfðum við áhorf-
endur með okkur, sem hafði mikið
að segja. En þetta var bara fyrri
hálfleikur og ég á von á FH-ingum
sterkum í Garðabænum."
Ráðlausir FH-ingar
Hans Guðmundsson var at-
kvæðamestur FH-inga. Hann sagði
að FH-ingar hefðu ekki þolað álag-
ið, sem fylgir því að leika svona
úrslitaleik. „Við spiluðum ekki sem
lið. I svona keppni er það dagsform-
ið, sem ræður úrslitum, eins og
sást best í körfunni á dögunum.
Þetta var ekki okkar dagur, en spil-
ið er ekki búið.“
Kristján Arason, þjálfari og leik-
maður FH, sagði að mistökin hefðu
verið of mörg. „Og svo áttum við
ekki von á Hafsteini svona sterkum
— hann gerði mikilvæg mörk. Einn-
ig Patrekur. Ráðleysið var ríkjandi
hjá okkur í seinni hálfleik og við
hættum alltof snemma. Við höfum
hingað til þoiað álagið og látum
þetta okkur að kenningu verða.
Stefan getur bara verið á einn veg
— uppávið."
Bjarki Sigurðsson átti snilldarleik og réðu
Bjarki skorar hér eitt af ellefu mörkum sínum.
Morgunblaðið/Bjarni
Framarar ekkert við hann.
Bjarki óstöðvandi
VÍKINGAR sigruðu Fram í fyrri,
eða fyrsta, úrslitaleik liðanna
um réttin til að leika í undanúr-
slitum ísiandsmótsins í hand-
knattleik. Víkingar gerðu út um
leikinn á lokasprettinum, gerðu
26 mörk gegn 21 marki Fram-
ara.
Handknattleikurinn sem liðin
buðu áhorfendum uppá var
góður. Leikurinn fjörugur og ef
framhald verður á
Skúli Unnar slíkum leikjum í úr-
Sveinsson slitakeppninni er
skrifar ekki að efa að hún
verður jafn spenn-
andi og skemintileg og úrslita-
keppnin í körfuknattleik, sem ný-
lokið er.
Víkingar náðu forskoti strax í
byijun en um miðjan hálfleikinn
jöfnuðu Framarar og þó Víkingum
tækist að ná þriggja marka for-
skoti minnkuðu Framarar muninn
fyrir hlé og jöfnuðu síðan í upphafi
síðari hálfleiks.
Jafnt var á með liðunum fram í
miðjan síðari hálfleik. Þá hófst kafli
þar sem Víkingar gerðu tvö mörk
gegn hveiju einu marki Fram og á
lokamínútunum gerðu þeir fjögur
mörk í röð og gulltryggðu sigurinn.
Bæði lið bytjuðu á 6-0 vörn og
Framarar löggðu áhersu á að loka
á hornamennina. Það tókst með
miklum ágætum og vörn Framara
hefur ekki leikið eins vel í vetur.
Víkingsvörnin var einnig sterk og
þégar Bjarki Sigurðsson færði sig
framar til að taka Gunnar Andrés-
son úr umferð, en hann hafði leikið
skínandi vel.
Við þetta riðlaðist nokkuð sókn-
arleikur Fram og þeir tóku til við
að ljúka sóknunum með skotum of
langt frá vörninni. Á sama tíma
kom Hrafn Margeirsson í mark
Víkinga og varði vel. Þetta tvennt
nýttu Víkingar sér og sigldu framúr
hægt og bítandi.
Hjá Víkingum var Bjarki hreint
frábær og réðu Framarar ekkert
við hann. Hann gerði 11 mörk, flest
með langskotum, en einnig með
gegnumbroti, úr hraðaupphlaupi og
víti. Birgir Sigurðsson var í strangri
gæslu sterkrar varnar Fram en
hann stóð þó fyllilega fyrir sínu og
sama má reyndar segja um aðra
leikmenn Víkings, þeir léku allir vel.
Gunnar Andrésson var bestur
Framara. Hann stjórnaði sóknar-
leiknum vel, fískaði vítaköst með
gegnumbrotum og átti línusending-
ar sem nýttust. Jason Ólafsson átti
trúlega einn sinn besta leik í vetur
og Karl Karlsson náði sér á stirk í
sókninni í síðari hálfleik. Það
ánægjulega við leik Fram var vörn-
in, hún var öflug í gær.