Morgunblaðið - 14.04.1992, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 14.04.1992, Qupperneq 12
fatimR FOLK ■ ÞRÍR leikmenn Fram mættu til leiks í gær eftir all hressilega klipp- ingu. Davíð B. Sigurðsson, Jason Ólafsson og Karl Karlsson voru allir með krúnurakað höfuð. ■ GUNNAR Gunnarsson leik- stjórnandi Víkinga lék aðeins í vörninni undir lok leiksins. Hann fékk högg á bakið og því treysti sér ekki til að leika í sókninni. Hann sagði meiðslin þó ekki alvar- leg. ■ ÞAÐ er með ólíkindum hvað áhorfendur geta æst-sig á íþrótta- kappleikjum. í Víkinni verða blaða- menn meira varir við það en í flest- um öðrum húsum þar sem áhorf- endur og blaðamenn sitja næstum hlið við hlið. Munnsöfnuður sumra þeirra, en sem betur fer fárra, er með ólíkindum og það hlýtur að koma þeirra liði betur að vera hvatt áfram á annan hátt en skíta mót- herjana út með fúkyrðum. ■ VALGEIR Guðjónsson sá um kynningu á leikmönnum Víkings og Fram í gær. Hann stóð sig vel en það kom óneitanlega flatt uppá marga þegar hann hóf upp rausn sína í miðjum leik og hvatti sitt lið, Víking óspart. Slíkt hefur ekki tíðkast hér á landi og hefur verið þegjandi samkomulag um að slíkt sé ekki gert, en það stendur hvergi svart á hvítu að þetta sé bannað. ■ TALSVERT fór fyrir lúðra- blæstri í Víkinni. I mörgum íþrótta- húsum eru slík hljóðfæri bönnuð en greinilega ekki í Víkinni. ■ ÞORBERGUR Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, var á meðal áhorf- enda á Akureyri í gærkvöldi. ■ LÚÐRASVEIT Eyjamanna, sem oft hefur yljað handboltaá- hugamönnum á leikjum, var mætt til Akureyrar og lét vel í sér heyra. ■ GUNNAR Beinteinsson gerði tvö mörk fyrir FH í gærkvöldi. Annð mark hans var 100. mark hornamannsins í Islandsmótinu í vetur. ■ STJARNAN lék 10 æfingaleiki fyrir úrslitakeppnina, þar af þtjá erlendis. ■ MARKVERÐIR Sijörnunnar skiptu hálfleikjunum bróðurlega á milli sín. ■ MAGNÚS Teitsson var á skýrslu hjá Stjörnunni í fyrsta sinn í tvö ár. ■ PATREKUR Jóhannesson gerði fimm mörk fyrir Stjörnuna og öll í seinni hálfleik. ■ KOMI til þriðja leiks FH og Stjörnunnar verður liann í Kapla- krika kl. 20 laugardaginn fyrir páska. ■ ENGIN auglýsing var á miðju vallarins í Kaplakrika eins og verið hefur. Og seinni hálfleik var sjón- varpað beint hjá RÚV! Yfirburðir Selfyssinga „ÞAÐ er ekki spurning, við gef- um þeim ekki færi á neinu á miðvikudaginn," sagði Sigurð- ur Sveinsson eftir að Selfossl- iðið hafði gjörsigrað Hauka á Selfossi í gær með 34 mörkum gegn 27. Staðan í hálfleik var 13:11 fyrir Selfoss. Frá miðjum fyrri hálfleik var ekki spurning um hvort liðið myndi sigra. Örugg markvarsla hjá Selfossl- iðinu, traust vörn og góð sókn- arnýting skópu sigur Selfoss. Leikur Hauka varð ráðleysis- legur þegar þeir reyndu að vinna upp forskot Selfoss sem varð mest niu mörk. Mikil ÍÞRÚmR FOLK ■ MIKIL stemmning var fyrir leiknum á Selfossi. Stuðnings- menn Selfossliðsins óku um bæinn á bíl með gjallarhorni - og hvöttu menn til að ijölmenna á leikinn. I MENN biðu spenntir eftir því hvort Sigurður Bjarnason mætti til leiks, en hann og eiginkona hans, Díana Óskarsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni á hverri stundu. Selfyssingum létti því þegar þau hjónin mættu til leiks, hann niðri á gólfinu en hún á pöliunum. Éi VIGGÓ Sigurðsson þjálfari Hauka og Páll Olafsson stöldruðu ekki lengi við eftir leik. Rúmum fimm mínútum eftir að leiknum lauk voru þeir horfnir. ■ DÓMARARNIR sögðu að það hefði veirð gaman að dæma leikinn. „Þetta var „brosleikur". Leikmenn tóku öllum dómum með bros á vör,“ sögðu þeir Rögnvald og Stefán. H SIGURÐUR Sveinsson fékk rautt spjald. Fyrst var honum vikið af velli fyrir að gera kúnstir með knöttinn þegar Haukar ætluðu að byija á miðju. Þá klappaði Sigurð- ur og fékk að sjá rauða spajdlið. ■ DÓMARARNIR misskildu þetta eitthvað. Ég var að klappa fyrir górði dómgæslu þeirra. Rögn- vald veit alltaf hvað hann er að gera,“ sagði Sigurður kampakátur eftir leikinn. stemmning var í íþróttahúsinu þar sem 540 Selfyssingar hvöttu heimamenn. Leikurinn einkenndist af mikilli spennu og það sást greinilega hversu mikilvægur hann var enda eru allir leikir í úrsli- Sigurður takeppninni hreinir Jónsson úrslitaleikir. Við sknfarfrá komum til með að Selfossi spila okkar bolta áfram en leikurinn á miðvikudaginn er óljós og erfitt að segja nokkuð um hann. Ég er sáttur við mína menn. Það var mikil stemmning í húsinu og áhorfendur frábærir og ég vona sannarlega að þeir komi með okkur til Hafnarfjarðar," sagði Einar Þorvarðarson þjálfari Selfyss- inga eftir leikinn. „Við vorum einfaldlega lélegir i þessum leik en við getum miklu meira. Við gáfumst allt of fljótt upp og það var of mikið ráðleysi í leik okkar þegar við reyndum að vinna upp forskotið hjá Selfyssingum. Það er engin spurning að við ætlum að vinna á miðvikudaginn. Næsti leik- ur leggst vel í mig, við spilum ekki tvo lélega leiki í röð,“ sagði Halldór Ingólfsson Ieikmaður Hauka. I byrjun leiksins var -auðséð að nokkurrar spennu gætti í leik lið- anna. Þau fóru sér rólega og útlit var fyrir lága markatölu. Greinilegt var að Haukar áttu í erfiðleikum með að láta sóknirnar ganga upp gegn öflugri vörn Selfoss. I síðari hálfleik keyrðu Selfyss- ingar hreinlega yfir Hauka sem áttu aldrei möguleika. Sóknarleikur Hauka var í rúst og þeir brugðu þá á það ráð á tímabili að taka Sigurð Sveinsson, Einar Guðmundson og Einar Gunnar Sigurðsson úr umferð en við það opnaðist vörn þeirra enn meira. Undir lokin lá Haukum mik- ið á og voru á eftír boltanum um allan völl. Þá var leikurinn hreinlega líkastur sirkus og hvert hraðaupp- hlaupið tók við af öðru hjá báðum liðum. Markverðir Selfoss, Einar Þor- varðarson og Gísli Felix Bjarnason vörðu mjög vel í leiknum. Sigurður Sveinsson og Einar Gunnar Sig- urðsson voru atkvæðamestir í sókn- inni. Burðarásinn í slöku iiði Hauka var Páll Ólafsson sem reyndi eftir mætti að stýra sóknarleik sinna manna. Morgublaðiö/Júlíus Sigurður Sveinsson var með rétt styllta fallbyssuna í gærkvöldi og skor- aði 12 mörk gegn Haukum á Selfossi. KNATTSPYRNA Fram gegn Brondby Framliðið í knattspymu heldur í æfinga- og keppnisferð til Danmerkur á morgun. Framliðið leikur gegn danska meistaraliðinu Bröndby á fimmtudaginn á Bröndby-vellinum og á laugardag- inn leikur Fram gegn Avarta. Bröndby er eitt sterkasta lið Dana og leikurinn tilvalin æfing fyrir félagið, sem tekur nú þátt í úrslitakeppninni um Danmerkur- meistaratitilinn. Avidesa taplaust í Evrópukeppni bikarhafa: Ætlum að halda fengnum hlut sagði GeirSveinsson, sem er 60 mínútum frá Evrópumeistaratitli Geir Sveinsson, fyrirliði lands- liðsins í handknattleik, gerði tvö mörk fyrir Avidesa í 25:22 sigri gegn Wallau Massenheim á sunnudaginn. Þetta var fyrri leik- ur liðanna í úrslitum Evrópu- keppni bikarhafa, en seinni leikur- inn verður í Þýskalandi á páska- dag. „Við ætlum að halda fengn- um hlut og förum til Þýskalands til að sigra,“ sagði Geir við Morg- unblaðið. Avidesa byrjaði mjög illa á heimavelli sínum og Þjóðverjarnir komust í 6:1. Á þessum tíma fékk Vasili Stinga að sjá rauða spjaldið fyrir að gefa Finnanum Kjellmann olnbogaskot og sagði Geir að þetta hefði sett liðið út af laginu. Það náði samt að rétta úr kútnum og var sex mörkum yfir í hálfleik, 14:8. Byijun Avidesa í seinni hálfleik var ámóta og fyrir hlé. Gestimir nýttu sér það, jöfnuðu 18:18 og komust yfir, 19:18. En heima- menn rifu sig upp úr lægðinni og náðu að sigra með þriggja marka mun. En nægir það? „Ég ætla ekki að fullyrða um það, því víst er að útileikurinn verður erfiður," sagði Geir. „Gert er ráð fyrir sex til sjö þúsund áhorfendum, sem allir verða á bandi heimamanna, en við höfum ekki tapað leik í keppninni og ætlum ekki að byija á því í síðasta leik.“ Geir var lítið með í sókninrii í fyrri hálfleik, en lék lengst af eft- ir hlé. Hann sagðist enn vera í rannsókn vegna hugsanlegra inn- . vortis meiðsla frá B-keppninni, en talið væri að álagið hefði einn- ig tekið sinn toll. „Einkennin eru meira áberandi eftir æfíngar og leiki og því er ljóst að ég verð að hvíla mig vel eftir Evrópuleikinn." HANDKNATTLEIKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.