Morgunblaðið - 14.04.1992, Qupperneq 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRMÍIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992
KNATTSPYRNA / ÞYSKALAND
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Eyjólfur Sverrisson hefur staðið sig vel að undanförnu með Stuttgart, en liðið er nú efst í Þýskalandi.
Eyjólfur gætti Dorfn-
ers og Stuttgart efst
EYJÓLFUR Sverrisson átti á
laugardaginn enn einn stórieik-
inn með Stuttgart, sem hefur
leikið níu leiki í röð án taps,
vann Nurnberg 2:0 og vermir
nú efsta sæti þýsku úrvals-
deildarinnar, en sex umferðir
eru eftir. Hans Dorfner, leik-
stjórnandi Núrnberg og fyrrum
leikmaður Bayern Munchen og
þýska landsliðsins, var í
strangri gæslu Eyjólfs og sást
varla íleiknum, en Matthias
Sammer var hetja heima-
manna og gerði bæði mörkin.
Sammer skoraði með skalla um
miðjan fyrri hálfleik eftir
aukaspyrnu frá Maurizio Gaudino,
sem lék eins og hann
FráJóni getur best og vann
Halldór sér sæti í þýska
Garðarssyni landsliðinu, og bætti
öðru marki við 10
mínútum fyrir hlé með glæsilegu
skoti af 25 metra færi.
JOHAN Cruyff hefur að undan-
förnu átt í útistöðum við for-
seta Barcelona og hefur sagt
að hann hætti með liðið eftir
úrslitaleikinn í Evrópukeppni
meistaraliða á Wembley 20.
maí — komist liðið þá þangað.
Talið er að spænska félagið
bjóði Howard Kendall enn einu
sinni þjálfarastöðuna.
Cruyff og Josip Nunez, forseti
félagsins, eiga ekki samleið
og talast ekki við, en einu samskipt-
in eru skrifleg. Andrúmsloftið er
Christoph Daum var að vonum
ánægður með fyrri hálfleik og tók
enga áhættu, kippti Guido Buch-
wald útaf vegna viðureignarinnar í
Múnchen um næstu helgi, en þá
tekur Bayern á móti Stuttgart.
Bayern hefur að vísu ekki leikið
vel, en óheppni hefur líka fylgt lið-
inu, sem tapaði 3:0 fyrir Dortmund.
í stöðunni 1:0 átti Bayern með réttu
að fá vítaspyrnu, en fékk ekki og
lánið lék við Dortmund, sem er með
jafnmörg stig og Stuttgart en lak-
ari markatölu. „Bayern var betra,“
sagði Ottmar Hitzfeld, þjálfari
Dortmund.
Frankfurt tapaði stigi
Frankfurt gerði 1:1 jafntefli við
Gladbach og tapaði dýrmaetu stigi
í mestu baráttu um meistaratitilinn
um árabil. „Við stóðum okkur ekki
eins vel og við ætluðum okkur,“
sagði Dragoslav • Stepanovic. „Ur-
slitin ráðast í næstu leikjum og við
því allt annað en gott og hefur for-
setinn sagt að Cruyff verði sagt
upp tapi liðið í úrslitum Evrópu-
keppninnar. Cruyff sagði að úrslit
leiksins skiptu engu, hann yrði ekki
lengur hjá Barcelona.
Þegar er farið að huga að eftir-
manni og hefur nafn Howards
Kendalls oftast verið nefnt, en
Barcelona hefur fjórum sinnum á
síðustu sex árum reynt að fá hann.
Hann þekkir vel til spænsku knatt-
spyrnunnar og launin eru ekki beint
fráhrindandi — um 100 milljónir
ÍSK á ári.
gerum hvað við getum til að vera
áfram í hópi þeirra efstu.“
Leverkusen hefur ekki enn misst
af lestinni og er aðeins þremur stig-
um á eftir Stuttgart, en liðið vann
meistara Kaiserslautern 3:0.
Andreas Thom og Ulf Kirsten voru
í sérflokki og skoruðu báðir, en
þessir fyrrum austur-þýsku lands-
liðsmenn hafa sjaldan eða aldrei
verið betri.
Köln, Núrnberg og Kaiserslaut-
ern betjast um Evrópusæti og gerði
Köln vel að vinna Duisburg 3:1, en
vegna meiðsla lykilmanna léku tveir
áhugamenn með Köln.
Dússeldorf tapaði 3:1 heima fyrir
Stuttgarter Kickers og er svo gott
sem fallið. Kickers er áfram í fall-
hættu sem og Bochum, en engu að
síður hafa liðin aldrei leikið betur.
■ Úrslit/ B10
■ Staðan / B10
Johan Cruyff
KNATTSPYRNA / SPANN
Fer Johan Cruyff
frá Barcelona?
Rós í hnappa-
gat Fergusons
MANCHESTER United tryggði
sér þátttökurétt í Evrópu-
keppni félagsliða næsta haust
með því að vinna Nottingham
Forest 1:0 f úrslitum ensku
deildarbikarkeppninnar á
Wembley á sunnudaginn. Sig-
urinn var ekki síst sætúr fyrir
Alex Ferguson, sem hefur þar
með stjórnáð liðum til sigurs í
báðum skosku sem og báðum
ensku bikarmótunum og er það
einsdæmi.
Brian McClair gerði eina mark
leiksins snemma í fyrri hálf-
leik og var það 23. mark hans á
tímabilinu. McClair skoraði reyndar
skömmu áður,’ en markið var rétti-
Iega dæmt af, og hann fékk gullið
tækifæri til að bæta við um miðjan
seinni hálfleik. Mark Hugh’es lék
þá á markvörðinn en í stað þess
að skjóta sjálfur sendi hann á
McClair, sem var í opnara færi.
Brian Laws tókst að bjarga skoti
Skotans á línu. „Ég átti að skora
þarna,‘.‘ sagði McClair, en bætti við
að sigurinn hefði verið sárabót fyr-
ir 1:0 tapið gegn Sheffield Wed-
nesday í úrslitunum í fyrra.
Forest gerði harða hríð að marki
United undir lokin, en danski mark-
vörðurinn Peter Schmeichel var sem
óyfirstíganlegur þröskuldur.
Ferguson var að vonum ánægð-
ur, en sagði að hjá Manchester
United væri ætlast til þess að sigra.
„Mestu máli skiptir að sigra í deild-
inni og það er takmark okkar, en
það er líka mikilvægt að fá bikar
í öðrum mótum. Kröfurnar hjá fé-
laginu eru miklar og það þýðir að
það verður að koma heim með bik-
arana.“
Draumamark
LEEDS fór aftur á fornar slóðir eftir 3:0 sigur gegn Chelsea á
laugardaginn, er efst í ensku deildinni, en Manchester United
er aðeins stigi á eftir og á tvo ieiki til góða. Leeds sýndi samt
enga meistaratakta, en þriðja markið, sem franski landsliðsmað-
urinn Eric Cantona gerði undir lokin, skyggði á allt annað. „Mað-
ur sér varla annað eins mark á ævinni," sagði Howard Wilkin-
son, stjóri Leeds. „Þegar ég verð orðinn gamall og gráhærður
á ég eftir að minnast þess hvaða sérréttindi það voru að sjá
þetta rnark."
Cantona kom inná sem varamað-
ur sex mínútum fyrir leikslok,
mínútum síðar kom „draumamark-
ið“. Eftir innkast
Frá lyfti Frakkinn bolt-
Bob anum yfir varnar-
Hennessy mann, tók hann á
1 ngan 1 hné, eitt skref áfram
og síðan þrumuskot yfir Dave Beas-
ant, markvörð, í hornið fjær. Can-
tona leyndi ekki gleði sinni, hljóp í
áttina að stuðningsmönnum Leeds
og kyssti treyjuna.
Steve Clarke slapp með skrekk-
inn um miðjan seinni hálfleik, þegar
hann braut á Gordon Strachan, en
varnarmaður gestanna var aðeins
bókaður.
Paul Merson Iék mjög vel fyrir
Arsenal og gerði þrjú mörk í 4:1
sigri gegn Crystal Palace. Arsenal
lék eins og stuðningsmenn liðsins
vilja, en liðið blómstrar of seint, er
úr leik á öllum vígstöðvum, en þetta
var 13. leikur þess í röð án taps.
George Graham var ekki yfir sig
ánægður, sagði að Merson hefði
leikið ágætlega en oft verið betri.
„Ég er óánægður, því við hefðum
getað gert átta mörk. En liðið er
ekki leiðinlegt á að horfa enda höf-
um við gert flest mörk í deildinni."
Steve Coppell, stjóri Palace, tók
undir orð Grahams varðandi yfir-
burðina. „Arsenal var alltaf þremur
mörkum betri og hefði þess vegna
getað unnið 6:3 eða 7:4.“
Alan Smith var varamaður hjá
Arsenal. Graham sagði að hann
væri samningsbundinn og yrði
áfram hjá félaginu, en orðrómur
hefur verið um að hann færi il
Everton í sumar.
Bruce Grobbelaar fékk enn einu
sinni orð í eyra fyrir slælega
frammistöðu, en honum var kennt
um markið, sem Aston vVilla gerði
og nægði til sigurs gegn Liverpool.
Tony Daley óð upp með boltann frá
eigin vallarhelmingi og skaut lausu
skoti frá vítateigshorni. Grobbelaar
virtist hafa boltann, en hann fór á
milli handa hans og inn. „Við höfum
fengið ótrúleg mörk á okkur að
undanförnu," sagði Ronnie Moran.
Graeme Sharpe negldi sennilega
síðasta naglann í kistu Luton, þeg-
ar hann gerði fjögur mörk í 5:1
sigri /Hdham á heimavelli, og 4:0
sigur West Ham gegn Norwich
verður liðinu varla til bjargar. Þetta
var stærsti sigur West ham á tíma-
bilinu, en liðið hafði ekki sigrað síð-
ustu níu vikurnar. „Loksins fóru
stuðningsmennirnir ánægðir heim,“
sagði Billy Bonds. „Þeir hafa ekki
oft haft ástæðu til að fagna í vetur.“
Þetta var fimmti ósigur Norwich
í jafnmörgum leikjum og liðið fær-
ist æ neðar í töflunni.
Graham Taylor, landsliðsþjálfari
Englands, sá David Hirst gera fyrra
mark Sheffield Wednesday í 2:0
sigri gegn Manchester City. Hirst
lék fyrri hálfleikinn gegn Frakk-
landi fyrir tveimur mánuðum og
spilaði sig sennilega inní landsliðið
á ný.
Guðni Bergsson var ekki í hópn-
um hjá Tottenham, sem vissi vart
hvaðan á sig stóð veðrið en vann
samt QPR 2:1 eftir að hafa verið
marki undir í hálfleik. QPR fór á
kostum, sérstaklega í fyrri hálfleik,
og var unun að sjá til liðsins. Andy
Sinton sýndi hvernig á að leika á
kantinum og skoraði fyrir hlé, en á
óskiljanlegan hátt tókst Spurs ekki
aðeins að jafna heldur sigra. Peter
Shreeves, sem tók David Howells
útaf í hálfleik og Gary Mabbutt,
fyrirliða, um miðjan seinni hálfleik,
var raunsær. „Mabbutt var alltof
mistækur og við vorum heppnir að
sigra. En það eina, sem nú skiptir
máli, er að staða okkar í úrvals-
deildinni á næsta tímabili er örugg.“
Gary Lineker var á sama máli.
„Við lékum hræðilega illa í fyrri
hálfleik og fengum að heyra það í
hléinu enda áttum við það skilið."
Gerry Francis, sem stjórnaði
QPR í 19 leikjum í röð án taps og
var verðlaunaður sem stjóri mars-
mánaðar fyrir leikinn, var nær orð-
laus. „Við sýndum frábæran leik
og þetta var eitt af því besta sem
ég hef séð hérna, en samt fórum
vrö allslausir af velli.“
í Skótlandi bar það helst til tíð-
inda að Rangers setti markamet í
skosku úrvalsdeildinni. Liðið hefur
gert 92 mörk í vetur, en átti best
90 áður eins og Celtic og Dundee
United. Þá gerði St. Mirren marka-
laust jafntefli við Hearts og þar
með er liðið fallið ásamt Dunferm-
line.