Morgunblaðið - 14.04.1992, Page 9
B 9
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992
ÍÞfémR
FÓLK
■ AC Mílanó gerði jafntefli, 1:1,
gegn Cremonese í ítölsku knatt-
spyrnunni á sunnudag. Mílanó, sem
hefur ekki tapað leik í deildinni í
vetur, hefur nú fimm stiga forskot
á Juventus þegar sex umferðum
er ólokið.
■ JUVENTUS heldur í vonina um
ítalska meistaratitilinn eftir 1:0 sig-
ur á Ascoli á sunnudaginn. Ro-
berto Baggio gerði sigurmarkið
úr vítaspyrnu eftir að varnarmaður-
inn Giovanni Di Rocca hafði hand-
leikið knöttinn innan vítateigs. Ju-
ventus mætir AC Mílanó í undan-
úrslitum bikarkeppninnar í vikunni,
en fyrri leikurinn endaði með
markalausu jafntefli.
■ DAVID Platt, enski landsliðs-
maðurinn hjá Bari, kom liði sínu
yfir gegn Napólí en það dugði
skammt því Napólí sigraði 3:1.
Platt hefur verið orðaður við Na-
pólí næsta keppnistímabil.
■ VERONA tapaði fyrir Tórínó
2:1 og er nú í fallhættu. Cremo-
nese, Bari og Ascoli eru þegar
fallin í 2. deild, en fjögur lið falla
og er Verona líklegast til að fylgja
þeim. Cagliari er í fimmta neðsta
sæti, þremur stigum á undan Ver-
ona.
■ LOTHAR Matthaiis meiddist í
hné og varð að fara af leikvelli í
fyrri hálfleik í leik Inter og Parma.
Félagi hans, Jiirgen Klinsmann,
fór einnig af leikvelli. Hann fékk
pening, sem kastað var úr áhorf-
endastúkunni, í höfuðið, en lék í
nokkrar mínútur eftir það en var
síðan skipt útaf.
■ MANOLO Sanchez gerði fjög-
ur mörk fyrir Atletico Mardríd í
5:1 sigri á Cadiz í spænsku knatt-
spyrnunni á sunnudag. Hann er nú
lang markahæsti leikmaður
spænsku deildarinnar með 21 mark.
Bernd Schuster og Paulo Futre
lögðu upp öll mörkin.
■ REAL Madríd gerði marka-
laust jafntefli við neðsta lið deildar-
innar, Real Mallorca, en heldur
tveggja stiga forskoti á Barcelona
sem tapaði fyrir Valencia, 1:0.
■ AJAX sigraði Den Haag 3:2
og er enn með í baráttunni um
hollenska meistaratitilinn í knatt-
spyrnu þegar þrjár umferðir eru
eftir. Ajax er þremur stigum á eft-
ir PSV Eindhoven sem sigraði
Wille II 3:0. Rúmeninn, Giga
Popescu, gerði fyrsta mark PSV
og Kalusha og Elleman bættu hin-
um tveimur við. Svíinn Stefan
Pettersson gerði tvö marka Ajax
gegn Den Haag.
■ DAVID O’Leary lék ekki með
Arsenal um helgina. Ástæðan var
sú að írskir hryðjuverkamenn hót-
uðu honum lífláti vegna þess að
hann kaus íhaldsflokkinn í kosning-
unum í síðustu viku. Arsenal tók
enga áhættu og hvíldi leikmanninn.
■ NHL-deildin, sem er atvinnu-
mannadeildin í ísknattleik getur nú
hafist á nýjan leik eftir 10 daga
verkfall leikmanna. Samningar tók-
ust með stéttarfé-
lagi leikmanna og
eigendum félaganna
á laugardaginn og
um næstu heigi á
að ljúka deildarleikjum þannig að
úrslitakeppnin getei hafist en um
tíma leit út fyrir að af henni yrði
ekki. Deildin hefur tafist um tvær
vikur vegna verkfallsins og er það
bagalegt því margar íþróttahallirn-
ar sem leika átti í eru pantaðar
fyrir annað.
Frá
Gunnari
Valgeirssyni
i Bandarikjunum
■ GEORGE Foreman fyrrum
heimsmeistari í hnefaleikum, sem
nú er A3 ára gamall, sigraði Alex
Stewart um helgina í tíu lotum.
„Nú vil ég fá að berjast við Evand-
er Holyfield heimsmeistara og
hefna ófaranna frá því í fyrra. Ef
ég fæ ekki að mæta honum er ég
hættur," sagði Foreman.
SKIÐI / ALÞJOÐA SKIÐAVIKAN
■
Morgunblaðiö/Rúnar Þór
Pernilla Wiberg sænski ólympíumeistarinn frá því í Frakklandi í vetur, hefur sigrað á þremur fyrstu mótunum í kvennaflokki á alþjóða skíðavikunni.
FulK hús hjá Pemillu Wiberg
íslensku keppendurnir hafa staðið sig vel og eru ánaegðir með árangurinn
SÆNSKI ólympíumeistarinn
frá þvi í Frakklandi í vetur,
Pernilla Wiberg, hefur sigrað á
þremur fyrstu mótunum i
kvennaflokki á alþjóða skíða-
vikunni, sem nú stendur yfir,
eins og við var búist. Norð-
menn hafa unnið í öll skiptin í
keppni karla. Bestu íslending-
arnir, Kristinn Björnsson og
Ásta Halldórsdóttir, hafa stað-
ið sig vel - náð að Ijúka keppni
í góðum sætum og eru ánægð
með árangurinn. Keppt var í
Hlíðarfjalli við Akureyri þrjár
fyrstu dagana; laugardag,
sunnudag og í gær. Hlé verður
á keppni í dag, en keppnin um
Visa-bikarinn - sem veittur er
fyrir sigur í öllum mótunum
samanlagt - heldur áfram á
ísafirði á morgun og fimmtu-
dag og síðan verður keppt í
Bláfjöllum um helgina.
Konurnar kepptu í stórsvigi á
laugardag og sunnudag en
svigi í gær. Karlarnir hins vegar í
stórsvigi fyrsta dag-
inn, svigi á sunnu-
dag og síðan aftur í
stórsvigi í gær. Ásta
Halldórsdóttir gerði
sér lítið fyrir og varð í þriðja sæti
í svigi kvenna í gær, á eftir sænsku
stúlkunum Wiberg og Andersson,
og hefur bætt fis-punkta stöðu sína
mikið. Var með 84 punkta, en kom-
inn niður í 55 fyrir mótið í gær.
„Það er mjög gott á einni helgi á
tveimur mótum. Þess vegna er gott
að halda svona sterk mót hér,“
sagði Ásta við Morgunblaðið í Hlíð-
arfjalli í gær. Hún varð sjöunda á
laugardag og áttunda á sunnudag.
„Mér gekk vel á laugárdaginn, en
hræðilega í fyrri ferðinni á sunnu-
daginn. Ég var með svipaðan tíma
og nokkrar þessar útlendu eftir fyrri
ferð á laugardag en var svo einni
til einni og hálfri sekúndu á eftir
þeim í gær [sunnudag]."
-Þannig að ef allt hefði verið
nieð felldu, hefðirðu átt að bæta
punktastöðuna enn meira?
„Já, það er alltaf hægt að segja
ef! En ég er mjög ánægð með
þetta.“ Um keppnina í gær sagði
Ásta að brautin hefði verið góð en
krefjandi. „Beygjurnar í neðri hlut-
anum voru þverar. Þetta tók á, var
erfitt en gaman.“ Ekki lá alveg Ijóst
fyrir í gær hve mikið Ásta bætti
punkta- stöðuna í sviginu í gær,-
en hún liefur örugglega lækkað eitt-
hvað.
Wiberg hjálpar hinum
Sigur hinnar sænsku Wiberg
hefur verið mjög öruggur í öll skipt-
in, eins og búast mátti við, og leyfði
hún sér m.a. í gær að hægja veru-
lega á sér áður en hún fór í gegnum
markið. „Ég kom fyrst og fremst
til Íslands til að sjá landið, og hjálpa
ungu stelpunum að ná sér í fis-stig.
Ég tek þetta því ekkert allt of alvar-
lega - reyni að hafa sem mest gam-
an af þessu,“ sagði Wiberg við
Morgunblaðið, eftir að hún tryggði
sér sigur í sviginu í gær.
Wibérg var ánægð með aðstæður
í Hlíðarfjalli. Sagði brekkurnar góð-
ar, og það kæmi sér á óvart hve
snjórinn væri góður. „Hann er ekki
jafn mjúkur og víða annars staðar
á þessum árstíma. Það var svolítið
erfitt að keppa í gær [sunnudag],
skyggnið var það slæmt en það var
frábært hér á laugardaginn. Sólskin
og heiður himinn."
Norðmaðurinn Per Fredrik Spieler
Kristinn ætiar að gera betur
Kristinn Björnsson varð í fjórða
sæti í stórsviginu á laugardag, þriðji
í svigi á sunnudag og fímmti í gær
í stórsviginu. „Mér gekk illa í dag.
Mjög illa í fyrri ferðinni og þetta
var hálfgert basl hjá mér allan tím-
ann,“ sagði hann í gær. „Ég hefði
getað bætt punkta-stöðuna hjá mér
í dag, en það gekk ekki.“ Sérstalf-
lega var hann óánægður með
frammistöðu sína neðst í brautinni
í seinni ferð. Kristinn sagðist hins
vegar ánægður með keppnina á
sunnudag og sáttur við laugardags-
stórsvigið og var bjartsýnn á fram-
haldið: „Já, ég er bjartsýnn á að
bæta mig. Þessir bestu verða allir
að standa niður til að ég eigi mögu-
leika á að bæta punktastöðuna og
ég vona það besta. Ég safna kröft-
um á morgun [í dag] og gef svo
í...“ sagði Kristinn, sem er þekktur
fyrir að taka áhættu og keyra vel.
„Má ekki fara of hratt“
Norðmaðurinn Per Fredrik Spiel-
er sigraði bæði á laugardag og
sunnudag, en varð svo þriðji í gær.
Hann sagði þoku hafa gert kepp-
sigraði bæði á laugardag og sunnudag,
endum erfitt fyrir á sunnudag, en
hina daga hefði allt verið í himna-
lagi. Hann er bestur allra þátttak-
enda í stórsvigi, ef miðað er við
punktastöðu þeirra, en Svíinn Chri-
stophe. Granberg á hins vegar að
vera bestur í sviginu. Svíinn varð
hins vegar að gera sér það að góðu
að keyra út úr í sviginu á sunnu-
dag, en varð annar bæði á laugar-
dag og í gær. „Ég tók þessu frekar
rólega - skíðaði af öryggi niður.
Ég er hér til að hinir fái punkta
og má því ekki fara of hratt,“ sagði
Spieler hinn norski við Morgunblað-
ið í gær. Spieler var í liði Norð-
manna sem keppti í Evrópubikar-
keppninni í vetur, og var í 8. sæti
samanlagt á stórsvigsmótum vetr-
arins.
Norðmaðurinn lofaði aðstæður í
Hlíðarfjalli. „Ég átti ekki vona á
að brekkurnar væru svona brattar
pg góðar. Ég hef aldrei komið til
íslands áður og það var aðal ástæð-
an fyrir því að ég kom — mig lang-
aði að sjá landið, og lýst satt að
segja mjög vel á.“
■ ÚRSLIT/B10
Morgunblaöið/Rúnar Þór
en varð svo þriðji í gær.
Skapti
Hallgrímsson
skrífarfrá
Akureyri