Morgunblaðið - 03.05.1992, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1992
Fóstra
Okkur vantar fóstru frá og með 1. júní nk.
Upplýsingar veitir leikskólastjóri milli kl.
13.00 og 15.00 á daginn.
Barnaheimilið Ós,
Berþórugötu 20,
er foreldrarekið barnaheimili.
Rafvirkjar
Virt heildverslun með raflagnaefni óskar að
ráða rafvirkja til afgreiðslu- og sölustarfa.
Umsóknir er greini m.a. aldur og fyrri störf
berist auglýsingadeild Mbl. fyrir 9. maí
merktar: „Rafvirki - 9680“.
T ækjastjóri
Viljum ráða mann vanan vélskóflumokstri.
Björgun hf.,
Sævarhöfða 33,
sími 681833.
Bílaleiga
Maður vanur bílaviðgerðum óskast til starfa.
Þarf að geta byrjað sem fyrst.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á staðnum.
Gullfoss bílaleiga,
Dalvegi 20, Kópavogi.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðing vantar að hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Hraunbúðum, Vestmanna-
eyjum, sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
98-11915.
Múrarar
Múrara vantar í hleðslupússningu og gólfaílögn.
Upplýsingar veitir Tryggvi í síma 670019.
Tækniþjónusta - Verktakar,
Síðumúla 1.
Forstöðumaður
Þroskaþjálfi eða aðrir með menntun og
reynslu í starfi með fötluðum, óskast til að
veita forstöðu skammtímavistun Þroska-
hjálpar á Vesturlandi fyrir fatlaða í Holti við
Borgarnes. Starfið er laust frá hausti.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri
svæðisstjórnar Vesturlands, Magnús
Þorgrímsson, í síma 93-71780.
Umsóknir sendist samstarfsráði í pósthólf
41, 310 Borgarnesi.
Fóstrur óskast
á leikskólann Lönguhóla, Höfn í Hornafirði.
Upplýsingar gefa leikskólastjórar í síma
97-81315 og félagsmálastjóri í síma
97-81222.
Hjúkrunarfræðingar
Tvær stöður hjúkrunarfræðinga, samtals
150%, eru lausar við Heilsugæslustöðina í
Vestmannaeyjum frá 15. júlí nk.
Önnur staðan verður staða skólahjúkrunar-
fræðings á komandi hausti.
Upplýsingar gefur Hólmfríður Ólafsdóttir,
hjúkrunarforstjóri, í síma 98-11955
Heilsugæslustöð Vestmannaeyja.
Vélfræðingar
VF I, II og III
Okkur vantar vélstjóra til starfa við afleysing-
ar í sumar og í fastar stöður í haust og vet-
ur. Full réttindi, búseta á staðnum, föst frí og
góð meðmæli eru skilyrði.
Upplýsingar í síma 95-22690.
Skagstrendingur hf.,
Skagaströnd.
T ækjastjóri
- hefilstjóri
Viljum ráða vanan tækjastjóra á hjólaskóflu
vegna verks í Bolungarvík. Aðeins maður
vanur grjótvinnu kemur til greina. Einnig
vantar vanan hefilstjóra vegna vinnu í Öxna-
dal.
Upplýsingar í síma 653140 á skrifstofutíma.
Gunnar og Guðmundur sf.
Klæðning hf.
Menntaskólinn á
Egilsstöðum
Lausar stöður til umsóknar:
Enska (1/1), franska (1/2) og námsráðgjöf
(1/2).
Upplýsingar gefur skólameistari ME í síma
97-11140.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf berist Menntaskólanum á Egils-
stöðum, 700 Egilsstaðir, fyrir 25. maf nk.
Skólameistari.
„Au pair“
vantar í úthverfi Kölnar til að gæta þriggja
barna frá júní til enda september.
Upplýsingar veitir Steinunn í síma 52587 í
kvöld og annað kvöld frá kl. 20.00-22.00.
Saumakonur óskast
Óskum eftir að ráða röskar saumakonur til
starfa á saumastofu fyrirtækisins. Fastur
vinnutími frá k. 9.00-13.00. Lengri eða sveigj-
anlegur vinnutími kemur til greina.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstof-
unni, ekki í síma.
Áklæði og gluggatjöld,
Skipholti 17a, Reykjavík.
Bókari
hálfsdags starf
Óskum eftir að ráða sem fyrst starfsmann
til framtíðarstarfa til að sjá um bókhald,
skjalavörslu og fleira. Viðkomandi þarf að
geta unnið sjálfstætt.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Bókari - 3460“ fyrir 8. maí.
Með allar umsóknir verður farið með sem
trúnaðarmál.
Forritunsf., Síðumúla 1, 108 Reykjavík.
Atvinnurekendur
athugið!
Atvinnumiðlun námsmanna hefur hafið starf-
semi sína. Fjöldi námsmanna er á skrá, með
margvíslega menntun og starfsreynslu að baki.
Skrifstofan er opin frá kl. 9-18 alla daga.
Vanti ykkur starfskrafta í sumar, þá eru þeir
hjá okkur!
A TVINNUMIÐL UN NÁMSMANNA,
Stúdentaheimilinu v/Hringbraut
sími 621080 og 621081.
Fóstrur
Frá og með 1. sept. vantar fóstrur að leikskól-
anum Lyngholti á Reyðarfirði.
Leikskólinn er í nýlegu og glæsilegu hús-
næði og uppeldisstarf er í mótun undir hand-
leiðslu 3 fóstra, sem hér eru starfandi nú
þegar.
Með haustinu er fyrirhugað að taka upp
sveigjanlegan vistunartíma.
Umsóknarfrestur er til 22. maí.
Allar nánari upplýsingar gefa leikskólastjóri
í síma 97-41257 og sveitastjóri í síma
97-41245.
Fiskkassar
Viljum kaupa 70 og 90 lítra fiskkassa.
Meleyri hf.
Hvammstanga, s. 95-12390.
T résmíðavélar óskast
Óskum eftir góðum trésmíðavélum fyrir verk-
stæði. T.d. spónlímingapressu, afréttara og
þykktarhefli, þykktarslípivél, spónasögukerfi
og ýmsum öðrum vélum.
Tilboð sendist á auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Trésmíðavélar - 3459“ fyrir 12. maí nk.
Hárgreiðslustofa
vel staðsett óskast til kaups strax.
Traustur kaupandi, öruggar greiðslur.
Vinsamlegast leggið inn nafn og símanúmer
á auglýsingadeild Mbl. merkt: „B - 13768“
Læknishjón íReykjavík
óska eftir sérhæð, raðhúsi eða einbýli til leigu
á stór-Reykjavíkursvæðinu um óákveðinn
tíma.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Læknishjón - 14356“.
Verslunar-f lager og skrif-
stofuhúsnæði
Til leigu er gott verslunar-, lager- og skrif-
stofuhúsnæði að Suðurlandsbraut 4 í
Reykjavík. Verslun og lager eru á jarðhæð,
alls 493 fm. Skrifstofa á 2. hæð er um 146
fm. Leigist í einu lagi eða í hlutum. Góð
aðkoma og bílastæði. Nýlegar innréttingar.
Upplýsingar eru veittar í síma 643170.