Morgunblaðið - 03.05.1992, Blaðsíða 39
í
I
I
I
I
I
I
I
I
p
I
p
I
i
MORGUNBLAÐIÐ SUNNÚDAGUR 3. MAÍ 1992
39-
Samið um krabba-
meinsleit kvenna
UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur milli heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins og Krabbameinsfélags íslands um áframhald-
andi leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum kvenna. Þetta er fram-
lenging samnings sem gerður var fyrir fimm árum er heilbrigðisráðu-
neytið fól Krabbameinsfélaginu að annast skipulag og framkvæmd við
slíka leit og er samningurinn í gildi til ársloka 1998. Allar konur á
Islandi frá 20 ára aldri til 69 ára eru reglulega boðaðar í krabbameins-
leit og að sögn Kristjáns Sigurðssonar, yfirlæknis leitarstöðvarinnar,
hafa um 80% þeirra kvenna komið í Ieit frá árinu 1988 og gert er ráð
fyrir að á milli 22.000 og 32.000 konur verði skoðaðar ár hvert.
Minningarsjóður Jean Pierre Jacquillats:
Veitt úr sjóðnum í
fyrsta sinn í sumar
STYRKUR verður veittur í fyrsta sinn úr Minningarsjóði Jean
Pierre Jacquillat í sumar, en sjóðurinn var stofnaður 1987 af
eignaleigufélaginu Lind hf. Jean Pierre Jacquillat var ráðinn
aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands 1980 en hann
lést í bílslysi í Frakklandi 11. ágúst 1986.
Lind hf. var stofnuð 1986 af
Samvinnubanka íslands, Sam-
vinnusjóði íslands og franska
bankanum Banque Indosuez. Lind
hf. var þannig fyrsta fransk-
íslenska hlutafélagið sem stofnað
var á íslandi. Erlendur Einarsson,
stjórnarformaður minningarsjóðs-
ins, sagði að við lát Jacquillats
hefði sú hugmynd fæðst að Lind
hf. legði eitthvað af mörkum til
menningarmála og var síðan sam-
þykkt í apríl 1987 að stofna sér-
stakan minningarsjóð um Jean
Pierre Jacquillat. Samþykkt var
að Lind hf. legði fram ákveðna
upphæð í sjóðinn í fimm ár. Einn-
Tap varð af rekstri Útvegsfélags
samvinnumanna í fyrra upp á 8,3
milljónir króna en árið 1990 var
18,4 milljóna tap á rekstrinum.
Helsta ástæða táps tvö ár í röð er
afskriftir á eignarhlutum en félagið
hefur það hlutverk að stuðla að fjár-
hagslegri hagræðingp í rekstri sjáv-
arútvegsfyrirtækja. Útvegsfélagið er
hluthafi í ýmsum fyrirtækjum og
yfirtók einnig alla eignarhluti ís-
lenskra sjávarafurða hf. í fyrirtækj-
um tengdum sjávarútvegi,
Heildarvelta Islenskra sjávaraf-
urða hf. árið 1991 var um 13.600
milljónir króna en um 11.800 milljón-
ir árið áður. Aukningin er 15%. Velt-
an í freðfiski var 12.483 milljónir á
móti 10.584 milljónum 1990 ogjókst
því um 18,3%. Velta annarra afurða
var 531 milljón og velta Umbúða-
og veiðarfæradeildar var tæpar 500
milljónir.
Endurmenntunarstofnun Há-
skóla íslands gengst fyrir nám-
skeiði um nytjavatn, hreint
vatn, söluvatn og vatnsvernd
dagana 4. og 5. maí næstkom-
and-
*' Freysteinn Sigurðsson, jarð-
fræðingur hjá Orkustofnun, hefur
umsjón með námskeiðinu og auk
hans verða fyrirlesarar frá Há-
skóla íslands, Orkustofnun, Holl-
ustuvernd ríkisins, Heilbrigðiseft-
irliti Suðumesja, Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins, Siglinga-
málastofnun, umhverfisráðuneyt-
inu, Útflutningsráði íslands, ís-
lensku bergvatni hf. og Vífilfelli
hf.
Námskeiðið er ætlað sveitar-
stjórnarmönnum, heilbrigðisfull-
trúum og tæknimönnum sveitarfé-
laga, skipulagsyfirvöldum og öll-
um sem huga að nýtingu vatns.
Hægt er að sækja námskeiðið allt
eða að hluta. Skráning er hjá
ig var þess vænst að unnt yrði
að safna fé í sjóðinn í Frakklandi
og á íslandi. Tilgangur sjóðsins
er að veita ísleningum styrki til
framhaldsnáms erlendis.
Stjórn minningarsjóðsins skipa
Erlendur Einarsson, Cécile, ekkja
Jacquillats, Þorsteinn Ólafsson hjá
verkefnasjóði Norðurlandaráðs,
Philippe Wauquiez fyrrverandi
bankastjóri Banque Indosuez, Ar-
mann Órn Ármannsson fram-
kvæmdastjóri Ármannsfells, en
fyrirtækið lagði fram hálfrar
milljónar kr. framlag í sjóðinn við
stofnun hans, Bergljót Jónsdóttir
framkvæmdastjóri Islensku tón-
Heildarframleiðsla frystra sjávar-
afurða á vegum íslenskra sjávaraf-
urða hf. var 52.070 tonn í fyrra en
49.060 tonn árið áður, sem er 6,1%
milli ára. Framleiðsla botnfiskafurða
jókst um 11,1% á árinu en á sama
tíma dróst afli saman um 4%. Fram-
leiðsla á öðrum afurðum minnkaði
hins vegar milli ára.
í efnahagsreikningi ÍS kemur
fram að heildareignir voru bókfærðar
á 2.720 milljónir króna en skuidir
námu 2.064 milljónum. Eigið fé fé-
lagsins í árslok 1991 er þvi 656,4
milljónir og hafði aukist um 56,4
milljónir. Eiginfjárhlutfall í árslok
1991 var 24,1% og arðsemi eiginfjár
ÍS var 9,4% 1991. Ákveðið var að
greiða 10% arð af hlutafé og tilmæli
eru um að hann fari til hlutafjáraukn-
ingar að lágmarki 60 milljónir en að,
hámarki 100 milljónir, þannig að
hlutfé ÍS verði um 700 milljónir eftir
aukninguna.
Endurmenntunarstofnunar Há-
skólans og þar eru allar upplýs-
ingar veittar.
-----» -------
Einar Hákon-
arson í Gallerí
Allrahanda
Sýning á verkum Einars Hákonar-
sonar var opnuð í Gallerí Allra-
handa á laugardag. Á sýningunni
verða um 20 olíumálverk eftir
Einar, en hún verður opin frá kl.
15 til 18 virka daga, nema föstu-
dag þegar opið er frá kl. 13 til 18.
Einar er á meðal þekktustu mynd-
listarmanna landsins og hefur hann
haldið fjölda sýninga heima og er-
lendis. Þetta er þriðja einkasýning
hans á Akureyri, en hann sýndi verk
sín fyrst í Gallerí Háhól árið 1980
og síðan í Gallerí Glugganum árið
1988.
verkamiðstöðvarinnar og Einar
Jóhannesson tónlis. armaður.
Veittur verður oinn styrkur að
upphæð 600 þúsund kr. og kemur
tónlistarfólk sem hyggur á nám í
Frakklandi að öðru jöfnu frekar
til greina, en slíkt er þó ekki skil-
yrði.
Stjórnir íslenskra sjávarafurða hf.
og dótturfyrirtækja eru óbreyttar.
Hermann Hansson er stjórnarform-
aður Islenskra sjávarafurða hf.
HEIÐURSLAUNUM Brunabótafé-
lags íslands var úthlutað í 10. sinn
á fimmtudag. Fimm einstaklingar
fengu heiðurslaun að þessu sinni
en alls hafa 78 manns hlotið laun-
in frá því byrjað var að úthluta
þeim árið 1982. 48 einstaklingar
sóttu um heiðurslaunin í ár. Upp-
hæð heiðurslaunanna í einn mán-
uð nemur mánaðarlaunum yfir-
kennara við menntaskóla.
Megintilgangur stöðugildisins er
að gefa einstaklingum kost á að
sinna sérstökum verkefnum, sem til
hags og heilla þykja horfa fyrir ís-
lenskt samfélag, hvort sem er á sviði
lista, vísinda, menningar, íþrótta eða
atvinnulífs.
Birgir Sigurðsson, rithöfundur,
hlaut heiðurelaun í 2 rnánuði til að
sinna ritstörfum, en hann vinnur nú
að gerð fjögurra þátta átakamikils
leikverks.
Haraldur Ólafsson, veðurfræðing-
ur, hlaut heiðurslaun í 2 mánuði til
að fást við verkefni er lúta að rann-
sóknum á úrkomu úr éljaskýjum sem
myndast yfir hafi og koma inn yfir
land og að athugunum á áhrifum
hafs og lands á myndun smálægða.
Hörður Áskelsson, lektor og org-
anisti, hlaut heiðurslaun í 2 mánuði
til að undirbúa komu og vígslu 72
Megintilgangur leitarinnar er að
taka frumusýni úr leghálsi kvenna
og röntgenmyndir af bijóstum
kvenna á aldrinum frá fertugu til
sjötugs. Þær konur, sem fara í skoð-
un, taka þátt í kostnaðnum með því
að greiða 1500 krónur, en ríkissjóður
greiðir kostnaðinn að öðru leyti.
Skoðað er á leitarstöðinni í Reykja-
vík og á meira en fjörutíu heilsugæsl-
ustöðvum og sjúkrahúsum utan
Reykjavíkur. Þá taka heilsugæslu-
læknar og sérfræðingar einnig þátt
í verkefninu.
Kristján segir að hækkandi for-
stigseinkenni leghálskrabbameins sé
Stjómarformaður Iceland Seafood
Corp. er Jörundur Ragnarsson og
Guðjón B. Ólafsson er stjórnarfor-
maður Iceland Seafood Ltd.
radda Klaisorgels í Hallgrímskirkju
og útgáfu á geisladiski með íslenskri
og erlendri orgeltónlist í tengslum
við vígsluna.
Jónas Ingimundarson, kennari og
píanóleikari, hlaut heiðurslaun i 2
mánuði til að sinna listtúlkun og
í aldursflokki kvenna 20 ára til 29
ára og því hafi aldur kvenna, sem
kallaðar eru í skoðun, lækkað. „Fram
til ársins 1982 mætti eingöngu helm-
ingur kvenna í skoðun og á sama
tíma urðum við varir við að fjöldi
nýrra krabbameinstilfella jókst eða
upp úr 1979 og mest á tímabiiinu
1981 til 1985. Flestar þeirra kvenna
sem þá greindust með krabbamein
voru þær sem ekki höfðu fylgt reglu-
legri skoðun. Eftir 1980 fórum við
að auka áróður fyrir mikilvægi þess
að fara í reglulega skoðun og frá
þeim tíma hefur árangurinn batnað
mjög hratt,“ segir Kristján.
Um miðjan sjöunda áratuginn var
skipulögð leit að krabbameini í leg-
hálsi hafin. Þá var leghálskrabba-
mein næst algengasta krabbamein
meðal íslenskra kvenna, en nú er það
um tíunda algengasta krabbameinið.
Byijað var að taka röntgenmyndir
af bijóstum með skipulögðum hætti
í lok ársins 1987 og fyrstu árin fjölg-
aði nýgreindum krabbameinum, en
þeim hefur fækkað aftur. Á síðasta
ári voru um 85 tilfelli af nýskráðum
bijóstakrabbameinum en þau voru
133 er mest var.
------». » »-----
Vortónleikar
í Eyjafirði
Á VEGUM Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar verður næstu daga efnt til
tónleika á starfssvæði skólans.
Fyrstu tónleikarnir verða á Melum
kl. 15.30 í dag, sunnudag, 3. maí,
og sama dag kl. 20.30 koma eldri
nemendur fram á Grund. Miðviku-
daginn 6. maí verða tónleikar á Sval-
barðseyri kl. 20.30 og laugardaginn
9. maí kl. 15 í Sólgarði. Sunnudaginn
10. maí verða tónleikar í Laugarborg
kl. 13.30 og kl. 17 sama dag á Greni-
vík. Síðustu tónleikarnir verða söng-
tónleikar sem haldnir verða í Laugar-
borg mánudaginn 11. maí kl. 20.30.
Skólaslit Tónlistarskóla Eyjafjarð-
ar verða í Grundarkirkju miðviku-
daginn 13. maí kl. 20.30.
sjálfstæðu tónleikahaldi.
Sigríður Eyþórsdóttir, kennari,
hlaut heiðurslaun í 4 mánuði í því
skyni að stýra leiksýningarhópnum
Perlunni með þroskaheftu fólki til
að þróa með því hæfileika til listsköp-
unar og sérstæðs leikmáta.
Heildarvelta íslenskra sjáv—
arafurða hf. 13.600 milljónir
Rúmlega 40 milljóna króna tap hjá
Iceland Seafood Corp. á síðasta ári
UM 80 milljóna króna hagnaður var af rekstri Islenskra sjávarafurða
hf. í fyrra en þá var 736 þúsund Bandaríkjadala, rúmlega 40 milljóna
króna, tap af rekstri dótturfyrirtækis ÍS í Bandaríkjunum, Iceland
Seafood Corp., fyrir skatta, á móti 3,6 milljóna dollara, eða rúmlega
200 milljóna króna, hagnaði 1990. Hjá dótturfyrirtæki IS í Bretlandi,
Iceland Seafood Ltd., var tæplega 50.000 sterlingspunda, ríflega 5
milljóna króna, hagnaður í fyrra en tæplega 179.000 punda, um 19
milljóna kr., hagnaður 1990. Þetta kom fram á aðalfundi íslenskra
sjávarafurða hf. á Hótel Loftleiðuin á fimmtudag.
Morgunblaðið/KGA
Frá aðalfundi íslenskra sjávarafurða hf., sem haldinn var á Hótel
Loftleiðum á fimmtudag.
Námskeið um nyljavatn
Brunabótafélag Islands:
Heiðurslaun veitt í 10. sinn
S^jórn Brunabótafélags Islands ásamt heiðurslaunahöfunum í ár.
Efri röð f.v.: Hreinn Pálsson, Friðjón Þórðarson stjórnarformaður,
Ingi R. Helgason forstjóri, Jónas Hallgrímsson, Valdimar Bragason
og Andrés Valdimarsson. Neðri röð f.v.: Steinþór Birgisson sem tók
við laununum fyrir föður sinn Birgi Sigurðsson, Haraldur Ólafsson,
Sigríður Eyþórsdóttir, Hörður Áskelsson og Jónas Ingimundarson.