Morgunblaðið - 22.05.1992, Page 1
72 SIÐUR B/C/D
115.tbl. 80. árg. FÖSTUDAGUR 22. JVIAÍ 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rætt um stofnun Evrópuhers
Reuter
Francois Mitterrand, forseti Frakklands, og Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, heilsa hér upp á fólk í frönsku
borginni La Rochelle, en í dag hefst þar fundur þeirra um 35.000 manna sameiginlegt herlið, sem á að verða
kjarninn í „Evrópuhernum" á vegum Vestur-Evrópusambandsins. Um stofnun þessa hers eru skiptar skoðanir
og hafa Bandaríkjamenn gagnrýnt hana. Óttast þeir, að hún verði til að reka fleyg í raðir NATO-ríkjanna.
Krím heyrði undir Rússland þar
til árið 1954, er ákveðið var að gefa
Úkraínu skagann til að minnast 300
ára sambands ríkjanna. Þingið, sem
ræddi þetta mál fyrir luktum dyrum,
samþykkti ályktun þar sem því er
lýst yfir að ákvörðunin frá 1954
bijóti í bága við rússnesku stjómar-
skrána og hafi því ekki lagagildi.
Rússar geri ekki landakröfur á hend-
ur Úkraínu en hins vegar beri að
leysa deiluna um Krím með samning-
um.
Viðbúið er að yfirlýsing þingsins
valdi^ enn meiri spennu milli Rússa
og Úkraínumanna, sem hafa deilt
hart undanfarna mánuði, meðal ann-
ars um framtíð sovéthersins fyrrver-
andi.
íbúar Krímar eru 2,5 milljónir og
flestir af rússneskum uppruna. Skag-
inn er mikill ferðamannastaður og
þar eru einnig höfuðstöðvar Svarta-
hafsflotans, sem Rússar og Úkraínu-
menn hafa hvorirtveggju gert tilkall
til. í flotanum eru 380 herskip.
Þingið á Krím afturkallaði í gær
sjálfstæðisyfirlýsingu, sem það sam-
þykkti í síðasta mánuði. Þingið ákvað
einnig að fresta því að taka ákvörðun
um hvort efna skyldi til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um viðskilnað við
Úkraínu.
NATO er reiðubúið að taka
að sér friðargæslu í Evrópu
Getur orðið undanfari mikiila breytinga á hlutverki bandalagsins
Brussel. Reuter.
AÐILDARRIKI Atlantshafsbanda- henni til friðargæslulið að því marki,
lagsins, NATO, hafa ákveðið að sem okkur er unnt,“ sagði Wörner á
taka að sér aukna _ friðargæslu í
Evrópu í umboði RÖSE, Ráðstefn-
unnar um öryggi og samvinnu í
Evrópu, en hún er skipuð fulltrú-
um 52 ríkja. Manfred Wörner,
framkvæmdastjóri NATO, skýrði
frá þessu í gær en ákvörðunin
getur leitt til mikilla breytinga á
hlutverki bandalagsins.
„Um þetta er samstaða innan
NATO í meginatriðum. Við erum
reiðubúin að styðja RÖSE og leggja
Stefnu EB í
landbúnaði bylt
Brussel. Reuter.
NÁÐST hefur samkomulag inn-
an Evrópubandalagsins, EB, um
róttækar breytingar á landbún-
aðarstefnunni og verulega lækk-
un niðurgreiðslna.
Niðurgreiðslukerfið var upphaf-
lega ákveðið til að bægja hungur-
vofunni frá dyrum Evrópubúa eftir
stríð en John Gummer, landbúnað-
arráðherra Bretlands, sagði, að nú
væri verið að ákveða stefnu, sem
ætti við á tímum offramleiðslu en
ekki skorts. Gummer og aðrir
sögðu, að samkomulagið myndi
greiða fyrir GATT-samningum en
þeir hafa verið í uppnámi vegna
óánægju Bandaríkjamanna með
evrópska niðurgreiðslukerfið.
blaðamannafundi í aðalstöðvum Atl-
antshafsbandalagsins í Brussel í
gær. Sagði hann, að ákvörðunin hefði
verið tekin fyrr í vikunni og yrði
formlega samþykkt á utanríkisráð-
herrafundinum í Ósló 4. júní næst-
komandi.
Með þessu er verið að ryðja braut
fyrir meiriháttar breytingum á starf-
semi og hlutverki bandalagsins en
stríðið í Júgóslavíu, Nagorno-Kara-
bak og átök og upplausn í sumum
sovétlýðveidanna fyrrverandi hafa
stuðlað að þessari stefnubreytingu.
Hollendingar með stuðningi
Bandaríkjamanna beittu sér mest
fyrir því, að hemaðarleg uppbygging
NATO og jafnvel herdeildir, yrðu
nýttar við friðargæslu og var þá
ekki átt við bein hernaðarleg af-
skipti eins og í Persaflóastríðinu.
Frakkland og nokkur önnur ríki voru
þó dálítið hikandi við að ætla banda-
laginu annað hlutverk en veija sína
eigin þegna en samkvæmt yfirlýs-
ingu Wörners hafa nú öll aðildarríki
NATO fallist á að bandalagið geti
tekið að sér friðargæslu utan landa-
mæra ríkjanna.
Haft er eftir heimildum, að
ákvörðunin muni auðvelda Banda-
ríkjastjórn að sannfæra þing og þjóð
um, að nauðsynlegt sé að hafa áfram
herlið í Evrópu en ýmis NATO-ríki,
til dæmis Bretar og Hollendingar,
hafa óttast, að tengslin við Bandarík-
in færu minnkandi. Er búist við, að
utanríkisráðherrafundurinn í Ösló
gefi út þá yfirlýsingu, að NATO
muni taka til athugunar beiðni frá
RÖSE um friðargæslu.
Mörg Austur-Evrópuríkjanna, þar
á meðal Ungveijaland, Tékkóslóvak-
ía og Pólland, vilja, að NATO taki
að sér stærra hlutverk en hingað til
en þau eru óánægð með að fá ekki
fulla aðild að bandalaginu. Þá er
einnig talið, að NATO geti með þessu
létt undir með Sameinuðu þjóðunum,
sem stynja undir kostnaðinum við
friðargæsluna í Júgóslavíu og
Kambódíu.
Reuter
Hákarl á þaki
William Heine, sem býr í Oxford
á Englandi, fagnaði sætum sigri
í gær en þá kvað breska um-
hverfismálaráðuneytið upp
þann úrskurð, að leyfílegt væri
að láta risastóran hákarl úr
trefjagleri standa á haus upp
úr húsþakinu. í úrekurði ráðu-
neytisins sagði að það væri ekki
tilgangur skipulagslaga að
steypa allt í sama smásálarlega
mótið.
Breska læknablaðið Lancet.
Tóbaksreykingar eru miklu
hættulegri en áður var talið
Lomlon. Daily Telegrapli.
MEIRA en fimmtungur allra íbúa í þróuðu ríkjunum mun deyja af
völdum reykinga. Kemur þetta fram í nýrri rannsóknaskýrslu, sem
birtist í breska læknablaðinu Lancet í dag, en þar segir, að líkurnar
á að reykingafólk deyi úr lungnakrabba eða öðrum sjúkdómum séu
miklu meiri en áður var talið.
í skýrelunni segir, að af 1,25
milljörðum manna í þróuðu ríkjun-
um muni 250 milljónir, næstum
íbúatala Bandaríkjanna, deyja af
völdum reykinga. Er sú niðuretaða
fengin með rannsóknum á einni
milljón manna í sex ár.
„Flestir vita að reykingar eru
skaðlegar en fáa hefur órað fyrir
hve stórhættulegar þær eru,“ segir
Richard Peto prófessor og einn af
skýrsluhöfundunum. „Margir
halda, að reykingar séu eitthvað,
sem geti hugsanlega leitt til dauða
á gamalsaldri, en svo er ekki.
Helmingurinn mun deyja á miðjum
aldri, tapa 23 eða 24 árum af
ævinni, og þeir, sem deyja aldrað-
ir, hefðu ella lifað átta árum leng-
ur.“ Dr. Alan Lopez, sem starfar
hjá WHO, segir, að þriðjungur og
jafnvel helmingur reykingamanna,
þeirra, sem hafa reykt árum og
áratugum saman, muni láta lífið
af völdum tóbaksins.
Krabbamein, sem reykingar
geta valdið, er meðal annare
krabbamein í lungum, munni, koki,
vélinda, nýrum og þvagblöðru, en
auk þess valda þær hjarta-, heila-
og æðasjúkdómum og sjúkdómum
í lungum og öndunarvegi. í skýrsl-
unni er sýnt fram á, að nú þegar
deyi tvær milljónir manna árlega
í þróuðu löndunum vegna reykinga
og mannfallið á þessum áratug er
áætlað 21 milljón.
Richard Peto sagði, að óttinn við
krabbamein af öðrum ástæðum
hefði dregið athygli manna frá þvi
hve tóbaksnautnin væri hættuleg.
„Það skiptir öllu, að fólk átti sig
á þessum tölum. Það, sem við
stöndum frammi fyrir nú, er barna-
leikur hjá því, sem verður ef engin
breyting verður á lífsháttum reyk-
ingamannanna. Góðu fréttirnar eru
hins vegar þær, að hætti menn að
reykja, jafnar líkaminn sig furðu
fljótt. Sá, sem hefur verið hættur
í 10 ár, hefur næstum eðlilegar líf-
slíkur," sagði Peto.
Rússland:
Þingið segir fram-
salið á Krím ólöglegt
Moskvu. Reuter.
ÞING Rússlands lýsti því yfir í gær að sú ákvörðun að færa Krím-
skaga undir Úkraínu hefði verið ólögleg. Búist er við að yfirlýsingin
veki hörð viðbrögð í Úkraínu og verki sem olía á eld í deilum nágranna-
rikjanna.