Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992
11
NINA ROOS
Nina Roos: Stretching. Olía á sinkplötu. 1992.
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
í Galleríi einn einn við Skóla-
vörðustíg stendur nú yfir sýning
á sérstæðum verkum frá hendi
ungrar finnskrar myndlistar-
konu, Ninu Roos. Hún stundaði
listnám sitt í Stokkhólmi og
Helsinki, þar sem hún útskrifað-
ist frá Listaakademíunni 1988.
Frá þeim tíma hefur hún tekið
þátt í samsýningum bæði í Finn-
landi og erlendis, og auk þess
haldið nokkrar einkasýningar,
m.a. í Ungveijalandi á síðasta
ári; þetta mun í fyrsta sinn sem
verk hennar eru sýnd hér á landi.
Það fyrsta sem sýningargestir
taka eftir er sá efniviður, sem
listakonan hefur valið sér. Hún
málar með olíulitum á plötur úr
sinki, en þessi hvíti málmur er
til margra hluta nytsamlegur,
er m.a. talsvert notaður í prent-
verki. Sem flötur málverks verk-
ar sinkið hins vegar á margbrot-
inn hátt. Það er hart og slétt,
og málningin kemur eins og þunn
himna utan á yfirborð þess; sam-
tímis skapar sérkennilegur litur-
inn nokkrar dýptir í þetta yfir-
borð, þannig að viss hrynjandi
verður tii í flötunum, sem á
ákveðinn hátt vísa til bylgju-
hreyfinga, sem erfitt er að skil-
greina nánar.
Tvöfaldanir eða spegilmynd-
anir eru áberandi hluti í þeim
verkum Ninu Roos, sem hún
sýnir hér. Að nokkru má eflaust
rekja þetta til þess að listakonan
er sjálf tvíburi (tvíburasystir
hennar, Rita Roos, skrifar inn-
ganginn í sýningarskrána) og
hefur því væntanlega einnig átt
greiðan aðgang að lífssýn, sem
lá nærri hennar eigin, en þó örlít-
ið til hliðar; tvöfeldni eða endur-
tekning hefur því verið mikil-
vægur hluti í því á hvem hátt
hún nemur umhvérfisáhrif og
birtir þau í listaverkum sínum.
Á sýningunni getur að líta
fimm verk, og þar af eru tvö
þeirra samsett úr nokkrum flöt-
um. Það er ekki aðeins að efnið
sé sérstakt, heldur er myndefnið
og úrvinnsla þess einnig þannig,
að hefðbundnar skilgreiningar
duga lítt. Listakonan notar nær
eingöngu dökkan, fjólubláan lit,
og svo dauft endurskin þess lit-
ar, þar sem gráminn ræður ríkj-
um. Þar sem dökki liturinn þekur
flötinn, t.d. í „Stretching (nr. 5),
verður til sterkt en hljóðlátt
flæði, líkt og veitt sé innsýn í
einhveija ör-veröld, þar sem
óskilgreind öfl ráða örlögum þess
sem birtist í myndunum. Þetta
óljósa ástand ber með sér seið-
andi þögn og spennu, sem verður
einn helsti styrkur allra verk-
anna, einnig þeirra, sem eru
samsett úr nokkrum flötum, þar
sem þekkjanlegum formum
bregður fyrir (eins og í „Opaque
(nr. 3)), því hula þagnarinnar
hvílir einnig yfir þessum þáttum
myndanna.
Nýlega birtist í Lesbók Mbl.
viðtal við annan ungan finnskan
myndlistarmann, þar sem dregin
var upp dökk mynd af listalífi
Finna, ríkjandi ástandi og mögu-
leikum ungs myndlistarfólks til
að hasla sér þar völl. Ljótt ef
satt er. Eftir þessari sýningu að
dæma virðist Nina Roos vera í
hópi hinna ungu og efnilegu, eins
og sagt er, og því full ástæða
til að hún fái tækifæri til að
þroska list sína frekar. Ef Finnar
sjálfir veita slíku fólki ekki þau
tækifæri sem til þarf, leitar það
eínfaldlega annað, og finnsk list-
menning verður aðeins fátækari
fyrir vikið.
Sýningu Ninu Roos í Galleríi
einn einn við Skólavörðustíginn
lýkur sunnudaginn 24. maí.
Jazzballett í 25 ár
Æft fyrir sýninguna í Borgarleikhúsinu.
Jazzballett
Ólafur Ólafsson
Nemendasýning Jazzballett-
skóla Báru. Stjórnandi: Bára
Magnúsdóttir. Borgarleikhúsið,
18. maí 1992.
Ætli þeir hafi verið margir fyrir
aldarfjórðungi sem höfðu jafn-
sterka trú á möguleikum jazzball-
ettskóla og Bára Magnúsdóttir.
Skólinn sem hún stofnaði hefur
haldið velli og 25. nemendasýningu
sína hélt skólinn í Borgarleikhúsinu
18. maí. í gegnum tiðina hefur
Bára sett margar sýningar á svið.
Margar þeirra hafa haft söguþráð,
verið nokkurs konar söguballettar.
Oft hefur Bára líka tekið dansa úr
söngleikjum og sett á svið, sleppt
hreinlega öllu nema dönsunum og
Tvö presta-
köll laus
BISKUP íslands hefur nýlega
auglýst tvö prestaköll laus til
umsóknar. Þau eru Ásar í Skafta-
fellsprófastsdæmi og Isafjörður
í Isafjarðarprófastsdæmi.
Ásaprestakalli þjónar sr. Hjörtur
Hjartarson, sem kallaður var til
þjónustu þar til eins árs á síðasta
sumri. Séra Magnús Erlingsson
þjónar ísafjarðarprestakalli en
þangað var hann kallaður til þjón-
ustu á sl. ári.
Umsóknarfrestur um bæði
prestaköllin er til 15. júní nk.
notað kóreógrafíu til að fleyta sög-
unni áfram. Oft hefur það skilað
eftirminnilegum árangri.
Nemendasýningin samanstendur
af 16 stuttum atriðum, þar sem
hinir ýmsu hópar byijenda og fram-
haldsnemenda hafa hver sitt atriði.
Yfirbragð nemendasýningar er
jafnan nokkurs konar þverskurður
af hæfni þeirra nemenda er stunda
nám við skólann og vinnu kennara
þeirra. Það hefur oft viljað loða við
jazzdansa, að þeir verði nokkuð
glennulegir og glansandi. Tónlist-
arvalið á sýningunni var oft vafa-
samt og efnistökin einhæf. Of mörg
atriðanna ganga útá töffaraskap
og „sex“. Það er undarlegt að sjá
stúlkubörn á bamaskólaaldri dansa
á sviði Borgarleikhússins við lögin
„I’m too sexy for my shirt“ eða
„Let’s talk about sex“. Auðvelt
hefði verið að taka annan pól í
hæðina og þá er ekkert verið að
benda á dansandi blóm og flugur.
Það er til eitthvað þar á milli. Enda
voru bestu atriðin og skemmtileg-
ustu af öðrum toga. Þá er átt við
fallegt og gott atriði eins og „Nótt
í upprisu" og skemmtilegt atriði í
söngleikjastíl, eins og „Show-time
folks!“. Lokaatriðið, „Sing-Sing“,
var gott, skemmtilegt og vel dans-
að. Og það mátti og átti að vera
dálítið „kynþokkafullt", enda dans-
ararnir á réttum aldri fyrir slíkan
dans.
Jazzdans getur haft mikið
skemmtanalegt gildi. Skemmtun
var líka í fyrirrúmi í Borgarleikhús-
inu. Kennarar skólans skulu hafa
þakkir fyrir sýninguna og Bára
Magnúsdóttir fyrir þrautseigju í
gegnum tíðina. Hafi fólk trú á ein-
hveiju, ber að fylgja því eftir. Það
hefur Bára gert og mun ugglaust
ekkert gefa eftir í þeim efnum.
Öðruvísi vinnst aldrei neitt.
Til sölu garðyrkjustöð
í Hveragerði
í Hveragerði er til sölu garðyrkjustöð við Gróðurmörk,
ca 2.236 fm að stærð, sem samanstendur af þremur
gróðurhúsum ásamt tengibyggingu. Stöðin er til af-
hendingar nú þegar.
Nánari upplýsingar eru veittar á Lögmannsstofunni,
Síðumúla 9, Reykjavik, sími 813155.
Fiskbúð
Höfum fengið í einkasölu fiskbúð í austurbæ Reykjavík-
ur. Um er að ræða fallega innréttaða búð með góðum
tækjum og áhöldum. Verð kr. 1,2 millj. Ákveðin sala.
Afhending strax.
VIÐSKIPTAÞJÓNUSTAN
Ráflgjöf- Bókhald ■ Skattaaðstoð ■ Kaup of; sala fyrirtœkja
Síðumúli 31 ■ I0H Reykjavík ■ Sími 68 92 99 ■ Fax 68 1945
< Kristinn B. Ragnarsson, viðskiptafrœðini>ur
Metsölublað á hvetjum degi!
Ný símanúmer hjá Glitni hf.
Aðalnúmer Glitnis hf. 60 88 00
Beinar línur:
Innheimta 60 88 30
Markaðsdeild, ráðgjafar 60 88 30
Yeltufj ármögnim 60 88 50
Myndsendir 60 88 10
Glitnirhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA