Morgunblaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992
Bandaríkin:
Reuter
Hreingerningar í Moldovu
Bardagar hafa geisað að undanförnu á milli Moldova og aðskilnaðar-
sinna í Dnestr-héraði í Moldovu. Mikið eignatjón hefur orðið vegna
átakanna eins og sjá má á myndinni, sem var tekin af konu er hún
reyndi að hreinsa húsið sitt eftir að það hafði orðið fyrir sprengju.
Bush reynir að bera
blak af Dan Quayle
Ummæli varaforsetans um vinsælan sjónvarpsþátt valda hneykslan
Los Angeles. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti reyndi í gær að bera i bæti-
fláka fyrir varaforsetann, Dan
Quayle, sem valdið hefur
hneykslan með því að setja út á
vinsælan sjónvarpsþátt og setja
ofan í við kvikmyndaiðnaðinn í
Hollywood.
Quayle sagði að kvikmyndaiðn-
aðurinn væri ekki í takt við tímann
og gæfi ekki rétta mynd af banda-
rísku þjóðlífi. Sagðist hann ekki
gefa mikið fyrir siðferðisboðskap
Murphy Brown-sjónvarpsþáttanna
þar sem aðalpersónan eignast
lausaleiksbarn.
„Þeim í Hollywood finnst það
sætt að sveipa hið ólögmæta töfra-
ijóma. Þeir eru ekki í takt við raun-
veruleikann, dvelja í öðrum heimi.
Þeir ættu að vera með mér hér úti
á götunum að ræða við börnin um
framtíðina, um nauðsyn menntun-
ar, tala við foreldrana. Þá kæmust
þeir í kynni við raunveruleikann,"
sagði Quayle. Hann heimsótti í gær
m
bamaskóla í
hverfum sem
urðu hvað verst
úti í óeirðunum í
Los Angeles um
síðustu mánaða-
mót og ræddi þar
við nemendur og
foreldra þeirra.
Ummæli vara- Quayle
forsetans ollu
hneykslan og þau komu Bush for-
seta í opna skjöldu. Ekki tók betra
við þegar hann sagðist ósammála
Marlin Fitzwater, talsmanni Bush,
sem sendi út fréttatilkynningu til
þess að bjarga andliti forsetans. Þar
sagði að 'aðalpersóna Murphy
Brown-þáttanna sýndi gott for-
dæmi með því að ákveða að eiga
barnið. Þættirnir endurspegluðu því
andúð á fóstureyðingum sem væri
fagnaðarefni.
Varaforsetinn hafði því komið sér
og forsetanum í klípu og kom Bush
honum að nokkru leyti til vamar.
Spenna eykst í Nakhítsjevan:
Hersveitír í viðbragðsstöðu
við tyrknesku landamærin
Bakú. Reuter.
LANDAMÆRASVEITIR Sam-
veldis sjálfstæðra ríkja hafa ver-
ið settar í viðbragðsstöðu nærri
tyrknesku landamærunum eftir
næturbardaga azerskra og arm-
enskra hersveita i nágrenni Nak-
hítsjevans í Azerbajdzhan. Tyrk-
neskar hersveitir eru einnig í
viðbragðsstöðu í gi'ennd við land-
amærin og hefur Turgut Ozal
Tyrklandsforseti óbeint hvatt til
þess að þær fari inn í héraðið til
varnar azersku bræðraþjóðinni
sem hann segir sæta yfirgangi
af hálfu Armena.
Armenskar sveitir héldu uppi
árásum næturlangt á stöðvar Azera
í Nakhítsjevan af fjöllum umhverfis
héraðið sem teygir sig inn á milli
Armeníu og Tyrklands. Stóðu bar-
dagar fram í morgunsárið í gær og
hófust síðan aftur síðdegis eftir
nokkurra klukkustunda hlé. Sveitir
Azera í borginni Sadarek, sem er
Bangkok:
Ekkert lát á mótmælum
Bangkok. Reuter.
ÞÚSUNDIR stjórnarandstæð-
inga settu á svið útför í Bangkok
í Tælandi i gær til þess að minn-
ast þeirra sem biðu bana er
stjórnarherinn reyndi að brjóta
á bak aftur mótmæli gegn Suc-
hinda Kraprayoon forsætisráð-
herra.
Af opinberri hálfu hefur verið
sagt að 40 manns hefðu beðið
bana í skothríð stjómarhersins á
mótmælendur fyrr í vikunni en
blöð i Bangkok segja að miklu fleiri
hefðu fallið.
Mótmælendur báru svarta fána
og lögðu blómsveiga að minnis-
varða um lýðræðið í miðborg Bang-
kok í gær. Forsprakkar þeirra
sögðust ætla að halda mótmælað-
gerðum áfram og ekki linna látum
fyrr en Suchinda hershöfðingi
segði af sér embætti forsætisráð-
herra.
1 fyrrakvöld komu Suchinda og
Chamiong Srimuang leiðtogi
stjórnarandstöðunnar fram í sjón-
varpi ásamt Bhumibol Adulyadej
konungi og hvöttu landsmenn til
að sýna stillingu. Bhumibol skoraði
á Suchinda og Chamling að finna
málamiðlunarlausn er leitt gæti til
friðar en andstæðingar forsætis-
ráðherrans sögðust í gær ekki
sætta sig við neitt minna en hann
færi frá.
1
I
Hann sagðist taka undir það með
Quayle að hrun kjamafjölskyldunn-
ar hefði alvarlegar og slæmar af-
leiðingar fyrir bandarískt þjóðfélag.
Fjöjskyldan væri máttarstólpi sam-
félagsins og því væm þverrandi fjöl-
skyldubönd alvarlegt áhyggjuefni.
Með minnkandi stöðugleika, dvín-
andi ástúð foreldra og skertri
ábyrgðartilfinningu feðra dvínuðu
vonir barna um öragga framtíð.
Bush vildi þó augsýnilega ekki gera
lítið úr Murphy Brown-þáttunum
er hann sagðist viðurkenna að það
væri ekki alltaf sjálfgefið að foreldr-
ar stofnuðu heimili saman.
nokkrum kílómetram frá tyrknesku
landamærunum, svöruðu skothríð-
inni. Þær eru fámennar og aðeins
búnar léttum vopnum en armensku
sveitirnar hafa yfir stórskotavopn-
um að ráða. í gærmorgun var talið
að helmingur allra mannvirkja í
Sadarek, sem er 14.000 manna
bær, hefði eyðilagst í átökunum
sem staðið hafa yfir linnulítið frá
því á mánudag.
Armenar kenna Azerum um
átökin og halda því fram að engar
armenskar sveitir séu í Nakhítsjev-
an. Levon Ter-Petrosjan Armeníu-
forseti sakaði Tyrki á miðvikudag
um að kynda undir átök í héraðinu.
Tyrkir telja sig hafa skyldum að
gegna gagnvart bræðraþjóð sinni í
Azerbajdzhan og hefur Turgut Ozal
forseti Tyrklands sagt að senda
ætti tyrkneskar hersveitir þangað
strax. Næstkomandi mánudag fer
Suleyman Demirel, forsætisráð-
herra Tyrklands, í tveggja daga
opinbera heimsókn til Moskvu og
ræðir meðal annars við Borís Jelts-
ín Rússlandsforseta um deilur Arm-
ena og Azera. Hermt er að hann
hyggist reyna fá Rússa til að taka
afstöðu gegn Armenum í deilunum
um héraðið Nagorno-Karbakh í
Azerbajdzhan, sem þeir hafa her-
tekið, og Nakhítsjevan.
Serbar fall-
ast á að
leysa gísla
úr haldi
Belgrað. Reuter.
SERBNESKIR
skæruliðar
hafa fallist á að frelsa yfir
6.000 bosníska flóttamenn
sem þeir hafa haldið í gísl-
ingu, aðallega konur og börn,
gegn því að fjórum herdeild-
um júgóslavneska hersins
verði tryggð undankoma frá
Sarajevo, höfuðborg Bosníu.
Þeir kröfðust þess einnig að
fá afhent lík ættingja sinna
og vina sem hafa fallið í
borginni í átökum múslima
og serba. Júgóslavneski her-
inn stöðvaði brottflutning
sinn frá Króatíu vegna árása
Króata.
Serbneskir skæruliðar höfðu
verið sakaðir um að nýta neyð
hjálparlausra borgara sér til
framdráttar í stríðinu.
Útvarpið í Sarajevo sagði að
dregið hefði úr bardögum í
borginni en þó skutu Serbar
eldflaug á Zetra-íþróttaleik-
vanginn þar sem vetrarólymp-
íuleikarnir fóra fram 1984.
Útvarpið í Belgrad greindi
frá því í gær að brottflutningur
júgóslavneska hersins frá
austurhluta Króatíu, sem samið
hafði verið um með milligöngu
Sameinuðu þjóðanna, hefði ver-
ið stöðvaður vegna árása króa-
tísks herliðs. í yfirlýsingu frá
júgóslavneska hernum sagði að
þess væri vænst að Sameinuðu
þjóðirnar gripu til viðeigandi
ráðstafana svo hægt yrði að
flytja hermennina á brott, en
austurhluti Króatíu er eitt af
þremur svæðum í fyrrum sam-
bandsríkjum Júgóslavíu þar
sem friðargæslulið SÞ er stað-
sett.
Sviss:
Meirihluti með EB-aðild
Reuter
Orþreyttur tælenskur stjórnarandstæðingur hvílir sig við Ramkam-
haeng-háskóla í Bangkok, þar sem efnt hefur verið til mótmæla
undanfarna tvo daga.
Zurich. Reuter.
UM 61% Svisslendinga eru hlynnt
aðild að Evrópubandalaginu
(EB), samkvæmt skoðanakönnun
sem gerð var daginn eftir að
svissneska stjórnin ákvað að
sækja um inngöngu í bandalagið.
Samþykkja verður inngöngu
Sviss í Evrópubandaiagið í þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Aðild landsins að
Evrópska efnahagssvæðinu verður
borin undir þjóðaratkvæði í desem-
ber. 68 af hundraði sögðust myndu
greiða atkvæði með Evrópska efna-
hagssvæðinu ef atkvæðagreiðslan
færi fram nú.
Samkvæmt skoðanakönnuninni
eru aðeins 27 af hundraði Svisslend-
inga andvígir aðild að Evrópuband-
alaginu og 12% óákveðnir. Fyrri
kannanir bentu til þess að andstæð-
ingar og fylgismenn aðildar væru
um það bil jafn margir, en um 20
af hundraði óákveðnir.