Morgunblaðið - 22.05.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992
Samþykkt
að byggja við
Hæðargarð
LÓÐARAFMÖRKUM Hæðar-
garðs 29 og byggingar íbúða fyr-
ir aldraða voru samþykktar á
fundi borgarstjórnar í gær með
9 atkvæðum sjálfstæðismanna
gegn 6 atkvæðum minnihluta-
flokkanna, auk Katrínar Fjeld-
sted, eftir harðar deilur í nær
fjórar klukkustundir.
Fulltrúar minnihlutaflokkanna
og Katrín Fjeldsted töluðu um að
með þessu væri verið að hunsa ósk-
ir íbúa í hverfinu, með því að
þrengja að útivistar- og leiksvæði.
Auk þess væri ljóst, að þegar væri
allt of mikið framboð af byggingum
fyrir aldraða. Þá höfðu fulltrúar
minnihlutans orð á, að verið væri
að hygla örfáum einstaklingum,
sem þarna ættu hagsmuna að gæta.
Sjálfstæðismenn vísuðu því á bug
sem órökstuddum fullyrðingum.
Þeir sögðu að svæðið hefði alla tíð
verið yfirráðasvæði knattspymufé-
lagsins Víkings, sem hefði getað
ráðið, hvernig það var nýtt. Miklu
frekar yrði grundvöllur fyrir að
græða svæðið upp eftir að Víkingur
hefði flutt starfsemi sína. Þá væri
það ekki rétt, að markaður fyrir
íbúðir aldraðra væri mettaður, þvert
á móti væru biðlistar eftir slíku hjá
félagasamtökum.
♦ ♦ ♦
Olía í jarð-
vegfi bakgarðs
við Laugaveg
OLÍA fannst í jarðvegi við húsið
við Laugaveg 140 í gær. Ekki
var vitað hvers vegna jarðvegur-
inn var svo olíusmitaður.
Húseigendur voru að vinna í bak-
garði hússins, þegar þeir fundu olíu-
smit og fnyk úr jörðu. Lögreglan
og slökkvilið komu á staðinn, en
upptök mengunarinnar voru ókunn
í gær.
-------------
^Morgunblaðið/RAX
Gunnar B. Kvaran forstöðumaður Kjarvalsstaða ásamt Kristínu Guðnadóttur og Ásmundi Helga-
syni starfsmönnum Kjarvalsstaða við nokkur verkanna eftir Joan Miró sem verða á sýningu sem
verður opnuð 31. maí.
Kjarvalsstaðir:
Verk Miró metin á 1,8 milljarða
Á KJARVALSSTÖÐUM var í
gær Iokið við að taka upp úr
kössum 50 höggmyndir úr
bronsi og 20 málverk eftir Joan
Miró, en sýning á verkunum
verður opnuð 31. mai og er
framlag Kjarvalsstaða til Lista-
hátíðar í Reykjavík. Að sögn
Gunnars B. Kvarans, forstöðu-
manns Kjarvalsstaða, er trygg-
ingarverðmæti verkanna 1,8
milljarðar króna, og verður
ströng öryggisgæsla viðhöfð á
Kjarvalsstöðum á meðan sýn-
ingin stendur.
Joan Miró er einn þekktasti
myndlistarmaður 20. aldarinnar,
en list hans þykir djörf, hu'g-
myndarík, leikandi létt og að-
gengileg. Hann lést árið 1982 og
eru verkin sem sýnd verða á
Kjarvalsstöðum frá seinni árum
hans, eða eftir 1960. Verkin eru
fengin frá Listasafninu Maeght í
Suður-Frakklandi, en að sögn
Gunnars var valið úr nokkur
hundruð verkum þar eftir Miró á
sýninguna.
Klemmdist
milli bíls
og veggjar
STARFSMAÐUR á bílaverk-
stæði við Bíldshöfða slasaðist
síðdegis í gær, þegar hann
klemmdist á milli bíls og veggj-
ar. Ekki var vitað hver meiðsli
hans voru, en samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu var hann ekki
alvarlega slasaður.
Slysið var tilkynnt til lögreglu
kl. 16.32. Maðurinn var að bogra
við vélarhlíf bíls, sem var uppi á
lyftu. Hann bað ökumanninn að
gangsetja bílinn, sem reyndist vera
í gír. Bíllinn kastaðist áfram og
maðurinn klemmdist á milli hans
og veggjar. Hann var fluttur á
slysadeild með sjúkrabíl, en ekki
talinn alvaríéga slasaður.
♦ ♦ ♦
Bifreið valt
í Óshlíðinni
BÍLL valt á veginum um Óshlíð
kl. 19.30 í gærkvöldi. Kona sem
ók bílnum slapp ómeidd, að sögn
lögreglunnar á ísafirði.
Bíllinn var á leiðinni frá ísafirði
til Bolungarvikur þegar ökumaður-
inn missti stjórn á honum í lausa-
möl á vegarkafla þar sem nýlega
hafði verið gert við klæðningu.
*
Samþykkt stjórnar LIN:
Verðlaun fyr-
ir myndband
Fjölmiðlabikar Ferðamálaráðs
var afhentur í gær. Hann hlaut
að þessu sinni fyrirtækið
Skyggna/mynd verk.
Fyrirtækið fær bikarinn fyrir
myndbandið „Iceland Today“ en
tekið var með í reikninginn, að fyrir-
tækið hefur um árabil framleitt
kynningarefni um Island.
Sjá nánar á Bl.
800 millj. kr. fjárlagaheimild nýtt 1
haust til að milda áhrif nýrra laga
Meirihluti stjórnar gerir tillögu um hertar kröfur um námsframvindu
MEIRIHLUTI sljórnar Lánasjóðs
íslenskra námsmanna lagði fram
tillögur að breyttum úthlutunar-
reglum á stjórnarfundi í gær og
er þeim ætlað að draga úr fjár-
þörf sjóðsins um 500 milljónir
kr. á næsta skólaári. Er þá miðað
við að heildarfjárþörf sjóðsins
verði óbreytt frá þessu ári eða
um 3.400 millj. kr. Fela þær m.a.
í sér að kröfur um námsfram-
vindu eru hertar, sem á að leiða
til 300 millj. kr. minni útgjalda,
lán til bókakaupa eru lækkuð um
helming eða um 100 millj., ferða-
lán eru tekin upp í stað ferða-
styrkja, barnastuðlar lækkaðir
um 25% eða um 100 miHj. og
dregið er úr áhrifum tekna
námsmanna á upphæð námslána.
Þá er gert ráð fyrir að allir náms-
menn sem rétt eiga á láni fái
sérstakt vaxtaálag á Ián sín
vegna skammtímalána í bönkum
sem áætlað er að leiði til 50 millj.
kr. hækkunar útlána. Þá var
einnig samþykkt að nýta að ein-
hveiju leyti 800 millj. kr. heimild
fjárlaga á þessu ári til að milda
í haust áhrif nýrra reglna um
Aðalfundur Vinnuveitendasambands Islands:
Magnús Gunnarsson er
einn í kjöri til formanns
MAGNÚS Gunnarsson, formaður Samstarfsnefndar atvinnurekenda
í sjávarútvegi, verður formaður Vinnuveitendasambands Islands sam-
kvæmt tillögu uppstillingarnefndar. Aðrar tillögur bárust ekki áður
en framboðsfrestur rann út í gær. Magnús tekur við formannsembætt-
inu af Einari Oddi Kristjánssyni, sem hefur gegnt því síðustu þijú
ár og gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Aðalfundur VSÍ verður
haldinn í dag, föstudag, og verður þar auk formanns kjörin 20 manna
framkvæmdasljórn.
Fundurinn hefst með ræðu Ein-
ars Odds Kristjánssonar, fráfarandi
formanns VSI, og síðan ávarpar
Friðrik Sophusson, fjármálaráð-
herra, fundinn. Þá verða framsögur
og umræður um þijú efni. Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSÍ, flytur framsögu um lífeyris-
kerfi á vegamótum, 6 sjóðir eða 66.
Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri
Nýsis hf., flytur erindi um hvað
sparist við sameiningu sveitarfé-
laga og Gunnar Svavarsson, for-
maður Félags íslenskra iðnrekenda,
flytur erindi sem nefnist Hagræðing
í hagsmunagæsíu? Að loknum er-
indunum eru fyrirspurnir og um-
ræður. Fundinum lýkur með skýrslu
framkvæmdastjóra fyrir liðið
starfsár, öðrum aðalfundarstörfum
og ályktun hans.
Gunnar Birgisson, varaformaður
Vinnuveitendasambandsins, hafði
lýst því yfir í fjölmiðlum að hann
gæfi kost á sér í formannsembætt-
ið en framboð frá honum kom ekki
fram áður en framboðsfrestur rann
út í gær. Gunnar sagði í samtali
við Morgunblaðið að þegar menn
hefðu staðið frammi fyrir því að
kjósa þyrfti á milli tveggja fram-
bjóðenda í formannssætið, og búið
hafi verið að leita sáttaleiða sem
ekki gengu, þá hefði hann ákveðið
að draga framboð sitt til baka og
styðja Magnús í stað þess að fara
út í kosningar, sem enginn hefði
getað séð afleiðingarnar af fyrir.
Aðspurður sagðist hann ekki gefa
kost á sér í sæti varaformanns.
eftirágreiðslur lána úr sjóðnum.
Á fréttamannafundi sem meiri-
hluti sjóðsstjómarinnar boðaði til í
gær kom fram að stjórn Lánasjóðs-
ins hefði samþykkt að setja á fót
vinnunefnd til að hefja viðræður við
banka og sparisjóði um þjónustu
við námsmenn í kjölfar samþykktar
nýrra laga um útborgun lána frá
LÍN og kanna hvemig nýta megi
heimildir á fjárlögum í ár til að
auðvelda námsmönnum aðlögun að
nýjum útborgunarreglum. Að sögn
Gunnars I. Birgissonar, formanns
stjómar LÍN, er ófrágengið með
hvaða hætti það verður gert. Verð-
ur nefndin skipuð einum fulltrúa frá
samtökum námsmanna og einum
fulltrúa úr hópi meirihluta stjórnar-
innar.
Fulltrúar meirihluta stjórnar LÍN
vildu ekki greina frá tillögunum í
smáatriðum á fundinum en þær
verða ræddar í stjórn sjóðsins á
næstu dögum og þurfa að liggja
fyrir frágengnar í næstu viku. Er
með þeim ætlað að draga úr heild-
arfjárþörf sjóðsins án þess að
grunnframfærsla verði skert ef um
eðlilega námsframvindu er að ræða.
Að sögn Gunnars var sá kostur
valinn að grípa til betri nýtingar
fjármagns, fyrst og fremst með
kröfum um eðlilega námsframvindu
og auka festu í framkvæmd lánveit-
inga og draga úr aukalánum í stað
þess að skerða framfærslulán. Með
tillögunum er krafist 100% náms-
framvindu til að veitt verði fullt
námslán og skerðingarhlutfall
vegna tekna sem námsmenn afla
umfram svonefnt frítekjumark
verður lækkað úr 50% í 40%. Þak
er sett á veitingu almennra lána
vegna skólagjalda erlendis. Þá verð-
ur námsmönnum gert kleift að flýta
námslokum með rúmum heimildum
til sumarlána, sem greiðist þegar
niðurstöður lokaprófa liggja fyrir.
Þá er gerð tillaga um að ef náms-
menn afla sér skammtímalána í
bönkum gefi þeir fyrst upplýsingar
um hvaða nám þeir stunda, hversu
langt þeir eru komnir, hvenær þeir
hyggist ljúka námi og hvaða tekjur
þeir áætla sér á árinu. LÍN gerir
síðan náms- og lánsfjáráætlun á
grundvelli þessara upplýsinga sem
námsmenn leggja fram í viðkom-
andi banka. Gert er ráð fyrir að
bankarnir setji eigin reglur um
ábyrgðir sem stjórnarmeirihlutinn
telur að verði með líku sniði og
gilt hefur að því er varðar nema á
fyrsta námsári. Þegar námsmaður
hefur sýnt fram á námsárangur og
uppfyllt önnur skilyrði sjóðsins
leggi LÍN andvirði Iánsins inn á
reikning námsmanns í þeim banka
sem veitir námsmannafyrirgreiðsl-
■♦ ♦ ♦
Stálu grófu
myndbandi
ÞJÓFAR höfðu myndband á
brott með sér úr myndbanda-
leigu í austurborginni á þriðju-
dagskvöld. Á myndbandinu var
kvikmynd, sem að mestu fjallaði
um kynlíf.
Starfsfólk myndbandaleigunnar
tilkynnti um þjófnaðinn um kl. 23
á þriðjudagskvöld. Það taldi sig
vita, hverjir hefðu tekið myndband-
ið grófa og gáfu lögreglu lýsingu á
bifreið hinna meintu þjófa. Lögregl- -
an leitaði bifreiðarinnar, en fann
ekki og var helst álitið að þjófarnir
hefðu verið snöggir heim að mynd-
bandstækinu sínu.