Morgunblaðið - 22.05.1992, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992
Börn og tóbaksreykur
eftir Lilju
Eyþórsdóttur
Á undanförnum árum hefur þekk-
ing fólks á skaðsemi reykinga stór-
aukist. Auknar rannsóknir og ný
tækni koma sífellt fram með ítar-
legri upplýsingar sem skýra frá
skaðleguum efnum í tóbaksteyk. í
andrúmsloftinu eru eiturefni tób-
aksreyks sem fólk andar að sér,
meira eða minna gegn sínum vilja.
Nú vita flestir eða allir um þessi
efni, sem eru m.a. nikótín, kolsýr-
ingur, ammoníak, blásýra og form-
aldehýð auk tóbakstjörunnar. Áhrif
þessara efna á heilsufar fólks þekkja
eflaust allflestir í dag og er óþarfí
að fara nákvæmlega út í það í þess-
ari grein.
í lögum um tóbaksvamir frá 1984
eru ákvæði til að vemda fólk gegn
„Það er á engan hátt
hægt að réttlæta að
börn séu í tóbaksreyk
og því er skylda allra
að hindra slíkt og vekja
athygli þeirra sem mis-
bjóða barni á rétti þess
til heilbrigðs lífs.“
tóbaksreyk á vissum stöðum. Til
dæmis er bannað að reykja þar sem
almenningur sækir afgreiðslu og
skylt er að hafa reyklausa fundi
óski einn eða fleiri fundarmenn þess.
Með þessum lögum geta fullorðnir
sótt rétt sinn tii reyklausra svæða.
Börn eiga hins vegar erfítt uppdrátt-
ar á þessu sviði. Þó svo að bannað
sé að reyka á stöðum þar sem börn
em til uppeldis, s.s. í skólastofum,
leikskólum og íþróttamiðstöðvum,
sjáum við alltof mörg dæmi þess
að börn séu beinlínis þvinguð til
þess að vera í tóbaksreyk. þau em
alls ekki spurð og ekki er tekið
mark á athugasemdun þeirra um
óþægindi sem þau verða fyrir af
tóbaksreyknum. Má þar t.d. nefna
börn í bíl þar sem reykt er, böm í
heimahúsum þar sem reykt er, börn
á kaffihúsum og matsölustöðum þar
sem reykt er, barn í móðurkviði hjá
reykjandi móður, bam á bijósti hjá
reykjandi móður og svo mætti lengi
telja. Fullorðnir reykja yfir börnum
næstum því hvar sem er og hvenær
sem er nema kannski helst í svefn-
herbergjum þeirra. Börnum líður illa
í tóbaksreyk, þau svíður í augun,
þeim verður óglatt, og einnig má
Hamborgari með brauði
Komi flatbrauð 300 gr.
Vínber blá ^S*
Kjörís heimitíspaktó
Sorppokaf/ stóríj^iÖ,?^
Sjampó 0.5I* 2 JgS
3 KAUPSTADUR
MIÐVANGI HAFNARFIRÐI § VESTUR í BÆ (JL- HÚSINU)
I MJÓDD
:_____________________________________________________________________3______________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________J
Lilja Eyþórsdóttir
rekja margvísleg veikindi, sérstak-
lega yngri bama, til óbeinna reyk-
inga s.s. síendurteknar eymabólgur
og öndunarfærasjúkdóma (kvef,
asma, lungnabólgu).
Ábyrgð mæðra
Ut er kominn bæklingur um börn
og óbeinar reykingar, sem Tóbaks-
vamanefnd og Krabbameinsfélag
Reykjavíkur gefa út. Megintilgang-
ur með útgáfu bæklingsins er að
vekja fólk til alvarlegrar umhugs-
unar um skaðleg áhrif tóbaksreyks
á börn, bæði fyrir og eftir fæðingu
þeirra. Þessi bæklingur hefur fengið
þá gagnrýni að hann kalli eingöngu
konur til ábyrgðar og ráðist sé á
kvenímyndina í myndmáli. Meðal
þess sem fundið hefur verið að er
t.d. mynd af bijósti með sígarettu
í stað geirvörtu. Staðreyndin er ein-
mitt sú að kona sem reykir og gef-
ur bami bijóst er að gefa því níkót-
ín. Er hægt að mæla með því? Þurr-
mjólk með nikótíni væri auðvitað
ekki gefín börnum. Einnig má nefna
mynd af „afkáralegri ófrískri konu
með 4 ára krakka í maganum“ (kon-
an er einnig reykjandi). Hvað er
afkáralegra en reykjandi ófrísk
kona? Snuð með logandi sígarettu
er ein af þessum myndum. Eftir
fæðingu hafa sum börn verið með
fráhvarfseinkenni, þjáðst af ni-
kótínskorti og verið mjög óróleg þar
til þau fá að anda að sér tóbaks-
reyk. Á baksíðunni er mynd af barni
með gasgrímu til verndar gegn eit-
urefnum. Tóbaksreykur er þrunginh
eiturefnum.
Það er eingöngu á ábyrgð hinna
fullorðnu að vernda börn gegn tó-
baksreyk og ég tel að mæður hljóti
að fara þar fremstar í flokki. Stað-
reyndin er sú að í þjóðfélagi okkar
bera konur hitann og þungann af
uppeldi og umönnun barnanna.
Mæður fara oftast með börnin sín
til læknis þegar þau eru veik, mæð-
ur eru oftast heima þegar börnin
eru veik, mæður aðlaga oftast sína
vinnu að þörfum barnanna, mæður
gefa bijóst, mæður ganga með barn.
Auðvitað eru til feður sem axla
þessa ábyrgð, en staðreyndin er sú
að þeir eru mjög fáir og vonandi fer
þeim fjölgandi.
Skiptar skoðanir eru um það
hvemig koma skuli upplýsingum til
þeirra er málin varða, þ.e. áróðri í
texta og myndmáli, hörðum eða
mjúkum. Þegar velferð barna er
annars vegar, held ég að leyfilegt
sé að taka djúpt í árinni í upplýs-
ingamiðluninni. Skrifaðar hafa verið
greinar og gefnir úr bæklingar um
böm og skaðsemi reykinga. Þar má
t.d. nefna bæklinginn „Foreldrar og
reykingar". Myndmálið í þeim bækl-
ingi er teikningar eftir börn og beint
ákall til foreldra um að taka tillit
til þeirra. Gera foreldrar það?
Bamið segir nei
Foreldrar eru sterkar fýrirmyndir
í uppeldi bama sinna og það er því
þeirra ábyrgð að vernda börn sín
gegn ofbeldi í hvaða mynd sem er.
það gera þeir með því að segja nei
við öllu þvS sem skaðar barnið. Einn-
ig er mikilvægt að börnum sé kennt
að segja nei við óþægindum og að
þau fái að reyna að tekið sé mark
á þeim. Barn sem segir „ekki reykja
nálægt mér, mér fínnst það óþægi-
legt“, og upplifír að það sé tekið
mark á því (fær stuðning foreldra
sinna), er betur undir lífíð búið en
barn sem getur ekki sagt „ekki
gera þetta, mér fínnst það vont“ og
þarf að búa við þá þvingun að vera
í óþægilegum aðstæðum.
Það er á engan hátt hægt að
réttlæta að börn séu í tóbaksreyk
og því er skylda allra að hindra slíkt
og vekja athygli þeirra sem mis-
bjóða barni á rétti þess til heilbrigðs
lífs.
Tökum höndum saman, kennum
börnum að hafna öllum eiturefnum.
Byijum í okkar nánasta umhverfi.
Segjum nei við tóbaksreyk.
Höfundur er fóstra og á sæti í
Tóbaksvarnanefnd.
Reiðhj ólaskoðun lög-
reglunnar við skólana
Á VEGUM lögreglunnar í Reykjavík er hjólaskoðun við grunn-
skóla borgarinnar dagana 29. maí til 4. júní. Tímasetning hefur
verið auglýst í öllum skólum. Lögreglan telur mjög mikilvægt að
ná til flestra hjólreiðabarna, segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Nú fer í hönd sá tími sem slys á
fólki á reiðhjólum eru hvað algeng-
ust. Lögreglan leggur áherslu á að
sem flest böm mæti með hjól sín
til skoðunar og að foreldrar hafi
eftirlit með yngstu börnunum þegar
þau byija að hjóla og veiti þeim
tilsögn í umferðinni.
Einnig vill lögreglan minna á að
börnum yngri en sjö ára er óheim-
ilt að vera á reiðhjólum á almanna-
færi. -Börn yngri en tíu ára ættu
ekki að hjóla á akbrautum. Heimilt
er að hjóla á gangbrautum og gang-
stígum þar sem það er hægt án
hættu eða óþæginda fyrir gangandi
vegfarendur.
Reiðhjólaskoðun lögreglunnar
1992:
Föstudaginn 29. maí:
Klébergsskóli kl. 11.00-12.00
Varmárskóli kl. 13.30-15.00
Mýrarhúsaskóli kl. 10.00-11.30
Mánudaginn 1. júní:
Hlíðarskóli kl. 10.00-11.30
Austurbæjarskóli kl. 10.00-11.30
Grandaskóli kl. 10.00-11.30
Melaskóli kl. 13.30-15.00
Vesturbæjarskóli kl. 13.30-15.00
Hvassaleitisskóli kl. 13.00-15.00
Þriðjudaginn 2. júní:
Fossvogsskóli
Laugarnesskóli
Langholtsskóli
Vogaskóu
kl. 10.00-11.30
kl. 10.00-11.30
kl. 10.00-11.30
kl. 13.30-15.00
Breiðagerðisskóli kl. 13.30-15.00
Álftamýrarskóli kl. 13.30-15.00
Miðvikudaginn 3. júní:
Breiðholtsskóli kl. 10.00-11.30
Fellaskóli kl. 10.00-11.30
Ölduselsskóli kl. 10.00-11.30
Hólabrekkuskóli kl. 13.30-15.00
Seljaskóli kl. 13.30-15.00
Selásskóli kl. 13.30-15.00
Fimmtudaginn 4. júní:
Foldaskóli kl. 10.00-11.30
Árbæjarskóli kl. 10.00-11.30
Ártúnsskóli kl. 10.00-11.30
Æfíngaskóli KHÍ kl. 13.30-15.00
Landakotsskóli kl. 13.30-15.00
------» ♦ ♦-----
Sirkus til
Keflavíkur
JÖRUNDUR Guðmundsson hef-
ur óskað eftir leyfi bæjarráðs
Keflavíkur, til að setja upp sirkus
í bænum í sumar.
Er óskað eftir heimild til að setja
upp sirkus á malarvellinum við
Hringbraut dagan 16. til 19. júlí
í sumar. Bæjarráð tekur jákvætt í
umsóknina og felur knattspyrnu-
ráði til afgreiðslu.