Morgunblaðið - 22.05.1992, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992
23
Fidel Ramos
Svik í tafli á
Filippseyjum
ÓHÁÐUR hópur sem fylgist
með kosningaúrslitunum í
fílippeysku forsetakosningunum
ýjaði að því í gær að svik hafi
verið í tafli við talningu at-
kvæða. Hópurinn hefur farið
fram á við formann opinberrar
kosninganefndar að hún rann-
saki tafir á talningu atkvæða í
nokkrum bæjum og borgum.
Aðeins 45% af 25 milljónum
atkvæða í kosningunum 11. maí
sl. hafa verið talin. Fidel Ram-
os, fyrrverandi varnarmálaráð-
herra landsins, hefur 663 þús-
und atkvæða forskot á helsta
keppinaut sinn um forsetaemb-
ættið, Miriam Santiago.
Kjarnorkutil-
raunir í Kína
SÆNSKA eftirlitsstofnunin
FOA skýrði frá því í gær að á
tækjum stofnunarinnar hefðu
komið fram skjálftar vegna
kjarnorkusprengingar neða.n-
jarðar í Kína, þeirrar öflugustu
sem mælst hefur frá 1976.
Skjálftarnir benda til að um
1.000 kílótonna sprengingu hafí
verið að ræða í tilraunaskyni
við kjarnorkurannsóknarstöðina
í Lop-nor í vesturhluta Kína.
Samkvæmt samkomulagi sem
Bandaríkjamenn og Sovétríkin
fyrrverandi gerðu er bannað að
sprengja öflugari kjranorku-
sprengju en 150 kílótonn, en
Kínveijar eru ekki aðilar að því
samkomulagi.
Bush sigur-
stranglegur
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti bæri sigurorð af milljarða-
mæringnum Ross Perot og Bill
Clinton, líklegum frambjóðanda
demókrata, í bandarísku for-
setakosningunum ef kosið yrði
nú. Þetta kemur fram í nýrri
skoðanakönnun sjónvarpstöðv-
arinnar NBC og dagblaðsins
Wall Street Journal. Samkvæmt
skoðanakönnuninni kysu 35%
kjósenda Bush, 30% Perot og
27% Bill Clinton. Fastlega er
búist við því að Perot tilkynni
um sjálfstætt framboð sitt til
forsetaembættis í næsta
mánuði.
*
Urslit ókunn
hjá Kúrdum
TAFIR geta orðið á því að úr-
slit í kosningum um leiðtoga og
til þings Kúrda liggi fyrir og á
sumum svæðum gætu Kúrdar
orðið að kjósa á ný, að sögn
embættismanna. Leiðtogar
Kúrda hittust á miðvikudag en
komust ekki að samkomulagi
um hvort kjósa þurfi á ný vegna
ásakana um kosningasvindl.
Fyrstu tölur benda til þess' að
Massoud Barzani, leiðtogi kúr-
díska lýðræðisflokksins, og Jalal
Talabani, leiðtogi Þjóðernisein-
ingar Kúrdistan, fengju meiri-
hluta atkvæða. Ásakanir um
kosningasvindl hafa einkum
komið frá fulltrúum smærri
flokka.
Robert Gates ver mat
CIA á Sovétríkjunum
New York. Reuter.
ROBERT Gates, yfirmaður
bandarísku leyniþjónustunnar
CIA, reyndi í gær að hreinsa
stofnunina af ásökunum um að
hún hefði ekki séð hrun Sovét-
ríkjanna fyrir.
Gates sagði að CIA hefði frá
árinu 1989 skýrt bandarískum
stjórnvöldum frá því að Sovétríkin
væru að hrynja og að búast mætti
við valdaráni, sem gæti mistekist.
Hann viðurkenndi þó að CIA
hefði orðið á mistök, einkum hvað
varðar matið á efnahagsástandinu
í Sovétríkjunum.
Stofnunin hefði
ennfremur van-
metið áhrif gífur-
legra útgjalda til
hermála á sov-
éska efnahaginn.
Hann bætti hins
vegar við að á
heildina litið hefði
CIA staðið sig með ágætum.
Gates var sérfræðingur í málefn-
um Sovétríkjanna og hefur sætt
harðri gagnrýni fyrir að hafa veitt
þingi og forsetum Bandaríkjanna
rangar upplýsingar um þá hættu
sem stafaði af Sovétríkjunum og
að hafa ýtt undir dýrt vígbúnaðar-
kapphlaup við þau.
Gates sagði ennfremur að banda-
ríska leyniþjónustan hefði ekki orð-
ið vör við miklar breytingar á starf-
semi rússnesku leyniþjónustunnar
KGB í Bandaríkjunum frá valda-
ránstilrauninni 1991. „Bandaríkin
eru enn helsta viðfangsefni hennar,
einkum bandarísk tækni. Það kann
að vera að rússneska stjórnin viti
ekki um þessa starfsemi,“ sagði
hann.
FLÍSAR
Ódýrar flísar á gólf og veggi
* Verð frá kr.
íorm^a.1'990’'
Skeifunni 8, Reykjavík S682466
%lboð
AE
Þilofnar, 5 stærðir. Verð frá 5.995 kr. stgr.
Kæhskápur, 136 lítra kælir og 8 lítra frystir
Hæð 85 sm, breidd 50 sm, dýpt 60 sm.
Verð 24.925 kr. stgr.
Ofn með hellum. Hæð 32 sm, breidd 58 sm
dýpt 34 sm. Verð 17.812 kr. stgr.
Oll tækin eru gerð fyrir 220 volta spennu.
ALVEG EINSTOK GÆÐI I SUMARBUSTAÐINN!
Hja Bræðrunum Ormsson bjóðast þér góð og örugg tæki í
sumarbústaðinn á sérstöku tilboði sem gildir í allt sumar.
Eigum einnig fyrirliggjandi mikið úrval af rofa- og tenglaefni
Umboðsmenn um allt land.
Umboðsmenn Reykjavik og nágrenni
Bvaat oa búiö. Revkiavík
Vestfirðir:
Rafbúö Jónasar Þór, Patreksfiröi
Bjarnabúö, Tálknafirði
Edinborg, Bíldudal
Verslun Gunnars Sigurðssonar. Þingeyri
Einar Guöfinnsson, Bolungarvík
Straumur, Isafirði
Austurland:
Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum
Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði
Stál, Seyöisfirði
Sveinn O. Elíasson, Neskaupstað
Hjalti Sigurðsson, Eskifiröi
Rafnet, Reyöarfirði
Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði
KASK, Höfn
Byggt og búið, Reykjavfk
BYKO, Hringbraut
BYKO, Kópavogi
BYKO, Hafnarfiröi
Gos, Reykjavík
Hagkaup, Reykjavlk
Brúnás innréttingar, Reykjavfk
Fit, Hafnarfirði
Þorsteinn Bergmann, Reykiavlk
H.G. Guðjónsson, Reykjavlk
Rafbúðin, Kópavogi
Norðurland:
Kf. Steingrímsfjaröar, Hólmavlk
Kf. V-Hún., Hvammstanga
Kf. Húnvetninga, Blönduósi
Rafsjá, Sauöárkróki
KEA, Akureyri
KEA, Dalvík
Bókabúö Rannveigar, Laugum
Sel, Mývatnssveit
Kf. Þingeyinga, Húsavlk
Urð. Rautarhöfn
Suðurland:
Kf. Rangæinga, Hvolsvelli
Mosfell, Hellu
Árvirkinn, Selfossi
Rás, Þorlákshöfn
Brimnes, Vestmannaeyjum
Málnmgarþjónustan, Akranesi
Kf. Borafirðinaa. Boraarnesi
Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi
Blómsturvellir, Hellissandi
Guöni Hallqrlmsson, Grundarfiröi
Ásubúö. Buðarda!
Reykjanes:
Stapafell, Keflavik
Rafborg, Grindavll
DJORMSSONHF
Lágmúla 8. Sími 38820