Morgunblaðið - 22.05.1992, Síða 29

Morgunblaðið - 22.05.1992, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992 29 Gamli Geysir og Gamlir Fóstbræður; Þrennir tónleik- ar um helgina KÓRARNIR Gamli Geysir og Gamlir Fóstbræður halda Listaskálinn: Sýning á verkum Tryggva Olafssonar TRYGGVI Ólafsson mynd- Iistarmaður opnar sýningu á verkum sínum í Listaskálan- um, vinnustofu Guðmundar Armanns Siguiýónssonar, i Grófargili í dag, föstudag, kl. 17. Sýningin verður opin frá kl. 17 til 19 opnunardaginn, en um helgina, laugardag og sunnu- dag, verður opið frá kl. 14 til 19, en sýningin stendur aðeins í þrjá daga. A sýningunni verða um 20 verk, akrílmyndir, og er um sölusýningu að ræða, sem hald- in er hér á vegum Gallerís Borgar. Tryggvi hefur verið búsettur í Danmörku síðustu ár, en hann hefur sýnt verk sín regluiega hér á landi, en þetta er þó í fyrsta sinn sem hann sýnir á Akureyri. þrenna tónleika um helgina. Hinir fyrstu verða í Víkurröst, Dalvík, á laugardag kl. 17 og síðan í Tjarnarborg, Ólafsfirði, kl. 20.30 sama dag, en þeir þriðju verða í Akureyrarkirkju á sunnudag kl. 16. Alls taka 65 söngmenn þátt í tónleikunum. Söngstjórar eru Jón Þórarins- son, sem stjórnar Fóstbræðrum og sameiginlegum söng, og Árni Ingimundarson, sem stjórnar Gamla Geysi og sameiginlegum söng kóranna. Undirleikari er Jón- as Ingimundarson, en einsöngvar- ar þeir Kristinn Hallsson, Aðal- steinn Jónsson og Orn Birgisson. Á efnisskránni eru íslensk og erlend lög og munu kórarnir bæði syngja hvor í sínu lagi og saman. Samstarf kóranna hefur af og til verið alit frá árinu 1930, eftir að íslenskir karlakórar sungu við Alþingishátíðina það ár. Á síðasta ári endurnýjuðu eldri félagar kór- anna samstarfið, en þá héldu Geysismenn suður til tónleika og sungu á Selfossi og Laugarnes- kirkju og nú fá þeir heimsóknina endurgoldna er Fóstbræður koma norður. Gamlir Geysisfélagar eiga 20 ára afmæli á þessu ári, en þeir hófu starfsemi á 50 ára afmæli Karlakórsins Geysis árið 1972. Þeir hafa komið fram á tónleikum auk þess sem þeir hafa sungið fyrir vistmenn elliheimila og við helgiathöfn í Glerárkirkju. Skautafélag Akureyrar: Hjólaskautaleiga í sumar Hjólaskautaleiga verður opn- uð á svæði Skautafélags Akur- eyrar á morgun, laugardag, og verður hún opin daglega i sumar frá kl. 13 til 21. „Við erum með þessu að skapa líf á svæðinu allan ársins hring og ætlum okkur að vera með ýmsar uppákomur, eins og hjólaskautaball og fleira,“ sagði Magnús Finnsson hjá Skautafélagi Akureyrar. Reiknað er með að í sumar gef- ist skautafélagsmönnum kostur á æfingum í svokölluðu götuhokkí og þá er verið að semja við KA um að taka hjólaskautakennslu sem lið í íþróttanámskeiði sem hefst hjá félaginu innan skamms. Magnús sagði að félagið ætti þó nokkurt magn skauta í öllum núm- erum, sem leigðir verða ásamt hjálmum, en allir sem renna sér á skautum á svæðinu í sumar verða að bera hjálma. Skautafélagsmenn eru með fleiri hugmyndir, því þeir hyggjast sækja um leyfi til að setja silunga í tjörn sem er á lóð félagsins, en á tjörn- inni er fyrirhugað í framtíðinni að setja upp braut fyrir skautahlaup. Veiðileyfi verða seld á svæði skaut- afélagins. Morgunblaðið/Rúnar Þór Menningarmálanefnd veitir viðurkenningar í hófi sem Menningarmálanefnd Akureyrar hélt á Fiðlaranum í fyrradag voru afhentar viðurkenningar úr Húsfriðunarsjóði Akureyrar, Menningarsjóði Akureyrar, verðlaun vegna ljóða- og smásagnasamkeppni 16 til 25 ára ungmenna auk þess sem tilkynnt var um hver yrði næsti bæjarlistamaður Akureyrarbæjar. Á myndinni eru þeir sem hlutu áðurnefndar viðurkenningar, frá vinstri er Haukur Viktorsson arkitekt, sem teiknaði húsið Aðalstræti 65 sem hlaut viðurkenningu Húsfriðunarsjóðs í ár, og Inga Sólnes, eigandi hússins. Þá kemur Jakob Tryggvason organisti, sem hlaut viðurkenningu Menningarsjóðs, Margrét Jóns- dóttir myndlistarmaður, sem fékk starfslaun bæjarlistamanns Akureyrarbæjar, Guðrún Kristjánsdóttir, eiginkona Einars Kristjánssonar rithöfundar sem hlaut viðurkenningu Menningarsjóðs. Ragnhildur Magnús- dóttir fékk viðurkenningu fyrir smásöguna Fljótið, Hlynur Hallsson hlaut verðlaun fyrir ljóð í ljóða- og smásagnasamkeppni í tengslum við vinabæjaviku á Akureyri í næsta mánuði og Nína Björk Stefánsson, sem fékk viðurkenningu fyrir smásöguna Ef. í frétt blaðsins um þetta mál í gær kom ekki fram að Hauk- ur Viktorsson arkitekt hafi hlotið viðurkenningu vegna Aðalstrætis 65 og er beðist velvirðingar á því. Meiðyrðamál Qlafs Sigurgeirssonar gegn Pétri Péturssyni: Pétur krefst þess að verða sýknaður af öllum kröfum PÉTUR Pétursson heilsugæslu- læknir á Akureyri lagði í gær fram í bæjarþingi Akureyrar greinargerð sína í meiðyrða- máli Ólafs Sigurgeirssonar hdl. gegn honum. Ólafur gerði þær kröfur að ýmis ummæli er Pétur hafði látið falla í fjölmiðlum um sig yrðu dæmd dauð og ómerk, en sem kunnugt er höfðaði Ólaf- ur fyrir hönd 35 vaxtar- og kraftlyftingamanna mál gegn Pétri vegna ummæla um meinta notkun hormónalyfja manna er stundi þessar íþróttir. Pétur flutti mál sitt sjálfur fyrir bæjarþingi og krafðist þess að hann yrði alfarið sýknaður af öll- um kröfum stefnanda. Hann hafi í ræðu og riti reynt að miðla al- menningþ af þekkingu sinni um þau atriði er haft geta bætandi áhrif á heilsufar og komið í veg fyrir heilsubrest, svo sem hlutverk lækna sé og hafi því á síðasta vetri notað tækifærið til að vara við misnotkun karlhormóna, sem komið hafi í ljós að er umtalsvert heilsufarsvandamál. Hann hafi kosið að gera það á þann hátt að eftir yrði tekið. Pétur segir í greinargerð sinni, að mál á hendur sér séu rekin með offorsi, rangtúlkunum og jafnvel vísvitandi missögnum og sér dyljist ekki að verið sé að gera tilraunir til að hefta tjáningarfrelsi sitt og hræða til að þegja yfir því sem sér beri skylda til að koma á framfæri. Ekki sé hægt að líta á það öðruvísi en sem aðför að rétt- indum sínum sem læknis og ábyrgs þjóðfélagsþegns og hljóti hann því að snúast til vamar rétt- indum sínum. „Það stríðir gegn réttlætistil- finningu minni ef dæma á mig til tugthúsvistar og hárra bóta vegna krafna manns, sem hefur ítrekað hellt ■ yfir mig móðgunum, borið út um mig hálfgildingsróg, vegið að starfsheiðri mínum og hamast við að svipta mig atvinnu minni. í þeim atgangi hefur hann gengið miklu lengra í orðum og kröfu- gerð, en þau meinlausu orð, sem ég hef látið falla, gefa nokkurt tilefni til,“ segir í greinargerð Pét- urs. Fer Pétur fram á að öllum refsi- og bótakröfum á hendur sér verði hafnað og öllum ómerkingarkröf- um einnig. Þá lýsir hann því yfir að hann muni ekki hafa frekari afskipti af máli þessu. Ráðherrafundur í Finnlandi: Ung'verjalandi veitt aðild að Evreka EINS árs formennsku Finna í Evreka, rannsóknasamstarfi Evrópuþjóða, lýkur í dag. Ólaf- ur G. Einarsson, menntamála- ráðherra, situr af því tilefni fund ráðlierra landanna, sem eiga aðild að samstarfinu, í Tampere í Finnlandi. Ráðherr- arnir munu væntanlega taka ákvörðun um að veita löndum í austurhluta Evrópu aðild að samstarfinu, meðal annars Ung- verjalandi. Á fundinum munu ráðherrarnir enn fremur ræða um aukna hlut- deild lítilla og miðlungs stórra fyr- irtækja í Evreka-samstarfinu,. Venju samkvæmt munu þeir einn- ig staðfesta þátttöku nýrra rann- sókna- og þróunarverkefna, sem að þessu sinni eru liðlega hundr- að. Síðustu daga hefur Tampere einkennst af þessum tímamótum. Á fjölmörgum fundum samstarfs- aðilanna hafa niðurstöður verk- efna verið dregnar saman, tækni- sýningar verið haldnar og ýmsar kynningar. Dr. Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri rannsóknaráðs ríkisins, er fulltrúi íslands í stjórn Evreka. Hann hefur tekið þátt í undirbúningi ráðherrafundarins undanfarna daga. ísland hefur verið þátttakandi í Evreka frá 1986. Stærsta verk- efnið, sem íslendingar taka þátt í er Halios-fiskiskip 10. áratugár- ins. Vorhátíð í FORELDRAFÉLAG Seljaskóla gengst fyrir vorhátíð á lóð skól- ans laugardaginn 23. maí næst- komandi. Ymislegt verður gert til skemmtunar. Keppt verður í hjóla- þrautum, langhlaupi, pokahlaupi Seljaskóla og vítaskotum í körfu. Veitt verða verðlaun fyrir 1.-3. sæti í keppnis- greinum og allir sem þátt taka fá viðurkenningarskjal. Minigolf o.fl. verður á staðnum. Markmið vorhá- tíðarinnar er að gefa foreldrum og börnum tækifæri til sameigin- legrar skemmtunar. SAMSKIPA dcildisa Þórsvöllur luugurdag kl. 14.00. að sjálfsögðu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.