Morgunblaðið - 22.05.1992, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992
31
Raðganga FÍ, 3. ferð:
Hvalfjarðareyri
- Maríuhöfn
Séð yfir Meðalfellsvatn inn í Flekkudal í Kjós.
eftir Eirík
Þormóðsson
Öðrum áfanga raðgöngu Ferð-
afélagsins frá Kjalarnesi upp í
Borgarnes lauk á Hvalfjarðareyri
og þar hefst þriðji áfanginn á
sunnudaginn kemur. Verður þá
gengið með ströndinni inn fyrir
Laxvog og út með honum aftur
að Hálshólum handan vogsins. Á
þeiiTÍ göngu er ýmislegt sem
hugandi er að, sumt sögulegt og
e.t.v. gleymt eða ókunnugt þorra
núlifandi manna og því kjörið að
rifja upp. Helstu útlínur í lands-
lagi eru að sunnanverðu Eyrar-
fjall og norðurhlíðar Esju með
sínum djúpu dölum en að sunnan-
verðu Reynivallaháls. Á milli er
Kjósin langt inn til lands og skipt-
ir Meðalfell (345 m) miðbiki henn-
ar í tvær álmur. Sunnan undir
Meðalfelli er Meðalfellsvatn og
er í því nokkur silungs- og jafn-
vel laxveiði.
Hvalfjarðareyri gengur löng og
flöt út í Hvalfjörð að sunnan-
verðu, vestan Laxvogs. Margt
skemmtilegra steina er þar að
finna, einkum baggalúta. Frá
eyrinni liggur sæsími yfir að
Hvalfjarðarströnd. Þar var höfn
og einhver verslun á síðari helm-
ingi 17. aldar. Á öldinni sem leið
(milli 1870 og 1880 og raunar
lengur) var feijað á milli Hval-
fjarðareyrar og Kataness á Hval-
fjarðarströnd en þar er einna
stystur sjóvegur yfir fjörðinn,
u.þ.b. þrír km. Síðar, eða laust
fyrir 1930, var komið á feiju yfir
Hvalfjörð, og gekk sú á milli
Kalastaðakots á Hvalfjarðar-
strönd og Laxvogs að sunnan-
verðu, lenti nokkru austan Hval-
fjarðareyrar. Var í fyrstu notaður
opinn vélbátur, en hann þótti
ekki uppfylla þær kröfur sem
gera varð til fólksflutningaskips,
og var þá keyptur nokkru stærri
bátur, fyrrum lystisnekkja auð-
manna, með yfirklæddum sætum
og yfirbyggingu með góðum
gluggum. Ögn austar heita Mið-
búðir og enn austar Harðbali, litl-
ir tangar sem ganga út í voginn,
báðir gamlir lendingarstaðir fyrir
vöruflutningabáta. Á Harðbala
stóðu tómthúsmannabýli, en ver-
búðir kunna að hafa verið í Mið-
búðum. Búðarhöfuð heitir grasi
vaxinn hólmi út og vestur af
Miðbúðum, stutt frá landi.
Leið okkar liggur nú sem áður
segir inn með voginum og eru
þar ýmis örnefni sem hér verða
fæst talin, en við skiljum að baki
okkar fyrrnefndar Miðbúðir og
Harðbala, Naustamýri og Vetrar-
mýri, höldum yfír Skorá sem
kemur úr Eyrarfjalli og fellur í
Skorárvík. Við förum hjá garði á
bænum Laxárnesi, þar heitir
frammi á nesinu Laxámestangi
til norðurs en vestur af bænum
er Suðurnes. Við sjáum ofan veg-
ar til félagsheimilis sveitarinnar,
Félagsgarðs, og göngum yfir
brúna á Laxá. Hún er kunn lax-
veiðiá, sem kemur upp í Stíflis-
dalsvatni, rennur um Laxárdal
og fellur til sjávar í Laxvogi. í
henni eru nokkrir fossar, neðstur
Sjávarfoss, Kvíslarfoss skammt
ofan við brúna, þá Laxfoss og
Pokafoss, en hæstur er Þórufoss
uppi í Kjósarskarði. Vorið 1556
drukknaði í Laxá Oddur Gott-
skálksson lögmaður norðan og
vestan, sá er fyrstur þýddi á ís-
lensku Nýja testamentið (pr. í
Hróarskeldu 1540).
Þegar komið er yfir Laxá
sveigir leið okkar út með voginum
að norðanverðu. Er þá rétt að líta
á klett einn sem kallaður er
Klöppin og er skammt frá Sjávar-
fossi. Áður en bílum varð við
komið til fólks- og vöruflutninga
á þessum slóðum lögðust bátar
upp að Klöppinni. Má í því við-
fangi nefna feiju sem gekk á
milli Reykjavíkur og Laxvogs og
flutti ýmsan vaming frá Reykja-
vík en til baka m.a. smjör og
ijóma. En ijómabú var í Kára-
nesi, bæ neðarlega í Laxárdal
Á slóöum
Feröafélags
íslands
sunnan ár, og þar unnin þessi
matvara. Sagt er að í eina tíð
hafi verið þar skilvinda svo stór
að tveir hestar hafi verið hafðir
til að snúa henni.
Við höldum nú áfram út með
voginum og styttist óðum til
Hálshóla, lágra hamraborga á
Hálsnesi, en þangað er för okkar
heitið í þessum áfanga eins og
áður getur. Þar undan er Búða-
sandur og á honum Maríuhöfn,
næst Hálshólum, e.t.v. mesti
kaupstaður landsins á ofanverðri
14. öld. Kannski kom Einar Her-
jólfsson, sá er flutti svarta dauða
til landsins 1402, að landi í Mar-
íuhöfn.
Vert er að vekja athygli á að
útfiri mikið er í Laxvogi, lífríki
er fjölskrúðugt og þykir t.d.
kræklingur þar einkar feitur og
hreinn og góður til beitu, enda
sóttu sjómenn af Suðurnesjum
og víðar að beitu þangað, og
raunar til fleiri staða í Hvalfirði,
langt fram á þessa öld.
Gönguleið sú sem hér hefur
verið stiklað eftir er um 8-9 kíló-
metra löng. Þeir sem vilja komast
hærra og reyna ögn meira á sig
ganga á Eyrarfjall (476 m). Það-
an sér vel yfir Kjósina og til fjalla
nær og fjær. En sjón er sögu rík-
ari og nú er að drífa sig af stað
á sunnudaginn kemur í heilnæma
og skemmtilega göngu með Ferð-
afélaginu. Báðar ferðirnar hefjast
kl. 13.00 og er brottför bæði frá
Umferðarmiðstöðinni að austan-
verðu og frá nýju húsi félagsins
í Mörkinni 6.
Þeim sem nánar vilja kynna
sér göngusvæðið og nágrenni
þess skal t.d. bent á þátt sr.
Gunnars Kristjánssonar um Kjós-
ina í árbók FÍ 1985, íslandshand-
bókina (fyrra bindi), Á fomum
slóðum og nýjum (afmælisrit
Björns Þorsteinssonar), Borgf-
irska blöndu (IV) og Kjósarmenn,
en til þessara rita hefur m.a. ver-
ið leitað fanga við samantekt
þessa.
Höfundur er handritafræðingur.
Jesúganga
á laugardag
HALDIN verður í Reykjavík
laugardaginn 23. maí svokölluð
Jesúganga eða „March for Jes-
us“, eins og hún nefnist á ensku.
Gangan er samkirkjuleg og fer
fram á sama tima í um 30 löndum
víðs vegar um Evrópu. Einnig
er gengið í mörgum borgum
Bandaríkjanna.
Tilgangur göngunnar er að lyfta
upp nafni Jesú Krists og kynna
hann sem lifandi frelsara. Mæting
verður á Lækjartorgi kl. 13.30 og
hefst sjalf gangan með bæn kl.
14.00. Áætlað er að gangan taki
50 mínútur og er gönguhraðinn
miðaður við alla aldurshópa. Að
lokinni göngunni verður létt sam-
vera með miklum söng og vitnis-
burðum. Ræðumaður samverunnar
verður Hafliði Kristinsson.
(Fréttatilkynning)
------» --------
■ SAMBAND ungra framsókn-
armanna gengst fyrir ráðstefnu
j um sjávarútvegsmál laugardaginn
23. maí kl. 13.00 í Borgartúni
6. Framsögumenn á ráðstefnunni
hafa verið valdir með hliðsjón af
því sem flest sjónarmið fái umfjöll-
un. Ráðstefnan er öllum opin.
------»"■» .....
■ SKRIÐJÖKLAR frá Akur-
eyri munu á föstudagskvöldið
halda tónleika á Tveimur vinum
í Reykjavík. Þetta verða fyrstu
tónleikar Jöklanna í höfuðborginni
í tæp þijú ár. Á laugardagskvöldið
heldur hljómsveitin síðan sveita-
ball á Hvoli á Hvolsvelli. Dansleik-
urinn hefst kl. 23 og stendur til
kl. 3.
UIJ ■ iw luyuuui u
KIMBERLY-tógasófi ( grænn ): Kr. 21.555.- stgr.
KIMBERLY-tágnstóll ( grænn ): Kr. 9.215.- stgr.
( Sófi og tveir stólar: Kr. 39.985.- stgr. )
ÓKEYPIS BÍLASTÆÐI!
Við greiðum 2ja klukku-
stunda bílageymslu á
Bergstöðum, á Horni
Skólavörðustígs og Berg-
staðastrætis, fyrir þá sem
versla í HABITAT.
habitat
LAUGAVEGI 13-SINll (91) 625870
BISTRÓ-tágastóll: Kr. 6.935.- stgr.
Opið virka daga frá
kl.10.00 til 18.00
Opið á morgun laugardag
frakl. 11.00 til 15.00
ATHUGIÐ!
OPIÐ Á SUNNUDAG FRÁ
KL.13.00 TIL 16.00
NÝJUjyi
FULLB
GLÆSILEGU