Morgunblaðið - 24.05.1992, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGIMIR SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992
B 17
1
Við Vegmúla hafa þeir Gylfi og Gunnar nýlokið smíði á 2.400 fermetra atvinnuhúsnæði, sem verður
notað fyrir verzlun, skrifstofur og iðnað.
Reykjavík og nágrenni eins og aðr-
ar þær íbúðir, sem þeir hafa áður
byggt fyrir aldraða. — Við höfum
átt mjög gott samstarf við þetta
félag, segja þeir. — Það hefur bygg-
ingarnefnd og við höldum fund með
henni að minnsta kosti hálfs mánað-
arlega, þar sem við ræðum saman
öll þau mál, sem upp kunna að
koma. Hjá Félagi eldri borgara
starfar einnig byggingaráðgjafi,
sem hefur aðsetur á sömu hæð og
við.
Þetta er gert til hægðarauka með
tilliti til teikninga, tæknivinnu og
breytinga. Það er mikið um, að
þeir sem eru að kaupa, komi og
skoði teikningar og margvísleg at-
riði varðandi íbúðirnar, enda ekki
nema eðlilegt. Kaupandi er kannski
ekki sáttur við staðsetningar ljósa
eða fyrirkomulag innréttinga og
vill hafa þetta einhvern veginn öðru
vísi. Þá þarf auðvitað að koma til
móts við slíkar óskir, svo framar-
lega sem það er hægt.
Að sögn þeirra Gylfa og Gunnars
hefur samdrátturinn á bygginga-
markaðnum ekki komið mikið við
starfsemi þeirra. — Okkur hefur
gengið sæmilega að selja, þó að
markaðurinn hafí verið daufur. Við
Ijarmarmýri á Seltjarnarnesi erum
við að byggja fyrir almennan mark-
að. Þar verður einsetinn skóli og
um leið einn fyrsti skólinn á landinu
með því sniði. Það er því heppilegur
staður fyrir fólk með börn. Fyrsta
blokkin þar er að verða tilbúin und-
ir tréverk og nú er verið að mála
íbúðirnar. Margir hafa sýnt þessum
íbúðum áhuga. Eftirspurn hefur
aukizt við kjarasamningana og það
er greinilega að lifna yfir markaðn-
um. Fyrirtækið er að vinna að hönn-
un á 60 íbúðum í íjölbýishúsum í
Rimahverfi í Grafarvogi, sem eiga
að seljast fullbúnar.
Að mati þeirra félaga eru full-
búnar íbúðir það sem koma skal.
Byggingarfyrirtækin geta unnið þá
vinnu, sem eftir er miðað við til-
búið undir tréverk, bæði betur og
hagkvæmar. — Við höfum þegar
byggmikið af fullbúnum íbúðum og
teljum okkur hafa mikla reynslu á
því sviði, segja þeir. — Það er að
kalla liðin tíð hjá okkur að afhenda
eignir fokheldar eða tilbúnar undir
tréverk. Þær íbúðir, sem við erum
með í smíðum fyrir almennan mark-
að á Seltjarnarnesi, skilum við full-
búnum með múruðum útveggjum
og milliveggjum. Það er okkar mat,
að auðveldara verði að selja þær
þannig.
Það geta komið upp alls konar
vandamál hjá þeim, sem sjálfir vilja
vinna í íbúðinni og hægðarleikur
að eyðileggja íbúð, sem er kannski
ekki nema grófpússuð við afhend-
ingu. Fæstir kunna að sparsla eða
vinna undirvinnuna, svo að vel sé.
Þá er frágangur utan dyra oft fyrir
neðan allar hellur við íbúðir, sem
seldar eru ókláraðar. Stundum eru
þar varla malbikuð bílastæði. Auð-
vitað á að skila þessu öliu tilbúnu
og frágengnu.
Meiri kröfur
Að sögn þeirra félaga hafa við-
horf fólks í íbúðahugleiðingum
breyzt og kröfurnar eru nú meiri.
Fólk ver meiri tíma í að leita fyrir
sér t.d. að hentugum stöðum og
vandaðra húsnæði en áður. Nú er
líka viss tortryggni ríkjandi vegna
gjaldþrota fyrirtækja í byggingar-
iðnaði, þar sem ýmsir einstaklingar
hafa orðið illa úti. Margir eru því
ekki eins fúsir og áður til að kaupa
íbúðir á teikniborðinu, sem kannski
hefur ekki verið byijað á enn þá.
Fólk vilji fá að vita, við hveija það
er að eiga viðskipti. Auðvitað ættu
verktakar að afla bankatryggingar,
áður en þeir selja íbúð í smíðum
og jafnframt að geta sýnt fram á
að þeir ráða við verkefnið, því að
þeir eru gjarnan með aleigu fólks
milli handanna.
En mistökin hafa ekki bara orðið
hjá byggingafyrirtækjum, segja
þeir félagar. — Þau gerast fyrst
hjá fasteignasalunum. Hann á að
gæta að sér og ganga úr skugga
um, að hann sé ekki að selja fyrir
ótrausta byggingaraðila, því að
hann ber mikla ábyrgð gagnvart
þvi fólki, sem er að kaupa.
Þeir félagar eru nýbúnir að
byggja stórt og glæsilegt atvinnu-
húsnæði við Vegmúla. En er mark-
aður fyrir þetta húsnæði, þegar
offramboð er á atvinnuhúsmæði. —
Það eru þegar komnir aðilar, sem
ætla að taka hluta af þessu hús-
næði, segja þeir. Sjálfur erum við
bjartsýnni á atvinnuhúsnæði nú en
áður. Markaðurinn fyrir slíkt hús-
næði sveiflast svolítið til og frá eft-
ir ástandinu í þjóðfélaginu. Reyndar
skiptir staðurinn nú meira máli en
áður og meiri eftirspurn er eftir
góðu húsnæði en bakhúsin verða
útundan. Gott húsnæði og góður
staður eru það sem skiptir máli nú.
Þeir Gylfi og Gunnar telja sig
ekki sjá miklar breytingar á íbúðar-
byggingum íslendinga. — í íbúðum
frá okkur er yfirleitt sérstakt sjón-
varpshol, segja þeir. — Það er úrelt
að okkar mati að hafa sjónvarpið í
stofunni. Börnin vilja geta horft á
barnaefnið í sjónvarpnu frá því
snemma á morgnana langt fram á
kvöld. Þetta hefur í för með sér
miklu meiri ániðslu á stofunni og
betri húsgögnum heimilisins, ef
sjónvarpið er þar líka.
En það hefur orðið mikil breyting
til hins betra í öllum frágangi og
þar eigna hönnuðirnir einnig stóran
þátt. — Hér áður fyrr voru steypu-
styrktarjárnin jafnvel teiknuð einn
og hálfan sentimetra frá ytri brún
á vegg, segja þeir félagar. — Þegar
vatnið komst að, ryðgaði járnið
fljótt og skemmdi út frá sér. Nú
eru hafðir þrír sentimetrar inn að
járninu. Á þessu er mikill munur.
Afköst í byggingariðnaði hafa
aukizt með betri tækni og það fær-
ist í vöxt, að verktakir fái heil svæði,
sem þeir skipuleggja sjálfir til þess
að byggja á. Þetta er framtíðin. Þá
geta þeir haft sín tæki og mann-
skap á sama svæðinu allan tímann
og náð fram miklu betri nýtingu.
Þetta getur verið blönduð byggð,
ljölbýlishús með raðhúsum og ein-
býlishúsum á milli, þar sem sami
verktakinn annast skipulagningu,
hönnun og byggir húsin. Við höfum
tekið þátt í að skipuleggja sum þau
svæði, þar sem við höfum byggt
með góðum árangri í samvinnu við
Borgarskipulag. Við eigum nú sér-
stök mót, svokölluð Tunnelmót og
með þeim getum við steypt upp 50
íbúða blokk á um þremur mánuðum.
Þetta er mjög mikill hraði.
Mikill munur er milli ára, hvort
eftirspurn er eftir blokkaríbúðum
eða raðhúsum. Þegar efnahags-
ástandið er slæmt, er áhuginn meiri
á blokkaríbúðum en minni á einbýl-
ishúsum og raðhúsum. Síðan snýst
þetta við, ef efnahagsástandið batn-
ar.
Unga fólkið fari í grónu
hverfin
Að mati þeirra félaga er það þjóð-
hagslega hagkvæmt að byggja nýj-
ar íbúðir fyrir eldra fólk. — Það býr
oftast í stærri eignum í rótgrónum
og fallegum hverfum, sem farin eru
að kalla á viðhald, segija þeir. —
Að sjálfsögðu verður að endurnýja
þessi gömlu hús og halda þeim við,
því að annars liggja þau undir
skemmdum. Aldrað fólk treystir sér
samt ekki til að halda við garðinum
og hryllir við þeim kostnaði, sem
fylgir nauðsynlegu viðhaldi. Það er
því miklu eðlilegra, að yngra fólk
kaupi sér notað húsnæði í þessum
hverfum enda miklu líklegra að það
hafi kjark og þor til þess að end-
urnýja það. I grónum hverfum eru
skóíar þegar fyrir hendi og öll þjón-
usta. Með þessu geta sveitarfélögin
dregið úr kostnaðarsömum fram-
kvæmdum. Þannig sparar þetta
þjóðfélaginu fé.
Þeir félagar segja aldurinn hjá
fólki hafa hækkað, þegar það eign-
ast sína fyrstu íbúð. Þetta eigi m.
a. rót sína að rekja til lengri skóla-
göngu. Af þeim sökum dveljist
börnin lengur í foreldrahúsum. Að-
stæður séu líkar breyttar í þjóðfé-
laginu miðað við það sem áður var.
Ungt fólk geti nú byijað að safna
peningum, án þess að þeir brenni
upp í verðbólgunni. Áður varð að
leggja peningana í steinsteypu jafn-
óðum og þeir urðu til. Ella urðu
þeir að engu. Þetta leiddi til þess,
að margir réðust í að kaupa íbúð
kornungir, jafnvel 17-18 ára gamlir
eða um leið og þeir byijuðu að
vinna. — Reynslan hefur sýnt, að
Islendingar vilja eiga sínar íbúðir
sjálfir og þær eru og verða traust-
asti lífeyrissjóðurinn, sem við getum
eignazt, segja þeir félagar að lok-
um.
BAUGHÚS
Glæsilegt parhús á 2 hæðum með innbyggðum 35 fm
bílskúr, samtals 187 fm. Húsið er til afhendingar nú
þegar, fokhelt, fullfrágengið utan. Fallegt útsýni. Verð
8,4 millj.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 38A,
VIÐAR FRIÐRIKSSON,
LÖGG. FASTEIGNASALI,
HEIMASIMI 27072.
29077
Símatfmi í dag 13-15
61 44 33
OPIÐ SUNNUD. KL. 13.00-15.00
Einbýlis- og raðhús
SMARAFLOT
Einbýlishús á einni hæð 160 fm
fyrir utan 40 fm bílsk. I húsinu
eru m.a. stofur, 4 svefnherb.
og sólstofa.
FOSSVOGUR
212 fm vel byggt og vandað
raðhús við Giljáland. M.a. stofa,
sjónvherb., 4 svefnherb. og
húsbherb. Gengið úr stofu út í
garð.
EINBHÚS MEÐ
ÚTSÝNI
Hús á tveimur hæðum innst og
neðst við Grafarvoginn. Efri
hæð: 170 fm fullb. falleg íb. og
35 fm bílsk. Neðri hæð: 180 fm
fokh. rými sem má tengja við
aðalhæð eða qera að séríb.
ENDARAÐHÚS í
MOSBÆ
Vel staðsett endaraðhús við
Grundartanga u.þ.b. 100 fm,
m.a. stofa og 3 rúmg. svefn-
herb. Stór verönd og garður
mót suðri.
ENDARAÐHÚS
VIÐ BRAUTARÁS
180 fm raðhús á tveimur hæð-
um ásamt 40 fm bílsk. í húsinu
eru m.a. stofur, 4 svefnh.,
sauna o.fl. Bein sala eða skipti
á 300-400 fm einbhúsi.
EINBÝLISHÚS
Nokkur stór og vönduð einbhús
á skrá á ýmsum stöðum í borg-
inni. Einnig góðir kaupendur að
góðum einbhúsum sérstaklega
í Vesturb. og Seltjnesi.
HRÍSATEIGUR
Vel með farið steinh. á tveimur
hæðum. Efri hæð 2 stofur
(skiptanl.), 3 svefnherb., eldhús
og bað. Kj. 3 herb., eldhús, bað
o.fl. Geymslur í risi og kj. 33 fm
bílsk.
HÚS í VESTURBÆ
Endurbyggt steinh. á tveimur
hæðum v/Fálkagötu. 3 svefn-
herb., sjónvherb. og baðherb. á
neðri hæð. Stofur og eldh.
m/fallegu panelklæddu lofti á
efri hæð. Verð 11,5 millj.
RAÐH. OG ATVH.
V/LA UFBREKKU
185 fm nýtískul. og vandað hús
á tveimur hæðum byggt 1985.
Sambyggt með aðkomu neðan
frá Dalbrekku er 330 fm 1. fl.
nýinnr. húsn. f. ýmis konar atv-
rekstur. Selst saman eða í
tvennu lagi.
NYTT PARHÚS -
ÁHV. 9,3 MILU.
V/HÚSBRÉFA
212 fm hús á tveimur hæðum
m/innb. bílsk. v/Dalhús.
„PENTHOUSE"
Ca 180 fm íb. á tveimur hæðum
v/Skúlagötu tilb. u. trév. og
máln. Afh. fljótí.
4ra og 5 herb.
HLIÐARVEGUR
Afburða falleg 155 fm neðri
sérhæð í nýl. tvíbhúsi ásamt
bílsk. Flísal. Stofur, 4 svefn-
herb., eldh. m/gegnheilli viðar-
innr. Sólstofa m/heitum potti.
Fallegur garður.
SAFAMÝRI
5 herb. endaíb. á 4. hæð ásamt
bílskrétti. Tvær stofur m/arni,
skiptanlegar, og 3 svefnherb.
Nýl. eikarinnr. í eldhúsi og sam-
eign endurn.
VESTURBERG
Falleg 4ra herb. íb. á 2. hæð.
Sameign ný standsett. V. 6,8 m.
2ja og 3ja herb.
KEILUGRANDI
2ja herb. íb. á 2. hæð ásamt
bílgeymslu. Áhv. 3,8 millj. Verð
6,4 millj.
ÞJÓNUSTUÍBÚÐ
2ja herb. 85 fm þjónhús f. aldr-
aða hjá DAS í Hafnarfirði.
FURUGERÐI
Bráðfalleg 74 fm 2ja-3ja herb.
íb. á jarðh. Sér hiti. Sérgarður.
Laus strax.
HÁTÚN - LYFTA
Nýkomin í sölu 3ja-4ra herb. íb.
á 3. hæð. M.a. 2 stofur og 2
svefnh. Sameign nýstandsett.
VESTURBERG
3ja herb. útsýnisíb. á 4. hæð.
Verð 5,9 millj.
I smíðum
„PENTHOUSE“-IB.
Við lækinn í Hafnarf. ný 114 fm
íb. á tveimur hæðum m. útsýni
yfir gamla bæinn. Suðursv.
VIÐARÁS - RAÐH.
160 fm raðh. tilb. u. trév. og
máln. Milliveggir komnir. Hag-
stætt verð.
Sumarbústaður
SUMARBÚSTAÐUR
Nýbyggður og fallegur bústaður
við Flúðir ca 50 fm auk sól-
skála. Svefnrými fyrir 6-8
manns.
VAGW J0NSS0N
FASTEIGNASAIA
Skúlagötu 30
Atli Vagnsson hdl.
SÍMI61 44 33 • FAX 61 44 50