Morgunblaðið - 19.06.1992, Side 4

Morgunblaðið - 19.06.1992, Side 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1992 Markmiðið er að fólk finni leiðir til að færa líf sitt til betri vegar HEILSUBÓTARDAGAR á Reykhólum hefjast nú, fimmta sumarið í röð, 2. júlí næstkomandi. Hjónin Sigrún Olsen og Þórir Barðdal hafa skipulagt fimm og sex daga dagskrá fyrir sumarið, þar sem m.a. áhersla er lögð á heilsusamlegt mataræði, hugarró, jóga og útiveru. „Við sköpum andrúmsloft á Reykhólum sem miðar að því að fólk finni kyrrð og geti róað hug- ann,“ sagði Sigrún í samtali við Daglegt líf. Maturinn á Reykhólum er makróbíótískur: „Við höfum sömu matreiðslumenn og í fyrra, mann og konu frá Bandaríkjunum. Ekkert kaffi er á boðstólum og reyndar biðjum við fólk að hætta kaffidrykkju nokkrum dögum áður en að dvölinni kemur, því annars væru allir með fráhvarfseinkenni hjá okkur! Þótt maturinn sé makró- Frá Reykhólum. bíótískur er hann ekki öfgakennd- ur. Kjöt er ekki borðað, en hins vegar borðum við físk og mikið af grænmeti og kornmeti. Matreiðslu- mennimir nota eins lítið af unnum matvælum og hægt er, og við not- um allt það lífrænt ræktaða græn- meti sem við náum í.“ Sigrún seg- ir að hreppsbúar hafi tekið starf- seminni afar vel og tveir aðilar að minnsta kosti séu nú farnir að rækta grænmeti á lífrænan hátt Áfyllingar fyrir taumýki i Með því að blanda aftur á LENOR \ brúsann, léttir þú innkaupin, \ dregur úr umbúðanotkun, minnkar úrgangfrá heimilinu \ og leggur þitt afmörkum \ til umhverfisverndar. KYNNINGAR \ TILBOÐ AFYLLING W/ THISPACK 7 CONTAM j / an L fAMIATOR f& FYLGIR ARIEL fyrir heilsubótardagana. Fræðsluerindi eru hluti af hinni skipulögðu dagskrá og auk Sigrún- ar og Þóris koma gestafyrirlesarar. „Einnig mun tónlistarfólk aðstoða okkur við að skapa góða stemmn- ingu og meðal gesta í sumar eru Bergþór Pálsson óperusöngvari, Herdís Hallvarðsdóttir, Gísli Helga- son, Signý Sæmundsdóttir og Þóra Fríða Sæmundsdóttir." Nuddarar verða á staðnum og geta þeir sem þess óska farið í nudd, þó það sé ekki innifalið í verðinu, en hver sólarhringur á Reykhólum kostar 5.300 krónur. Þau Sigrún og Þórir eru mynd- listarmenn og heimshornaflakkar- ar. Þau bjuggu um skeið í Banda- ríkjunum, en síðastliðinn vetur voru þau í Portúgal þar sem þau unnu að myndlistinni. Allt útlit er fyrir að þar muni þau setjast að. Að minnsta kosti um sinn. „Við sýnum fólki leiðir til að móta líf sitt til betri vegar, bæði hvað varðar umhverfið og heilsuf- arið. Við sýnum hversu megnugt fólk er sjálft, því við trúum því að við höfum sjálf kraftinn til að bæta líf okkar. Það séum sem sagt við sjálf sem stjórnum. Við göngum út frá því að við séum ekki ein- göngu líkami, við séum frjálsari en það. Við dýpkum vitund okkar hvað þetta varðar.“ Sigrúnu verður nokkuð tíðrætt um viðhorfm, hvernig þau móta okkur og hvernig við látum stjórn- ast af þeim. Hún kallar þau „collec- tive mind,“ sem á íslensku myndi kallast ríkjandi viðhorf. „Það er alltaf verið að segja okkur, beint eða óbeint, hvernig við eigum að vera, hvað við eigum að hugsa og gera, og við látum stjórnast af þessum viðhorfum eins og þau væru skipanir. Mér finnst hins veg- ar skipta miklu máli að við myndum okkur sjálf hugmyndir um okkur og það líf sem við viljum lifa. Það er nefnilega stórskemmtilegur leik- ur að átta sig á þeim hugsunum og hugmyndum sem koma upp hjá okkur þegar við útilokum ríkjandi viðhorf. ■ Brynja Tomer Ýmsir áverkar hjá börnum HÖFUÐHÖGG geta verið lífs- hættuleg, ef höggið er mikið og fallið hátt. Nauðsynlegt er að athuga, hvernig atburðurinn átti sér stað og hver viðbrögð bamsins urðu við áverkanna. Grét barnið strax, eða hafði það ekki áttað sig á atburðinum. Mikilvægt er ef líðan bamsins er óeðlileg að farið sé með barn- ið strax til læknis til frekari rannsóknar. Alvarlegustu af- leiðingar af völdum höfuðhögga koma ekki alltaf strax í ljós við slysið, og getur nokkur tími hæglega liðið þar til fyrstu ein- kenni gera vart við sig. ■ Frá Slysavarnafélagi Islands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.