Morgunblaðið - 19.06.1992, Page 10
10 c
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1992
Með Air Lanka frá
Singapore til Colombo
ÞAÐ tók langan tíma að tjekka inn á Changiflugvelli í þriggja
tíma flug tíl Colombo því öryggiseftirlit var með því kröft-
ugra og ekki að ástæðulausu með það í huga hvílík skálmöld
hefur verið á Sri Lanka síðustu ár. Nauðsynlegt er að reikna
með minnst tveimur klst.
Síðan labbaði ég um þessa marg-
verðlaunuðu og lofuðu flughöfn og
fannst allt myndarlegt, hreint og
fallegt en verslanir ekki eins spenn-
andi og ætla mátti af umsögnum.
Það varð hálftíma seinkun á að við
kæmumst á loft og vélin keyrði
fram og aftur um brautina. Skýring
var ekki gefin. Skjálfhentur og
sveittur flugþjónn afhenti uppþorn-
aðar andlitsþurrkur og í sömu mund
var tekið á loft, honum gafst ekki
tími til að koma sér í sætið sitt og
varð það ekki til að bæta ókyrra
líðan hans.
Matseðli var dreift hálftíma eftir
flugtak og drykkir komu nokkru
síðar. Flugþjónninn rétti mér mini-
flösku af gini eins og ég bað um
en gleymdi að koma með blandið
fyrr en eftir langa mæðu. Vélin var
allt að því full, þrengsli nokkur og
ekki nógu rúmt milli sæta.
Á matseðlinum las ég að ég
gæti valið á milli kjúklings á ind-
verska vísu og fisks. Svo leið
klukkutími og ekkert bólaði á matn-
um fyrr en æði löngu síðar.
Grænmetissalat í forrétt var með
12323
UM HELGINA
hafnarganga kl. 14 e.h. og síðan
eru hafnargöngur í allt sumar, á
öllum þriðjudags- og fimmtudags-
kvöldum, þær næstu því 23. og
25. júní. Ferðimar taka einn til tvo
klukkutíma. Leiðir eða kynningar-
efni er mismunandi. Alltaf er lagt
upp frá Hafnarhússportinu kl 21.
Sólstöðugangan 1992
Sunnudaginn 21. júní nk. eru
sumarsólstöður. Að venju verður
efnt til sólstöðugöngu þennan dag
en þá er sem kunnugt er sól hæst
á lofti. Þetta verður áttunda sól-
stöðugangan í Reykjavík og ná-
grenni.
Tilgangur sólstöðugöngunnar er
að minna á hið ánægjulega í tilver-
unni.
Sólstöðugangan hefur verið köll-
uð „Meðmælaganga með lífinu og
menningunni".
Eins og fyrri ár geta menn kom-
ið og farið að vild á meðan á sól-
stöðugöngunni stendur. Engum er
ætlað að taka þátt í henni sam-
fellt. Að þessu sinni hefst sólstöðu-
gangan á Öskjuhlíð. Lagt verður
af stað um miðnætti á laugardags-
kvöld og gengið með strönd
Reykjavíkur og Seltjamamess, inn
á milli verður farið í siglingu út á
Kollafjörð. En næturgöngunni lýk-
ur á Oskjuhlíð kl. 8.
Að deginum, sjálfan sólstöðu-
daginn, verður hlé á að beina
göngunni ákveðna leið en þess er
hinsvegar vænst að einstaklingar,
hópar, félög, stofnanir og fyrirtæki
haldi upp á daginn hvert með sín-
um hætti og hvetji sem flesta til
að fara út að ganga.
Um kvöldið kl. 20 verður þráð-
urinn tekinn upp aftur með göngu
frá Öskjuhlíð. Gengið verður inn
Fossvogsdalinn og síðan eftir
Tunguveginum og inn í Laugar-
dal. Þaðan niður í Laugames og
eftir Sæbrautinni og Rauðarár-
stígnum upp á Miklatún.
Sólstöðugöngunni lýkur á
Öskjuhlíð á miðnætti við sólarlag.
Náttúruvemdarfélag Suðvest-
urlands sér um framkvæmd
göngunnar. ■
Fjallasyrpa Otivistar
Sunnudaginn 21. júní er kom-
ið að fjórða áfanga í fjallasyrpu
Útivistar. Verður þá gengið á
Þríhyrning sem er 678 m. Ekið
verður um Hvolsvöll í Vatnsdal,
en þar hefst gangan. Fyrir þá sem
ekki treysta sér á Þríhyming verð-
ur boðið upp á göngu um Krapp-
ann. Brottför er frá BSÍ kl 9 f.h.
Þá verður á sunnudag farin
gamla leiðin yfir Hellisheiði, frá
Hellisskarði. Brottför kl 13 frá BSÍ
við bensínsöluna.
Ferðafélag íslands:
Þórsmörk-Langjökull-Fimm-
vörðuháls
Ferð sem heitirÞórsmörk um
sumarsólstöður er um helgina og
önnur þar sem gengið verður yfir-
Fimmvörðuháls. Gist verður í
Skagfjörðsskála. Þá er Langjökul-
sferð, sem er m.a. æfing fyrir
gönguferð yfir Vatnajökul í júli,
eins og segir í fréttatilkynningu
FÍ.
Laugardaginn 20. júní verður
farið á Esju og Kerhólakamb kl.
20. Sunnudaginn 21. júní kl. 10.30
er þjóðleið á Trölladyngju —
Rauðamelsstígur og kl. 13 sama
dag verður ferðin Mávahlíðar-
Lambafellsgjá og Sóleyjarkriki.
Jónsmessunæturganga verður
23. júní kl 20 og síðast en ekki
síst skal nefnt að miðvikudagsferð-
ir hefjast í Þórsmörk 24. júní og
er boðið upp á 4 daga eða fleiri.
Hafnargöngurnar
Á morgun, laugardag, verður
AIRLANKA
góðri dressingu, brauðið var hart,
fiskur með grænmeti var góður en
ofbökuð ofnbökuð kartafla ekki
kræsileg. Eftirréttur var hrís-
grjónakaka með ijóma eða ostar,
súkkulaðistykki fylgdi kaffi og kon-
íak var borið ótæpilega eftir matinn.
Flugmaðurinn kom með tilkynn-
ingu einu sinni, rétt fyrir lendingu,
og sömuleiðis voru farþegar beðnir
afsökunar á hversu seint hefði
gengið að bera fram matinn og gilti
það um öll farrými. Þjónustan ein-
kenndist af fáti og hægagangi en
flugfólkið var ósköp vingjarnlegt.
Þrengslin milli sæta voru stærsti
mínusinn.
Ferð á Y-farrými með Air Lanka
til Colombo kostaði um 40 þúsund
krónur aðra leiðina og mér fannst
það dýrt. J.K. ■
EF VEÐUR eðo bilun
hamla för tfjarri byggd,
þá shnltu holda þig___
nœrri bílnum. ÞAD segir
fnt* af einum.________
ÁBENDINGAR SLYSA-
VARNA FÉLAGSINS TIL
FERÐAFÓLKS.
ErfHt um vik að
markaðssetja
nýja bíla í ár
ALLMARGIR nýír bílar hafa komið á íslenskan bílamarkað á þessu
ári og hefur markaðssetning þeirra gengið nokkru hægar en umboð-
in gerðu ráð fyrir. Nýju bílarnir eru m.a. Peugeot 106, Volkswagen
Golf, Ford Escort og Orion, Skoda Forman, Mitsubishi Colt, Honda
Civic og Opel Astra svo nokkrir séu nefndir, og síðast en ekki síst
Hyundai, sem kom nýr á markaðinn og seldust 14 Hyundai bílar í
maí. Fyrstu fimm mánuði ársins seldust 2916 fólksbílar á móti 3891
bíl á sama tímabili í fyrra sem er 25% samdráttur. Því hafa sum
umboðin beðið með að setja nýjar gerðir á markað enda mikill kostn-
aður því samfara, m.a. að koma upp varahlutabirgðum, kenna þjón-
ustustarfliði á bílana og leggja í auglýsingakostnað.
Það hefur verið dauft yfir bíla-
markaðinum í ár og þótt hann hafi
heldur lifnað við síðustu vikurnar
hefur umræðan um þorskinn aftur
dregið úr, sagði Bjami. Ólafsson
forstöðumaður bíladeildar Jötunns
í samtali við Morgunblaðið. Jötunn
kynnti hinn nýja Opel Astra um
síðustu mánaðamót og eru 12 til
14 bflar nú seldir. Bíllinn kom á
markað ytra sl. haust og sagði
Bjarni að m.a. vegna skipulags-
breytinga hjá framleiðendum hefðu
viðræður um innflutning ekki getað
hafist fyrr en um síðustu áramót.
-Okkur fínnst viðtökurnar góðar,
verðið þykir gott en þó verð ég að
segja að við áttum von á enn betri
viðbrögðum, segir Bjarni Ólafsson.
Jöfur kynnti í febrúar nýjan bfl
frá Peugeot, 106 en hann var einn-
ig frumsýndur á bílasýningunni í
Frankfurt sl. haust. Um áramótin
tókust samningar um verð til ís-
lands og hafa nú selst liðlega 20
bílar sem er mun minna en ráðgert
var. Um svipað leyti og Peugeot
106 var kynntur bauð Brimborg
yfir 200 Daihatsu Charade bíla á
sérstöku útsöluverði, kringum 600
þúsund krónur, og telja sölumenn
Jöfurs að það hafi dregið mjög úr
sölu á Peugeot 106 en tvær algeng-
ustu gerðirnar kosta 670 og 750
þúsund krónur. Þessa skýringu
nefndu einnig aðrir bílainnflytjend-
ur. Jöfur kynnti einnig Skoda Form-
an sem selst hefur vel og fær um-
boðið ekki nógu marga bíla í bili.
Globus kynnti í mars Ford Esc-
ort og Orion, bíla sem þekktir eru
hérlendis og hafa staðið sig vel.
Þeir eru boðnir á þokkalegu verði,
kringum milljónina, en þrátt fýrir
Fyrstu fimm
mónuði ársins
seldust 2916
fólksbílar á
móti 3891 bíl
á sama tíma-
bili í fyrra sem ber vitni
er 25% sam- umboðið
dráttur.
það hafa aðeins
fáir tugir bíla
selst. Davíð Dav-
íðsson forstöðu-
maður bíladeild-
ar Globus segir
að meðan mark-
aðurinn sé ekki
líflegri en raun
muni
bíða
með að setja
Citro?n ZX á
markað en ár er
síðan hann var
kynntur erlend-
is. Tekist hafa samningar um verð
sem talið er samkeppnisfært en
Davíð taldi ólíklegt að sala yrði
hafin hérlendis fyrr en líður á sum-
arið. -Bílamarkaðurinn hefur verið
slæmur síðustu 3 til 4 árin og ljóst
er að í ár seljast ekki meira en 6 til
7 þúsund bílar. Við þurfum hins
vegar að flytja inn 10 til 11 þúsund
bíla árlega ef við eigum að viðhalda
flotanum, segir Davíð Davíðsson.
Hekla hf. hefur selt 121 bíl frá
Volkswagen og eru flestir af gerð-
inni Golf sem kynntur var í mars.
Þá hefur Toyota selt vel af Carina
E sem kynntur var í apríl en þetta
eru hvort tveggja bílar sem kosta
á bilinu 1200 til 1400 þúsund krón-
ur og jafnvel meira.
Nokkrar tegundir hafa aukið
markaðshlutdeild sína. Þannig hef-
ur hlutdeild Toyota hækkað úr
18,5% í 20,2%, Volkswagen úr 2,3%
í 4,1%, Suzuki hefur aukið hlutdeild
sína úr 2,8% í 3,8%, Saab úr 0,2%
í 0,5% og Mazda úr 2,9% í 4,3%.
Mesta aukningu á þó Daihatsu eða
úr 5% í 15,9%. ■
Breska löggctn blönk
ÞANN 1. júlí næstkomandi T
taka gildi ný umferðarlög í
Bretlandi, sem meðal annars
fela það í sér að lögreglunni
verður heimilt að nota
myndavélar til að hafa hend-
ur í hári þeirra sem aka of
hratt. Fjárskortur lögregl-
unnar gerir það hins vegar
að verkum að ólíklegt þykir
að þessi aðferð við umferðar-
eftirlit verði tekin í notkun á
þessu ári, en þar að auki á
innanríkisráðuneytið eftir að
heimila notkun myndavél-
anna.
Um er að ræða sjálfvirkar
myndavélar sem komið verður
fyrir á umferðargötum, og taka
þær myndir af þeim bflum sem
aka á óleyfilegum hraða. Jafn-
framt skrá þær skrásetningar-
númer viðkomandi bíls, hrað-
ann sem ekið er á og tíma dags-
ins. Ökumennirnir fá síðan
sektarmiðann sendan með
pósti. Hver myndavél kostar um
2,5 milljónir króna, og hafa
samtök lögreglustjóra í Bet-
landi lýst því yfir að vegna Qár-
skorts verði þær hvergi teknar
í notkun þegar hin nýju lög
taka gildi. ■