Morgunblaðið - 19.06.1992, Side 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1992
KOMINN er á markað hérlendis nýr
sportbíll í 300 línunni frá BMW sem
er talsvert ólíkur hinum hefðbundna
bíl í þeirri línu. BMW 318is er
tveggja hurða og með flest ytri ein-
kenni BMW, með sæmilega snarpri
vél og góðum búnaði. Þetta er vissu-
lega sportbíll og því ekki beint brúk-
legur sem venjulegur fjölskyldubíll
en skemmtilegur fyrir þá sem óska
eftir vönduðum vagni sem getur
sprett úr spori þegar og þar sem
við á. Það er sem fyrr Bílaumboðið
hf. sem flytur inn bíla frá BMW.
BMW sportbfllinn hefur flest sömu
mál og venjulegur 318 bíll. Þó er hann
nokkuð lægri eða 1,36 m hár á móti
1,39 m og hann er straumlínulagaðri
í útliti. Sem tveggja hurða bíll er hann
líka talsvert frábrugðinn 318 fjögurra
hurða og á það einkum við um aftari
hluta þaksins sem er lægra en fram-
endinn er hins vegar hinn sami.
Að innan er sportbíllinn með eilítið
öðru yfírbragði en hin gerðin. Mæla-
borðið er eins og öll staðsetning á
tækjum og rofum en stýrið er með
öðrum svip. Sætin virka stífari í sport-
bflnum. Þá er bíllinn útbúinn þannig
að þegar hurð er opnuð sígur hliðarrúð-
an örlítið niður og þrýstist síðan upp
í falsið á ný þegar lokað er. Þannig
er betur tryggt að rúðan sé eins þétt
og kostur er til að draga úr vindgnauði.
í umgengni og akstri er BMW sport-
bfllinn að flestu leyti þægilegur. Stórar
hurðimar em samt nokkuð þungar og
viðamiklar í meðförum eins og oftast
er um tveggja hurða bíla og þar sem
bíllinn er nokkru lægri en venjulega
318 gerðin er höfuðrými í knappara
lagi. Hægt er þó að stilla hæð á bflstjó-
rasæti og má aðlaga sig þessu að
nokkru leyti. Einnig virðist í fyrstu sem
útsýni fram á við truflist af þakinu,
þ.e. að framrúðan sé ekki nógu há en
það atriði venst hins vegar fljótt. Af
sömu ástæðu er sólskyggni óþægilega
nálægt og baksýnisspegill er heldur
fyrirferðarmikill og truflandi þegar
ökumaður horfír til hægri út um fram-
rúðu. Að öðru leyti fer mjög vel um
ökumann undir stýri á BMW sportbíln-
um og ber sérstaklega að hæla sætun-
um. Sætin í BMW eru með þeim betri,
sérstaklega er bakið stíft og gott.
í BMW 318is er 1800 rúmsenti-
metra, fjögurra strokka, 16 ventla og
140 hestafla vél sem sögð er gefa 213
km hámarkshraða og er 10,2 sekúndur
að knýja bflinn úr kyrrstöðu í 100 km
Morgunblaðið/Rax
BMW 318is sportbíllinn er rennilegur og fæst aðeins tveggja hurða.
hraða. Bíllinn er búinn
fimm gíra handskipt-
ingu, hraðatengdu
vökvastýri, samlæs-
ingum með þjófavöm,
vönduðu útvarpi, raf-
drifnum og upphituð-
um útispeglum, rafl-
æsingu, upphituðu
þvottakerfi fyrir
framrúðu og öku-
ljós,þjónustutölvu og
hæðarstillingu á aðal-
ljósum. Ljós og spegill
eru í sólskyggni bæði
hjá ökumanni og far-
þega í frámsæti og
kviknar ljósið þegar
hlíf er rennt frá spegl-
inum.
Bíllinn er 4,43 m langur, 1,71 m
breiður og 1,36 m hár og hjólhafið er
2,7 metrar. Hann er 1.240 kg að þyngd
og getur borið 460 kg. Bensíneyðsla í
borgarakstri er sögð 10,9 lítrar en fer
niður í 6,4 í jöfnum akstri á 90 km
hraða samkvæmt upplýsingum um-
boðsins.
BMW 318is er verulega skemmtileg-
ur í akstri. Viðbragðið er að vísu ekk-
ert sérstakt, hann þrýstir manni ekki
beint niður í sætið því það er eins og
hann þurfi andartak til að ná sér á
strik. Hins vegar er hann röskur og á
lipur gírskiptingin sinn þátt í því. Sér-
staklega er annar gírinn fjölhæfur.
Vart þarf að skipta lengra upp en í
þriðja gír í borgarumferðinni en á skriði
á þjóðvegi austur fyrir Fjall eða á
Reykjanesbraut er gott að hafa fímmta
gírinn. Bíllinn liggur vel og þótt hann
sé vart gerður til aksturs á íslenskum
malarvegum má hiklaust segja að hann
liggur vel á ósléttum vegum. Þyngdar-
dreifíng er líka hin sama og í öðrum
bflum frá BMW: jöfn á báða öxla. í
jöfnum þjóðvegaakstri líður hann
mjúklega og hljóðlaust áfram og má
því segja að bíllinn sé mjög þægilegur
ferðabíll.
BMW fyrirtækið hefur lagt mikið í
undirbúning og rannsóknir á sportbíln-
um áður en honum var hleypt á mark-
að. Smíðaður var 31 bfll til frumprófun-
ar og síðan 230 til viðbótar og var
þeim ekið þrjár milljónir kflómetra.
Eftir að þeir höfðu verið þrautreyndir
hófst framleiðslan og voru fyrstu 300
bflarnir teknir í enn frekari prófanir
áður en bflnum var hleypt á markað.
BMW 318is kostar staðgreiddur og
kominn á götuna 2.310.000 og á af-
borgunarkjörum 2,4 milljónir. Þetta
verður ekki fjöldasölubíll, tveir eru
þegar seldir og nokkrir til viðbótar
munu seljast á árinu. Enda má segja
að bíllinn þjóni ákveðnum hópi manna
og henti vart eins og fyrr var sagt sem
almennur fjölskyldubíll. ■
Jóhannes Tómasson
BMW318is
er verulega
skemmtileg-
ur í akstri.
Viðbragöið
er að vísu
ekkert sér-
stakt, hann
þrýstir
manni ekki
beint niður i
sætið því
það er eins
og hann
þurfi andar-
tak til að nó
sér ó strik.
Súpersportbíll f rú
McLaren
McLAREN F1 er heitið á nýjum sportbíl, sem kynntur var í byrjun
þessa mánaðar í Monte Carlo, og sannarlega er þar um ofurbíl að
ræða bæði hvað varðar allan búnað og verð. Framleiðandi bílsins
er fyrirtækið McLaren Cars í Englandi, sem þekktast er fyrir vel-
gengni hvað varðar Formúlu 1 kappakstursbíla. Er þetta fyrsti bíll-
inn frá þeim sem ætlaður er á almennan markað, en sala á honum
hefst í lok ársins 1993. Það verður þó síður en svo á allra færi að
eignast bíl af þessu tagi, því verðið er 530 þúsund sterlingspund,
eða um 56 milljónir íslenskra króna.
ar eru svokallaðar mávavængja-
hurðir sem opnast upp á við.
Sala á McLaren F1 hefst í októ-
ber 1993 í Bretlandi, og þegar er
ljóst að kaupendurnir verða ekki
ýkja margir. Það er þó ekki aðeins
verðið á bílnum, 56 milljónir króna,
sem veldur því, heldur einnig það
að einungis verða framleiddir 50
bílar árlega af þessari gerð, enda
allir handsmíðaðir.
ggi Þessi nýi sportbíll hefur hvar-
vetna vakið geysimikla at-
0 hygli, og um þessar mundir
bm er fjallað um hann í öllum
55 helstu bflablöðum í Evrópu. í
5 bflnum er sérstaklega aðlöguð
6,0 lítra, 550 hestafla BMW
mmm VI2 vél, og er hámarkshrað-
inn sem hann nær 350
km/klst, en 100 km hraða nær
hann á aðeins 4 sekúndum. Bíllinn
vegur aðeins 1018 kg, enda er hann
að mestu leyti smíðaðUr úr kolefn-
istrefjaefni, sem eykur bæði á
styrkleika og öryggi, auk þess að
létta bílinn.
Hugmyndina að McLaren F1 á
Gordon Murray, sem gekk til liðs
við McLaren árið 1987, en hun
hafði verið að þróast með honum
frá því upp úr 1960. Hönnuður yfir-
byggingar og innréttingar bílsins
er hins vegar Peter
Stevens, sem áður
hefur hannað Lot-
us Elan og Jaguar
XJR-15. Bíllinn er
4,29 metra langur
og 1,82 metrar á
breidd. Hann er
þriggja sæta, og
situr ökumaðurinn
á milli farþeg-
anna, þannig að
stýrið er fyrir miðj-
um bílnum. Hurðim-