Morgunblaðið - 20.06.1992, Qupperneq 1
,^:s- - 'J&ttwX-sys,* '“'-• ujrnaf-^"
MENMNG
USTIR
UGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992 BLAÐ.
• •
A KJARVALSSTOÐUM
Sýning Listahátíðar á skúlptúrum, teikningum og málverkum spænska listamanns-
ins Joan Míró (1893-1983) á Kjarvalsstöðum hefur verið mjög vel sótt, og bú-
ast forsvarsmenn Kjarvalsstaða við að hún muni slá fyrra aðsóknarmet, en það
var sett á sýningu Errós fyrir nokkrum árum. Verkin á sýningunni koma öll frá
Maeght safninu í Saint-Paul í Suður Frakklandi, þau eru gerð á árunum 1960-1977
og vann Míró mörg þeirra sérstaklega með skúlptúrgarð safnsins í huga. Þá var lista-
maðurinn kominn á efri ár og orðinn viðurkenndur og þekktur fyrir listsköpun sína.
Hann fluttist ungur til Parísar, komst þá í kynni við súrrealistana og varð nátengdur
þeim hópi - þó svo að hann færi ætíð sínar eigin persónulegu leiðir. Verk hans eru
ætíð leidd áfram af frjóu hugmyndaflugi og aldrei er langt í gamsemina og leikinn.