Morgunblaðið - 20.06.1992, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992
LOFTÁRÁS Á SEYÐISFJÖRÐ
DAGSKRÁ
NÆSTU YIKU
Hin óháða iistahátíð Loftárás á Seyðisfjörð stendur
yfir í Reykjavík út næstu viku. Við minnum á myndlist-
arsýningarnar sjö: I Geysishúsinu, Djúpinu, á Lauga-
vegi 22, Kaffi Splitt, í Hlaðvarpanum, Gallerí Bergstöð-
um og Gallerí Ingólfsstræti, en á þessum stöðum gefur
að líta allskyns myndlist, skúlptúra og ljósmyndir og
listamennirnir eru margir í yngri kantinum.
Laugardagur
í Héðinshúsinu hefst kvölddagskrá klukkan 21. Fram
koma ljóðskáldin Gerður Kristný, Úlfhildur Dagsdóttir,
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, Jón Marínó, Guðmundur
Brynjólfsson og Svanhildur Eiríksdóttir, Katrín Ólafsdóttir
dansari og brúður Katrínar Þorvaldsdóttur. Á eftir verða
rokktónleikar.
í MÍR við Vatnsstíg verða sýndar kvikmyndir eftir Ser-
gei Eisenstein; heimildarmynd um leikstjórann og mynd
hans Besin-engið klukkan 17, og Verkfall klukkan 19.
Sunnudagur
í Héðinshúsinu verða fluttir þrír einþáttungar. Orðvana
nefnist einþáttungur eftir Þórunni Magneu Magnúsdóttur
sem hún leikur sjálf, Sigrún Vaibergsdóttir leikstýrir. Ein-
leikur fyrir Hörpu í himnaríki nefnist þátturinn sem Harpa
Amardóttir leikur en hann er eftir Sjón, og Gunnar Helga-
son leikur Óbreyttan mann eftir Hallgrím Helgason. Á
milli einþáttunganna leika Kristín Guðmundsdóttir flautu-
leikari og Einar Kristján Einarsson gítarleikari verk eftir
Stockhausen, Ibert og Atla Heimi Sveinsson. Dagskráin
hefst klukkan 21.
í MÍR verða sýndar kvikmyndir eftir Sergei Eisenstein;
Beitiskipið Potjomkin, klukkan 17, og Október, klukkan 19.
Jasstónleikar hefjast í Djúpinu við Hafnarstæti klukkan
21.30, fram kemur Jasskvartett Kristjónu Stefánsdóttur.
í Fossvogskirkju hefjast Sumarsólstöðutónleikar klukkan
20.30. Vocis Thulis flytja miðalda- og barrokksöngva eftir
Machaute, Jannequin, Sermisy, Orlandus Lassus og Monte-
verdi. Vocis Thulis skipa kontratenórarnir Sverrir Guðjóns-
son og Sigurður Halldórsson, Guðlaugur Viktórsson tenór,
Eggert Pálsson barítón og Ragnar Davíðsson bassi.
Mánudagur
í Gallerí Ingólfsstræti koma fram Mozart-kvartettinn
og sönghópurinn Hljómeyki, og ljóðskáldin Melkorka T.Ól-
afsdóttir, Eiríkur Björgvinsson, Margrét Lóa og Kristján
Þ.Hrafnsson.
Þriðjudagur
í MÍR verður sýnd kvikmyndin Gamalt og nýtt eftir
Sergei Eisenstein, Karl Olgeir Olgeirsson leikur undir á
píanó. Sýningin hefst kiukkan 20.
í Djúpinu hefst tónlistarspuni Loftfélags íslands klukkan
21.
Dagskrá með tón- og ljóðlist hefst í Gallerí Ingólfs-
stræti klukkan 20.30. Sigrún V.Gestsdóttir söngkona og
Einar Kristján Einarsson gítarleikari flytja lútusöngva eft-
ir Dowland og útsetningar á frönskum trúbadorsöngvum
eftir Farkas, Gunnar Kvaran leikur Sellósvítu nr.l í G-dúr
eftir J.S.Bach, og Sigríður Elliðadóttir söngkona og Vil-
helmína Ólafsdóttir píanóleikari flytja íslensk lög eftir Ósk-
ar Guðmundsson, blökkumannasálma, og aríur eftir Ross-
ini, Bizet og Bellini. Einnig lesa ljóðskáldin Jón Stefáns-
son, Þórarinn Torfason, Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Torfi
Ólafsson úr verkum sínum.
Miðvikudagur
í Gallerí Ingólfsstræti hefst dagskrá með tónlist og ljóðl-
ist klukkan 20.30. Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari
flytur tvö af Næturljóðum Chopins og Tunglskinssónötuna
eftir Beethoven, og þverflautuleikararnir Guðrún S. Birgis-
dóttir og Martial Nardeau og Anna Guðný Guðmundsdótt-
ir píanóleikari leika sígaunalög frá Mið-Evrópu eftir ýmsa
höfunda, og Minningar frá Prag eftir Doppler. Einnig koma
fram ljóðskáldin Guðmundur Brynjólfsson, Svanhildur Ei-
ríksdóttir og Þórhallur Guðmundsson.
Sólstöðusýning hefst í Héðinshúsinu klukkan 21; þátt í
henni taka meðal annars fatahönnuðir, textíllistamenn,
tónlistarmenn og Þjóðdansafélag íslands.
í Djúpinu verður leikinn gospeljass og hefjast tónleikarn-
ir klukkan 21.30.
Fimmtudagur
í Héðinshúsinu verður blönduð leiklistardagskrá. Á dag-
skránni eru: Valdimar Öm Flygering; atriði úr Reykjavíkur-
sögum Ástu; P-leikhúsið og Vasaleikhúsið flytja í tilefni
dagsins, einþáttung eftir Þorvald Þorsteinsson, leikendur
eru Aldís Baldvinsdóttir, Erlingur Gíslason, Guðrún Ás-
mundsdóttir, Ingibjörg Björndóttir, Jón Stefán Kristinsson,
Karl Guðmundsson og Ólafur Guðmundsson, um leikmynd
og búninga sér Rósberg Snædal og leikstjóri er Andrés
Sigurvinsson; Þórey Sigþórsdóttir leikur einþáttunginn
Skilaboð til Dimmu eftir Elísabetu Jökulsdóttur, og Bjöm
Ingi Hilmarsson leikari og Ásta Henriksdóttir dansari flytja
„Nei“ ekki ég! eftir Sylviu Von Kospoth, sem jafnframt
er leikstjóri. Dagskráin hefst klukkan 20.
í Gallerí Ingólfsstræti koma fram rokktónlistarmenn og
ljóðskáldin Úlfhildur Dagsdóttir, Sigurgeir Orri Sigurgeirs-
son, Margrét H.Gústavsdóttir og Jón Marínó.
í Djúpinu kemur Jasshljómsveit Jennýar Gunnarsdóttur
fram á tónleikum sem hefjast klukkan 21.30.
í MÍR verður sýnd kvikmynd Sergei Eisensteins, Lifi
Mexíkó, og hefst sýningin klukkan 20.
Föstudagur
Rokktónleikar hefjast í Héðinshúsinu klukkan 20.
Morgunblaðið/Einar J'alur
Leikararnir Gunnar Helgason, Þórunn Magnea Magnúsdóttir og Harpa Arnardóttir ásamt Kristínu Guðmundsdóttur
flautuleikara. £ £
UPPGJOR, DAUÐI
OGINNRA RÖFL!
LEIKHÚSKVÖLDI og tónleikum verður slegið
saman í eitt á hinni óháðu listahátíð Loftárás
á Seyðisfjörð annað kvöld, sunnudagskvöld.
Dagskráin verður í Héðinshúsinu og hefst
klukkan 21. Leiknir verða þrír einþáttungar:
Þórunn Magnea Magnúsdóttir frumflytur eigin
einþáttung sem nefnist Orðvana, Sjón skrifaði
Einleik fyrir Hörpu í himnaríki, sem Harpa
Arnardóttir leikur, og Gunnar Helgason leikur
Óbreyttan mann, eftir Hallgrím Helgason. Á
milli atriðanna leika Kristín Guðmundsdóttir
flautuleikari og Einar Kristján Einarsson gítar-
leikari verk eftir Stockhausen, Ibert og Atla
Heimi Sveinsson.
Einleikur og einþáttungar eru
form sem ekki hafa verið áber-
andi í íslensku leikhúsi, en þó
spreyta nemendur Leiklistarskólans
sig á því, þeir hafa gjaman fengið
rithöfunda til að skrifa fyrir sig og
tvö verkanna sem flutt verða á þessu
leikhúskvöldi eru einmitt þannig til
komin. Þórunn Magnea Magnúsdótt-
ir frumflytur þó eigin einþáttung, og
kallar hann Orðvana.
„Þetta er þáttur um konu sem er
að gera upp ýmsa hluti,“ svarar
Þórunn Magnea þegar hún er spurð
um innihald leiksins, en vill annars
sem minnst láta uppi um innihald
hans. „En þetta er afskaplega
skemmtilegt form, og það má segja
að skyldleiki einþáttungsins við hið
dæmigerða leikhús sé álíka og skyld-
leiki smásögunnar við skáldsöguna."
Sigrún Valbergsdóttir leikstýrir Þór-
unni Magneu í Orðvana og Messíana
Tómasdóttir hjálpaði til með búning-
inn.
„Sjón skrifaði Einleik fyrir Hörpu
í himnaríki fyrir mig þegar ég var í
Leiklistarskólanum,“ segir Harpa
Amardóttir um sinn þátt í sýning-
unni. „Ég frumflutti einleikinn í des-
ember 1988 og þetta verður fjórða
> sýningin!"
Harpa segir að verkið sé um konu
sem er dáin og yngist upp. „Mér
ÞRIR
EINÞÁTTUNGAR
OG TÓNLIST Á
ÓHÁÐRI
LISTAHÁTÍÐ
fínnst einleikurinn vera mjög
skemmtilegt form, form sem hefur
ekki verið notað mikið hér á landi.
En það getur vissulega verið ein-
manalegt." Félagið Augnablik stend-
ur að sýningu Hörpu og einnig að
tónlistarflutningnum milli leikatr-
iðanna.
Síðasti einþáttungurinn nefnist
Óbreyttur maður, Gunnar Helgason
leikur en Hallgrímur Helgason er
höfundurinn: „Hann Gunnar bróður
minn vantaði verkefni þegar hann
var í Leiklistarskólanum og bað mig
um að skrifa eitthvað fyrir sig, ég
var tregur til en ákvað síðan að láta
slag standa. Og það var mjög
skemmtilegt,“ segir rithöfundurinn
og myndlistarmaðurinn Hallgrímur
Helgason. „Þetta er einskonar eintal
sem ég reyndi að hafa í hversdagleg-
um stíl - einhverskonar innra röfl!
Það fjallar um það hvort maður geti
nokkuð breytt sér eða brotist út úr
þeim skorðum sem lífið setur manni.
Síðan brýt ég verkið upp með mið-
kafla í bundnu má!i.“
-efi
AÐGEFA
OG NJÓTA
GUÐRÚN Edda Gunnarsdóttir, mezzósópran, heldur sína fyrstu
söngtónleika á íslandi í Norræna húsinu á mánudagskvöldið, 22.
júní, klukkan 20. Undirleikari á píanó verður Steinunn Birna Ragn-
arsdóttir. Guðrún Edda útskrifaðist með masterspróf frá söngdeild
New England Conservatory of Music í Boston í vor, en þar stund-
aði hún nám í þrjú ár. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Monte-
verdi, Ravel, Crumb, Hjálmar H. Ragnarsson og Atla Heimi Sveins-
son.
Guðrún Edda útskrifaðist frá
Menntaskólanum í Reykjavík
vorið 1986 og hafði þá einnig lagt
stund á píanónám, en byrjaði ekki
að sækja söngtíma fyrr en það
sama ár. Um haustið fékk hún
námsstyrk við Brandeis-háskólann
fyrir utan Boston. „Ég gat í sjálfu