Morgunblaðið - 30.07.1992, Side 3

Morgunblaðið - 30.07.1992, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1992 B 3 Tölvur Reykjavíkurborg vill ^ endurskoða starfsemi SKYRR REYKJAVIKURBORG hefur nýverið sent fjármálaráðherra bréf um að ríkið og borgin skipi hvort um sig fulltrúa til að endurskoða sameignarsamninginn um rekstur og stofnun SKÝRR frá árinu 1962, að sögn borgarstjóra Markúsar Arnar Antonssonar. Hann segir full- komlega ástæðulaust fyrir SKÝRR að stunda hugbúnaðargerð og ýmiskonar verkefni í stífri samkeppni við önnur fyrirtæki á mark- aði. Forsljóri SKÝRR, Jón Þór Þórhallsson, segir að þar sem fyrirtæk- ið verði 40 ára á þessu ári sé eðlilegt að við þessi tímamót skoði eigendurnir hug sinn um fyrirtækið. Hann segir þó að fara þurfi varlega í því að breyta starfsemi fyrirtækisins t.d. með því að gera SKÝRR að einkafyrirtæki. Reksturinn sé mjög margslunginn og hafa þurfi öryggissjónarmið ofarlega í huga. Ekki var hægt að fá upplýsingar frá fjármálaráðuneytinu í gær. Borgarstjóri segir að í bréfinu til fjármálaráðherra hafi það komið í ljós að það komi til álita hjá Reýkja- víkurborg að breyta rekstrarformi SKÝRR. Reykjavíkurborg hafí átt viðræður við fulltrúa fjármálaráðu- neytisins í vetur þar sem fór fram umræða um starfsemi SKÝRR. Þar hafi m.a. verið rætt um aukin um- svif fyrirtækisins og samkeppni þess við einkafyrirtæki um hugbún- aðargerð á almennum markaði. Fateignir Flugleið- ir í hús- næðisleit TIL athugunar er hjá Þýsk- íslenska hf. að selja húsnæðið að Álfabakka 16 í Mjódd þar sem aðalskrifstofa Úrvals- Útsýnar hf. er til húsa. Flug- leiðir hf. hafa Húsnæðið sem er um 1.300 fm til leigu út næsta ár. Um áramótin rennur einnig út leigusamningur Flugleiða vegna húsnæðis söluskrifstofunnar i Lækjar- götu, og hefur félagið þess vegna verið að leita fyrir sér um nýtt húsnæði á miðbæjar- svæðinu. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, stað- festi að félagið hefði m.a. átt í viðræðum við Landsbankann um kaup á húsinu Laugavegi 7 þar sem Vegamótaútibúið er til húsa, en ekki er séð fyr- ir endann á því máli. Ómar Kristinsson __ fram- kvæmdastjóri Þýsk-íslenska sagði í samtali að engar ákvárð- anir hafi verið teknar um sölu. Fyrirtækið ætti margar fasteign- ir vítt og breitt um borgina en núna væri margt betra en að binda fé í fasteignum. Hörður Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar hf. sagði að ef húsnæðið yrði selt þyrfti að hefjast handa við að finna nýtt framtíðarhúsnæði fyrir aðalskrifstofuna. Á meðan leigusamningurinn er í gildi eru engin áform 'um að flytja. “Hörð- ur sagði að það væri langtíma- markmið að færa starfsemina meira saman og ef flytja þyrfti aðalskrifstofuna yrðu allir mögu- leikar skoðaðir. Ekki hefur kom- ið til tals að kaupa húsnæðið í Mjóddinni.____________________ „Þar fyrir utan hafa verið sí- minnkandi viðskipti fyrirtækja borgarinnar og Reykjavíkurborgar sjálfrar við Skýrsluvélar með tölvu- væðingunni. Ýmislegt hefur verið að breytast í tímans rás sem ástæða er til að taka upp til endurskoðun- ar. Það eru án efa vissir þættir í starfsemi SKÝRR sem eðlilegra væri að einkafyrirtækin stunduðu og þetta opinbera fyrirtæki væri ekki í samkeppni við þau um. Hins vegar hefur verið bent á að það sé hagræði fyrir ríkið og borgina að vinna stór verkefni líkt og keyrslu launamiða hjá SKÝRR þar sem til þess þurfi mikla afkastagetu líkt og þar er. Svo er ýmislegt annað sem eðlilegt er að þetta fyrirtæki vinni {.“ Aðspurður um hvort Reykjavík- urborg hyggðist selja hlut sinn í SKÝRR eða breyta starfsemi fyrir- tækisins sagði borgarstjóri að það myndi koma fram hjá þeim fulltrú- um sem skipaðir verði í nefndina. •T L Blójnasalu'r Rómaður matseðill, frábœr þjónusta og glæsilegur salur gera tilefni dagsins ógleymanlegt. FLUGLEIÐIR HlðVKIL ILMHIUiGllllK Boröapantanir í síma (91) 22321. Námsmenn fá afslátt BÚNAÐARBANKI íslands og Samskip hf. hafa gert samkomu- lag um að meðlimir Námsmanna- línu Búnaðarbankans fái 5% af- slátt af sjóflutningsgjaldi búslóða. Að sögn Kristjáns Pálssonar hjá Samskipum ætti afslátturinn að vera meðlimum Námsmannalínunnar kærkominn búbót þar sem sjóflutn- ingsgjaldið er iðulega stærsti hluti kostnaðar við flutning á búslóðum. N þarft ehhi að missa oj dríðandi jímtoli þótt þú sért upptehinn Það getur verið erfitt að ná í sumt fólk. Það er á þönum út um allan bæ í leik og starfi þar sem enginn sími er. Þetta vandamál er auðleyst með Boðkerfi Pósts og síma. Þú hringir bara í boðtæki þess sem þú vilt ná sambandi við og á boðtækinu sér viðkomandi í hvaða símanúmer hægt er að ná í þig. Einfalt, ekki satt? Kynntu þér kosti Boðkerfisins hjá söludeildum Pósts og síma og hjá öðrum seljendum boðtækja. PÓSTUR OG SÍMI Viö spörum þér sporiti BOÐKERFI PÓSTS OG SÍMA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.