Morgunblaðið - 30.07.1992, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ YIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1992
B 7
IMewton — stafræni einkaþjónninn frá Apple, er með ARM 610
RlSC-örgjörvann til að ráða við skrifskynjun.
verð á Newton USD 1.000 eða um
56.000 kr., en þar er frekar litið
á hana sem neytendavöru en skrif-
stofutæki.
Fistölvur í stað borðtölva
Nýjustu fistölvurnar (notebook)
og ferðatölvurnar (laptop) eru
orðnar viðráðanlegar í verði, heil-
stæðari og jafn öflugar og venju-
legar borðtölvur. Þær eru ekki
lengur stöðutákn eða leikfang og
eru í síauknum mæli að verða verð-
ugur kostur í tölvuvæðingu. Og
nú hillir í það að þær komi í stað-
inn fyrir gömlu góðu borðtölvuna.
Það er orðið æ algengara að sjá
fólk ferðast um með litla fistölvu.
Um daginn sýndi kunningi minn
mér PowerBook tölvu, sem hann
var nýbúinn að fá sér. Þetta er 25
MHz tölva, sem búin er öllum þeim
þægindum, sem hugsast getur.
Tengja má við hana mótald, hljóð-
nema, heymatæki og margt fleira.
Með sérstökum hugbúnaði er hægt
að keyra bæði DOS-hugbúnað og
Macintosh-hugbúnað og það jafn-
vel samtímis. Getur einhver beðið
um meira? Jú, lágt verð. Og það
er líka í boði.
Philippe Kahn stofnandi og
stjómandi Borland hugbúnaðarfyr-
irtækisins er alltaf með litla ferða-
tölvu hjá sér hvert sem hann fer.
Hann er nefnilega búinn að upp-
götva hvað hann getur sparað mik-
inn tíma með því að nýta sér nýj-
ustu tækni. Og þessi nýjasta tækni
er farsími, lítill prentari og ferða-
tölva. Auk þess er hann búinn
verkfærasetti til að tengja þennan
búnað við símkerfi þess hótels, sem
hann er staddur á hverju sinni.
Philippe Kahn notar tölvupóst til
að senda boð til starfsmanna sinna
og þá skiptir ekki máli hvort hann
er í París, New York eða Auckland
á Nýja-Sjálandi eða þess vegna í
einhverri fjallaferð í nágrenni
heimilis síns. Það eina, sem hann
þarf til að tengjast fyrirtæki sínu,
er sími og farsíminn gerir honum
kleift að hringja hvaðan sem er
hvenær sem er. Einu sinni stjóm-
aði hann Borland fyrirtækinu á
þennan máta á meðan hann tók
þátt í siglingakeppni milli San
Francisco og Hawaii.
Mismunandi hlutverk
Lófastóm einkaþjónamir hafa
þegar náð góðri útbreiðslu. Þekkt-
astur er líklegast Wizard frá
Sharp. Wizard er dagbókarkerfí,
sem á að auðvelda notandanum
að muna eftir fundum og halda
utan um hugmyndir og athuga-
semdir svo eitthvað sé nefnt. Hlut-
verk Wizards er takmarkað, en
hann skilar því vel, eins langt og
það nær.
95LX frá Hewlett-Packard er
dæmi um tölvu, sem einnig er
ætlað takmarkað hlutverk. Hug-
myndin að baki 95LX er að leyfa
notandanum að keyra eitt eða tvö
forrit á tölvunni, þegar hann þarf
að bregða sér af bæ. Þannig gæti
notandinn kosið að hafa töflureikni
og ritvinnslu með sér, en látið aðra
vinnu bíða þar til ferðalagið er á
enda. Kosturinn við þetta er fyrst
og fremst að losna við að hafa
með sér nokkurra kílóa ferðatölvu.
Bækur í tölvutæku formi, er enn
ein hliðin á litlu stafrænu einka-
þjónunum. Með slíkt tæki í fartesk-
Fyrirtæki
Polygram verð-
meira en móður-
félagið Philips
Á DÖGUNUM urðu þau tíðindi að Polygram, dótturfélag hins
hollenska Philips Electronics NV, varð á skráðu markaðsverði
á hlutabréfamarkaði verðmeira en móðurfélagið.
Óvænt lækkun á verði hluta-
bréfa í Philips varð til þess að
heildarverðmæti félagsins lækk-
aði og varð örlítið lægra en í
Polygram sem Philips á 80% hlut
í. Svo skemmtilega vill einnig til
að helsta starfssvið Polygram
er sala geisladiska en Philips
varð einmitt fyrst til þess að
hefja framleiðslu og sölu geisla-
spilara.
Eftir lækkunina er heildar-
markaðsvirði Philips um 5 millj-
arðar dollara en heildarvirði Pol-
ygram er nú um 5,2 milljarðar
dollara. Sérfræðingar telja þessa
stöðu vera tímanna tákn. Nú séu
kreppuþjáðir neytendur ánægð-
ari með að fjárfesta í geisladisk-
um en í vélbúnaði svo sem geisla-
spilurum.
Síðastliðin tvö ár hafa verið
Philips erfið. Félagið hefur bar-
ist við að ná sér upp úr lægð
þar sem hagnaður hefur verið
lítill eða enginn. Aftur á móti
hefur gengi Polygram verið gott.
Á síðasta ári voru um 11% veltu
Philips komin frá Polygram, en
um þriðjungur hagnaðar.
Að sögn sérfræðinga hefur
þessi einkennilega staða þó eng-
in áhrif á hugsanlegt gengi
hlutabréfa félaganna í framtíð-
inni. Þeir benda ennfremur á að
til langs tíma litið geti hluthafar
Philips verið ánægðir með
hversu vel hefur tekist til með
fjárfestingar félagsins.
inu, gæti notandinn haft við hönd-
ina heila alfræðiorðabók, sem færi
lítið meira fyrir en seðlaveski. Hið
tölvutæka form auðveldar líka alla
leit að upplýsingum. Microsoft og
Sony eru að vinna að tæki, sem
er kallað BookMan, fyrir margm-
iðlun. Þannig getur notandinn ekki
bara lesið upplýsingarnar, heldur
bætist við myndræn og munnleg
framsetning.
Hingað til hefur ummál
geymslurýmis verið mest takmark-
andi þáttur í þróun lítilla tölva.
En með tilkomu 3,5 tommu (þ.e.
9 sm) harðra diska náðu fístölvum-
ar fótfestu. Nýlega kynnti Hew-
lett-Packard tölvufyrirtækið 1,3
tommu (3,5 sm) harðan disk og
nú er bara að sjá hvernig markað-
urinn bregst við.
Talið er að heildarmarkaður fyr-
ir svona meðfærilegar tölvur verði
eftir 5 ár um 2.400 milljarðar krón-
ur. Það skiptir því miklu máli að
vera fyrstur með réttu tölvuna.
Newton frá Apple lofar góðu og
bíð ég spenntur eftir framhaldinu.
Höfundur er tölvunarfræðingur.
QQ
XX
ISLAND
NORÐUR - AMERÍKA
Forysta í Ameríkuflutningum
Reynsla og forysta EIMSKIPS í vöruflutningum milli íslands og
Ameríku ó sér óratuga lang'a sögu. Félagiö siglir nú ó tveggja
vikna fresti til 5 hafna í Noröur - Ameríku. Tíöni feröa og fjöldi
viðkomuhafna samfara sérþekkingu og reynslu starfsmanna ö
skrifstofu félagsins í Norfolk gerir þaö aö verkum aö EIMSKIP er vel
í stakk búiö til að sinna öllum flutningaþörfum viöskiptavina sinna
- þarfir þeirra eru þarfir okkar!
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ