Morgunblaðið - 07.08.1992, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ Q99 BARCELONA ’92 FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992
Barcelona ’92
■ ÞETTA eru þriðju Ólympíuleik-
amir sem Einar Vilhjálmsson tekur
þátt í, og þeir síðustu. En hann seg-
ist ætla að verða með á næsta keppn-
istímabili, taka þátt í heimsmeistara-
mótinu í Stuttgart og stigamótum
Alþjóðafijálsíþróttasambandsins.
■ SIGURÐUR Einarsson og Stef-
án Jóhannsson, þjálfari, dvöidu allt
þar til í fyrradag í smábænum Lla
Franch, 110 km norðan við Barcel-
ona; höfðu verið þar allar götur síð-
an þeir komu utan 17. júlí.
■ HÓTELSTJÓRINN sem þeir
dvöldu hjá keyrði þá á æfingar í
byijun, eins og áður hefur komið
fram í Morgunblaðinu. Stefán fékk
fréttina senda á faxi og hótelstjórinn
var svo ánægður að fréttin var hengd
upp á vegg, síðan rétti hann Stefáni
lyklana að bílnum sínum og sagði
að hann gæti notað hann að vild!
■ CARL Lewis faðmaði Mike
Marsh að sér eftir að sá síðamefndi
hafði sigrað í 200 metra hlaupinu.
Lewis sigraði í greininni á Ólympíu-
leikunum í Los Angeles 1984 og
fékk silfrið í Seoul fyrir fjóram áram,
en tókst ekki að tryggja sér keppnis-
rétt að þessu sinni.
■ GWEN Torrence var nær metra
á undan Juliet Cuthbert í mark í
200 metra hlaupi kvenna. „Ég sá
þær rétt við hliðina á mér, en réð
ekkert við handleggina, sem risu
ósjálfrátt til himins, þegar ég flaug
yfír marklínuna."
■ MERLENE Ottey var ánægð
með bronsið. „Ég stóð mig vel, en
það eru alltaf gerðar svo miklar
væntingar til mín.“
■ ÞRIR gullverðiaunahafar í gær
era allir í sama íþróttafélaginu,
Santa Monika. Þetta era Mike
Marsh, Carl Lewis og Kevin
Young.
■ MATTHEW Yates og Kevin
McKay frá Bretlandi tókst ekki að
tryggja sér sæti í úrslitum 1.500
metra hlaupsins, sem verða á morg-
un. Í gegnum tíðina hefur sérstakur
frægðarljómi verið yfír þessari grein,
en í fyrsta sinn síðan 1960 verður
enginn Breti í úrslitum.
■ GENNARO Di Napoli frá ítal-
íu, sem átti fímmta besta tímann í
1.500 metra hlaupi á árinu, komst
heldur ekki í úrslit — varð sjötti í
sínum riðli.
■ ANGELA Chalmers frá
Kanada, sem vann til bronsverð-
launa í 3.000 metra hlaupi, komst
ekki í úrslit í 1.500 metra hlaupi
kvenna — varð sjötta í riðlinum.
■ KRISS Akabusi frá Bretlandi
sem varð þriðji í 400 metra grinda-
hlaupinu í gær skrifar sjaldnast fullt
nafn sitt en það er Kriss Kezie
Uche Chukwu Durur-Akabusi.
■ BRETAR urðu Ólympíumeist-
arar í kylfuknattleik fyrir fjórum
áram, en urðu nú að sætta sig við
sjötta sætið og missa því af meistara-
keppni sex bestu liða í Kuala Lump-
ur á næsta ári — Malaysia er sjötta
Sóðin sem gestgjafi..
I INDVERJAR, sem státa af átta
gullverðlaunum í greininni, máttu
sætta sig við sjöunda sætið.
■ INDLAND tók fyrst þátt í kylfu-
knattleik á Ólympíuleikunum 1920,
sigraði og hélt sigurgöngunni áfram
þar til 1960, en þá stöðvaði Pakistan
stórveldið í úrslitum.
■ MESTA áfall Indlands í kylfu-
knattleik var í Montreal 1976, þegar
liðið varð í 12. og neðsta sæti.
Landsliðið hefur haft 10 þjálfara á
síðustu 10 árum og kvartar undan
óstöðugleika.
■ BRUCE Baumgartner frá
Bandaríkjunum tryggði sér önnur
ólympíugullverðlaun í þungavigt
grísk-rómverskrar glímu í gær. Hann
sigraði í Los Angeles og fékk silfur
í Seoul fyrir fjórum árum og er eini
bandaríski glímumaðurinn, sem hef-
ur unnið til þrennra verðlauna á
Ólympíuleikum.
LYFJAMISNOTKUN
Krabbe sparkað út í ystu
myrkur og þjálfarinn kærður
THOMAS Springstein, þjálfari hjá íþróttafélagi Neubrandenburg-
ar í Þýskalandi, sagði í gær að hann hefði keypt astmalyfið clenb-
uterol á svörtum markaði án samráðs við rétta aðila og látið
Katrínu Krabbe og stöllur hennar neyta þess. Þjálfarinn hefur
þegar verið kærður til dómstóla fyrir brot á lyfjalögum og að
valda líkamstjóni á hlaupadrottningunum, en þeim hefur verið
sparkað út í ysta myrkur.
mynd um að stúlkumar tækju lyfið.
„Thomas Springstein kom til mín og
spurði hvort clenbuterol væri á bann-
lista og ég sagði svo ekki vera. Önn-
ur afskipti hafði ég ekki.“
íþróttafélag Neubrandenburgar
hefur stutt Krabbe í einu og öllu og
ávallt staðið á bak við hana, sagt
hana saklausa af lyfjamisnotkun, en
stjómarmaður félagsins sagði að nú
ætti hlaupadrottningih fjögurra ára
keppnisbann yfír höfði sér. Hann
sagði ennfremur að samningur
Springsteins rynni út um næstu
mánaðarmót og yrði sennilega ekki
endurnýjaður og auk þess yrði öllum
auglýsingasamningum Krabbe vænt-
anlega rift.
Talsmaður borgarinnar sagði að
borgin og íbúarnir hefðu lengi stutt
Krabbe og stöllur hennar, „en nú
hafa þær valdið okkur miklum von-
brigðum. Krabbe ætti ekki að láta
sjá sig oftar í Neubrandenburg."
Bernd Sehmisch, saksóknari í
Neubrandenburg, heimabæ
Krabbe, sagði að rannsókn væri haf-
in á aðgerðum Springsteins eftir að
ónafngreindir borgarar hefðu kært
hann fyrir að láta hlaupakonumar
taka clenbuterol og sagt þeim að um
getnaðarvamarlyf væri að ræða.
„Ef þessar ákærar reynast á rök-
um reistar getur verið um líkamstjón
að ræða,“ sagði Sehmisch og bætti
við að hugsanlega myndi rannsóknin
einnig ná til Bodo Seidel, sem er
læknir Krabbe og Breuer, og einnig
hlauparanna.
Springstein sagðist hafa látið
stúlkumar fá lyfið „til að styrkja þær
fyrir keppni eftir Ólympíuleikana,“
og ekki gert sér grein fyrir að það
væri á bannlista. „Mistök mfn felast
í því að hafa ekki aflað mér ná-
kvæmra upplýsinga hjá réttum aðil-
um.“
Seidel sagðist ekki hafa haft hug-
íþróttafólk afsakar sig með þekkingarleysi:
Allir þekkja
áhrif tískulyfeins
Astmalyfið Clenbuterol er um
þessar mundir tískulyfíð á
meðal íþróttafólks, sem fer út fyrir
ramma laganna og notar lyf á bann-
lista til að auka vöðvamassa, styrk
og snerpu. íþróttamenn, sem hafa
verið ásakaðir um neyslu lyfsins,
segjast hafa gert það í góðri trú og
talið að það væri ekki á bannlista, en
í útbreiddri handbók um anabólíska
stera er umfjöllun um umrætt lyf
sérstaklega áberandi og helsti sér-
fræðingur læknanefndar Alþjóða
ólympíunefndarinnar, IOC, segir að
allir í afreksíþróttum þekki það og
áhrif þess.
Leiðbeiningaritið Neðanjarðar
sterahandbókin 11 er gefíð út í Banda-
ríkjunum og í endurbættri útgáfu,
sem kom út fyrr á árinu, eru tveir
kaflar á 14 blaðsíðum um astmalyfíð
clenbuterol. Það er skráð í Þýska-
landi og á Spáni, þar sem hægt er
að fá það samkvæmt lyfseðli vegna
astma, en bannað víða eins og í
Bandaríkjunum, Bretlandi og Belgíu
vegna áhrifa þess á vöðvauppbygg-
ingu. Óreglulegur hjartsláttur, geð-
sveiflur og krampaflog eru á meðal
hliðarverkana.
„Tilgangurinn með útgáfu bókar-
innar er að reyna að aðstoða kepp-
endur við að svindla," sagði ónefndur
sérfræðingur í misnotkun lyfja á
meðal íþróttamanna við Reuter
fréttastofuna. „Greinilegt er að
íþróttafólk hefur haldið að lyfið
[clenbuterol] kæmi ekki fram í lyfja-
prófí.“ Hann sagði ennfremur að
bókin væri útbreidd á meðal líkams-
ræktarfólks og íþróttafólks, sem not-
aði anabölíska stera.
Manfred Donike, sem rekur virta
lyfjarannsóknarstofu í Köln í Þýska-
landi og er helsti sérfræðingur í
læknanefnd IOC, segir að clenbute-
rol geti aukið vöðvamassa um 30%.
„Efnið hefur steraáhrif, jafnvel í litl-
um skömmtum, og allir í afreks-
íþróttum þekkja efnið og áhrif þess.“
msL
Svindlarar ráða ráðum sínum. Springstein þjálfari er lengst til hægri, Krabbe
í miðjunni og Breuer til vinstri.
Svartur skuggi
í Barcelona
Lyfjamisnptkun hefur sett svip
sinn á Ólympíuleikana í Barc-
elona. Þrír íþróttamenn hafa fallið
í keppni, en meðan á leikunum
hefur staðið hafa jákvæð sýni úr
lyfjaprófum teknum skömmu fyrir
setningu leikanna komið fram.
„Lyfjamisnotkun er ekki vandamál
í fijálsíþróttum," sagði Primo Ne-
biolo, formaður Alþjóða fijáls-
íþróttasambandsins. „Lyfjami-
snotkun er vandamál í öllum grein-
um.“
Kanadíski spretthlauparinn Ben
Johnson sagðist hafa vérið blóra-
böggull á Ólympíuleikunum í Seoul
fyrir fjórum áram og lét hafa eftir
sér að engin keppni væri í fijáls-
íþróttum ef allir væru undir sömu
smásjá og hann. Franska stúlkan
Marie-Jose Perec tók í svipaðan
streng eftir að hafa náð fímmta
besta tíma í sögunni í 400 metra
hlaupi, 48,83, og tryggt sér ólymp-
íugullið. Hún sagði að árangúr sinn
væri betri en heimsmet Maritu
Koch frá fyrram Austur-Þýska-
landi, 47,60 árið 1985.
„47,60 telur ekki. Besti árangur
í heiminum er sá sem ég náði. Ég
hef aldrei þurft að grípa til lyfja í
undirbúningnum. Það sem ég gerði
var vegna eigin verðleika á heil-
brigðan og einfaldan hátt. Hvað
hafa margar stúlkur hlaupið undir
48 og jafnvel undir 48,5 síðan stöð-
ugu lyfjaeftirliti var komið á? Ekki
margar. Mér þætti gaman að fá
skýringu á því. Þetta er fyrir ofan
minn skilning."
Nei, segi ekki orð!
Olivia Auta Sana, 21s árs stúlka í handboltaliði Nígeríu, kom grát-
andi frá herbergi lyfjaeftirlitsmanna í gærkvöldi, en neitaði að tjá
sig. „Við bíðum eftir niðurstöðum," sagði annar fylgdarmanna hennar,
en hinn greip frammí: „Segðu ekki orð!“ Þeir neituðu að skýra frá hvers
vegna þeir hefðu verið kallaðir á fundinn og fengu lögreglu til að fylgja sér
í burtu.
Þegar lyfjaeftirlitsmennirnir voru beðnir um svar neitaði einn að svara,
en annar sagði: „Spyijið læknanefndina!"
Nígería tapaði öllum leikjunum í riðlakeppninni og varð í neðsta sæti
riðilsins.
SPJOTKAST
Yrði mikill persónulegur sigur
að komast í 12 manna úrslit
- segir Einar Vilhjálmsson, en hann og Sigurður Einarsson keppa í spjótkastinu í dag
Spjótkastararnir Einar Vil-
hjálmsson og Sigurður Einars-
son verða í sviðsljósinu í dag, þeg-
ar undankeppnir. í grein þeirra fer
fram á ólympíu-
leikunum. Hver
keppandi fær mest
þrjú köst til að
koma sér í úrslita-
keppnina, sem fram fer á morgun.
Til að komast áfram verða menn
að kasta að minnsta kosti 80 metra.
Skapti
Hallgrímsson
'skntar fré
Barœlona
„Þetta verður spuming um hvað
hinir verða góðir. Það koma engir
tíu metrar frá mér í viðbót. Það sem
ég hef gert ( ár er betra en ég átti
von á,“ sagði Einar Vilhjálmsson í
samtali við Morgunblaðið, en hann
meiddist sém kunnugt er mjög illa
á hné í fyrra. Einar sagði það ekk-
ert launungarmál að markmið sitt
hér væri að komast í 12 manna
úrslitin. „Ef það tækist yrði það
mikill persónulegur sigur fyrir mig,
eins og það var reyndar að komast
hingað. Ég er ekki kominn hingað
til að leika mér - hef meira stolt
fyrir hðnd fslenska fánans en það.
Og ef ég tryði því ekki að mér
tækist að komast í úrslitin myndi
ég ekki mæta.“
Kastaramir tveir hafa einungis
verið á léttum æfíngum síðustu vik-
una, „en gekk vel á þeim tækniæf-
ingum sem þeir fóru á fyrir viku,“
sagði Stefán Jóhannsson, þjálfari,
við Morgunblaðið í gær. „Þeir era
báðir í mjög góðri æfíngu og hafa
mikla reynslu, en það er alltaf dags-
formið sem ræður því hvað menn
gera hveiju sinni. En ég er bjart-
sýnn á að þetta gangi upp hjá þeim.
Stefnan hefur verið tekin á að kasta
80 metra og koma sér áfram í úr-
slitin.“
Sjá nánar f B10