Morgunblaðið - 11.09.1992, Side 4

Morgunblaðið - 11.09.1992, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992 Hundrað tonn af rækju keypt hSíáfe- frá Kanada til Olafsvíkur Fiskmarkaður Breiðafjarðar og Fiskafurðir fá 600 tonn af Rússaþorski FISKVERKUN Guðmundar Tr. Sigurðssonar í Ólafsvík hefur keypt 100 tonn af rækju frá Kanada til að tryggja Fiskverkuninni hrá- efni. Verðið er lægra en landssambandsverð á rækju hér. Þá fá Fiskmarkaður Breiðafjarðar hf. og Fiskafurðir hf. í Reykjavík 600 tonn af heilfrystum og hausuðum þorski úr rússneskum togara um mánaðamótin og aflanum verður trúlega iandað á Seyðisfirði. Greitt er fyrir Kanadarækjuna og Rússaþorskinn í dollurum og þar sem dollarinn hefur verið lágur undanfarið er verðið hagstætt. „Þessi rækja, sem við kaupum, er veidd við Nova Scotia í Kanada og kemur með næsta skipi þaðan,“ segir Sæmundur Árelíusson hjá Fiskverkun Guðmundar Tr. Sig- urðssonar. Hann segir að Kanada- rækjan sé svipuð og íslenska rækj- an, eða 200 stykki í kílói. „Okkur vantar starfsfólk," segir Sæmund- ur. „Við vorum með allt að 50 manns í vinnu í sumar en nú starfa hér 30 manns og ekkert hefur kom- ið út úr því að auglýsa eftir starfs- VEÐUR fólki í dagblöðum, þrátt fyrir at- vinnuleysi annars staðar. íslending- ar virðast ekki vilja vinna í fiski og því sé ég ekki annað en að við þurfum að fá útlendinga í vinnu.“ Fiskmarkaður Breiðafjarðar og Fiskafurðir fengu nokkra tugi tonna af þorski úr rússneskum tog- ata í síðari hluta júlímánaðar sl. og 250 tonn úr öðrum rússneskum togara um miðjan ágúst. „Tilgang- urinn með þessum kaupum er að vega upp á móti minni þorskafla hér. Rússarnir veiða þorskinn í Barentshafí og við getum trúlega fengið eins mikið af honum og við viljum. Norðmenn hafa t.d. keypt 70 þúsund tonn af Rússaþorski í ár. Við greiðum 1.900 dollara fyrir tonnið, eða 99 krónur kílóið, en verðið er samningsatriði hverju sinni,“ segir Tryggvi Ottósson framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar Breiðafjarðar hf. „Við tökum mun lægri þóknun fyrir að selja þennan þorsk en físk, sem fer í gegnum markaðinn,“ full- yrðir Tryggvi. Hann upplýsir að t.d. Fiskverkun Guðmundar Tr. Sig- urðssonar í Ólafsvík, Dvergasteinn hf. á Seyðisfirði, Árnes hf. og Tangi hf. á Vopnafirði kaupi að öllum lík- indum hluta af farminum, sem Rússar landa á Seyðisfirði um mán- aðamótin, en Tangi hf. keypti ný- IDAGkl. 12.00 Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspó kl. 16.15 í gœr) VEÐURHORFURIDAG, 11. SEPTEMBER YRRLIT: Skammt norðaustur af landinu er kyrrstæð 990 mb lægð sem grynnist en yfir Norður-Grænlandi er 1.020 mb hæð. Við vestanverðar Bretlandseyjar er vaxandi lægðasvæði sem hreyfist norður. Hiti breytist fremur lítið. SPÁ: Norðan- og norðaustanátt, víðast gola eða kaldi. Skúrir eða slyddu- él verða norðanlands en sunnanlands verður víða léttskýjað. Svalt verður í veðri. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðan- og norðvestanátt, sums staðar nokkuð hvöss. Rigning á láglendi norðanlands en slydda eða snjókoma til fjalla. Sunnantil verður þurrt en yfirleitt skýjað. Svalt verður í veðri og hætt við næturfrosti. Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600. -D Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað r r r r r r r r Rigning * / * * r r * r Slydda * * * * * * * * Snjókoma Alskýjað m t * V V V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld . = Þoka FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Allir aðal þjóðvegir landsins eru nú greiðfærir. Á norðanverðum Vestfjörð- um er hálka á heiðum. Nokkrir hálendisfjallvegir eru orðnir ófærir vegna snjóa eins og Sprengisandsleið, Kverkfjallaleíð, Snæfellsleið og Dyngju- fjallaleið. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91- 631500 og á grænni línu 99-6315. Vegagerðin. / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 8 skýjaft Reykjavík 6 úrkomaígrennd Bergen 14 skýjaft Helslnki 15 . alskýjaft Kaupmannahöfn 18 skýjað Narssarssuaq 3 hálfskýjaft Nuuk 3 skýjað Ósló 17 skýjaft Stokkhólmur 16 skýjaft Þórshöfn 9 alskýjaö Algarve 22 heiðsklrt Amsterdam 19 léttskýjaft Barcelona 23 mistur Berlín 20 léttskýjaft Chicago 12 skýjaft Feneyjar vantar Frankfurt 17 skýjaö Glasgow 15 alskýjað Hamborg 19 léttskýjað London 19 skýjað Los Angeles 18 alskýjaö Lúxemborg 19 hátfskýjað Madríd 26 léttskýjað Malaga 26 mistur Mallorca 28 skýjaft Montreal 20 léttskýjað NewYork 24 þokumóða Orlando 24 léttskýjaft Parfs 21 skýjað Madeira 22 léttskýjað Róm vantar Vín 21 heiftskfrt Washington 23 hálfskýjaft Winnipeg 4 léttskýjað lega rúm 70 tonn af Rússaþorski í gegnum aðra aðila. „Fiskverkun Guðmundar Tr. Sigurðssonar, Ár- nes, Bylgja í Ólafsvík, Vogar í Keflavík og Fiskanaust hafa fengið Rússaþorsk í gegnum okkur og Fiskafurðir," segir Tryggvi. „Fyrsti farmurinn, sem fengum af Rússaþorski í sumar, reyndist óhentugur og hluti af honum fór héðan til Kanada. Annar farmurinn var hins vegar af betur útbúnu skipi, sem var með góðan þorsk, og við ætlum eingöngu að skipta við slík skip. Meðalþyngd þorsksins er 2,5 kíló en hann er frá 1,5 kíló- um upp í 3,5 kíló og þessi stærð er heppileg fyrir íslenska fisk- vinnslu. Þegar rússnesk fískiskip landa afla sínum hér skapast einnig möguleiki fyrir íslensk fyrirtæki að selja þeim vörur og þjónustu. Rúss- ar hafa t.d. greitt fyrir slíkt með físki í Noregi og Færeyjum.“ Annar rússneskur frystitogari á leiðinni með 200 tonn af þorski til Austfjarða Annar rússneskur frystitogari er nú á siglingu hingað til lands úr Barentshafi með 200 tonn af þorski sem seld hafa verið nokkrum aðilum á Austfjörðum. Sem kunnugt er af fréttum Morgunblaðsins landaði rússneskur frystitogari 70 tonnum á Vopnafirði í þessari viku hjá Tanga hf. Eyþór Ölafsson sem hef- ur haft milligöngu. um þessi við- skipti segir að þau séu enn á til- raunastiginu en fleiri landanir rúss- neskra togara hérlendis eru í far- vatninu. Aflinn sem rússneski togarinn landar nú er hausskorinn og sjó- frystur þorskur og er verðið á hon- um í kringum 100 krónur á kg. Eyþór Ólafsson er fulltrúi fyrir þýsk/rússneska útgerð og físk- vinnslu sem gerir út togarann en hann á að landa afla sínum í næstu viku. „Menn mega ekki vera of bjart- synir um þessi viðskipti því Rúss- arnir hafa ekki ýkja mikinn áhuga á þeim enn sem komið er,“ segir Eyþór. „Bæði er það töluvert óhag- ræði fyrir þá að landa hér því að- föng og olía eru dýrari en þeir geta fengið annarsstaðar og svo er tölu- vert löng sigling hingað frá miðun- um í Barentshafi eða fjórir til sjö dagar.“ lensku blómkáli UPPSKERUBRESTUR er nú á íslensku blómkáli vegna lélegs veðurfars bæði í sumar og nú í byijun^ september. Að sögn Kol- beins Ágústssonar hjá Sölufélagi garðyrkjubænda er um að ræða gífurlegt fjárhagstap fyrir bænd- ur. í samtali við Kolbein kom fram að innflutningur sé að hefjast á erlendu blómkáli vegna þessa uppskeru- brests og má búast við að lítið verði til af blómkáli í verslunum fram á seinnipart þriðjudags. Kolbeinn gerði ráð fyrir að engin blómkáls- uppskera kæmi frá bændum næstu tvær vikurnar og ef veðurfar færi ekki hlýnandi myndi að öllum líkind- um ekkert koma meira frá þeim. Hann sagði að mikill munur væri á blómkálsuppskerunni núna og á síð- asta ári en þá hefði uppskerutíminn verið frá enda júní og fram í miðjan nóvember. Á þessu ári byijaði tíma- bilið um miðjan júlí og er útlit fyrir að það endi nú í byijun september. Kolbeinn sagði að uppskerubrest- ur í líkingu við þetta þýddi mikið fjárhagstap fyrir bændur og að útlit væri fyrir að fleiri grænmetistegund- ir fylgdu í kjölfarið færi veður færi ekki hlýnandi. Innbrot í Sigtún 3 Stálu rúmlega 20 tékkheftum TVEIR menn brutust inn í Sigtún 3 í fyrrinótt og spenntu upp hurð- ir að fjórum fyrirtækjum sem þar eru til húsa. Úr einu fyrirtækj- anna tókst þeim að stela rúmlega 20 tékkheftum úr peningaskáp. Rannsóknarlögreglan fékk grein- argóða lýsingu á mönnunum og síðdegis í gær hafði annar þeirra verið handtekinn. Samkvæmt upplýsirigum frá lög- reglunni notuðu mennirnir kúbein til að spenna upp hurðir að fyrirtækj- unum en aðeins var stolið úr einu þeirra, Stefni hf. Þar brutu mennirn- ir upp peningaskáp og tóku úr hon- um tékkheftin. Ekki var stolið úr öðrum fyrirtækjum sem brotist var inn í. Vegfarandi varð var við ferðir mannanna er þeir héldu á brott frá innbrotsstað. Hann gat gefið grein- argóða lýsingu á þeim og bifreið þeirra og vann RLR að rannsókn málsins í gærdag. Morgunblaðið/Þorkell Lögreglan og SVR ígrunnskólana Lögreglan í Reykjavík og Strætisvagnar Reykjavíkur hafa ákveðið að heimsækja alla grunnskóla Reykjavíkur og Seltjarnarness 10.-18. sept- ember nk. Þar verður veitt fræðsla um hvað beri að varast.og hvaða reglum skuli fylgt í umgengni við almenningsvagna. Með þessu vonast SVR og lögreglan til þess að takast megi að draga úr líkum á slysum á skólabörnum í umferðinni Myndin er frá Melaskóla þar sem lögreglu- maður kennir nemendum umgengni við almenningsvagna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.