Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992
9
Hljómsveitin
POPS
býður lesendum
Morgunblaðsins
góðan daginn.
Vaskhugi
Nú er rétti tíminn til að huga að bókhaldinu, en jafnframt hætta
að vinna pappírsvinnuna á þunglamalegan og gamaldags hátt.
Ný, stórglæsileg útgáfa af forritinu Vaskhuga er komin á markað.
Þú sparar mikinn tíma með því að færa tekjur, gjöld og annað í
Vaskhuga. Staða skulda, tekna, vsk, verkefna o.fl. er alltaf á hreinu
og í lok ársins er allt tilbúið fyrir skattskýrsluna. Þetta getur þú
gert án þess að kunna mikið í bókhaldi eða á tölvur, því
Vaskhugi færir sjálfvirkt í DEBET og KREDIT.
Vaskhugi er í notkun um allt land. Hann hentar flestri starfsemi
þar sem kaup og sala eiga sér stað, svo sem hjá verktökum, iðnað-
armönnum, sjoppum, verkfræðingum, svo eitthvað sé nefnt.
Verð á Vaskhugaer kr. 48.000,- sem ersvipað og ein vinnsluein-
ing kostar í eldri kerfum. Vertu velkominn að skoða forritið eða
hringdu í okkur og við sendum bækling um hæl.
Vaskhugi hff.,
Grensásvegi 13, sími682 680.
VORUM AÐ FÁ INN
NÝJAR VÖRUR
Atvinnulíf og skottulækningar
Atvinnulífið er einhæft vegna afskipta stjórnvalda af því og það
hefur leitt til atvinnuleysis. Afskiptin hafa falið í sér höft, einok-
un, sérréttindi, hömlulausa ríkisaðstoð við útv^ldar atvinnugrein-
ar og pólitískar björgunaraðgerðir. Þetta segir í forustugrein
Alþýðublaðsins í gær.
Aflasam-
dráttur
Tilefni forustugreinar
Alþýðublaðsins eru um-
ræður á Alþingi á dögun-
um um atvinnumál, þar
sem stjórnarandstaðan
gagpnýud* ríkisstjórnina
fyrir afskiptaleysi af at-
vinnulífinu. I upphafi for-
ustugreinariiuiar segir
m.a., að í málflutningi
stjórnarandstöðunnar
hafi komið fram sú skoð-
un að ríkisstjómin eigi
að hefja víðtæka sam-
vinnu við atvinnulifið og
bankana í landinu í því
skyni að draga úr at-
vinnuleysi, létta fyrir-
tækjum skuldabyrði og
breyta núverandi gengi.
Alþýðublaðið segir að
Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra hafi bent á að
höfuðorsök vandans væri
afiasamdrátturinn og
ógætileg umgengni við
sjóði og ótæpileg lántaka
gerði landsmönnum enn
erfiðara fyrir. Forsætis-
ráðherra hafi alfarið
hafnað gengisfellingu og
lagt áherzlu á að traustur
efnahagslegur gmnnur
væri eina tryggingin fyr-
ir varanlegu og ásættan-
legu atvinnustigi.
Fortíðar-
hyggja
í forystugrein blaðs-
ins, sem nefnist „Skottu-
lækningar stjómarand-
stöðunnar", segir:
„Kjaminn í málfiutn-
ingi stjómarandstöðunn-
ar er að stjómvöld eigi
að stjóma íslensku at-
vinnulífi. Það er mikil
fortíðarhyggja að ætla,
að ríkisfé bjargi dökkum
horfum í íslensku at-
vinnulifi. Það er atvinnu-
lífið sjálft en ekki ríkið
sem tryggir gmnninn að
efnahagslegri afkomu
okkar. Það er hlutverk
stjómvalda að skapa að-
stæður að heilbrigðu at-
vinnulífi. Það gerir ríkis-
stjóm best með því að
skapa atvinnulífinu nauð-
synlegt frelsi og létta
sem mestum álögum af
fyrirtælg'um svo þau
verði sem arðbæmst og
þar með samkeppnishæf
við erlenda samkeppni.
Sterk fyrirtæki skapa
atvinnnu og grósku i
þjóðlífi. Þau em rauðu
blóðkornin í þjóðarlík-
amanum. Það em þessar
staðreyndir sem stjóm-
arandstaðan hefur ekki
skilið, þegar hún ræðir
atvinnumál á Alþingi eða
í fjölmiðlum.
Skekkt
samkeppni
Ein helsta ástæða þess
að ástandið í atvinnumál-
um er svart þessa stund-
ina er einhæft atvinnulíf
á íslandi. Atvinnulífið er
einhæft vegna þess að
stjómvöld hafa haldið
eðlilegri atvinnuþróun
niðri í áratugi. Einangr-
unarstefnan hefur falið í
sér höft, einokun, sér-
réttindi, hömlulausa rík-
isaðstoð við útvaldar at-
vinnugreinar og pólitisk-
ar björgunaraðgerðir.
Afleiðingin er skekkt
samkeppni, álögur á at-
vinnulíf og einhæf vöm-
framleiðsla og útflutn-
ingur. Pólitísk björgun-
araðgerð sem mistekst
er bætt með nýrri, mis-
heppnaðri pólitískri aö-
gerð. Offramboð á fisk-
mörkuðum erlendis með
lækkuðu fiskverði í kjöl-
farið er bjargað með
gengislækkun. Afieiðing-
in er hins vegar hækk-
andi skuldir þjóðarinnar
erlends og hækkandi
vömverð á innfluttum
vömm sem aftur þýðir
óróleika á atvinnumark-
aði, auknar kaupkröfur
og verðbólguþenslu.
Ömiur dæmi um pólitísk-
ar björgunaraðgerðir
sem komast í hring em
fyrirgreiðslur til ein-
stakra atvinnugrema
eins og landbúnaðarins.
Slíkar fyrirgreiðslur
kalla á offramleiðslu þar
eð neyslumarkaðurinn
tekur ekki lengnr við.
Offramleiðslunni er síð-
an bjargað með nýjum
pólitískum aðgerðum
sem nefnast frystigjöld,
útflutningsbætur og þar
frameftir götunum. Póli-
tískar ákvarðanir í fisk-
veiðistjómun hafa við-
tæk áhrif á atvinnulífið.
Hið óréttláta kvótakerfi
sem loks virðist á undan-
haldi, veitir sægreifum
ókeypis veiðiheimildir
sem mismunar útgerðar-
félögum og byggðarlög-
um. Dæmi em óþijót-
andi.
Pólitísk
stjóraun
Pólitisk stjórnun at-
vinnulifsins er enn lausn-
arorð stjómaríindstöð-
unnar. Það er líkt og
menn hafi ekkert lært
af spilltu sjóðakerfi, loð-
dýra- og fiskeldisævin-
týrum. Enn vill stjómar-
andstaðan stunda skottu-
lækningar fortíðar:
Hækkað andvirði fisk-
sölu á erlendum mörkuð-
um með gengisfellingu,
vaxtabreytingar með
handafli, aukin afskipti
ríkisvalds af atvinnulíf-
inu, nýsköpun atvinnulifs
með valdboði og miðstýr-
ingu. A sama tíma er
sama stjómarandstaða á
móti EES-samningnum
sem opnar íslandi hin
raunverulegu tækifæri
til bata í atvinnu- og
efnahagslifi. Það er von-
andi að stjórnmálaflokk-
ar með slíka stefnuskrá
komist seint til valda á
íslandi. Þetta em ekki
þær lausnir sem íslenskt
atvinnulíf og íslenskt
þjóðfélag þarf á að
halda.“
A AÐEINS KR. 1.750,- - 2.500,-
— Barna-hettupeysur -
- SÍÐAR ÚTPRJÓNSPEYSUR -
- ElNLITAR HERRAPEYSUR -
- OG MARGT FLEIRA -
w
IITSOLUHELGI
Opið
LAUGARDAG OG SUNNUDAG
FRÁ KL. 10.00-16.00.
SlVIIÐSBÚÐ 9,
Garðabæ. SÍMI 641466
LÁTIÐ EKKI HAPP ÚR
HENDI SLEPPA!
Wí
FÖSTUDAGUR T1L FIÁR
IFRYSTIKISTA I
I DAG
Á KOSTNAÐARVERÐI
SÍMINN ER
689400
BYGGT & BÚIÐ
KRINGLUNNI
BYGGTÖBlJIÐ
I KRINGLUNNI
innniiminnimnmn