Morgunblaðið - 11.09.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992
11
Doktorsritgerð um jarð-
og bergfræði Dyrfjalla
LÚÐVÍK Eckardt Gústafsson
varði í janúar síðastliðnum dokt-
orsritgerð um jarðfræði og
bergfræði Dyrfjalla við Freie
Universitat í Berlín.
Titill ritgerðarinnar er Geology
and Petrology of the Dyrfjöll
Central Volcano, Eastern Iceland
(Jarðfræði og bergfræði Dyrfjalla,
megineldstöðvar á Austur-Islandi).
Ritgerðin byggist á niðurstöðum
jarðfræðirannsókna á átta ára
tímabili á Borgarfirði eystra.
í ritgerðinni er sögu eldstöðvar-
innar skipt í fimm meginskeið, frá
myndun grunns úr basaltískum
hraunlögum og þar til eldstöðin
hvarf undir hraunlög frá öðrum
eldstöðvakerfum. Ólíkt því sem
almennt gerist í íslenskum megin-
eldstöðvum virðist enginn gang-
sveimur fylgja þessari eldstöð.
Höfundur kemst m.a. að þeirri nið-
urstöðu að Dyrfjallaeldstöðin hafi
á sínum tíma líklega legið mjög
nálægt gliðnunarbeltinu, eða jafn-
vel utan þess.
Lúðvík er fæddur í Potsdam í
Þýskalandi. Foreldrar hans eru dr.
Theo Gustav Eckardt, fyrrum pró-
fessor í grasafræði og forstöðu-
Skagaströnd
Sýning í
Gallerí
Einbúa
SÝNING á vatnslíta- og blek-
myndum Sigríðar Einars
verður opnuð á morgun,
laugardag, kl. 17 á Skaga-
strönd. Sýningin er í Gallerí
Einbúa (gamla kaupfélaginu)
og stendur til 26. september.
Sigríður stundaði myndlist-
arnám í Academie des Beaux-
Arts et Arts Appliqués í Toulo-
use í Frakklandi frá 1980 til
1982, við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands 1982 til 1986
og í Hochschule fúr bildende
Kunst í Köln í Þýskalandi 1986-
1987.
Sýningin er opin á virkum
dögum kl. 18-22 og um helgar
kl. 14-18.
maður grasafræðigarðs Berlínar,
og Ilse Eckardt húsmóðir. Árið
1978 fluttist Lúðvík til íslands og
varð íslenskur ríkisborgari 1987.
Hann er kvæntur Regínu Eiríks-
dóttur, bókasafns- og upplýsinga-
fræðingi, og eiga þau tvö börn.
Lúðvík hefur kennt ýmsar raun-
greinar á framhaldsskólastigi og
tölvufræði en frá 1989 hefur hann
verið verkefnisstjóri í mengunar-
varnadeild Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur og m.a. annast eftirlit
með loftmengunarmælingum og
vatnsgæðum.
AÐALSAFNAÐARFUNDUR
DIGRANESSÓKNAR
verður haldinn í íþróttahúsinu Digranesi, þriðjudag-
inn 15. september 1992, og hefst klukkan 20:30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kirkjubyggingarmálið.
Önnur mál.
Rétt til fundarsetu hefur allt safnaðarfólk, 16 ára og
eldra.
Hafið persónuskilríki meðferðis.
Sóknarnefndin.
Dr. Lúðvík Eckardt Gústafsson
■ HLJÓMSVEITIN Loðin rotta
leikur í Vestmannaeyjum og
Keflavík um helgina. Á föstudags-
kvöld spilar Rottan á busaballi
Fjölbrautaskólans í Vestmanna-
eyjum en á laugardag verður hald-
ið til Keflavíkur og stigið á svið
veitingahússins Þotunnar. Nýr
trommuleikari verður kynntur, Þor-
steinn Gunnarsson. Hann lék áður
með Stjórninni.
(Fréttatilkynning)
■ LJÓÐSKÁLDIN Sjón og
Bragi Ólafsson, djassmennirnir
Hilmar Jensson rafmagnsgítar-
leikari, Úlfar Haraldsson kontra-
bassaleikari, Matthías Hemstock
trommuleikari og Sigurður Flosa-
son saxófónleikari koma saman í
Djúpinu, kjallara Hornsins við
Hafnarstræti, sunnudagskvöldið
13. september. Dagskráin er tví-
þætt. Fyrst munu skáldin lesa upp
úr verkum sínum við undirleik
kvartettsins og þá ýmist úr síðustu
bókum sínum eða nýrra efni. Hljóm-
sveitin hefur æft upp nokkur tón-
dæmi úr smiðjum manna á borð við
Thelonius Monk og Charlie Ming-
us og í kringum þau spinnur hún
í bland við lestur Braga og Sjón-
ar. Seinni helmingur dagskrárinnar
er svo áframhaldandi leikur kvart-
ettsins án upplestrar. Skemmtunin
hefst upp úr kl. 22.
SKOLANESTISDAGAR
Uringur Bogason stærðfræðingur
Kjarngott skólanesti
- skerpir athygli
DHugis.yHO
Lystug skólasamloka:
Heilhveitibrauð
með skinku og osti.
Gott fyrir alla nemendur
og spaugara!
matur frá morgni til kvölds